{"id":1007,"date":"2025-01-08T11:39:46","date_gmt":"2025-01-08T11:39:46","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/?p=1007"},"modified":"2025-02-03T14:55:40","modified_gmt":"2025-02-03T14:55:40","slug":"bladamenn-og-sidareglur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2025\/01\/08\/bladamenn-og-sidareglur\/","title":{"rendered":"Bla\u00f0amenn og si\u00f0areglur"},"content":{"rendered":"<p style=\"text-align: justify\">\u00c1hugavert var a\u00f0 fylgjast me\u00f0 samskiptum Stef\u00e1ns Einars Stef\u00e1nssonar \u00fe\u00e1ttastj\u00f3rnanda Spursm\u00e1la vi\u00f0 si\u00f0anefnd Bla\u00f0amannaf\u00e9lags \u00cdslands (B\u00cd) undir lok s\u00ed\u00f0asta \u00e1rs. Nefndin taldi vi\u00f0 h\u00e6fi a\u00f0 \u201er\u00e9tta\u201c yfir honum vegna kv\u00f6rtunar Salvarar Gullbr\u00e1r \u00de\u00f3rarinsd\u00f3ttur sem var \u00f3s\u00e1tt vi\u00f0 tiltekin umm\u00e6li sem hann mun hafa vi\u00f0haft \u00ed Spursm\u00e1ls\u00fe\u00e6tti sem hann stj\u00f3rna\u00f0i. Umkv\u00f6rtunarefni\u00f0 er frekar l\u00edtilsvert \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi sem byggir \u00e1 tj\u00e1ningarfrelsi og ekki \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 segja fr\u00e1 \u00fev\u00ed frekar. Var Stef\u00e1n Einar hreinsa\u00f0ur af \u00e1vir\u00f0ingum um a\u00f0 hafa me\u00f0 umm\u00e6lum s\u00ednum broti\u00f0 si\u00f0areglur B\u00cd, sbr. \u00farskur\u00f0 nefndarinnar 12. des. sl. \u00c1hugaver\u00f0ari er \u00e1greiningurinn um \u201el\u00f6gs\u00f6gu\u201c si\u00f0anefndar B\u00cd \u00ed m\u00e1linu. Sj\u00f3narmi\u00f0 Stef\u00e1ns Einars var a\u00f0 si\u00f0anefnd B\u00cd hef\u00f0i ekkert yfir honum a\u00f0 segja frekar en F\u00e9lag sm\u00e1b\u00e1taeigenda, enda v\u00e6ri hann ekki \u00ed B\u00cd frekar en hinu s\u00ed\u00f0arnefnda f\u00e9lagi. Allt a\u00f0 einu taldi si\u00f0anefndin a\u00f0 h\u00fan g\u00e6ti fjalla\u00f0 um m\u00e1li\u00f0 efnislega. \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 \u00fdmsum kunni a\u00f0 \u00feykja \u00fea\u00f0 skr\u00fdti\u00f0 a\u00f0 si\u00f0anefnd B\u00cd hafi teki\u00f0 \u00feessa afst\u00f6\u00f0u \u00fe\u00f3tt Stef\u00e1n Einar s\u00e9 ekki \u00ed f\u00e9laginu og hafi hunsa\u00f0 m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0ina fyrir nefndinni. L\u00edtum n\u00e1nar \u00e1 m\u00e1li\u00f0.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">B\u00cd hefur sam\u00feykkt si\u00f0areglur sem fyrr segir og \u00fear starfar si\u00f0anefnd. \u00cd l\u00f6gum B\u00cd segir um nefndina a\u00f0 h\u00fan taki til me\u00f0fer\u00f0ar a\u00f0 fella \u00farskur\u00f0i \u00ed \u00feeim m\u00e1lum, sem henni ber a\u00f0 fjalla um samkv\u00e6mt si\u00f0areglum f\u00e9lagsins. \u00cd 13. gr. si\u00f0areglnanna segir a\u00f0 hver s\u00e1 sem telur a\u00f0 bla\u00f0ama\u00f0ur