Ferilskrá

Björn Þorsteinsson, doktor í heimspeki, fæddur 23. maí 1967 í Kaupmannahöfn.

Kvæntur Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur menningarfræðingi, rithöfundi og sýningarstjóra; þrjár dætur, Snædís (fædd 1999), Matthildur (fædd 2003) og Lena Charlotta (fædd 2009).

Foreldrar Þorsteinn Vilhjálmsson prófessor emeritus í eðlisfræði og vísindasögu við Háskóla Íslands og Ingibjörg Björnsdóttir fv. fulltrúi í Norræna húsinu í Reykjavík.

Störf við rannsóknir og kennslu

2016–: prófessor í heimspeki við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands

2014–16: lektor í heimspeki við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands

2012–14: sérfræðingur við Heimspekistofnun Háskóla Íslands

2009–12: nýdoktor við Heimspekistofnun Háskóla Íslands

2007–09: sérfræðingur við Heimspekistofnun Háskóla Íslands

2004–14: stundakennsla við Hugvísindasvið og Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, Listaháskóla Íslands og Endurmenntun Háskóla Íslands

Prófgráður

2005: Doktor í heimspeki frá Université Paris VIII (Vincennes-St. Denis) í Frakklandi

2000: D.E.A. í heimspeki frá Université Paris VIII (Vincennes-St. Denis) í Frakklandi

1997: M.A. í heimspeki frá University of Ottawa/Université d’Ottawa í Kanada

1993: B.A. í heimspeki frá Háskóla Íslands

Stjórnunar- og trúnaðarstörf

2022–24 og 2016–18: fulltrúi á Háskólaþingi af hálfu Hugvísindasviðs Háskóla Íslands (varafulltrúi 2018–22)

2022–24: fulltrúi Deildar heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði í jafnréttisnefnd Hugvísindasviðs Háskóla Íslands

2016–20: formaður námsbrautar í heimspeki við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands

2018–20: formaður kennslunefndar Hugvísindasviðs Háskóla Íslands og fulltrúi sviðsins í kennslumálanefnd Háskóla Íslands

2016–17: fulltrúi Sagnfræði- og heimspekideildar í stefnumótunarhópi Hugvísindasviðs Háskóla Íslands

2016–17: formaður stjórnar Útgáfusjóðs Listaháskóla Íslands

2016–17: fulltrúi Hugvísindasviðs í Vísindanefnd Háskóla Íslands

2016–18: formaður fagráðs hugvísinda hjá Rannsóknasjóði Háskóla Íslands

2014–18: annar tveggja fulltrúa Íslands í framkvæmdastjórn samstarfsnetsins COST Action IS1307 New Materialism: Networking European Scholarship on ‘How Matter Comes to Matter’

2014–17 og 2003–12: stjórnarmaður í Norræna fyrirbærafræðifélaginu (Nordisk Selskab for Fænomenologi, Nordic Society for Phenomenology, NoSP)

2015–16: fulltrúi Hugvísindasviðs Háskóla Íslands í nefnd um úttekt á Matskerfi opinberra háskóla

2016: skipuleggjandi  ráðstefnu Norræna fyrirbærafræðifélagsins í Háskóla Íslands 21.–23. apríl

2014–16: formaður stjórnar Heimspekistofnunar Háskóla Íslands

2013: skipuleggjandi ráðstefnu Nordic Network for Kierkegaard Research í Háskóla Íslands 22.–24. maí

2011: skipuleggjandi  ráðstefnu Norræna fyrirbærafræðifélagsins í Háskóla Íslands 28.–30. apríl

2010–17 og 2018–19: stjórnarmaður í Öldu, félagi um sjálfbærni og lýðræði

2010: skipuleggjandi ráðstefnunnar Junctures: Nature within/without in Eastern and Western thought í Háskóla Íslands 28. ágúst

2009: aðalskipuleggjandi ráðstefnunnar Náttúran í ljósaskiptunum í Háskóla Íslands 19. september

2008–10: formaður Félags áhugamanna um heimspeki

2007–08: starfsmaður kennslusviðs Háskóla Íslands við frágang umsóknar HÍ um viðurkenningu til menntamálaráðuneytis

2006: aðalskipuleggjandi ráðstefnu Norræna fyrirbærafræðifélagsins í Háskóla Íslands 21.-23. apríl

2006–08: gjaldkeri Félags áhugamanna um heimspeki

2004–05: verkefnisstjóri á rektorsskrifstofu Háskóla Íslands, m.a. við undirbúning og skipulagningu Háskóla unga fólksins, auk aðstoðarmennsku hjá háskólarektor á sviði rannsókna og ritstarfa

1997–99: gjaldkeri Félags áhugamanna um heimspeki

1994: skipulagði ásamt öðrum ráðstefnu undir yfirskriftinni „Hvað er nútímaheimspeki?“ sem haldin var í Valhöll á Þingvöllum 4. júní

1992–93: ritari Félags áhugamanna um heimspeki

1991–92: formaður Soffíu, félags heimspekinema við Háskóla Íslands

Styrkir og rannsóknaverkefni

2019–24: einn þriggja fulltrúa Hugvísindasviðs Háskóla Íslands í FEINART, Marie Sklodowska Curie-samstarfsneti styrktu af Horizon 2020-áætlun Evrópusambandsins (nánar hér)

2020–23: Þátttakandi í rannsóknarverkefninu „Mobilities on the Margins“, styrktu af Rannsóknasjóði (Rannís)

2018–20: verkefnisstjóri, ásamt Sigríði Þorgeirsdóttur og Donata Schoeller, í rannsóknarverkefninu „Líkamleg gagnrýnin hugsun“, styrktu af Rannsóknasjóði (Rannís)

2013: styrkur frá Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna

2012: starfsstyrkur frá Hagþenki

2009–12: nýdoktorastyrkur frá Háskóla Íslands

2007–09: verkefnisstjóri rannsóknarverkefnisins „Náttúran í ljósi fyrirbærafræði og austurlenskrar heimspeki“, styrkt af Rannís

2006: starfsstyrkur frá Hagþenki

2002: rannsóknanámsstyrkur frá Rannís

1999–2001: styrkur til háskólanáms í Frakklandi frá frönsku ríkisstjórninni (boursier du gouvernement français)

1994–96: styrkir til náms frá University of Ottawa

Ritstjórn

2011–15 og 2017–: í ritnefnd Ritsins, tímarits Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands

2008–10: ritstjóri Ritsins, tímarits Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands (ásamt Gauta Kristmannssyni og Ásdísi R. Magnúsdóttur)

2005–15: ritstjóri Lærdómsrita Hins íslenzka bókmenntafélags (ásamt Ólafi Páli Jónssyni til 2012 og ásamt Eyju Margréti Brynjarsdóttur frá 2014)

2004–07: ritstjóri Hugar: Tímarits um heimspeki

1997–99: ritstjóri hjá Máli og menningu, m.a. við ritstjórn Heimsatlass Máls og menningar

1988–90: í ritstjórn Íslenskrar alfræðiorðabókar Arnar og Örlygs