{"id":1382,"date":"2025-03-10T16:03:19","date_gmt":"2025-03-10T16:03:19","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/apalsson\/?p=1382"},"modified":"2025-03-10T16:03:19","modified_gmt":"2025-03-10T16:03:19","slug":"silja-bara-for-rector","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/apalsson\/IS\/2025\/03\/10\/silja-bara-for-rector\/","title":{"rendered":"(English) Silja B\u00e1ra for rector"},"content":{"rendered":"<p><\/p>\n<header class=\"article-single__header\">\n<h1>Mann\u00adlegi rektorinn Silja B\u00e1ra<\/h1>\n<div class=\"article-single__meta\"><span class=\"article-single__author\">Arnar P\u00e1lsson skrifar<\/span>\u00a09. mars 2025 08:01 \u00e1 v\u00edsir.is<\/p>\n<div class=\"fb-like\" data-href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/20252698182d\" data-layout=\"button_count\" data-action=\"like\" data-size=\"small\" data-show-faces=\"true\" data-share=\"false\"><\/div>\n<\/div>\n<div><a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/20252698182d\/mannlegi-rektorinn-silja-bara\">Mann\u00adlegi rektorinn Silja B\u00e1ra - V\u00edsir<\/a><\/div>\n<\/header>\n<div class=\"article-single__content \">\n<article>\n<div data-element-type=\"body\" data-element-label=\"Meginm\u00e1l\" data-element-data-type=\"xml\">\n<p>Fyrir dyrum stendur kj\u00f6r til rektors H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. Fimm framb\u00e6rilegir \u00cdslendingar og tveir erlendir ums\u00e6kjendur eru \u00ed kj\u00f6ri. Mest hefur heyrst af m\u00e1lefnum og \u00e1herslum \u00edslendinganna, og lj\u00f3st er a\u00f0 \u00feau eru \u00f6ll h\u00e6f og atorkus\u00f6m. \u00d6ll g\u00e6tu \u00feau sinnt starfi rektors H\u00cd af heillindum og samviskusemi. En \u00ed kosningum \u00fearf a\u00f0 velja og \u00e9g vel Silju B\u00e1ru \u00d3marsd\u00f3ttur.<\/p>\n<p>N\u00e6sta rektors b\u00ed\u00f0a margv\u00edsleg vi\u00f0fangsefni til a\u00f0 efla H\u00cd sem mennta- og ranns\u00f3knarstofnun fyrir \u00edslenskt samf\u00e9lag og fyrirt\u00e6ki. \u00dea\u00f0 felur b\u00e6\u00f0i \u00ed s\u00e9r a\u00f0 s\u00e6kja auki\u00f0 fj\u00e1rmagn og efla innra starf sk\u00f3lans. Mikilv\u00e6gasta \u00e1skorunin er s\u00fa a\u00f0 \u00cdslenskir h\u00e1sk\u00f3lar eru undirfj\u00e1rmagna\u00f0ir mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 OECD og nor\u00f0url\u00f6ndin - sem vi\u00f0 viljum helst mi\u00f0a okkur vi\u00f0. \u00dea\u00f0 hefur veri\u00f0 stefna r\u00edkisins um nokku\u00f0 skei\u00f0 a\u00f0 fj\u00e1rmagna h\u00e1sk\u00f3lana eins og nor\u00f0url\u00f6nd, en vi\u00f0 h\u00f6fum fjarl\u00e6gst \u00fea\u00f0 markmi\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu 5 \u00e1r. Sveltistefnan hefur \u00feau \u00e1hrif a\u00f0 n\u00e1msframbo\u00f0 minnkar, n\u00e1mskei\u00f0 eru kennd \u00f3d\u00fdrar (f\u00e6rri t\u00edmar, f\u00e6rri verkefni e\u00f0a minni snerting vi\u00f0 samf\u00e9lagi\u00f0 e\u00f0a n\u00e1tt\u00faruna) og laun h\u00e1sk\u00f3lakennara hafa l\u00e6kka\u00f0 (hlutfalllega mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 samb\u00e6rilega h\u00f3pa). \u00deetta er neikv\u00e6\u00f0 \u00fer\u00f3un sem hefur \u00feegar leitt til r\u00fdrnunar \u00e1 g\u00e6\u00f0um n\u00e1msins, og veldur m.a. \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingar s\u00e6kja ekki um vinnu vi\u00f0 H\u00cd e\u00f0a af\u00feakka st\u00f6\u00f0ur vegna l\u00e1gra launa. Eina