hafi broti\u00f0 si\u00f0areglurnar og eigi hagsmuna a\u00f0 g\u00e6ta, geti k\u00e6rt \u00e6tla\u00f0 brot til si\u00f0anefndar f\u00e9lagsins. Loks gilda s\u00e9rstakar m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0arreglur um st\u00f6rf si\u00f0anefndar og me\u00f0fer\u00f0 kvartana og kemur \u00fear me\u00f0al annars fram a\u00f0 \u00fe\u00f3tt hvorki \u201ek\u00e6randi\u201c n\u00e9 \u201ek\u00e6r\u00f0i\u201c s\u00e9u me\u00f0limir \u00ed bla\u00f0amannaf\u00e9laginu geti nefndin teki\u00f0 m\u00e1l til me\u00f0fer\u00f0ar. \u00cd \u00farskur\u00f0i nefndarinnar um m\u00e1l Stef\u00e1ns Einars segir me\u00f0al annars, \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 ofangreint, a\u00f0 m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0arreglur taki sk\u00fdrt fram a\u00f0 a\u00f0ild a\u00f0 B\u00cd s\u00e9 engin forsenda \u00feess a\u00f0 si\u00f0anefnd \u00farskur\u00f0i \u00ed m\u00e1lum sem \u00feessum og um \u00fea\u00f0 s\u00e9u \u00f3tal ford\u00e6mi \u00ed fyrri \u00farskur\u00f0um nefndarinnar. \u00deannig taldi nefndin auglj\u00f3slega a\u00f0 h\u00fan g\u00e6ti tala\u00f0 yfir hausam\u00f3tunum \u00e1 Stef\u00e1ni Einari \u00fe\u00f3tt hann hafi ekki veri\u00f0 me\u00f0limur \u00ed f\u00e9laginu.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deegar allt \u00feetta regluverk er lesi\u00f0 s\u00fdnist mega lei\u00f0a af \u00fev\u00ed a\u00f0 nefndin l\u00edti svo \u00e1 a\u00f0 hver s\u00e1 sem telur a\u00f0 bla\u00f0a- e\u00f0a fr\u00e9ttama\u00f0ur, sem fulln\u00e6gir skilyr\u00f0um til a\u00f0 vera \u00ed B\u00cd, hafi broti\u00f0 gegn si\u00f0areglunum geti skoti\u00f0 m\u00e1linu til nefndarinnar. Sem sagt nefndin taldi \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00feetta a\u00f0 h\u00fan g\u00e6ti fjalla\u00f0 efnislega um kv\u00f6rtun Salvarar \u00fe\u00f3tt Stef\u00e1n Einar s\u00e9 ekki f\u00e9lagsma\u00f0ur \u00ed B\u00cd. \u00cd \u00farskur\u00f0i nefndarinn kemur fram a\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed s\u00e9u \u00f3tal ford\u00e6mi a\u00f0 kve\u00f0nir hafi veri\u00f0 si\u00f0fer\u00f0isd\u00f3mar yfir utanf\u00e9lagsm\u00f6nnum ef \u00feeir allt a\u00f0 einu fulln\u00e6gja skilyr\u00f0um til a\u00f0 teljast fr\u00e9tta- e\u00f0a bla\u00f0amenn a\u00f0 mati si\u00f0anefndarinnar. \u00de\u00e1 kemur fram \u00ed s\u00e9ratkv\u00e6\u00f0i \u00c1sgeirs \u00de\u00f3r \u00c1rnasonar a\u00f0 ford\u00e6mi s\u00e9u l\u00edka um hi\u00f0 gagnst\u00e6\u00f0a, enda taldi hann a\u00f0 v\u00edsa \u00e6tti m\u00e1linu fr\u00e1 \u00e1n efnislegar \u00farlausnar. Sem er l\u00edka alveg skynsamleg afsta\u00f0a \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er \u00e1kve\u00f0in skynsemi \u00ed \u00fev\u00ed l\u00edka a\u00f0 si\u00f0nefnd B\u00cd haldi sig vi\u00f0 f\u00e9lagsmenn en s\u00e9 ekki jafnframt a\u00f0 atast \u00ed \u00feeim sem standa utan f\u00e9lagsins.