{"id":1091,"date":"2025-07-25T10:41:42","date_gmt":"2025-07-25T10:41:42","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/?p=1091"},"modified":"2026-01-26T17:23:31","modified_gmt":"2026-01-26T17:23:31","slug":"best-i-heimi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2025\/07\/25\/best-i-heimi\/","title":{"rendered":"Best \u00ed heimi \u00ed m\u00e1l\u00fe\u00f3fi!"},"content":{"rendered":"<p style=\"text-align: justify\">\u00c9g hef a\u00f0eins veri\u00f0 a\u00f0 r\u00e1fa um \u00e1 netinu sem og r\u00e1\u00f0f\u00e6ra mig vi\u00f0 gervigreindina til a\u00f0 fr\u00e6\u00f0ast um lengstu m\u00e1l\u00fe\u00f3f s\u00ed\u00f0ari t\u00edma. Samkv\u00e6mt \u00feessari athugun minni er Su\u00f0ur-K\u00f3rea heimsmeistari \u00ed m\u00e1l\u00fe\u00f3fi. Um var a\u00f0 r\u00e6\u00f0a h\u00f3pm\u00e1l\u00fe\u00f3f 39 \u00feingmanna \u00ed 192 klukkustundir \u00e1 \u00e1rinu 2016 um setningu l\u00f6ggjafar um varnir gegn hry\u00f0juverkum. \u00cd \u00feessu st\u00f3rmerka m\u00e1l\u00fe\u00f3fi l\u00e1su \u00fe\u00e1tttakendur me\u00f0al annars upp valda kafla \u00far sk\u00e1lds\u00f6gunni\u00a0<em>1984\u00a0<\/em>eftir George Orwell. \u00a0\u00de\u00e1 var \u00fe\u00e6ft af elju \u00ed h\u00f3pm\u00e1l\u00fe\u00f3fi \u00ed kanad\u00edska \u00feinginu 2011 \u00fear sem 103 \u00feingmenn \u00fe\u00e6f\u00f0u saman \u00ed 58 klukkustundir um vinnul\u00f6ggj\u00f6fina. Er \u00feetta afrek stundum nefnt sem n\u00e6st lengsta m\u00e1l\u00fe\u00f3f \u00e1 s\u00ed\u00f0ari t\u00edmum. \u00de\u00e1 segir gervigreindin fr\u00e1 \u00fev\u00ed sem s\u00f6gulegu m\u00e1l\u00fe\u00f3fi \u00feegar \u00feingma\u00f0urinn Roseller T. Lim \u00e1 \u00feingi Filippseyja tala\u00f0i \u00e1 \u00e1rinu 1963 \u00ed r\u00famlega 18 klukkustundir \u00ed einni lotu til a\u00f0 tefja fyrir a\u00f0 Ferdinand Marcos (s\u00ed\u00f0ar forseta) yr\u00f0i kj\u00f6rinn forseti \u00f6ldungadeildar \u00feingsins. Segir a\u00f0 \u00feingma\u00f0urinn muni hafa \u00f6rmagnast og veri\u00f0 borin \u00fat \u00far \u00feingsalnum \u00e1 sj\u00fakrab\u00f6rum.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Bandar\u00edkjamenn hafa sett mark sitt \u00e1 m\u00e1l\u00fe\u00f3fss\u00f6guna. Kemur \u00fea\u00f0 ef til vill ekki \u00e1 \u00f3vart \u00fev\u00ed \u00ed \u00f6ldungadeild bandar\u00edska \u00feingsins geta menn tala\u00f0 eins lengi og \u00feeir hafa \u00ferek til, en ver\u00f0a \u00fe\u00f3 a\u00f0 tala nokkurn veginn samfellt. \u00deannig tala\u00f0i \u00feingma\u00f0urinn Strom Thurmond samfellt\u00a0 \u00e1 \u00e1rinu 1957 \u00ed r\u00edflega 24 klukkustundir. Hann tala\u00f0i \u00ed r\u00e6\u00f0u sinni gegn auknum borgaralegum r\u00e9ttindum bl\u00f6kkumanna. Sagt er a\u00f0 hann hafi \u00ed sinni l\u00f6ngu og merku r\u00e6\u00f0u lesi\u00f0 mj\u00f6g h\u00e6gt me\u00f0 l\u00f6ngum \u00fe\u00f6gnum \u00e1 milli valda kafla \u00far s\u00edmaskr\u00e1 Su\u00f0ur-Kar\u00f3l\u00ednufylkis, mataruppskriftir\u00a0 og fleira skemmtilegt. Segir sagan jafnframt a\u00f0 hann hafi takmarka\u00f0 innt\u00f6ku v\u00f6kva \u00e1\u00f0ur en hann h\u00f3f r\u00e6\u00f0una til a\u00f0 \u00feurfa ekki a\u00f0 gera hl\u00e9 \u00e1 henni til a\u00f0 kasta af s\u00e9r vatni. \u00deetta var lengsta r\u00e6\u00f0an sem haldin hefur veri\u00f0 \u00ed \u00f6ldungadeild bandar\u00edska \u00feingsins, e\u00f0a \u00feanga\u00f0 til 