lei\u00f0in til a\u00f0 leysa vandann er \u00e1tak til a\u00f0 auka vitund almennings og stj\u00f3rnm\u00e1lamanna \u00e1 hlutverki og mikilv\u00e6gi h\u00e1sk\u00f3la fyrir \u00edslenskt samf\u00e9lag, b\u00e6\u00f0i menntunar og ranns\u00f3kna. Langt\u00edma vanfj\u00e1rm\u00f6gnun \u00edslenskra h\u00e1sk\u00f3la lei\u00f0ir til verri menntunar sem grefur undan vels\u00e6ld, framlei\u00f0ni og takmarkar framfarir samf\u00e9lags okkar n\u00e6stu \u00e1ratugi. Einnig \u00fearf a\u00f0 taka \u00e1 m\u00e1lum innan H\u00cd. \u00dear er margv\u00edslegur kerfisl\u00e6gur vandi, sem e.t.v. er erfitt fyrir leikmenn a\u00f0 henda rei\u00f0ur \u00e1. \u00cd stuttu m\u00e1li b\u00fdr fj\u00e1rhagslegt deilil\u00edkan til misskiptingu milli eininga sk\u00f3lans, mismunur \u00ed fj\u00e1rm\u00f6gnun ranns\u00f3knarstofnana gerir \u00fea\u00f0 l\u00edka (sumar eru vel studdar en a\u00f0rar illa, jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00e6r s\u00e9u fr\u00e6\u00f0ilega \u00e1\u00feekkar), og einnig ver\u00f0launar \u00f6fugsn\u00fai\u00f0 vinnumatskerfi kennara sem stunda \u00e1kve\u00f0nar ger\u00f0ir ranns\u00f3kna, og refsar hinum. Treyst er \u00e1 einfaldar m\u00e6listikur, b\u00e6\u00f0i \u00ed \u00fatdeilingu \u00e1 fj\u00e1rmagni innan sk\u00f3lans og til hans (n\u00fdja l\u00edkan r\u00e1\u00f0uneytis). En talning \u00e1 birtum ranns\u00f3knargreinum er meing\u00f6llu\u00f0 m\u00e6listika. Fr\u00e1 aldam\u00f3tum hefur H\u00cd breyst \u00ed alv\u00f6ru ranns\u00f3knarh\u00e1sk\u00f3la en v\u00f6xturinn er ekki \u00e1n verkja. \u00c1 me\u00f0an fj\u00f6ldi nemenda hefur tv\u00f6faldast fr\u00e1 aldam\u00f3tum, hefur f\u00f6stum kennurum ekki fj\u00f6lga\u00f0 nema um \u00feri\u00f0jung. \u00ddmsa fleiri annmarka m\u00e6tti taka til, eins og umhverfi erlendra nemenda og kennara, sem og a\u00f0b\u00fana\u00f0 grunnnema og nemendaf\u00e9laga.<\/p>\n<p>H\u00e1sk\u00f3lar eru mikilv\u00e6gir fyrir \u00fej\u00e1lfun n\u00e6stu kynsl\u00f3\u00f0a, og vettvangar grunnranns\u00f3kna og opinnar umr\u00e6\u00f0u um m\u00e1l sem brenna \u00e1 landsm\u00f6nnum og mannkyninu \u00ed heild. \u00dear m\u00e1 nefna loftslags- og umhverfis\u00f3gnir sem geta leitt til hruns si\u00f0menningar manna, en einnig m\u00e1lefni minnihlutah\u00f3pa, samtvinnun \u00fej\u00f3\u00f0a og menningarheima, og n\u00fdlegar sviptingar \u00ed al\u00fej\u00f3\u00f0am\u00e1lum. Silja B\u00e1ra fjallar um ytri a\u00f0st\u00e6\u00f0ur h\u00e1sk\u00f3la og innri m\u00e1l, sem og hugmyndir s\u00ednar til \u00farb\u00f3ta \u00e1 vefs\u00ed\u00f0unni\u00a0<a href=\"http:\/\/www.siljabara.is\/\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">www.siljabara.is<\/a>. H\u00fan b\u00fdr yfir m\u00f6rgum mannkostum sem \u00e9g tel heppilega \u00ed rektor H\u00cd. H\u00fan er sk\u00fdr, yfirvegu\u00f0 og r\u00f6kv\u00eds, jafnt \u00ed kennslustofu, tveggja manna tali og sj\u00f3nvarpsvi\u00f0t\u00f6lum. S\u00e9rstaklega vegur \u00feungt reynsla hennar af opinberum vettvangi, sem og vinna vi\u00f0 stefnum\u00f3tun og samninga. Gildismat hennar er m\u00e9r mikilv\u00e6gt, \u00fev\u00ed h\u00fan setur samf\u00e9lag nemenda og kennara \u00ed forgrunn. H\u00fan \u00feekkir vel \u00f3r\u00e9tti sem ja\u00f0arh\u00f3par eru beittir og jafnr\u00e9ttisbar\u00e1ttu \u00ed v\u00ed\u00f0um skilningi (t.d. h\u00f3pa sem er mismuna\u00f0 kynfer\u00f0is, kynhneig\u00f0ar og