{"id":1157,"date":"2025-11-18T13:16:14","date_gmt":"2025-11-18T13:16:14","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/?p=1157"},"modified":"2025-11-18T13:16:35","modified_gmt":"2025-11-18T13:16:35","slug":"dyr-mundi-trump-allur-ef-svo-skyldi-aera-hans","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2025\/11\/18\/dyr-mundi-trump-allur-ef-svo-skyldi-aera-hans\/","title":{"rendered":"D\u00fdr mundi Trump allur, ef svo skyldi \u00e6ra hans"},"content":{"rendered":"<p style=\"text-align: justify\">\u00cd Sturlungu er a\u00f0 finna \u00deorgils s\u00f6gu og Hafli\u00f0a, \u00fear sem segir fr\u00e1 go\u00f0or\u00f0smanninum Hafli\u00f0a M\u00e1ssyni, fr\u00e1 Brei\u00f0ab\u00f3lssta\u00f0 \u00ed Vesturh\u00f3pi og deilum hans vi\u00f0 \u00deorgils Oddason. Lenti \u00feeim saman og meiddist Hafli\u00f0i \u00e1 hendi. Spruttu af \u00fev\u00ed m\u00e1laferli \u00e1 Al\u00feingi og vildi Hafli\u00f0i b\u00e6tur fyrir sem skyldu ver\u00f0a \u00feessar:<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u201e\u00c1tta tigu hundra\u00f0a \u00feriggja \u00e1lna aura v\u00f6ruvirt f\u00e9, l\u00f6nd \u00ed Nor\u00f0lendingafj\u00f3r\u00f0ungi, gull ok silfur, austr\u00e6nan varning, j\u00e1rnsm\u00ed\u00f0i; r\u00edflegir gripir \u00feeir er eigi t\u00e6kju minna en k\u00fagildi, geldir hestar, \u00fev\u00ed at einu gra\u00f0ur hestur ef mer fylgdi, ekki hross eldra en t\u00f3lf vetra og eigi yngra en \u00ferevett. Gjalddagi \u00e1 f\u00e9nu fyrir b\u00fa\u00f0ardurum Hafli\u00f0a e\u00f0a f\u00e6ra honum heim en hann sj\u00e1lfur vir\u00f0a allt f\u00e9i\u00f0.\u201c<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">M\u00e6lti \u00fe\u00e1 Skafti \u00de\u00f3rarinsson, \u00feessi or\u00f0 sem fleyg hafa or\u00f0i\u00f0 s\u00ed\u00f0an: \u201eD\u00fdr mundi Hafli\u00f0i allur, ef svo skyldi hver limur.\u201c<\/p>\n<h3 style=\"text-align: justify\">Trump og BBC<\/h3>\n<p style=\"text-align: justify\">N\u00fdlega b\u00e1rust fr\u00e9ttir af \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingar Trumps hef\u00f0u sent BBC formlegt br\u00e9f \u00fear sem \u00feeir krefjast b\u00f3ta vegna \u00e6tla\u00f0s \u00e6rumei\u00f0andi efnis sem st\u00f6\u00f0in sendi \u00fat. Deilan sn\u00fdst um \u00e1varp Trumps til stu\u00f0ningsmanna sinna \u00feann 6. jan\u00faar 2021, \u00feegar h\u00f3pur \u00feeirra r\u00e9\u00f0st inn \u00ed \u00feingh\u00fasi\u00f0 \u00e1 Capitol Hill eftir tap hans gegn Joe Biden forsetakosningunum 2020. BBC haf\u00f0i klippt saman b\u00fata \u00far r\u00e6\u00f0unni \u00feannig a\u00f0 hin um\u00fer\u00e6tta setning hlj\u00f3ma\u00f0i svo: \u201eWe\u2019re going to walk down to the Capitol and I\u2019ll be there with you, and we fight. We fight like hell.