{"id":1147,"date":"2025-10-21T14:34:52","date_gmt":"2025-10-21T14:34:52","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/?p=1147"},"modified":"2025-10-26T14:35:44","modified_gmt":"2025-10-26T14:35:44","slug":"laxness-a-nattbordinu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2025\/10\/21\/laxness-a-nattbordinu\/","title":{"rendered":"Laxness \u00e1 n\u00e1ttbor\u00f0inu"},"content":{"rendered":"<p style=\"text-align: justify\">Fr\u00e9ttir herma a\u00f0 Laxness s\u00e9 \u00e1 \u00fatlei\u00f0 \u00far grunn- og framhaldssk\u00f3lum landsins. Sj\u00e1lfur las \u00e9g \u00cdslandsklukkuna fyrir landspr\u00f3f, sem var n\u00e1m sem krakkar stundu\u00f0u 15-16 \u00e1ra g\u00f6mul \u00ed \u00fe\u00e1 daga til a\u00f0 komast \u00ed menntask\u00f3la. N\u00fa er \u00feetta t\u00edundi bekkur \u00ed grunnsk\u00f3la. Man \u00feetta vel \u00fev\u00ed m\u00e9r fannst \u00cdslandsklukkan svo skemmtileg. \u00cd MT minnir mig a\u00f0 okkur samnemendum hafi veri\u00f0 gert a\u00f0 lesa Gerplu og m\u00f6gulega fleiri s\u00f6gur eftir Laxness sem n\u00e1msefni \u00ed \u00edslensku. Man \u00feetta \u00fe\u00f3 ekki gl\u00f6ggt, enda las \u00e9g Laxness miki\u00f0 \u00e1 menntask\u00f3la\u00e1runum af f\u00fasum og frj\u00e1lsum vilja hvort sem er, svo fr\u00e1b\u00e6r rith\u00f6fundur sem m\u00e9r fannst hann vera.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00cd \u00fe\u00e1 daga er \u00e9g s\u00f3tti menntask\u00f3la var algengt a\u00f0 ungir menn gortu\u00f0u sig af \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa lesi\u00f0 Laxness og \u00e1kve\u00f0in samkeppni var \u00ed gangi me\u00f0al \u00feeirra um \u00fea\u00f0 hver hef\u00f0i lesi\u00f0 mest og hver hef\u00f0i flestar tilv\u00edsanir \u00ed Laxness \u00e1 valdi s\u00ednum, helst me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 herma eftir sk\u00e1ldinu. \u00deetta \u00e1tti s\u00ed\u00f0ur vi\u00f0 um st\u00falkurnar sem almennt h\u00f6f\u00f0u minni \u00e1huga \u00e1 N\u00f3belssk\u00e1ldinu en piltarnir. Til a\u00f0 standa sig \u00ed samkeppninni \u00e1ttu sumir \u00feessara ungu manna \u00fea\u00f0 til a\u00f0 segjast hafa lesi\u00f0 a\u00f0eins meira \u00ed Laxness en r\u00e9tt var ef strangt er fari\u00f0 \u00ed sakirnar.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">N\u00fa eru \u00feessir fyrrum sk\u00f3lapiltar \u00e1 vir\u00f0ulegum aldri og \u00e9g s\u00e9 suma \u00feeirra \u00feusa \u00e1\u00a0f\u00e9sb\u00f3kinni\u00a0yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 Laxness s\u00e9 \u00e1 \u00fatlei\u00f0 \u00far sk\u00f3lum landsins. Grunar mig a\u00f0 einhverjir \u00feeirra hafi \u00ed gegnum \u00e1rin n\u00e1\u00f0 a\u00f0 sannf\u00e6ra sj\u00e1lfa sig um a\u00f0 \u00feeir hafi \u00feegar lesi\u00f0 \u00fdmislegt \u00ed Laxness sem \u00feeir eiga eftir a\u00f0 lesa. \u00deetta er a\u00f0 einhverju leyti skiljanlegt \u00feegar Laxness \u00e1 \u00ed hlut \u00fev\u00ed ma\u00f0ur g\u00e6ti vel haldi\u00f0 a\u00f0 ma\u00f0ur hef\u00f0i lesi\u00f0 sumt eftir hann sem ma\u00f0ur