{"id":7,"date":"2009-06-29T13:48:02","date_gmt":"2009-06-29T13:48:02","guid":{"rendered":"http:\/\/skrif.hi.is\/astra\/?page_id=5"},"modified":"2025-07-09T10:37:45","modified_gmt":"2025-07-09T10:37:45","slug":"rannsoknir","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/uni.hi.is\/astra\/rannsoknir\/","title":{"rendered":"Ranns\u00f3knir"},"content":{"rendered":"<p><strong><a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/astra\/files\/2010\/10\/translation_theory_practice.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-thumbnail wp-image-275\" src=\"https:\/\/uni.hi.is\/astra\/files\/2010\/10\/translation_theory_practice-150x150.jpg\" alt=\"Translation - theory and practice\" width=\"150\" height=\"150\" \/><\/a><\/strong><\/p>\n<p><strong>Helstu ranns\u00f3knasvi\u00f0:<\/strong><\/p>\n<p><strong>N\u00fat\u00edmab\u00f3kmenntir og b\u00f3kmenntasaga<\/strong><br \/>\nS\u00f6guleg og fr\u00e6\u00f0ileg k\u00f6nnun \u00e1 straumum og stefnum \u00ed b\u00f3kmenntum Vesturlanda og \u00feeim grundvallarhugt\u00f6kum sem notu\u00f0 eru \u00ed \u00feeirri umr\u00e6\u00f0u, einkum m\u00f3dernisma, rauns\u00e6i, fram\u00farstefnu og p\u00f3stm\u00f3dernisma. Jafnframt ranns\u00f3knir \u00e1 samsetningu b\u00f3kmenntas\u00f6gunnar eins og h\u00fan birtist annarsvegar \u00ed b\u00f3kmenntal\u00edfinu og hinsvegar \u00ed \u00feeirri ritu\u00f0u b\u00f3kmenntas\u00f6gu sem fr\u00e6\u00f0imenn setja saman. \u00dear skiptir samspil \u00fej\u00f3\u00f0legra og al\u00fej\u00f3\u00f0legra \u00fe\u00e1tta miklu m\u00e1li sem og v\u00e6gi einstakra b\u00f3kmenntategunda, \u00fe\u00fd\u00f0inga og annarra vi\u00f0t\u00f6kuforma, hef\u00f0arvelda (\u201ekan\u00f3na\u201c) og heimsb\u00f3kmenntahugtaksins.<\/p>\n<p>Hr\u00e6ringar og h\u00f6fundar \u00ed breskum, nor\u00f0ur-amer\u00edskum og \u00edslenskum b\u00f3kmenntum og b\u00f3kmenntum \u00fe\u00fdskrar tungu, einkum \u00e1 19.-21. \u00f6ld. Til d\u00e6mis m\u00e1 nefna Edgar Allan Poe, Virginiu Woolf, James Joyce, Ernest Hemingway, Toni Morrison, Franz Kafka, Bertolt Brecht, Stefan Zweig, G\u00fcnter Grass, Thor Vilhj\u00e1lmsson, Sv\u00f6vu Jakobsd\u00f3ttur, \u00deorstein fr\u00e1 Hamri, Matth\u00edas Johannessen, Gu\u00f0berg Bergsson, Jakob\u00ednu Sigur\u00f0ard\u00f3ttur, Gyr\u00f0i El\u00edasson og Sj\u00f3n, a\u00f0 \u00f3gleymdum \u00fe\u00fd\u00f0ingum Helga H\u00e1lfdanarsonar. Megin\u00e1herslan var lengi vel \u00e1 sagnask\u00e1ldskap en lj\u00f3\u00f0listin hefur s\u00f3tt \u00e1 me\u00f0 \u00e1runum.<\/p>\n<p><strong>\u00de\u00fd\u00f0ingafr\u00e6\u00f0i<\/strong><br \/>\nRanns\u00f3knir \u00e1 \u00fe\u00fd\u00f0ingum fr\u00e1 \u00fdmsum sj\u00f3narhornum. K\u00f6nnun \u00e1 s\u00f6gu \u00fe\u00fd\u00f0inga og \u00fe\u00fd\u00f0ingaumr\u00e6\u00f0u \u00e1 Vesturl\u00f6ndum, athugun \u00e1 \u00fe\u00fd\u00f0ingarferlinu sj\u00e1lfu, \u00fe\u00fd\u00f0ingum einstakra verka (einkum b\u00f3kmenntaverka), st\u00f6\u00f0u \u00fe\u00fd\u00f0inga \u00ed b\u00f3kmenntas\u00f6gunni og menningarkerfinu, me\u00f0al annars me\u00f0 ranns\u00f3knum \u00e1 \u00fe\u00fd\u00f0ingum einstakra erlendra h\u00f6funda \u00e1 \u00edslensku og \u00f6\u00f0rum ummerkjum um st\u00f6\u00f0u \u00feeirra og vi\u00f0t\u00f6kur \u00ed \u00edslensku b\u00f3kmenntal\u00edfi. \u00de\u00fd\u00f0ingafr\u00e6\u00f0in skarast h\u00e9r i\u00f0ulega vi\u00f0 almenna menningarfr\u00e6\u00f0i sem og ranns\u00f3knir \u00e1 menningarheimum tungum\u00e1la og innbyr\u00f0is samskiptum \u00feeirra. \u00de\u00fd\u00f0ingar var\u00f0a miklu fyrir tungum\u00e1l f\u00e1mennra \u00fej\u00f3\u00f0a og m\u00e1lstefnu \u00feeirra.