{"id":7,"date":"2010-05-15T08:32:11","date_gmt":"2010-05-15T08:32:11","guid":{"rendered":"http:\/\/uni.hi.is\/armannja\/rannsoknaverkefni\/"},"modified":"2022-03-15T23:37:10","modified_gmt":"2022-03-15T23:37:10","slug":"rannsoknaverkefni","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/uni.hi.is\/armannja\/rannsoknaverkefni\/","title":{"rendered":"Ranns\u00f3knaverkefni"},"content":{"rendered":"<p>N\u00fdlega ritst\u00fdr\u00f0i \u00e9g miklu ranns\u00f3knarriti um \u00edslenskar b\u00f3kmenntir (<strong><a href=\"https:\/\/hib.is\/vara\/islenskar-bokmenntir-i-ii\/\">\u00cdslenskar b\u00f3kmenntir, saga og samhengi, 2021<\/a><\/strong>) sem sex s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingar \u00ed b\u00f3kmenntum settu saman. \u00c9g hef teki\u00f0 a\u00f0 m\u00e9r ritstj\u00f3rn \u00edslensks efnis \u00ed <a href=\"https:\/\/www.litencyc.com\">Literary Encyclopedia<\/a>.<\/p>\n<p>Me\u00f0al annarra st\u00f3ra greinasafna \u00e1 vettvangi norr\u00e6nna fr\u00e6\u00f0a sem \u00e9g hef n\u00fdlega ritst\u00fdrt eru <a href=\"https:\/\/www.degruyter.com\/document\/doi\/10.1515\/9781501513862\/html?lang=en\"><strong>Paranormal Encounters in Iceland<\/strong><\/a> og <strong><a href=\"https:\/\/www.routledge.com\/The-Routledge-Research-Companion-to-the-Medieval-Icelandic-Sagas\/Jakobsson-Jakobsson\/p\/book\/9780367133658\">The Routledge Research Companion to Medieval Icelandic Sagas<\/a><\/strong>.<\/p>\n<p>Ranns\u00f3knarverkefni mitt\u00a0<strong>Tekist \u00e1 vi\u00f0 yfirn\u00e1tt\u00faruna \u00e1 \u00cdslandi \u00e1 mi\u00f0\u00f6ldum<\/strong>\u00a0var styrkt af Ranns\u00f3knami\u00f0st\u00f6\u00f0 \u00cdslands. \u00c9g st\u00fdr\u00f0i \u00feessu verkefni er samstarfsa\u00f0ilar m\u00ednir voru \u00c1sd\u00eds Egilsd\u00f3ttir, Torfi H. Tulinius, Terry Gunnell og Stephen A. Mitchell. Auk \u00feess t\u00f3ku sex doktorsnemar og sex meistaranemar \u00fe\u00e1tt \u00ed verkefninu. Verkefni\u00f0 snerist um hvernig hi\u00f0 yfirn\u00e1tt\u00farulega birtist og er skilgreint \u00e1 mi\u00f0\u00f6ldum \u00e1 \u00cdslandi. Fengist er vi\u00f0 birtingarmyndir \u00feess \u00ed \u00fdmsum mi\u00f0aldatextum, s.s. \u00cdslendingas\u00f6gum, Sturlungu, biskupas\u00f6gum, Snorra-Eddu, eddukv\u00e6\u00f0um og fornaldars\u00f6gum. Megin\u00e1herslan \u00ed verkefninu er annars vegar \u00e1 skilgreiningu og greiningu \u00feess yfirn\u00e1tt\u00farulega, hva\u00f0a hugt\u00f6k voru notu\u00f0 og hva\u00f0 \u00feau merkja. Hins vegar \u00e1 reynslu einstaklinganna og a\u00f0gang \u00feeirra a\u00f0 hinu annarlega og annarsheimslega. Athyglin beinist ekki s\u00edst a\u00f0 tungum\u00e1linu sj\u00e1lfu og hugsuninni. Fengist var vi\u00f0 \u00fdmsar tegundir yfirn\u00e1tt\u00faru og yfirn\u00e1tt\u00farulegrar reynslu (annarsheimsv\u00e6ttir, galdra, kraftaverk, drauma) \u00ed samhengi vi\u00f0 kynfer\u00f0i, t\u00edmahugtaki\u00f0 og samf\u00e9lagi\u00f0. B\u00f3kin\u00a0<a href=\"https:\/\/punctumbooks.com\/titles\/the-troll-inside-you-paranormal-activity-in-the-medieval-north\/\"><strong>The Troll Inside You: Paranormal Activity\u00a0in the Medieval North<\/strong><\/a>\u00a0kom \u00fat hj\u00e1 Punctum Books \u00ed Bandar\u00edkjunum sumari\u00f0\u00a02017, og enn eru greinar a\u00f0 birtast \u00far \u00feessu verkefni.