hefur \u00ed raun aldrei lesi\u00f0. \u00c1st\u00e6\u00f0an er s\u00fa a\u00f0 margar pers\u00f3nur \u00far b\u00f3kum hans eru \u00feekktari en b\u00e6kurnar sj\u00e1lfar. \u00deannig telja margir sig g\u00f3\u00f0kunningja Bjarts \u00ed Sumarh\u00fasum \u00fe\u00f3tt \u00feeir hafi \u00ed raun aldrei lesi\u00f0 Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk. Svo er Bjartur \u00ed Sumarh\u00fasum erkit\u00fdpa, eins konar frumger\u00f0 hins forpoka\u00f0a\u00a0homo\u00a0sapiens. Til a\u00f0 mynda sag\u00f0i m\u00e9r amer\u00edskur a\u00f0d\u00e1andi Laxness, a\u00f0 \u00e9g held b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ingur e\u00f0a rith\u00f6fundur, sem dvaldi langdv\u00f6lum \u00ed st\u00fadentakjallaranum vi\u00f0 Hringbraut, \u00fear sem \u00e9g starfa\u00f0i um kv\u00f6ld og helgar sem dyrav\u00f6r\u00f0ur\u00a0me\u00f0 fram\u00a0h\u00e1sk\u00f3lan\u00e1mi m\u00ednu \u00ed s\u00f6gu, heimspeki og l\u00f6gum, a\u00f0 \u00fe\u00fasundir sl\u00edkra Bjarta byggju \u00ed N\u00fdju J\u00f3rv\u00edk. Sj\u00e1lfur \u00feekki \u00e9g nokkra sem b\u00fasettir eru \u00ed Rang\u00e1r\u00feingi Ytra.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Vitaskuld voru \u00fea\u00f0 vonbrig\u00f0i fyrir mig a\u00f0 lesa fr\u00e9ttir um a\u00f0 Laxness v\u00e6ri \u00e1 \u00fatlei\u00f0 \u00far sk\u00f3lum landsins, \u00fe\u00f3tt mig r\u00e1mi raunar \u00ed a\u00f0 \u00e1\u00feekk fr\u00e9tt hafi birst \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum fyrir nokkrum \u00e1rum. \u00deessi vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 r\u00e1\u00f0ast eflaust af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem ma\u00f0ur telur hafa gagnast s\u00e9r, og hafi jafnvel m\u00f3ta\u00f0 mann \u00e1 j\u00e1kv\u00e6\u00f0an h\u00e1tt, hlj\u00f3ti a\u00f0 vera gott fyrir a\u00f0ra l\u00edka, ef ekki nau\u00f0synlegt. Fer \u00feetta mat eflaust eftir \u00fev\u00ed hva\u00f0 ma\u00f0ur telur sj\u00e1lfan sig vel heppna\u00f0an fr\u00e1 menntav\u00edsindalegu sj\u00f3narmi\u00f0i og hversu st\u00f3ran \u00fe\u00e1tt skyldulestur \u00e1 Laxness kann a\u00f0 eiga \u00ed \u00fev\u00ed mati.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">En svo hugsar ma\u00f0ur m\u00e1li\u00f0 n\u00e1nar. \u00de\u00e1 ver\u00f0ur ni\u00f0ursta\u00f0an s\u00fa a\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 er Laxness ekki \u00f3missandi frekar en a\u00f0rir dau\u00f0legir menn \u00feegar kemur a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vinna a\u00f0 m\u00e1l- og b\u00f3kmennta\u00feroska ungd\u00f3msins \u00ed landinu. \u00cd \u00fev\u00ed sambandi m\u00e1 vekja athygli \u00e1 a\u00f0 Laxness sj\u00e1lfur n\u00e1\u00f0i \u00feessum \u00feroska s\u00ednum langt umfram samt\u00edmamenn s\u00edna \u00fe\u00f3tt hann hafi ekki \u00e1tt \u00feess kost \u00e1 unga aldri a\u00f0 lesa sj\u00e1lfan sig sem fullm\u00f3ta\u00f0an rith\u00f6fund. Aukinheldur entist hann ekki einu sinni \u00ed menntask\u00f3la til a\u00f0 kl\u00e1ra st\u00fadentspr\u00f3f svo miki\u00f0 l\u00e1 honum \u00e1 a\u00f0 fara \u00fat \u00ed heim a\u00f0 skrifa b\u00f3kmenntir. Hann las \u00fev\u00ed heldur ekki sem menntask\u00f3lanemi fyrir pr\u00f3f \u00fe\u00e6r heimsb\u00f3kmenntir sem \u00ed \u00fe\u00e1 daga voru taldar nau\u00f0synlegar hverjum manni sem nokkrum \u00feroska vildi n\u00e1 \u00e1 svi\u00f0i b\u00f3kmennta.