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">N\u00fa \u00e6tla \u00e9g svo sem ekki a\u00f0 taka afst\u00f6\u00f0u til \u00feess hver s\u00e9 r\u00e9tt t\u00falkun \u00e1 m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0arreglum fyrir si\u00f0anefndinni a\u00f0 \u00feessu leyti enda er \u00fea\u00f0 hennar m\u00e1l og f\u00e9lagsins. Um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a nefnd \u00e1 vegum frj\u00e1lsra f\u00e9lagasamtaka sem geta \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r sett s\u00e9r \u00fe\u00e6r reglur sem \u00feeim s\u00fdnist og stofna\u00f0 si\u00f0anefnd til a\u00f0 semja \u00e1lit um \u00e6tla\u00f0a si\u00f0fer\u00f0ilega bresti innan- sem utanf\u00e9lagsmanna, svo lengi f\u00e9lagi\u00f0 e\u00f0a nefndin a\u00f0hefst ekkert sem ekki samr\u00fdmist landsl\u00f6gum. Svo er m\u00f6nnum l\u00edka alveg frj\u00e1lst \u00ed lagalegum skilningi a\u00f0 hunsa nefndina me\u00f0 \u00f6llu, taka ekki \u00fe\u00e1tt \u00ed m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0inni og taka s\u00ed\u00f0an ekkert mark \u00e1 \u00e1liti si\u00f0anefndarinnar ef \u00feeim l\u00edst ekki \u00e1 \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Hitt er \u00e1hugaver\u00f0ari spurning hvort Stef\u00e1n Einar e\u00f0a a\u00f0rir sem eru \u00e1\u00feekkri st\u00f6\u00f0u s\u00e9u ekki samt sem \u00e1\u00f0ur \u201ebundnir\u201c af efnislega samb\u00e6rilegum si\u00f0areglum og \u00feeim sem B\u00cd hefur sett s\u00e9r, \u00feegar \u00feeir gegna st\u00f6rfum s\u00ednum sem bla\u00f0a, fr\u00e9tta- e\u00f0a dagskr\u00e1rger\u00f0armenn \u00f3h\u00e1\u00f0 \u00fev\u00ed hvort \u00feeir eru f\u00e9lagsmenn \u00ed B\u00cd e\u00f0a F\u00e9lagi sm\u00e1b\u00e1taeigenda. \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 flestir bla\u00f0a- og fr\u00e9ttamenn hef\u00f0u tilhneigingu til a\u00f0 svara \u00fev\u00ed j\u00e1tandi, svona almennt s\u00e9\u00f0 \u00fe\u00f3tt \u00feeir kunni eftir atvikum af hafa \u00f3l\u00edka a\u00f0 s\u00fdn \u00e1 hvernig \u00feessar reglur skuli n\u00e1kv\u00e6mlega t\u00falka \u00ed einst\u00f6kum tilfellum.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">M\u00e1li\u00f0 er a\u00f0 si\u00f0areglur B\u00cd og si\u00f0areglur annarra \u00e1\u00feekkra f\u00e9lag \u00ed \u00f6\u00f0rum l\u00f6ndum eru \u00ed st\u00f3rum dr\u00e1ttum bygg\u00f0ar \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0lega vi\u00f0kenndum si\u00f0areglum bla\u00f0a- og fr\u00e9ttamanna. Sem d\u00e6mi m\u00e1 nefna a\u00f0 Al\u00fej\u00f3\u00f0asamt\u00f6k bla\u00f0amanna hafa s\u00ednar si\u00f0areglur, <em>Global Charter of Ethics for Journalists<\/em>, sem bygg\u00f0ar eru \u00e1 \u00fev\u00ed sem \u00e6tla m\u00e1 a\u00f0 s\u00e9 einhvers