<\/p>\n<p>\u00c9g var a\u00f0ili a\u00f0 Rann\u00eds-verkefninu <strong>Disability Before Disability<\/strong> sem Hanna Bj\u00f6rg Sigurj\u00f3nsd\u00f3ttir var \u00ed forsvari fyrir og f\u00e9kk \u00f6ndvegisstyrk. \u00cd m\u00ednum verk\u00fe\u00e6tti verkst\u00fdr\u00f0i \u00e9g tveimur n\u00fddoktorum sem beina sj\u00f3num s\u00ednum a\u00f0 f\u00f6tlun \u00ed \u00edslenskum mi\u00f0aldatextum. Enn eru greinar a\u00f0 koma \u00fat \u00far \u00feessu verkefni.<\/p>\n<p>Um ranns\u00f3knir m\u00ednar a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti m\u00e1 segja \u00feetta:<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 efni sem mestur t\u00edmi minn hefur fari\u00f0 \u00ed seinustu 15 \u00e1rin e\u00f0a svo eru l\u00edklega <strong>\u00edslenskar konungas\u00f6gur og hugmyndir \u00cdslendinga um konungsvald<\/strong>. Um \u00fea\u00f0 efni hef \u00e9g rita\u00f0 tv\u00e6r b\u00e6kur og fj\u00f6lmargar greinar. \u00datg\u00e1fa m\u00edn og \u00de\u00f3r\u00f0ar Inga Gu\u00f0j\u00f3nssonar \u00e1 Morkinskinnu \u00ed tveimur bindum fyrir Hi\u00f0 \u00edslenzka fornritaf\u00e9lag kom \u00fat \u00e1ri\u00f0 2011. \u00deetta er miki\u00f0 verk, n\u00e6stlengsta rit sem komi\u00f0 hefur \u00fat \u00ed ritr\u00f6\u00f0inni \u00cdslenzk fornrit. B\u00f3k um <strong>\u00cdslendinga\u00fe\u00e6tti<\/strong>, einkum fr\u00e6\u00f0ilegar ranns\u00f3knir og skilgreiningar \u00e1 \u00feeim \u00e1 20. \u00f6ld, \u00ed ritr\u00f6\u00f0inni Studia Islandica kom \u00fat \u00ed j\u00fan\u00ed 2014. <strong>A Sense of Belonging<\/strong> kom \u00fat\u00a0\u00ed september 2014 \u00ed ritr\u00f6\u00f0inni Viking Collection sem er gefin \u00fat \u00ed Odense. A\u00f0 \u00fev\u00ed loknu stefni \u00e9g a\u00f0 riti um \u00edslenskar konungas\u00f6gur, a\u00f0allega fr\u00e1sagnarlist \u00feeirra og hugmyndir. Ekkert sl\u00edkt rit er til enda snerust konungasagnaranns\u00f3knir lengi um fl\u00f3kin textavensl sagnanna fremur en verkin sj\u00e1lf.<\/p>\n<p>\u00cd framhaldi af \u00fe\u00e1ttaranns\u00f3knum m\u00ednum hef \u00e9g talsvert velt fyrir m\u00e9r fr\u00e6\u00f0ilegri n\u00e1lgun vi\u00f0 \u00edslenskar mi\u00f0aldab\u00f3kmenntir og hefur s\u00e1 \u00fer\u00e1\u00f0ur veri\u00f0 \u00e1berandi hj\u00e1 m\u00e9r seinustu \u00e1r. Li\u00f0ur \u00ed \u00fev\u00ed ranns\u00f3knarverkefni m\u00ednu eru skrif m\u00edn um <strong>fr\u00e6\u00f0ilegar \u00fatg\u00e1fur 19. og 20. aldar<\/strong>.<\/p>\n<p>Anna\u00f0 \u00e1berandi ranns\u00f3knarverkefni seinni \u00e1ra er <strong>hi\u00f0<\/strong> <strong>yfirn\u00e1tt\u00farulega \u00ed \u00edslenskum mi\u00f0aldatextum <\/strong>sem \u00e1\u00f0ur var nefnt. \u00deessu tengdur er \u00e1hugi minn \u00e1 <strong>ja\u00f0arf\u00f3lki \u00ed \u00edslenskum textum fyrri alda<\/strong>, s.s. gamalmennum, b\u00f6rnum, ungmennum, \u00fer\u00e6lum, \u00fatlendingum og f\u00f6tlu\u00f0um. \u00c9g hef einkum fengist vi\u00f0 mannsaldrana og hef birt \u00fdmsar greinar um mynd barna, ungmenna og aldra\u00f0ra \u00ed \u00edslenskum heimildum. F\u00f6tlun hefur vaki\u00f0 \u00e1huga minn vegna samvinnuverkefna vi\u00f0 f\u00f6tlunarfr\u00e6\u00f0i \u00ed H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. Stefnt er a\u00f0 b\u00f3k um \u00feetta efni \u00e1ri\u00f0 2019.