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Sem a\u00f0d\u00e1andi Laxness vinn \u00e9g gegn \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00e6kur hans rykfalli me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 halda \u00e1fram \u00fev\u00ed sem \u00e9g hef gert me\u00f0 hl\u00e9um \u00ed \u00e1ratugi, sem er a\u00f0 hafa hverju sinni a\u00f0 minnsta kosti eina b\u00f3k eftir hann \u00ed b\u00f3kastaflanum \u00e1 n\u00e1ttbor\u00f0inu m\u00ednu, en \u00fear eru jafnan nokku\u00f0 margar b\u00e6kur. \u00c1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00feessu er s\u00fa a\u00f0 \u00e9g er enn \u00fe\u00e1 a\u00f0 reyna a\u00f0 l\u00e6ra af Laxness a\u00f0 skrifa vel. \u00deegar og ef \u00fea\u00f0 tekst \u00e6tla \u00e9g a\u00f0 ver\u00f0a rith\u00f6fundur.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deegar \u00feetta er skrifa\u00f0 er\u00a0Innansveitarkronika\u00a0\u00e1 n\u00e1ttbor\u00f0inu m\u00ednu, en h\u00fan kom \u00fat fyrir 55 \u00e1rum. \u00c9g teygi mig eftir b\u00f3kinni, l\u00fdk henni upp af hendingu og les \u00fear sem segir af Finnbj\u00f6rgu eiginkonu \u00d3lafs Magn\u00fassonar \u00e1 Hr\u00edsbr\u00fa.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u201eEinginn\u00a0\u00feekti hana, vegfarendur h\u00f6f\u00f0u aldrei s\u00e9\u00f0 hana, sumir dr\u00f3gu af l\u00edkum a\u00f0 sl\u00edk kona v\u00e6ri ekki til. Innansveitarmenn h\u00f6f\u00f0u \u00fe\u00f3 margir s\u00e9\u00f0 hana\u00a0fyr\u00a0\u00e1 \u00e1rum \u00feegar h\u00fan gekk um h\u00fas s\u00edn,\u00a0stilt\u00a0\u00ed or\u00f0f\u00e6ri en t\u00f3k \u00e1 \u00f6llu af r\u00f6ggsemi, samt me\u00f0 nokkrum h\u00e6tti gestur\u00a0heimahj\u00e1\u00a0sj\u00e1lfri s\u00e9r, enda \u00e6ttu\u00f0 a\u00f0 nor\u00f0an; \u00fej\u00f3\u00f0sk\u00e1ldi\u00f0 \u00e1\u00a0B\u00e6s\u00e1\u00a0sem \u00fe\u00fdddi\u00a0Milton\u00a0og\u00a0Klopstock\u00a0ku\u00a0hafa veri\u00f0 \u00f6mmubr\u00f3\u00f0ir hennar. Hvernig barst h\u00fan a\u00f0 nor\u00f0an og giftist \u00d3lafi \u00e1 Hr\u00edsbr\u00fa? Um \u00fea\u00f0 fara ekki s\u00f6gur. Einst\u00f6ku ma\u00f0ur mundi svo\u00a0l\u00e1ngt\u00a0a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 konu \u00feessa f\u00e6gja glj\u00e1\u00fej\u00f6ppu\u00f0 moldarg\u00f3lfin \u00e1 Hr\u00edsbr\u00fa me\u00f0 \u00e1lftarv\u00e6ng fyrir j\u00f3l.\u00a0Kanski\u00a0haf\u00f0i vilpan \u00ed\u00a0b\u00e6ardyrunum\u00a0sem\u00a0einginn\u00a0vissi hennar d\u00fdpt \u00e1samt fora\u00f0inu fyrir framan hla\u00f0st\u00e9ttirnar or\u00f0i\u00f0 henni ofjarl. Dag nokkurn um \u00fea\u00f0 bil sem b\u00f6rn hennar voru vel komin \u00e1 legg lag\u00f0ist h\u00fan \u00ed k\u00f6r og reis ekki upp s\u00ed\u00f0an; en k\u00f6r hefur veri\u00f0 ein mikilsver\u00f0ust \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsstofnun \u00e1 \u00cdslandi fr\u00e1 \u00fev\u00ed land\u00a0byg\u00f0ist. \u00dea\u00f0 var sagt a\u00f0 konan v\u00e6ri b\u00fain a\u00f0 liggja \u00e1tj\u00e1n \u00e1r \u00ed k\u00f6rinni.