uppruna). Reynsla Silju er brei\u00f0, h\u00fan hefur t.d. veri\u00f0 stundakennari vi\u00f0 H\u00cd, forma\u00f0ur Rau\u00f0a krossins \u00e1 \u00cdslandi og fulltr\u00fai \u00ed H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0i. \u00c1 vettvangi H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s m\u00f3tm\u00e6lti h\u00fan \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e1ttm\u00e1lasj\u00f3\u00f0ur var lag\u00f0ur ni\u00f0ur, sem er enn eitt d\u00e6mi um hvernig vanfj\u00e1rm\u00f6gnun hefur skert starfsemi sk\u00f3lans. Rektors \u00fearf a\u00f0 geta tala\u00f0 sk\u00fdrt og af sannf\u00e6ringu, sameina\u00f0 \u00f3l\u00edka h\u00f3pa me\u00f0 grunngildi \u00feekkingarsamf\u00e9lagsins a\u00f0 lei\u00f0arlj\u00f3si. H\u00e1sk\u00f3lar eiga a\u00f0 vera opinn vettvangur samtals og sko\u00f0anaskipta, frj\u00f3tt og frj\u00e1lst umhverfi \u00fear sem vandam\u00e1l eru krufin, metin og lausnir \u00fer\u00f3a\u00f0ar. M\u00fdtan um sterka foringjann \u00e1 ekki vi\u00f0 um h\u00e1sk\u00f3la. \u00c9g tel meira vert a\u00f0 H\u00cd hafi sk\u00fdra, greinda og vanda\u00f0a manneskju \u00ed st\u00f6\u00f0u rektors sem getur \u00fej\u00f3na\u00f0 samf\u00e9lagi h\u00e1sk\u00f3lanemenda, kennara og annarra starfsmanna. Silja B\u00e1ra er sl\u00edk manneskja og sem rektor getur h\u00fan b\u00e6\u00f0i eflt H\u00cd og \u00edslenskt samf\u00e9lag.<\/p>\n<p><i>H\u00f6fundur er l\u00edffr\u00e6\u00f0ingur.<\/i><\/p>\n<\/div>\n<\/article>\n<\/div>\n<p><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Mann\u00adlegi rektorinn Silja B\u00e1ra Arnar P\u00e1lsson skrifar\u00a09. mars 2025 08:01 \u00e1 v\u00edsir.is Mann\u00adlegi rektorinn Silja B\u00e1ra - V\u00edsir Fyrir dyrum stendur kj\u00f6r til rektors H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. Fimm framb\u00e6rilegir \u00cdslendingar og tveir erlendir ums\u00e6kjendur eru \u00ed kj\u00f6ri. Mest hefur heyrst af &hellip; <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/apalsson\/IS\/2025\/03\/10\/silja-bara-for-rector\/\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":132,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-1382","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/apalsson\/IS\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1382","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/apalsson\/IS\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/apalsson\/IS\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/apalsson\/IS\/wp-json\/wp\/v2\/users\/132"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/apalsson\/IS\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1382"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/apalsson\/IS\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1382\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1383,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/apalsson\/IS\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1382\/revisions\/1383"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/apalsson\/IS\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1382"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/apalsson\/IS\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1382"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/apalsson\/IS\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1382"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}