konar samnefnari fyrir heppilega e\u00f0a \u00e6skilega framg\u00f6ngu bla\u00f0amanna \u00e1 heimsv\u00edsu. Ef si\u00f0areglur B\u00cd eru bornar saman vi\u00f0 \u00feessar si\u00f0areglur Al\u00fej\u00f3\u00f0asamtaka bla\u00f0amanna kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 \u00fe\u00e6r eru \u00ed flestum mikilv\u00e6gustu atri\u00f0um efnislega samb\u00e6rilegar \u00fe\u00f3tt framsetningin s\u00e9 svol\u00edti\u00f0 \u00f3l\u00edk. \u00de\u00e1 \u00feurfa bla\u00f0a- og fr\u00e9ttamenn \u00e1 \u00cdslandi a\u00f0 hafa \u00ed huga l\u00f6g um fj\u00f6lmi\u00f0la nr. 38\/201. \u00dear er a\u00f0 finna \u00fdmsar lagalega bindandi reglur um r\u00e9ttindi og skyldur fj\u00f6lmi\u00f0laveitna sem l\u00fata a\u00f0 ritstj\u00f3rnarlegu sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i bla\u00f0a- og fr\u00e9ttamanna, hlutl\u00e6gni, v\u00f6ndu\u00f0um vinnubr\u00f6g\u00f0um, pers\u00f3nuvernd o.s.frv. Fyrir m\u00f6gulegt brot \u00e1 \u00feeim \u00feurfa fr\u00e9tta- og bla\u00f0amenn og vinnuveitendur \u00feeirra a\u00f0 svara a\u00f0 l\u00f6gum \u00f3h\u00e1\u00f0 a\u00f0ild a\u00f0 B\u00cd e\u00f0a \u00f6\u00f0rum f\u00e9l\u00f6gum. Og a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u allt a\u00f0 teknu tilliti til tj\u00e1ningarfrelsis \u00ed l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegu samf\u00e9lagi sem bla\u00f0a- og fr\u00e9ttam\u00f6nnum ber l\u00edka skylda til a\u00f0 standa v\u00f6r\u00f0 um.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Si\u00f0areglur B\u00cd, \u00fe\u00f3tt vissulega s\u00e9u mikilv\u00e6gar, \u00a0eru sem sagt \u00ed a\u00f0alatri\u00f0um skr\u00e1ning \u00e1 reglum sem hei\u00f0arlegir og grandvarir bla\u00f0a- og fr\u00e9ttamenn telja s\u00e9r (flestir) r\u00e9tt og skylt a\u00f0 fylgja \u00f3h\u00e1\u00f0 f\u00e9lagsa\u00f0ild e\u00f0a annarri st\u00f6\u00f0u. Nokku\u00f0 s\u00fdnist lj\u00f3st a\u00f0 tilkall si\u00f0anefndar til a\u00f0 fjalla um si\u00f0fer\u00f0ilega framg\u00f6ngu bla\u00f0a- og bla\u00f0amanna, \u00f3h\u00e1\u00f0 a\u00f0ild a\u00f0 f\u00e9laginu, er s\u00fa hugmynd a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u allir bundnir af si\u00f0areglunum a\u00f0 \u00fev\u00ed marki sem si\u00f0areglur gata talist bindandi. \u00c9g myndi halda a\u00f0 n\u00e1nast allir fr\u00e9tta- og bla\u00f0amenn l\u00edti svo \u00e1 a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u bundnir af sl\u00edkum reglum og \u00fea\u00f0 eigi l\u00edka vi\u00f0 Stef\u00e1n Einar, \u00fe\u00f3tt \u00e9g au\u00f0vita\u00f0 viti \u00fea\u00f0 ekki fyrir v\u00edst. Breytir \u00fear engu \u00fe\u00f3tt hann vir\u00f0ist ekki hafa miki\u00f0 \u00e1lit \u00e1 B\u00cd og starfsemi \u00feess f\u00e9lags. Af \u00feessu lei\u00f0ir a\u00f0 bla\u00f0a- e\u00f0a fr\u00e9ttamenn geta trau\u00f0la