{"id":1094,"date":"2025-08-03T14:53:11","date_gmt":"2025-08-03T14:53:11","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/?p=1094"},"modified":"2026-03-17T11:39:30","modified_gmt":"2026-03-17T11:39:30","slug":"adild-ad-esb-bakdyramegin","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2025\/08\/03\/adild-ad-esb-bakdyramegin\/","title":{"rendered":"A\u00f0ild a\u00f0 ESB bakdyramegin"},"content":{"rendered":"<p style=\"text-align: justify\">Heims\u00f3kn \u00darsulu von der Leyen, forseta framkv\u00e6mdastj\u00f3rnar ESB, til \u00cdslands \u00e1 d\u00f6gunum var \u00fdmsum stj\u00f3rnm\u00e1lam\u00f6nnum og \u00f6\u00f0rum tilefni til a\u00f0 \u00e1lykta a\u00f0 til st\u00e6\u00f0i a\u00f0 lauma \u00cdslandi inn \u00ed sambandi\u00f0 bakdyramegin og plata \u00fej\u00f3\u00f0ina til a\u00f0ildar. \u00deetta gefur tilefni til a\u00f0 rifja upp nokkur almenn atri\u00f0i um hvernig a\u00f0ildarferli\u00f0 a\u00f0 ESB gengur fyrir sig.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Ferli\u00f0 er \u00ed gr\u00f3fum dr\u00e1ttum tvennskonar. Annars vegar ferli\u00f0 eins og \u00fea\u00f0 horfir vi\u00f0 ESB og hins vegar ferli\u00f0 innanlands \u00e1 \u00cdslandi, sem er fullvalda r\u00edki sem r\u00e6\u00f0ur sj\u00e1lft hvort \u00fea\u00f0 gengur \u00ed ESB. Hi\u00f0 fyrra l\u00fdtur ESB reglum sem \u00cdslendingar hafa ekkert um a\u00f0 segja en hi\u00f0 s\u00ed\u00f0ara \u00edslenskum reglum, en um \u00fe\u00e6r hefur ESB ekkert a\u00f0 segja. Sko\u00f0um \u00feetta m\u00e1l a\u00f0eins n\u00e1nar.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\"><strong>M\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0 innan ESB<\/strong><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00cd\u00a0 49. gr. s\u00e1ttm\u00e1lans um ESB er fjalla\u00f0 um innt\u00f6ku n\u00fdrra r\u00edkja \u00ed sambandi\u00f0. \u00dear kemur fram a\u00f0 s\u00e9rhvert Evr\u00f3pur\u00edki, sem vir\u00f0ir \u00feau gildi sem um getur \u00ed 2. gr. s\u00e1ttm\u00e1lans geti s\u00f3tt um a\u00f0ild a\u00f0 sambandinu. \u00deessi skilyr\u00f0i \u00ed 2. gr. sn\u00faa a\u00f0 vir\u00f0ingu fyrir mannlegri reisn, frelsi, l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i, jafnr\u00e9tti, r\u00e9ttarr\u00edkinu og mannr\u00e9ttindum.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deegar horft er \u00e1 m\u00e1li\u00f0 fr\u00e1 sj\u00f3narh\u00f3li ESB er framkv\u00e6md 49. gr. \u00ed \u00feremur \u00e1f\u00f6ngum. Hi\u00f0 fyrsta var\u00f0ar m\u00f3tt\u00f6ku ums\u00f3knar og fyrstu stig me\u00f0fer\u00f0ar hennar. \u00c1 \u00fev\u00ed stigi er meti\u00f0 hvort r\u00edki uppfyllir skilyr\u00f0i til a\u00f0 geta fengi\u00f0 st\u00f6\u00f0u sem \u201eCandidate State\u201c eins og \u00fea\u00f0 er nefnt \u00e1 ensku. Um \u00feessa st\u00f6\u00f0u hefur veri\u00f0 nota\u00f0 \u00edslenska or\u00f0i\u00f0 \u201eums\u00f3knarr\u00edki\u201c, sem \u00ed raun \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 eftir fyrstu sko\u00f0un \u00e1 ums\u00f3kn