{"id":1183,"date":"2026-02-11T15:06:20","date_gmt":"2026-02-11T15:06:20","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/?p=1183"},"modified":"2026-02-17T16:54:42","modified_gmt":"2026-02-17T16:54:42","slug":"hvarfsdalur-atkvaedisrettur-i-veidifelagi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2026\/02\/11\/hvarfsdalur-atkvaedisrettur-i-veidifelagi\/","title":{"rendered":"D\u00f3mur um atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9tt \u00ed vei\u00f0if\u00e9lagi"},"content":{"rendered":"<p>&nbsp;<\/p>\n<p>I<\/p>\n<p>Hinn 17. desember sl. var kve\u00f0inn upp d\u00f3mur \u00ed\u00a0 H\u00e6star\u00e9tti \u00ed m\u00e1li nr. 16\/2025 (H ehf. gegn B ehf - m\u00e1l nr. 16\/2025). \u00cd m\u00e1linu var deilt um hvort j\u00f6r\u00f0inni Hvarfsdal fylgdi atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9ttur \u00ed Vei\u00f0if\u00e9lagi B\u00fa\u00f0ardals\u00e1r.<\/p>\n<p>Vei\u00f0if\u00e9lag B\u00fa\u00f0ardals\u00e1r tekur til allra jar\u00f0a sem eiga land a\u00f0 vatnasvi\u00f0i \u00e1rinnar. \u00de\u00e6r eru Barmur, B\u00fa\u00f0ardalur I og B\u00fa\u00f0ardalur II sem eru \u00ed eigu \u00e1fr\u00fdjanda H ehf. og Hvarfsdalur, Hvalgrafir og Tindar, sem eru \u00ed eigu stefnda, B ehf. Me\u00f0 samningi fr\u00e1 2007 haf\u00f0i stefndi teki\u00f0 \u00e1 leigu allan r\u00e9tt til stangvei\u00f0i \u00ed \u00e1nni sem gilda skyldi til 30. september 2017. Teki\u00f0 var fram \u00ed samningnum a\u00f0 yr\u00f0i honum ekki sagt upp a\u00f0 leigut\u00edma loknum skyldi hann framlengjast sj\u00e1lfkrafa til eins \u00e1rs \u00ed senn.<\/p>\n<p>\u00c1greininginn er rekja til atkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0slu \u00e1 framhaldsa\u00f0alfundi f\u00e9lagsins \u00e1ri\u00f0 2018. \u00c1 fundinum var greitt atkv\u00e6\u00f0i um till\u00f6gu \u00e1fr\u00fdjanda um upps\u00f6gn leigusamnings um stangvei\u00f0i \u00e1 f\u00e9lagssv\u00e6\u00f0inu, en leigjandinn var einmitt stefndi. Tillagan var felld me\u00f0 j\u00f6fnum atkv\u00e6\u00f0um, og var tali\u00f0 me\u00f0 atkv\u00e6\u00f0i fyrir Hvarfsdal. \u00c1fr\u00fdjandi \u00ed m\u00e1linu m\u00f3tm\u00e6lti \u00fev\u00ed a\u00f0 j\u00f6r\u00f0inni fylgdi atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9ttur og k\u00e6r\u00f0i til Fiskistofu sem hafna\u00f0i k\u00e6runni. F\u00f3r m\u00e1li\u00f0 \u00fea\u00f0an til d\u00f3mst\u00f3la og s\u00fdknu\u00f0u b\u00e6\u00f0i H\u00e9ra\u00f0sd\u00f3mur og Landsr\u00e9ttur stefnda, eiganda Hvarfsdals og f\u00e9llust \u00fear me\u00f0 \u00e1 a\u00f0 j\u00f6r\u00f0in Hvarfsdalur \u00e6tti atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9tt. Vi\u00f0 \u00feetta vildi \u00e1fr\u00fdjandi ekki una og f\u00e9kk \u00e1heyrn \u00ed H\u00e6star\u00e9tti.