Forngríska I (GRÍ103G)

Námslýsing (úr kennsluskrá 2014-15):

Í námskeiðinu verður farið yfir beygingarfræði forngrísku (attísku) í meginatriðum svo og undirstöðuatriði setningafræðinnar. Áhersla er lögð á að nemendur læri í námskeiðinu þau atriði sem þeir þurfa til að geta byrjað að lesa og þýða forngríska texta. Æskilegt er að nemendur hafi góðan skilning á íslenskri málfræði.

Fylgt verður 2. útg. kennslubókar Donalds J. Mastronarde. Lögð verður áhersla á meginatriði. Kennt verður þrisvar í viku. Kennslustundir innihalda bæði fyrirlestur sem tekur fyrir afmarkað efni og verkefnavinnu þar sem reynir á virkni nemenda. Valdir textar verða þýddir og skýrðir málfræðilega. Lestur námsefnisins fyrir hvern tíma er nauðsynlegt skilyrði þess að nemendur nái valdi á námsefninu. Hverjum fyrirlestri fylgja glósur kennara, sem settar verða á Uglu.

Tvö próf á misserinu gilda 30% hvort, skilaverkefni gilda samtals 10%, lokapróf gildir 30%.

Gerð verður krafa um lágmarks tímasókn (75%), sem veitir próftökurétt í lokaprófi.

Kennsluáætlun 2014.