er ni\u00f0ursta\u00f0an s\u00fa a\u00f0 r\u00edki fulln\u00e6gir skilyr\u00f0um til a\u00f0 vera m\u00f6gulegt a\u00f0ildarr\u00edki (a\u00f0ildarkandidat, ef svo m\u00e1 segja). \u00a0Ef r\u00edki f\u00e6r \u00feessa st\u00f6\u00f0u \u201eums\u00f3knarr\u00edkis\u201c tekur vi\u00f0 a\u00f0l\u00f6gun a\u00f0 r\u00e9tti sambandsins og vi\u00f0r\u00e6\u00f0ur milli ESB og vi\u00f0komandi r\u00edkis um skilm\u00e1la a\u00f0ildar sem, ef vel gengur, l\u00fdkur me\u00f0 a\u00f0ildarsamningi undirritu\u00f0um af b\u00e1\u00f0um a\u00f0ilum. \u00de\u00e1 tekur vi\u00f0 \u00feri\u00f0ja stigi\u00f0 sem er inntaka e\u00f0a innganga ums\u00f3knarr\u00edkis \u00ed sambandi\u00f0. \u00c1 \u00feessu stigi er tala\u00f0 um \u201einng\u00f6ngur\u00edki\u201c (e. acceding country \/ state).<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">N\u00e1nar felst \u00ed fyrsta stiginu a\u00f0 r\u00edki sem \u00e6skir a\u00f0ildar sendir ums\u00f3kn til r\u00e1\u00f0herrar\u00e1\u00f0s ESB (Council of Ministers) sem felur framkv\u00e6mdastj\u00f3rn ESB a\u00f0 meta hvort r\u00edki uppfylli skilyr\u00f0i til a\u00f0 ver\u00f0a \u201eums\u00f3knarr\u00edki\u201c. Mat framkv\u00e6mdastj\u00f3rnarinnar l\u00fdtur a\u00f0 \u00fev\u00ed hvort svonefnd Kaupmannahafnarvi\u00f0mi\u00f0 fyrir a\u00f0ild s\u00e9u uppfyllt og \u00fear me\u00f0 hvort r\u00edki f\u00e6r st\u00f6\u00f0u \u201eums\u00f3knarr\u00edkis\u201c. \u00deessi skilyr\u00f0i eru af fernum toga, \u00fe.e. \u00ed fyrsta lagi hvort r\u00edki b\u00fai vi\u00f0 st\u00f6\u00f0ugt l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegt stj\u00f3rnkerfi, \u00ed \u00f6\u00f0ru lagi a\u00f0 mannr\u00e9ttt\u00edmindi s\u00e9u virt, \u00ed \u00feri\u00f0ja lagi hvort r\u00edki b\u00fai vi\u00f0 virkt marka\u00f0shagkerfi og \u00ed fj\u00f3r\u00f0a lagi hvort \u00fea\u00f0 hefur getu til a\u00f0 taka upp og framfylgja regluverki ESB (acquis communautaire). Ef skilyr\u00f0i \u00feessi eru talin uppfyllt tekur lei\u00f0togar\u00e1\u00f0i\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um hvort veita skuli r\u00edki st\u00f6\u00f0u \u201eums\u00f3knarr\u00edkis\u201c. \u00dea\u00f0 gerir r\u00e1\u00f0i\u00f0 me\u00f0 samhlj\u00f3\u00f0a \u00e1kv\u00f6r\u00f0un allra a\u00f0ildarr\u00edkjanna. \u00deegar \u00feetta liggur fyrir er r\u00edki or\u00f0i\u00f0 \u201eums\u00f3knarr\u00edki\u201c og a\u00f0ildarvi\u00f0r\u00e6\u00f0ur og a\u00f0l\u00f6gun a\u00f0 regluverki ESB getur hafist.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Ef vel gengur enda \u00feessar vi\u00f0r\u00e6\u00f0ur me\u00f0 samningi um inng\u00f6ngu en s\u00e1 samningur m\u00e6lir n\u00e1nar fyrir um \u00fe\u00e1 skilm\u00e1la inng\u00f6ngu sem ums\u00f3knarr\u00edki\u00f0 og ESB hafa komi\u00f0 s\u00e9r saman um. \u00deegar sl\u00edkur samningur hefur veri\u00f0 undirrita\u00f0ur er vi\u00f0komandi r\u00edki or\u00f0i\u00f0 \u00fea\u00f0 sem nefna m\u00e1 \u201einng\u00f6ngur\u00edki\u201c (Acceding State), sem fyrr segir, sem \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 gert er r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0i fullur a\u00f0ili a\u00f0 sambandinu \u00e1 tilteknum degi. Fr\u00e1 sj\u00f3narh\u00f3li ESB \u00fearf sl\u00edkur samningur sam\u00feykki allra fulltr\u00faa \u00ed r\u00e1\u00f0herrar\u00e1\u00f0inu og meirihluta \u00feingmanna \u00e1 Evr\u00f3pu\u00feinginu (sem kosnir eru beinni kosningu \u00ed \u00f6llum a\u00f0ildarr\u00edkjunum). Loks \u00fearf a\u00f0 sam\u00feykkja inng\u00f6nguna \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0\u00feingum allra a\u00f0ildarr\u00edkja ESB.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\"><strong>M\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0 \u00ed r\u00edki sem s\u00e6kir um<\/strong><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">ESB hefur engar reglur sem segja hvernig r\u00edki taka \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um a\u00f0 s\u00e6kja um a\u00f0ild. Kannski er a\u00f0koma \u00feings \u00ed vi\u00f0komandi r\u00edki nau\u00f0synleg til a\u00f0 s\u00e6kja um, svo sem me\u00f0 l\u00f6ggj\u00f6f til a\u00f0 heimila ums\u00f3kn e\u00f0a eftir atvikum \u00e1lyktanir \u00feings (\u00feings\u00e1lyktun) til a\u00f0 treysta l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegt umbo\u00f0 r\u00edkisstj\u00f3rnar sem vill fara \u00ed sl\u00edkan lei\u00f0angur. Annars sta\u00f0ar er kannski n\u00e6gilegt a\u00f0 r\u00e1\u00f0herra, venjulega utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra (r\u00edkisstj\u00f3rn), skrifi bara br\u00e9f og s\u00e6ki um \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00fe\u00e1 stefnu sem flokkar sem a\u00f0 henni standa hafa bo\u00f0a\u00f0 \u00ed kosningum.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deetta fer sem sagt alfari\u00f0 efir reglum sem gilda \u00ed vi\u00f0komandi r\u00edki e\u00f0a hef\u00f0um og venjum sem \u00fear hafa m\u00f3tast um samskipti vi\u00f0komandi r\u00edkis vi\u00f0 \u00f6nnur r\u00edki e\u00f0a r\u00edkjasamt\u00f6k. Sama \u00e1 vi\u00f0 um val \u00e1 \u00feeim sem koma fram fyrir h\u00f6nd vi\u00f0komandi r\u00edkis \u00ed a\u00f0ildarvi\u00f0r\u00e6\u00f0um, sem og um undirritun a\u00f0ildarsamnings ef til kemur. Loks er \u00fea\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un vi\u00f0komandi r\u00edkis hvort og hvernig sta\u00f0i\u00f0 er a\u00f0 stj\u00f3rnarskr\u00e1rbreytingum ef stj\u00f3rnskipunarreglur r\u00edkis krefjast \u00feess, sem og hvort haldin er \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0sla um samning e\u00f0a ekki. Evr\u00f3pusambandi\u00f0 hefur engar reglur sem binda hendur r\u00edkja um me\u00f0fer\u00f0 sl\u00edkra m\u00e1la heimafyrir. \u00dea\u00f0 treystir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir sem koma fram fyrir h\u00f6nd r\u00edkis hafi til \u00feess stj\u00f3rnskipulegt e\u00f0a p\u00f3lit\u00edskt umbo\u00f0 og hafi heimildir til a\u00f0 undirrita samninga sem ger\u00f0ir eru.