hunsa\u00f0 sl\u00edkar almennar si\u00f0areglur \u00fe\u00f3tt \u00feeir a\u00f0 kj\u00f3si a\u00f0 standa utan f\u00e9laga bla\u00f0amanna. Hitt er l\u00edka um lei\u00f0 r\u00e9ttur Stef\u00e1ns Einars a\u00f0 gera n\u00e1kv\u00e6mlega ekki neitt me\u00f0 B\u00cd og \u00e1lit si\u00f0anefndar f\u00e9lagsins frekar en \u00e1lit F\u00e9lags sm\u00e1b\u00e1taeigenda, ef \u00fat \u00ed \u00fea\u00f0 er fari\u00f0. \u00dea\u00f0 eitt og s\u00e9r gefur m\u00e9r ekki tilefni til a\u00f0 l\u00edta svo \u00e1 a\u00f0 hann telji sig ekki \u00feurfa a\u00f0 fara a\u00f0 almennum vi\u00f0urkenndum si\u00f0fer\u00f0ilegum vi\u00f0mi\u00f0unum sem eiga vi\u00f0 um st\u00f6rf hans. \u00dea\u00f0 sem \u00e9g hef s\u00e9\u00f0 til hans \u00ed Spursm\u00e1lum gefur m\u00e9r heldur ekkert tilefni til a\u00f0 \u00e1lykta a\u00f0 hann s\u00e9 ekki me\u00f0vita\u00f0ur um \u00feetta. Breytir \u00fev\u00ed ekki \u00fe\u00f3tt hann s\u00e9 vi\u00f0m\u00e6lendum s\u00ednum stundum \u00f3\u00fe\u00e6gur lj\u00e1r \u00ed \u00fe\u00fafu. Er \u00fea\u00f0 ekki einmitt mikilv\u00e6gur eiginleiki g\u00f3\u00f0ra fr\u00e9tta- og bla\u00f0amanna?<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\"><em>H\u00f6fundur er pr\u00f3fessor og deildarforseti lagadeildar HA<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1hugavert var a\u00f0 fylgjast me\u00f0 samskiptum Stef\u00e1ns Einars Stef\u00e1nssonar \u00fe\u00e1ttastj\u00f3rnanda Spursm\u00e1la vi\u00f0 si\u00f0anefnd Bla\u00f0amannaf\u00e9lags \u00cdslands (B\u00cd) undir lok s\u00ed\u00f0asta \u00e1rs. Nefndin taldi vi\u00f0 h\u00e6fi a\u00f0 \u201er\u00e9tta\u201c yfir honum vegna kv\u00f6rtunar Salvarar Gullbr\u00e1r \u00de\u00f3rarinsd\u00f3ttur sem var \u00f3s\u00e1tt vi\u00f0 tiltekin umm\u00e6li sem &hellip; <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2025\/01\/08\/bladamenn-og-sidareglur\/\">Continue reading <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1298,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"link","meta":{"footnotes":""},"categories":[759],"tags":[],"class_list":["post-1007","post","type-post","status-publish","format-link","hentry","category-oflokkad","post_format-post-format-link"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1007","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1298"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1007"}],"version-history":[{"count":6,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1007\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1026,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1007\/revisions\/1026"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1007"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1007"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1007"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}