<\/p>\n<p>Seinasta \u00e1ratug t\u00f3k \u00e9g \u00fe\u00e1tt \u00ed miklu og langvinnu ranns\u00f3knarverkefni um <strong>fornaldars\u00f6gur Nor\u00f0urlanda<\/strong>. \u00c1samt Annette Lassen og Agnetu Ney skipulag\u00f0i \u00e9g \u00ferj\u00fa m\u00e1l\u00feingi um formger\u00f0 og hugmyndafr\u00e6\u00f0i fornaldarsagnanna, um go\u00f0sagnir og veruleika \u00ed \u00feessum flokki sagna og n\u00fa seinast um uppruna og \u00fer\u00f3un fornaldarsagnanna. Miklum vafa er undirorpi\u00f0 hvort h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 l\u00edta \u00e1 fornaldars\u00f6gurnar sem b\u00f3kmenntagrein e\u00f0a undirgrein fornsagna og \u00e9g hef einnig teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed r\u00f6kr\u00e6\u00f0um um \u00fea\u00f0 efni. \u00deessu verkefni lauk \u00e1ri\u00f0 2012. Anna\u00f0 st\u00f3rt samstarfsverkefni sem \u00e9g hef teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed seinni \u00e1r er <strong>Pre-Christian Religions of the North<\/strong>, sj\u00f6 binda ritverk sem unni\u00f0 er a\u00f0 af st\u00f3rum h\u00f3pi fr\u00e6\u00f0imanna fr\u00e1 \u00fdmsum l\u00f6ndum en \u00e1 \u00cdslandi tengjast verkefninu me\u00f0al annars Snorrastofa, Reykjav\u00edkur-Akadem\u00edan og H\u00e1sk\u00f3li \u00cdslands. Sex bindi eru \u00feegar komin \u00fat.<\/p>\n<p>Seinustu misserin hef \u00e9g nokku\u00f0 velt fyrir m\u00e9r <strong>b\u00f3kmenntalegum einkennum \u00cdslendingasagna og annarra fr\u00e1sagnarheimilda sem sagnfr\u00e6\u00f0irita<\/strong>. \u00c9g birti allmargar greinar \u00e1 prent um \u00feetta efni 2014\u201316 \u00fear sem beint er sj\u00f3num a\u00f0 einst\u00f6kum ritum, atbur\u00f0um, s\u00f6gupers\u00f3num og vi\u00f0horfum fr\u00e6\u00f0imanna til \u201esannleikans\u201c \u00ed s\u00f6gunum seinustu aldirnar.<\/p>\n<p>\u00ddmsar ranns\u00f3knir eru \u00ed farvatninu; \u00feeirra er geti\u00f0 \u00e1 ritaskr\u00e1nni \u00feegar ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur koma \u00e1 prent.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>N\u00fdlega ritst\u00fdr\u00f0i \u00e9g miklu ranns\u00f3knarriti um \u00edslenskar b\u00f3kmenntir (\u00cdslenskar b\u00f3kmenntir, saga og samhengi, 2021) sem sex s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingar \u00ed b\u00f3kmenntum settu saman. \u00c9g hef teki\u00f0 a\u00f0 m\u00e9r ritstj\u00f3rn \u00edslensks efnis \u00ed Literary Encyclopedia. Me\u00f0al annarra st\u00f3ra greinasafna \u00e1 vettvangi norr\u00e6nna fr\u00e6\u00f0a &hellip; <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/armannja\/rannsoknaverkefni\/\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":125,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":4,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-7","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/armannja\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/7","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/armannja\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/armannja\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/armannja\/wp-json\/wp\/v2\/users\/125"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/armannja\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7"}],"version-history":[{"count":27,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/armannja\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/7\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":525,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/armannja\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/7\/revisions\/525"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/armannja\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}