\u201c<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">BBC hefur vi\u00f0urkennt a\u00f0 \u00feessi \u201eklipping\u201c hafi kannski ekki gefi\u00f0 alveg r\u00e9tta mynd af hlutunum og d\u00f3mgreind \u00feeirra sem klipptu hafi ekki veri\u00f0 upp \u00e1 \u00fea\u00f0 besta \u00feann daginn, sem au\u00f0vita\u00f0 er ekki gott fyrir svo vir\u00f0ulegan mi\u00f0il. Trump telur \u00e6ru s\u00edna svo illa leikna vegna \u00feessa a\u00f0 tj\u00f3ni\u00f0 nemi a\u00f0 minnsta kosti einum milljar\u00f0i dollara. Gert er r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 m\u00e1li\u00f0 ver\u00f0i h\u00f6f\u00f0a\u00f0 \u00ed Fl\u00f3r\u00edda ver\u00f0i grei\u00f0slan ekki innt af hendi, \u00fear sem l\u00f6g um m\u00e1lsh\u00f6f\u00f0unarfresti \u00ed m\u00e1lum af \u00feessu tagi \u00ed Bretlandi hamla m\u00e1lsh\u00f6f\u00f0un \u00fear \u00ed landi.<\/p>\n<h3 style=\"text-align: justify\">M\u00e1laferli v\u00edtt og breytt<\/h3>\n<p style=\"text-align: justify\">Trump hefur lengi \u00e1tt \u00ed \u00fatist\u00f6\u00f0um vi\u00f0 fj\u00f6lmi\u00f0la og \u00fatgefendur, einkum \u00ed Bandar\u00edkjunum. N\u00e6r \u00feessi saga langt aftur og h\u00f3fst raunar l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur en hann var\u00f0 forseti. H\u00e9r er a\u00f0eins pl\u00e1ss til a\u00f0 nefna \u00fea\u00f0 helsta fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ustu misserum.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c1 \u00e1rinu 2020 h\u00f6f\u00f0a\u00f0i kosningateymi Trump m\u00e1l gegn New York Times og Washington Post vegna lei\u00f0ara um \u00e6tlu\u00f0 tengsl hans vi\u00f0 R\u00fassa. \u00cd \u00feessum m\u00e1lum voru ger\u00f0ar kr\u00f6fur um b\u00e6tur upp \u00e1 a\u00f0 minnsta kosti 100 millj\u00f3nir dollara. B\u00e1\u00f0um m\u00e1lunum var v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1 \u00e1rin 2021 og 2023.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c1 \u00e1rinu 2024 stefndi Trump ABC News og fr\u00e9ttamanninum George Stephanopoulos vegna umm\u00e6la um a\u00f0 hann hef\u00f0i s\u00e6tt \u00e1byrg\u00f0 a\u00f0 einkar\u00e9tti fyrir nau\u00f0gun og v\u00edsa\u00f0 \u00fear til d\u00f3ms \u00ed einkam\u00e1li E. Jean Carroll gegn Trump \u00fear sem hann var talinn bera b\u00f3ta\u00e1byrg\u00f0 gagnvart henni fyrir kynfer\u00f0islega misnotkun e\u00f0a \u00e1reitni. M\u00e1linu lauk me\u00f0 samkomulagi \u00fear sem ABC greiddi Trump 16 millj\u00f3nir dollara, me\u00f0al annars til forsetasafns hans. Sl\u00edk s\u00f6fn eru reist fyrrum forsetum Bandar\u00edkjanna til d\u00fdr\u00f0ar, l\u00edkt og R\u00f3mverjar reistu hofi\u00f0 Aedes Divi Iulii til d\u00fdr\u00f0ar J\u00fal\u00edusi Sesar. Reistu \u00feeir raunar fleiri keisurum sl\u00edk hof.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c1ri\u00f0 2025 stefndi Trump CBS News og Paramount Global vegna vi\u00f0tals vi\u00f0 Kam\u00f6lu Harris sem hafi veri\u00f0 ritst\u00fdrt \u00feannig a\u00f0 Trump fannst hann sm\u00e1na\u00f0ur. \u00cd m\u00e1linu ger\u00f0i hann upphaflega kr\u00f6fu um b\u00e6tur upp \u00e1 20 milljar\u00f0a dollara sem hann s\u00ed\u00f0an gaf 10 milljar\u00f0a dollara afsl\u00e1tt af. M\u00e1linu lauk me\u00f0 grei\u00f0slu upp \u00e1 16 millj\u00f3nir dollara til Trumps sem einnig rann \u00ed forsetasafns hans. Vert a\u00f0 geta \u00feess a\u00f0 CBS og Paramount vi\u00f0urkenndu enga \u00fe\u00f3 enga s\u00f6k \u00ed m\u00e1linu en vildu greinilega losna undan h\u00f3tunum Trumps og afskiptum hans af st\u00f6rfum \u00feeirra.