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\"><strong>Ferli\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi<\/strong><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00cd 21. gr. \u00edslensku stj\u00f3rnarskr\u00e1rinnar kemur fram a\u00f0 forseti l\u00fd\u00f0veldisins geri samninga vi\u00f0 \u00f6nnur r\u00edki. \u00de\u00f3 geti hann enga sl\u00edka samninga gert, ef \u00feeir hafa \u00ed s\u00e9r f\u00f3lgi\u00f0 afsal e\u00f0a kva\u00f0ir \u00e1 landi e\u00f0a landhelgi e\u00f0a ef \u00feeir horfa til breytinga \u00e1 stj\u00f3rnarh\u00f6gum r\u00edkisins, nema sam\u00feykki Al\u00feingis komi til. Ber \u00feess a\u00f0 geta samningur um a\u00f0ild \u00cdslands a\u00f0 ESB yr\u00f0i ekki bara samningur vi\u00f0 sambandi\u00f0 sem sl\u00edkt heldur um lei\u00f0 hvert og eitt a\u00f0ildarr\u00edki \u00feess.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Hafa m\u00e1 langt m\u00e1l um \u00feetta \u00e1kv\u00e6\u00f0i en til a\u00f0 fl\u00e6kja ekki um of \u00feennan stutta pistil eru \u00ferj\u00fa atri\u00f0i, sem \u00fearf a\u00f0 hafa \u00ed huga. \u00cd fyrsta lagi a\u00f0 r\u00e1\u00f0herra framkv\u00e6mir \u00feetta vald forseta og ber \u00e1 \u00fev\u00ed p\u00f3lit\u00edska \u00e1byrg\u00f0, venjulega utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra. \u00cd \u00f6\u00f0ru lagi gef \u00e9g m\u00e9r a\u00f0 a\u00f0ildarsamningur s\u00e9 \u00feess e\u00f0lis a\u00f0 a\u00f0koma Al\u00feingis s\u00e9 nau\u00f0synlega til a\u00f0 gera \u00fe\u00e6r lagabreytingar \u00ed tilefni af a\u00f0ildarsamningi sem r\u00famast innan stj\u00f3rnarskr\u00e1rinnar til a\u00f0 honum ver\u00f0i komi\u00f0 til framkv\u00e6mda. \u00cd \u00feri\u00f0ja lagi, sem ekki lei\u00f0ir beint af \u00feessu \u00e1kv\u00e6\u00f0i, \u00fearf a\u00f0 breyta stj\u00f3rnarskr\u00e1 til a\u00f0 r\u00fama \u00fea\u00f0 framsal valdheimilda r\u00edkisins til ESB sem a\u00f0ild krefst.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deegar \u00cdsland s\u00f3tti um 2009 var \u00fea\u00f0 gert \u00e1 grundvelli \u00feings\u00e1lyktunartill\u00f6gu \u00fear sem r\u00edkisstj\u00f3rn (utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra) var fali\u00f0 \u00fea\u00f0 verkefni til a\u00f0 s\u00e6kja um. Ums\u00f3knin f\u00f3r til r\u00e1\u00f0herrar\u00e1\u00f0sins sem s\u00ed\u00f0an f\u00f3l framkv\u00e6mdastj\u00f3rninni a\u00f0 meta hvort Kaupmannahafnarvi\u00f0mi\u00f0in v\u00e6ru uppfyllt. \u00deetta gekk nokku\u00f0 grei\u00f0lega fyrir sig \u00fev\u00ed ekki voru uppi neinar efasemdir um st\u00f6\u00f0ugt l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegt stj\u00f3rnarfar \u00e1 \u00cdslandi og a\u00f0 vernd mannr\u00e9ttinda v\u00e6ri \u00ed g\u00f3\u00f0u horfi, me\u00f0al annars me\u00f0 a\u00f0ild a\u00f0 mannr\u00e9ttindas\u00e1ttm\u00e1la Evr\u00f3pu. \u00de\u00e1 voru ekki efasemdir um a\u00f0 \u00cdsland byggi vi\u00f0 n\u00e6gilega virkt marka\u00f0shagkerfi, sem og hef\u00f0i getu til a\u00f0 taka upp og framfylgja regluverki