<\/p>\n<p><strong>B\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0i og menningarfr\u00e6\u00f0i<\/strong><br \/>\nEinkum b\u00f3kmenntakenningar \u00e1 20.-21. \u00f6ld. Me\u00f0al helstu vi\u00f0fangsefna eru hr\u00e6ringar \u00ed formalisma, str\u00fakt\u00faralisma, marxisma, fem\u00ednisma, t\u00e1knfr\u00e6\u00f0i, p\u00f3ststr\u00fakt\u00faralisma og vi\u00f0t\u00f6kufr\u00e6\u00f0um. \u00de\u00e1ttur eftirlendufr\u00e6\u00f0a og menningarfr\u00e6\u00f0a hefur veri\u00f0 \u00e1berandi \u00ed ranns\u00f3knum \u00e1 s\u00ed\u00f0ari \u00e1rum. Ranns\u00f3knarafur\u00f0ir \u00e1 \u00feessu svi\u00f0i hafa til \u00feessa einkum birst \u00ed verkum sem falla undir ranns\u00f3knir \u00e1 svi\u00f0i n\u00fat\u00edmab\u00f3kmennta og \u00fe\u00fd\u00f0inga, en athuganir hafa einnig teygst yfir \u00e1 svi\u00f0 eyjafr\u00e6\u00f0a, auk \u00feess sem \u00e1hersla hefur veri\u00f0 l\u00f6g\u00f0 \u00e1 framsetningu og m\u00f3tun sta\u00f0a \u00ed b\u00f3kmenntum og \u00f6\u00f0rum menningarafur\u00f0um.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Helstu ranns\u00f3knasvi\u00f0: N\u00fat\u00edmab\u00f3kmenntir og b\u00f3kmenntasaga S\u00f6guleg og fr\u00e6\u00f0ileg k\u00f6nnun \u00e1 straumum og stefnum \u00ed b\u00f3kmenntum Vesturlanda og \u00feeim grundvallarhugt\u00f6kum sem notu\u00f0 eru \u00ed \u00feeirri umr\u00e6\u00f0u, einkum m\u00f3dernisma, rauns\u00e6i, fram\u00farstefnu og p\u00f3stm\u00f3dernisma. Jafnframt ranns\u00f3knir \u00e1 samsetningu b\u00f3kmenntas\u00f6gunnar eins og h\u00fan birtist annarsvegar \u00ed b\u00f3kmenntal\u00edfinu og hinsvegar \u00ed \u00feeirri ritu\u00f0u b\u00f3kmenntas\u00f6gu sem fr\u00e6\u00f0imenn setja saman. \u00dear skiptir [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":156,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-7","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/astra\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/7","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/astra\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/astra\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/astra\/wp-json\/wp\/v2\/users\/156"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/astra\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7"}],"version-history":[{"count":30,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/astra\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/7\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1280,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/astra\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/7\/revisions\/1280"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/astra\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}