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">S\u00ed\u00f0ar sama \u00e1r h\u00f6f\u00f0a\u00f0i Trump m\u00e1l gegn Wall Street Journal vegna greinar sem birt var Wall Street Journal (WSJ) grein \u00ed j\u00fali sl. \u00fear sem fullyrt var a\u00f0 Trump hef\u00f0i \u00e1 \u00e1rinu 2003 sent Jeffrey Epstein afm\u00e6liskort sem me\u00f0 kynfer\u00f0islegum sk\u00edrskotunum og skissu af nakinni konu. Trump vill f\u00e1 10 milljar\u00f0a dollara \u00ed b\u00e6tur fyrir \u00feetta.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00cd september b\u00e6tti hann svo um betur og stefndi b\u00e6\u00f0i New York Times Company og Penguin Random House fyrir \u00fea\u00f0 sem hann kallar \u201ekerfisbundna mei\u00f0andi umfj\u00f6llun\u201c og b\u00f3kina Lucky Loser \u00fear sem Trump f\u00e6r harla h\u00e1\u00f0ulega \u00fatrei\u00f0. H\u00e9r telur hann ekki duga minna en 15 milljar\u00f0a dollara til a\u00f0 b\u00e6ta honum ska\u00f0ann.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Loks stendur Trump Media &amp; Technology Group, sem rekur samf\u00e9lagsmi\u00f0ilinn Truth Social, \u00ed m\u00e1laferlum vi\u00f0 tug fj\u00f6lmi\u00f0la, me\u00f0al annars Newsweek og Guardian, vegna fr\u00e9tta sem s\u00f6g\u00f0u fyrirt\u00e6ki Trumps hafa tapa\u00f0 73 millj\u00f3num dala. F\u00e9lagi\u00f0 segir fr\u00e1s\u00f6gnina uppspuna og krefst samsvarandi fj\u00e1rh\u00e6\u00f0ar \u00ed b\u00e6tur.<\/p>\n<h3 style=\"text-align: justify\">Herna\u00f0ur gegn fj\u00f6lmi\u00f0lum<\/h3>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deessi endurteknu m\u00e1laferli ver\u00f0a t\u00e6past sk\u00fdr\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed einu a\u00f0 um s\u00e9 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a pers\u00f3nulega vi\u00f0leitni Trumps til a\u00f0 hreinsa mannor\u00f0 sitt. M\u00e1laferlin l\u00edta margir \u00e1 sem hluta af v\u00ed\u00f0t\u00e6kari herna\u00f0i hans gegn frj\u00e1lsri fj\u00f6lmi\u00f0lun og tj\u00e1ningarfrelsinu. Vegna \u00feess hvernig tj\u00e1ningarfrelsis\u00e1kv\u00e6\u00f0i bandar\u00edsku stj\u00f3rnarskr\u00e1rinnar hefur veri\u00f0 t\u00falka\u00f0 fyrir d\u00f3mst\u00f3lum \u00fear \u00ed landi eru \u00feessar m\u00e1ls\u00f3knir aftur \u00e1 m\u00f3ti ekki l\u00edklegar til \u00e1rangurs og umkraf\u00f0ar b\u00e6tur raunar f\u00e1r\u00e1nlegar. \u00cd besta falli m\u00e1 gera r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 einhverjir \u00feessara mi\u00f0la geri vi\u00f0 hann s\u00e1tt l\u00edkt og raki\u00f0 er a\u00f0 framan, til a\u00f0 freista \u00feess a\u00f0 hann l\u00e1ti \u00fe\u00e1 \u00ed fri\u00f0i vi\u00f0 st\u00f6rf \u00feeirra, a\u00f0 minnsta kosti um sinn, og baki \u00feeim ekki frekari ama og kostna\u00f0 en komist ver\u00f0ur hj\u00e1. Engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur m\u00e1 gera r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00feessar m\u00e1ls\u00f3knir hafi mikil f\u00e6lingar\u00e1hrif \u00e1 fj\u00f6lmi\u00f0la og s\u00e9u til \u00feess fallnar a\u00f0 skapa \u00f3tta, sem og lei\u00f0a af s\u00e9r aukna sj\u00e1lfsritsko\u00f0un \u00feeirra, einkum minni fj\u00f6lmi\u00f0la sem ekki hafa fj\u00e1rhagslega getu til a\u00f0 standa upp \u00ed h\u00e1rinu forsetanum \u00ed d\u00f3ms\u00f6lum landsins e\u00f0a bj\u00f3\u00f0a honum s\u00e1ttagrei\u00f0slur til a\u00f0 r\u00f3a hann.