Julian Barnes

Julian Barnes. Að endingu. Þýð. Jón Karl Helgason. Reykjavík: Bjartur, 2012.

Tony Webster á að baki farsælan starfsferil og hjónaband sem rann hljóðlega út í sandinn. Hann er sáttur við fortíð sína án þess að leiða oft hugann að henni - allt þar til honum berst bréf frá lögmanni sem neyðir hann til að horfast í augu við sjálfan sig og tvo æskuvini, einn lífs, annan liðinn. Julian Barnes er í hópi snjöllustu núlifandi rithöfunda Bretlands en árið 2011 hlaut hann hin eftirsóttu Booker-verðlaun fyrir þessa áleitnu og hnitmiðuðu bók.

Umfjöllun