1. apr\u00edl sl. til \u00feegar \u00a0\u00f6ldungadeildar \u00feingma\u00f0urinn Cory Booker tala\u00f0i \u00ed 25 klukkustundir og 5 m\u00edn gegn stefnu Trump og s\u00e9rstaklega a\u00f0ger\u00f0um Elon Musk til a\u00f0 auka hagr\u00e6\u00f0ingu \u00ed opinberum rekstri. R\u00e9tt eins of Thurmond bj\u00f3 hann sig undir r\u00e6\u00f0una me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 takmarka innt\u00f6ku v\u00f6kva dagana fyrir r\u00e6\u00f0una, og raunar matar einnig, til a\u00f0 \u00feurfa ekki a\u00f0 gera hl\u00e9 \u00e1 r\u00e6\u00f0unni til a\u00f0 sinna kalli n\u00e1tt\u00farunnar.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Segja m\u00e1 fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed framhj\u00e1hlaupi a\u00f0 Thurmond, \u00fe\u00e1 \u00f6ldungadeildar\u00feingma\u00f0ur, t\u00f3k \u00e1 m\u00f3ti \u00edslenskum l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingum \u00ed v\u00edsindafer\u00f0 \u00feeirra til Washington\u00a0 1998. \u00a0Hann var \u00fe\u00e1 96 \u00e1ra og greindi okkur sem vi\u00f0 hann spj\u00f6llu\u00f0um a\u00f0 hann v\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 undirb\u00faa n\u00e6stu kosningabar\u00e1ttu! Hann var 101 \u00e1rs \u00feegar hann l\u00e9t af \u00feingmennsku!<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deegar \u00e9g spur\u00f0i gervigreindina almennt um l\u00f6ng og fr\u00e6g m\u00e1l\u00fe\u00f3f nefndi h\u00fan hvorki Icesave m\u00e1l\u00fe\u00f3fi\u00f0 sem st\u00f3\u00f0 \u00ed samtals 147 klukkustundir n\u00e9 heldur 134 klukkustunda orkupakkam\u00e1l\u00fe\u00f3fi\u00f0. H\u00fan kanna\u00f0ist \u00fe\u00f3 vi\u00f0 b\u00e6\u00f0i \u00feegar h\u00fan var spur\u00f0 um \u00feau s\u00e9rstaklega. Sama \u00e1 vi\u00f0 um m\u00e1l\u00fe\u00f3fi\u00f0 um lei\u00f0r\u00e9ttingu vei\u00f0igjalda, sem n\u00fdlega lauk eftir a\u00f0 hafa sta\u00f0i\u00f0 r\u00edflega \u00ed 160 klukkustundir. Su\u00f0ur-K\u00f3reumenn geta anda\u00f0 l\u00e9ttar \u00fev\u00ed forseti Al\u00feingis beitti 71. gr. \u00feingskaparlaga til a\u00f0 st\u00f6\u00f0va vei\u00f0igjaldam\u00e1l\u00fe\u00f3fi\u00f0 \u00e1\u00f0ur en heimsmet \u00feeirra yr\u00f0i slegi\u00f0. \u00de\u00f3 t\u00f3kst a\u00f0 sl\u00e1 \u00cdslandsmet eins og allir vita. \u00deessi k\u00f6nnun m\u00edn \u00e1 m\u00e1linu skilar sem sagt \u00feeirri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 Al\u00feingi geti n\u00fa \u00feegar st\u00e1ta\u00f0 af \u00feremur af fj\u00f3rum lengstu m\u00e1l\u00fe\u00f3fum s\u00ed\u00f0ari t\u00edma.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">J\u00fa, j\u00fa vissulega \u00fearf a\u00f0 hafa marga fyrirvara \u00e1 svona samanbur\u00f0i, en \u00feetta \u00e6tti \u00fe\u00f3 a\u00f0 gefa nokku\u00f0 g\u00f3\u00f0a v\u00edsbendingu um a\u00f0 \u00feegar kemur a\u00f0 \u00feeirri list a\u00f0 \u00fe\u00e6fa m\u00e1l eru \u00edslenskir stj\u00f3rnarandst\u00f6\u00f0u\u00feingmenn \u00ed h\u00f3pi \u00feeirra bestu \u00ed heimi.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deegar sko\u00f0u\u00f0 eru r\u00f6k me\u00f0 m\u00e1l\u00fe\u00f3fi eru \u00feau helst a\u00f0 m\u00e1l\u00fe\u00f3f auki m\u00f6guleika minnihlutans til \u00e1hrifa enda felist \u00ed \u00fev\u00ed \u00e1kall um brei\u00f0ari samst\u00f6\u00f0u um l\u00f6g sem getur \u00ferengt m\u00f6guleika meirihlutans til a\u00f0 \u00fer\u00f6ngva m\u00e1lum \u00ed gegn me\u00f0 einf\u00f6ldum meirihluta \u00e1n samr\u00e1\u00f0s sem kann a\u00f0 vera \u00e6skilegt \u00ed sumum tilfellum.