<\/p>\n<h3 style=\"text-align: justify\">\u00c6ra metin \u00e1 billj\u00f3nir!<\/h3>\n<p style=\"text-align: justify\">Hva\u00f0 sem l\u00ed\u00f0ur h\u00e6ttunni sem tj\u00e1ningar- og fj\u00f6lmi\u00f0lafrelsi stafar af \u00feessum herna\u00f0i Trumps gegn frj\u00e1lsum fj\u00f6lmi\u00f0lum er lj\u00f3st a\u00f0 ver\u00f0i\u00f0 \u00e1 \u00e6ru hans nokku\u00f0 h\u00e1tt. Ef \u00feessar fj\u00e1rh\u00e6\u00f0ir sem nefndar eru a\u00f0 framan eru lag\u00f0ar saman og heildartalan n\u00e1mundu\u00f0 ni\u00f0ur \u00ed n\u00e6sta milljar\u00f0 getum vi\u00f0 sagt a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 36 milljar\u00f0ar dollara. Ef \u00feeirri fj\u00e1rh\u00e6\u00f0 er umbreytt \u00ed \u00edslenskar kr\u00f3nur (mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 gengi dagsins) nemur h\u00fan 4,554,720,000,000 \u00edslenskra kr\u00f3na. Fyrir \u00fe\u00e1 sem eru ekki l\u00e6sir \u00e1 \u00feessa t\u00f6lu, \u00fe\u00e1 er h\u00fan skrifu\u00f0 \u00fat me\u00f0 b\u00f3kst\u00f6fum svona: fj\u00f3rar billj\u00f3nir fimm hundru\u00f0 fimmt\u00edu og fj\u00f3rir milljar\u00f0ar sj\u00f6 hundru\u00f0 og tuttugu millj\u00f3nir kr\u00f3na.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">H\u00e9r eiga vi\u00f0, a\u00f0 breyttu breytanda, or\u00f0 Skafta \u00de\u00f3rarinssonar: \u201eD\u00fdr mundi Trump allur ef svo skyldi \u00e6ra hans.\u201c<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\"><em>H\u00f6fundur er pr\u00f3fessor \u00ed l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 HA.<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd Sturlungu er a\u00f0 finna \u00deorgils s\u00f6gu og Hafli\u00f0a, \u00fear sem segir fr\u00e1 go\u00f0or\u00f0smanninum Hafli\u00f0a M\u00e1ssyni, fr\u00e1 Brei\u00f0ab\u00f3lssta\u00f0 \u00ed Vesturh\u00f3pi og deilum hans vi\u00f0 \u00deorgils Oddason. Lenti \u00feeim saman og meiddist Hafli\u00f0i \u00e1 hendi. Spruttu af \u00fev\u00ed m\u00e1laferli \u00e1 Al\u00feingi &hellip; <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2025\/11\/18\/dyr-mundi-trump-allur-ef-svo-skyldi-aera-hans\/\">Continue reading <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1298,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"link","meta":{"footnotes":""},"categories":[759],"tags":[],"class_list":["post-1157","post","type-post","status-publish","format-link","hentry","category-oflokkad","post_format-post-format-link"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1157","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1298"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1157"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1157\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1158,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1157\/revisions\/1158"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1157"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1157"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1157"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}