\u201c<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">N\u00fa fer a\u00f0 styttast \u00ed a\u00f0 j\u00f3lin n\u00e1lgist! Vi\u00f0 blasir a\u00f0 \u00feeir sem \u00e1hyggjur hafa af brotthvarfi Laxness \u00far sk\u00f3lum vinna best gegn m\u00f6gulegum neikv\u00e6\u00f0um \u00e1hrifum \u00feess \u00e1 ungvi\u00f0i \u00feessa lands me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa st\u00e1lpu\u00f0um b\u00f6rnum og barnab\u00f6rnum b\u00e6kur Laxness \u00ed j\u00f3lagj\u00f6f. \u00deeir geta meira segja gefi\u00f0 \u00feeim b\u00e6kurnar sem \u00feeir eiga \u00ed s\u00ednu eigin safni og hafa kannski ekki lesi\u00f0 lengi. Me\u00f0 \u00feessu geta \u00feeir stu\u00f0la\u00f0 a\u00f0 g\u00f3\u00f0ri menntun barnanna, sj\u00e1lfb\u00e6rni og sparna\u00f0i. Svo m\u00e1 nefna a\u00f0 f\u00e1tt er skemmtilegra vi\u00f0 b\u00f3klestur en a\u00f0 lesa einmitt l\u00fanar b\u00e6kur sem bera \u00feess merki a\u00f0 hafa veri\u00f0 lesnar oft og vel.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\"><em>H\u00f6fundur er doktor \u00ed l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i og pr\u00f3fessor vi\u00f0 lagadeild H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Akureyri\u00a0<\/em><\/p>\n<p><em>Eyjan 24. okt\u00f3ber 2025<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fr\u00e9ttir herma a\u00f0 Laxness s\u00e9 \u00e1 \u00fatlei\u00f0 \u00far grunn- og framhaldssk\u00f3lum landsins. Sj\u00e1lfur las \u00e9g \u00cdslandsklukkuna fyrir landspr\u00f3f, sem var n\u00e1m sem krakkar stundu\u00f0u 15-16 \u00e1ra g\u00f6mul \u00ed \u00fe\u00e1 daga til a\u00f0 komast \u00ed menntask\u00f3la. N\u00fa er \u00feetta t\u00edundi bekkur &hellip; <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2025\/10\/21\/laxness-a-nattbordinu\/\">Continue reading <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1298,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"link","meta":{"footnotes":""},"categories":[759],"tags":[],"class_list":["post-1147","post","type-post","status-publish","format-link","hentry","category-oflokkad","post_format-post-format-link"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1147","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1298"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1147"}],"version-history":[{"count":8,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1147\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1155,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1147\/revisions\/1155"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1147"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1147"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1147"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}