\u00a0 \u00cd \u00feessum skilningi m\u00e1 segja a\u00f0 beiting m\u00e1l\u00fe\u00f3fs geti \u00fej\u00f3na\u00f0 vissum markmi\u00f0um \u00ed anda l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0is og valddreifingar, \u00fear sem\u00a0 ekki s\u00e9 a\u00f0eins teki\u00f0 mi\u00f0 af fj\u00f6lda atkv\u00e6\u00f0a, heldur einnig \u00fe\u00f6rfinni fyrir samst\u00f6\u00f0u og m\u00f3tv\u00e6gi vi\u00f0, m\u00f6gulega, \u00f3bilgj\u00f6rnu meirihlutar\u00e6\u00f0i \u00fear sem ekkert tillit er teki\u00f0 til andst\u00e6\u00f0ra sj\u00f3narmi\u00f0. A\u00f0rir benda \u00e1 a\u00f0 m\u00e1l\u00fe\u00f3f geti jafnast \u00e1 vi\u00f0 neitunarvald minnihlutans og s\u00e9 \u00ed reynd oft nota\u00f0 \u00ed \u00feeim mi\u00f0ur g\u00f6fuga tilgangi a\u00f0 st\u00f6\u00f0va l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islega og \u00feingr\u00e6\u00f0islega framg\u00f6ngu lagafrumvarpa, jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00feau kunni annars a\u00f0 nj\u00f3ta stu\u00f0nings meirihluta almennings. \u00de\u00e1 geti m\u00e1l\u00fe\u00f3f sem t\u00e6ki til a\u00f0 st\u00f6\u00f0va umb\u00e6tur leitt til st\u00f6\u00f0nunar og torvelda\u00f0 \u00fe\u00e6r. Er \u00fe\u00e1 gjarnan bent \u00e1 m\u00e1l\u00fe\u00f3f gegn borgaralegum r\u00e9ttindum bl\u00f6kkumanna \u00ed Bandar\u00edkjunum sem d\u00e6mi um sl\u00edk neikv\u00e6\u00f0 \u00e1hrif. \u00de\u00e1 er nefnt a\u00f0 m\u00e1l\u00fe\u00f3f geti fali\u00f0 \u00ed s\u00e9r s\u00f3un \u00e1 t\u00edma \u00feingmanna og starfsf\u00f3lks \u00feingsins. \u00c9g fyrir mitt leyti hallast a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00e1l\u00fe\u00f3f hafi miklu fleiri galla en kosti og l\u00edtill s\u00f3mi s\u00e9 af \u00fev\u00ed a\u00f0 vera bestur \u00ed heimi \u00ed \u00feessari grein \u201em\u00e6lskulistar\u201c. \u00c9g er ekki einn um \u00fe\u00e1 sko\u00f0un.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Vegna \u00f3kosta sem m\u00e1l\u00fe\u00f3f hefur fr\u00e1 sj\u00f3narh\u00f3li \u00feingr\u00e6\u00f0is og l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0is hafa fj\u00f6rm\u00f6rg \u00fej\u00f3\u00f0\u00feing \u00ed l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edkjum sett reglur sem mi\u00f0a a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir a\u00f0 \u00feingmenn misnoti m\u00e1lfrelsi sitt \u00e1 \u00feann veg a\u00f0 raunverulegt m\u00e1l\u00fe\u00f3f megi telja. Au\u00f0vita\u00f0 m\u00e1 deila um hven\u00e6r tala\u00f0 hefur veri\u00f0 svo miki\u00f0 a\u00f0 me\u00f0 r\u00e9ttu megi kallast m\u00e1l\u00fe\u00f3f, en varla er \u00e1greiningur um a\u00f0 160 klukkustundir og r\u00edflega 3.400 r\u00e6\u00f0ur er ansi l\u00f6ng og mikil umr\u00e6\u00f0a hvernig sem \u00e1 \u00fea\u00f0 er liti\u00f0, enda er \u00feetta \u00ed n\u00e1munda vi\u00f0 heimsmeti\u00f0.