Við rauða miðnætursólina
ber grein af tré.
Í skjóli þess liggur íkorni
í hnipri eftir annasaman dag.
Undir rótum trésins
hvíla þær líka
Urður og Skuld,
á meðan Verðandi
situr óróleg í dimmu skoti
og þerrar tár í skikkjuermi.
Hvað gerir örlaganorn
við ótímabærri þungun? |