Fornaldarsögur


Fornaldarsögur

Norðurlanda

.

Ég hef kennt tvö námskeið í íslensku, þar sem fornaldarsögur eru aðaluppistaðan:

Frá tilurð til viðtöku (kennt á MA-stigi 1998)

Fornaldarsögur og -rímur (kennt á BA-stigi 2008)

.

05.40.29 – Fornaldarsögur og -rímur

.

Úr kennsluskrá:

Farið verður ítarlega í fornaldarsögur Norðurlanda og helstu einkenni þeirra. Leitast verður við að kynna rannsóknarsögu fornaldarsagna, nýjustu rannsóknir fræðimanna og tilraunir til flokkunar og skilgreiningar. Flestar fornaldarsögur eru bæði varðveittar í prósa- og rímnaformi, og verða valdar sögur lesnar, ýmist sem prósi eða rímur, og samanburður gerður á framsetningu efnisins í formunum tveimur. Þá verður efniviður sagnanna skoðaður með tilliti til bakgrunns á Norðurlöndum, sem og sagnaminna. Heimsmynd sagnanna verður skoðuð, og staldrað við hugmyndir um vættir af ýmsu kyni, furður og fjölkynngi.

.

Kennsluáætlun:

1. vika

a) Kynning

b) Fornaldarsögur: Inngangur

.

2. vika

a) Fornaldarsagnaefni í munnlegri geymd: 1) efni utan Skandinavíu

b) 2) Efni frá Skandinavíu

.

3. vika

a) Fornaldarsagnaefni á Íslandi

b) Rannsóknarsaga – tegundargreining

.

4. vika

a) Rímur: inngangur

b) Rímur frh. – kvæðaskemmtun

.

5. vika

a) Völsunga saga

b)  frh.

.

6. vika

a)  frh.

b) Hrólfs saga kraka – Bjarkaþáttur

.

7. vika

a) Bjarkarímur

b) Algeng sagnaminni

.

8. vika

a) Úlfhams saga

b) Vargstökur

.

9. vika

a) Heimsmynd fornaldarsagna

b) Hjálmþérs saga og Ölvis

.

10. vika

a) Hjálmþérs rímur

b) Verkefni: framsögn, 1/3 hluti hópsins

.

11. vika

a) frh. 1/3 hluti

b) frh. 1/3 hluti

.

12. vika

a) Konur í fornaldarsögum Norðurlanda

b) Samantekt / Umræður um námsefnið