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c1kv\u00e6\u00f0i 71. gr. \u00feingskaparlaga sem beitt var af forseta \u00feingsins til a\u00f0 st\u00f6\u00f0va m\u00e1l\u00fe\u00f3fi\u00f0 um lei\u00f0r\u00e9ttingu vei\u00f0igjalda kve\u00f0ur ekki \u00e1 nein t\u00edmam\u00f6rk. \u00dea\u00f0 getur veri\u00f0 kostur \u00fev\u00ed \u00e1g\u00e6tt er a\u00f0 hafa \u00feann m\u00f6guleika \u00e1kve\u00f0a \u00feetta eftir mikilv\u00e6gi og umfangi m\u00e1la hverju sinni. \u00c1kv\u00e6\u00f0i\u00f0 m\u00e1 aftur \u00e1 m\u00f3ti l\u00edta \u00e1 sem eins konar \u00f6ryggisventil sem forseti getur beitt til a\u00f0 tryggja a\u00f0 \u00feingmenn, sem ekki\u00a0 \u00e1tta sig ekki \u00e1 muninum \u00e1 a\u00f0 neyta r\u00e9ttar s\u00edns til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a m\u00e1l \u00f3hindra\u00f0 eftir \u00fe\u00f6rfum annars vegar og misnotkun \u00e1 \u00feessum r\u00e9tti hins vegar, geti ekki st\u00f6\u00f0va\u00f0 e\u00f0a tafi\u00f0 \u00f3e\u00f0lilega lengi l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islega og \u00feingr\u00e6\u00f0islega framg\u00f6ngu m\u00e1la sem hafa veri\u00f0 \u00edtarlega r\u00e6dd og sem vita\u00f0 er me\u00f0 vissu a\u00f0 sk\u00fdr meirihluti er fyrir me\u00f0al \u00feingmanna og jafnvel \u00feorra almennings ef svo ber undir.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c9g get ekki skilgreint m\u00e1l\u00fe\u00f3f n\u00e1kv\u00e6mlega\u00a0 en \u00e9g \u00feekki \u00fea\u00f0 \u00feegar \u00e9g s\u00e9 \u00fea\u00f0 og heyri, svo s\u00f3tt s\u00e9 \u00ed smi\u00f0ju Potter Stewart h\u00e6star\u00e9ttard\u00f3mara \u00ed Bandar\u00edkjunum sem treysti s\u00e9r ekki til a\u00f0 skilgreina kl\u00e1m en taldi sig me\u00f0 vissu \u00feekkja \u00fea\u00f0 \u00feegar hann s\u00e6i \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c9g er heldur ekki \u00ed nokkrum vafa um a\u00f0 \u00feessi \u00e6tla\u00f0a \u201etakm\u00f6rkun\u201c \u00e1 m\u00e1lfrelsi \u00feingmanna er fullkomlega samr\u00fdmanlega stj\u00f3rnskr\u00e1 \u00cdslands og mannr\u00e9ttindas\u00e1ttm\u00e1la Evr\u00f3pu. \u00c1skil m\u00e9r r\u00e9tt til a\u00f0 r\u00f6ksty\u00f0ja \u00feetta frekar ef tilefni ver\u00f0ur til.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g hef a\u00f0eins veri\u00f0 a\u00f0 r\u00e1fa um \u00e1 netinu sem og r\u00e1\u00f0f\u00e6ra mig vi\u00f0 gervigreindina til a\u00f0 fr\u00e6\u00f0ast um lengstu m\u00e1l\u00fe\u00f3f s\u00ed\u00f0ari t\u00edma. Samkv\u00e6mt \u00feessari athugun minni er Su\u00f0ur-K\u00f3rea heimsmeistari \u00ed m\u00e1l\u00fe\u00f3fi. Um var a\u00f0 r\u00e6\u00f0a h\u00f3pm\u00e1l\u00fe\u00f3f 39 \u00feingmanna \u00ed &hellip; <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2025\/07\/25\/best-i-heimi\/\">Continue reading <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1298,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"link","meta":{"footnotes":""},"categories":[759],"tags":[],"class_list":["post-1091","post","type-post","status-publish","format-link","hentry","category-oflokkad","post_format-post-format-link"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1091","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1298"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1091"}],"version-history":[{"count":8,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1091\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1179,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1091\/revisions\/1179"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1091"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1091"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1091"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}