ESB (acquis communautaire), enda h\u00f6f\u00f0u \u00cdslendingar gert \u00fea\u00f0 a\u00f0 st\u00e6rstum hluta \u00e1 grundvelli EES-samningsins hvort sem er. M\u00e1 jafnvel or\u00f0a \u00fea\u00f0 svo a\u00f0 \u00cdslendingar h\u00f6f\u00f0u \u00e1 \u00e1rinu 2009 \u00ed um tvo \u00e1ratugi veri\u00f0 me\u00f0 annan f\u00f3tinn \u00ed ESB. Sem sagt, \u00cdsland f\u00e9kk st\u00f6\u00f0u \u201eums\u00f3knarr\u00edkis\u201c (Candidate State) 17. j\u00fan\u00ed 2010.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00de\u00e1 br\u00e1 svo vi\u00f0 \u00feegar a\u00f0l\u00f6gun og a\u00f0ildarvi\u00f0r\u00e6\u00f0ur voru komnar nokku\u00f0 \u00e1lei\u00f0is a\u00f0 n\u00fd r\u00edkisstj\u00f3rn komst til valda sem hugna\u00f0ist ekki a\u00f0 halda vi\u00f0r\u00e6\u00f0unum \u00e1fram. Skrifa\u00f0i \u00fe\u00e1verandi utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra br\u00e9f til ESB og tilkynna a\u00f0 hann og r\u00edkisstj\u00f3rnin sem hann \u00e1tti s\u00e6ti \u00ed vildi ekki halda vi\u00f0r\u00e6\u00f0unum \u00e1fram. \u00deetta ger\u00f0i r\u00e1\u00f0herrann (r\u00edkisstj\u00f3rnin) \u00e1n \u00feess a\u00f0 afla s\u00e9r \u00feings\u00e1lyktunar fr\u00e1 Al\u00feingi til a\u00f0 bakka \u00feessa \u00e1kv\u00f6r\u00f0un s\u00edna uppi. Hva\u00f0 sem \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0ur vir\u00f0ist sem r\u00e1\u00f0amenn \u00ed ESB hafi skili\u00f0 br\u00e9fi\u00f0 \u00feannig a\u00f0 r\u00edkisstj\u00f3rnin vildi ekki vera \u201eums\u00f3knarr\u00edki\u201c (Candidate State), en ekki \u00feannig a\u00f0 ums\u00f3knin sem sl\u00edk v\u00e6ri dregin til baka. H\u00e9r hefur \u00fev\u00ed m\u00f6gulega or\u00f0i\u00f0 einhver misskilningur milli r\u00e1\u00f0herrans (e\u00f0a r\u00edkisstj\u00f3rnar) \u00e1 \u00feessum t\u00edma annars vegar og ESB hins vegar um hvernig t\u00falka b\u00e6ri \u00feessi br\u00e9faskipti, \u00fe.e. n\u00e1nar tilteki\u00f0 hvort r\u00e1\u00f0herrann vildi draga ums\u00f3knin til baka alfari\u00f0 e\u00f0a bara h\u00e6tta (e\u00f0a fresta) vi\u00f0r\u00e6\u00f0um sem \u201eums\u00f3knarr\u00edki\u201c.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Ekki \u00e6tla \u00e9g a\u00f0 taka afst\u00f6\u00f0u til \u00feess hva\u00f0 r\u00e9tt er og rangt \u00ed \u00feessu, en vil leyfa m\u00e9r a\u00f0 segja h\u00e9r a\u00f0 l\u00edklega skiptir \u00feessi \u00e6tla\u00f0i misskilningur litlu m\u00e1li. \u00c1st\u00e6\u00f0an er s\u00fa a\u00f0 ef \u00fea\u00f0 var \u00a0r\u00e9tt mat r\u00e1\u00f0herrans \u00e1 s\u00ednum t\u00edma, og \u00feeirra l\u00f6gspekinga sem hann haf\u00f0i s\u00e9r til r\u00e1\u00f0gjafar, a\u00f0 hann g\u00e6ti st\u00f6\u00f0va\u00f0 vi\u00f0r\u00e6\u00f0urnar me\u00f0 br\u00e9fi til ESB \u00e1n \u00feess a\u00f0 afla \u00feings\u00e1lyktunartill\u00f6gu til a\u00f0 bakka \u00fe\u00e1 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un uppi, \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 n\u00e6rt\u00e6k \u00e1lyktun a\u00f0 n\u00faverandi utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra geti \u00f3ska\u00f0 eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0r\u00e6\u00f0urnar hefjist a\u00f0 n\u00fdju \u00e1n \u00feessa a\u00f0 endurn\u00fdja hina fyrri \u00feings\u00e1lyktunartill\u00f6gu sem l\u00e1 til grundvallar a\u00f0ildarvi\u00f0r\u00e6\u00f0um \u00e1 s\u00ednum t\u00edma. \u00c1 sama h\u00e1tt ef ESB telur skilyr\u00f0i til a\u00f0 halda vi\u00f0r\u00e6\u00f0um vi\u00f0 \u00cdsland \u00e1fram sem ums\u00f3knarr\u00edki er \u00fea\u00f0 varla \u00e1 valdi \u00cdslendinga a\u00f0 segja sambandinu til um hvernig \u00fea\u00f0 \u00e1 a\u00f0 t\u00falka s\u00ednar eigin reglur a\u00f0 \u00feessu leyti. Me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um ef ESB er tilb\u00fai\u00f0 a\u00f0 til halda vi\u00f0r\u00e6\u00f0um \u00e1fram vi\u00f0 \u00cdsland sem \u201eums\u00f3knarr\u00edki\u201c \u00fea\u00f0an sem fr\u00e1 var horfi\u00f0 og n\u00faverandi r\u00edkisstj\u00f3rn \u00cdslands er til \u00ed \u00fea\u00f0 (og utanr\u00edkism\u00e1lanefnd \u00feingins er uppl\u00fdst) \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur ekki s\u00e9\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 geti veri\u00f0 eitthva\u00f0 rangt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 fr\u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0r\u00e9ttarlegu sj\u00f3narmi\u00f0i. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri auk \u00feess haganlegt fyrir alla a\u00f0ila a\u00f0 \u00feurfa ekki a\u00f0 endurtaka \u00fea\u00f0 sem \u00feegar hefur veri\u00f0 gert ef \u00fea\u00f0 getur sta\u00f0i\u00f0 l\u00edtt e\u00f0a \u00f3breytt. \u00de\u00f3 er ekkert \u00fev\u00ed til fyrirst\u00f6\u00f0u a\u00f0 halda \u00e1fram p\u00f3lit\u00edskum \u00e1greiningi um hvort og hvernig r\u00e9tt s\u00e9 a\u00f0 standa a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f3ska eftir a\u00f0 hefja vi\u00f0r\u00e6\u00f0ur a\u00f0 n\u00fdju.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">A\u00f0 lokum skal nefnt a\u00f0 enn minna m\u00e1li skiptir \u00feetta \u00feegar til \u00feess er liti\u00f0 a\u00f0 r\u00edkisstj\u00f3rnin \u00a0hefur bo\u00f0a\u00f0 a\u00f0 haldin ver\u00f0i \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0sla \u00e1 \u00e1rinu 2027 um hvort halda eigi \u00e1fram vi\u00f0r\u00e6\u00f0um vi\u00f0 ESB um a\u00f0ild \u00cdslands (n\u00fa e\u00f0a bara s\u00e6kja um aftur ef svo ber undir). Ef \u00fej\u00f3\u00f0in er til \u00ed \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegt umbo\u00f0 r\u00edkisstj\u00f3rnar til a\u00f0 halda vi\u00f0r\u00e6\u00f0um \u00e1fram varla sk\u00fdrara. \u00a0\u00de\u00e1 hefur r\u00edkisstj\u00f3rnin einnig l\u00fdst \u00fev\u00ed a\u00f0 bo\u00f0a\u00f0 ver\u00f0i aftur til \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0slu um a\u00f0ildarsamning ef til \u00feess kemur a\u00f0 hann ver\u00f0i kl\u00e1ra\u00f0ur. Loks er \u00fea\u00f0 svo a\u00f0 til a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 ganga \u00ed ESB \u00fearf a\u00f0 breyta \u00edslensku stj\u00f3rnarskr\u00e1nni og setja \u00ed hana \u00e1kv\u00e6\u00f0i sem r\u00famar \u00fea\u00f0 framsal valdheimilda r\u00edkisins til sambandsins sem af a\u00f0ild lei\u00f0ir. \u00de\u00e1 eiga vi\u00f0 \u00e1kv\u00e6\u00f0i \u00ed 79. gr. stj\u00f3rnarsk\u00e1rinnar sem \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 sl\u00edk breyting \u00e1 stj\u00f3rnarskr\u00e1 getur ekki teki\u00f0 gildi fyrr en h\u00fan hefur veri\u00f0 sam\u00feykkt \u00e1 tveimur \u00feingum me\u00f0 kosningum til Al\u00feingis \u00e1 milli. Au\u00f0vita\u00f0 koma til greina mismunandi \u00fatf\u00e6rslur \u00e1 \u00feessu \u00ed framkv\u00e6md svo ekki \u00feurfi a\u00f0 bo\u00f0a kj\u00f3sendur \u00e1 kj\u00f6rfund oftar en nau\u00f0synlegt er. \u00cd \u00f6llu falli ver\u00f0ur aldrei komist hj\u00e1 Al\u00feingiskosningum \u00e1\u00f0ur en breyting \u00e1 stj\u00f3rnarskr\u00e1 getur teki\u00f0 gildi og a\u00f0ild a\u00f0 ESB ver\u00f0i \u00fear me\u00f0 m\u00f6guleg.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Af framangreindu m\u00e1 r\u00e1\u00f0a a\u00f0 lei\u00f0in inn \u00ed ESB er alltaf um a\u00f0aldyrnar og aldrei \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0in s\u00e9 h\u00f6f\u00f0 me\u00f0 \u00ed r\u00e1\u00f0um.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\"><em>H\u00f6fundur er pr\u00f3fessor vi\u00f0 lagadeild HA og doktor \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0ar\u00e9tti.<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Heims\u00f3kn \u00darsulu von der Leyen, forseta framkv\u00e6mdastj\u00f3rnar ESB, til \u00cdslands \u00e1 d\u00f6gunum var \u00fdmsum stj\u00f3rnm\u00e1lam\u00f6nnum og \u00f6\u00f0rum tilefni til a\u00f0 \u00e1lykta a\u00f0 til st\u00e6\u00f0i a\u00f0 lauma \u00cdslandi inn \u00ed sambandi\u00f0 bakdyramegin og plata \u00fej\u00f3\u00f0ina til a\u00f0ildar. \u00deetta gefur tilefni til &hellip; <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2025\/08\/03\/adild-ad-esb-bakdyramegin\/\">Continue reading <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1298,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"link","meta":{"footnotes":""},"categories":[759],"tags":[],"class_list":["post-1094","post","type-post","status-publish","format-link","hentry","category-oflokkad","post_format-post-format-link"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1094","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1298"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1094"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1094\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1196,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1094\/revisions\/1196"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1094"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1094"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1094"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}