<\/p>\n<p>II<\/p>\n<p>Kjarni deilunnar laut a\u00f0 sk\u00fdringu 1. mgr. 40. gr. laga nr. 61\/2006 um lax- og silungsvei\u00f0i, n\u00e1nar tilteki\u00f0 og hvort Hvarfsdalur hef\u00f0i fulln\u00e6gt skilyr\u00f0um til a\u00f0 teljast l\u00f6gb\u00fdli vi\u00f0 gildist\u00f6ku jar\u00f0alaga nr. 65\/1976, en \u00feau l\u00f6g m\u00e6ltu svo fyrir a\u00f0 \u00e1 f\u00e9lagssv\u00e6\u00f0i vei\u00f0if\u00e9lags fylgi eitt atkv\u00e6\u00f0i j\u00f6r\u00f0 hverri sem vei\u00f0ir\u00e9tt \u00e6tti \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00e1kv\u00e6\u00f0i lax- og silungsvei\u00f0ilaga nr. 61\/1976. Segir \u00ed \u00feeim l\u00f6gunum og a\u00f0 me\u00f0 j\u00f6r\u00f0 s\u00e9 \u00e1tt vi\u00f0 \u00fe\u00e6r jar\u00f0ir, \u00fear \u00e1 me\u00f0al ey\u00f0ijar\u00f0ir, sem fulln\u00e6g\u00f0u skilyr\u00f0um laga til a\u00f0 teljast l\u00f6gb\u00fdli vi\u00f0 gildist\u00f6ku jar\u00f0alaganna fr\u00e1 1976. M\u00e1 geta \u00feess a\u00f0 ey\u00f0ij\u00f6r\u00f0um var b\u00e6tt inn \u00ed l\u00f6gin 2009.<\/p>\n<p>\u00cd 29. gr. jar\u00f0alaganna er lesin v\u00edsar h\u00fan til \u00e1b\u00fa\u00f0arlaga nr. 64\/1976 um skilyr\u00f0i til skr\u00e1ningar sem l\u00f6gb\u00fdli. Segir \u00ed 1. gr. \u00feeirra laga a\u00f0 j\u00f6r\u00f0 e\u00f0a l\u00f6gb\u00fdli nefnist \u00ed l\u00f6gum \u00feessum hvert \u00fea\u00f0 b\u00fdli, sem s\u00e9rstaklega er meti\u00f0 til ver\u00f0s \u00ed fasteignamati, me\u00f0 \u00e1kve\u00f0num landamerkjum e\u00f0a me\u00f0 \u00e1kve\u00f0num t\u00fan- og engjamerkjum, ef um hj\u00e1leigu e\u00f0a b\u00fdli er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a, sem hefur sameiginlegt beitiland me\u00f0 annarri j\u00f6r\u00f0 e\u00f0a j\u00f6r\u00f0um. Enn fremur ver\u00f0ur b\u00fdli\u00f0 a\u00f0 hafa \u00fea\u00f0 landr\u00fdmi e\u00f0a b\u00farekstrara\u00f0st\u00f6\u00f0u og \u00fea\u00f0 framfleyti minnst 10 k\u00fagildum. Auk \u00feess s\u00e9 \u00e1 landinu nau\u00f0synlegur h\u00fasakostur til a\u00f0 nytja j\u00f6r\u00f0ina.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 var deilt um hvort synjun um atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9tt \u00ed vei\u00f0if\u00e9laginu bryti gegn eignarr\u00e9ttar\u00e1kv\u00e6\u00f0i 72. gr. stj\u00f3rnarskr\u00e1rinnar sem segir a\u00f0 eignar\u00e9tturinn s\u00e9 fri\u00f0helgur og engan megi skylda til a\u00f0 l\u00e1ta af hendi eign s\u00edna nema almennings\u00fe\u00f6rf krefji. \u00deurfi til \u00feess lagafyrirm\u00e6li og skuli fullt ver\u00f0 koma fyrir. \u00de\u00e1 var deilt um hvort synjun um atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9tt f\u00e6ri gegn 74. gr. stj\u00f3rnarskr\u00e1rinnar um f\u00e9lagafrelsi, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 skylda menn til a\u00f0 vera \u00ed f\u00e9lagi sem \u00feeir hafa ekki atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9tt \u00ed.<\/p>\n<p>III<\/p>\n<p>\u00c1fr\u00fdjandi h\u00e9lt \u00fev\u00ed fram a\u00f0 samkv\u00e6mt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 61\/2006 fylgdi atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9ttur a\u00f0eins \u00feeim j\u00f6r\u00f0um sem fulln\u00e6g\u00f0u skilyr\u00f0um til a\u00f0 teljast l\u00f6gb\u00fdli vi\u00f0 gildist\u00f6ku jar\u00f0alaga nr. 65\/1976. Hvarfsdalur hef\u00f0i vi\u00f0 gildist\u00f6ku laganna ekki veri\u00f0 l\u00f6gb\u00fdli, enda hef\u00f0i j\u00f6r\u00f0in \u00fe\u00e1 veri\u00f0 \u00ed ey\u00f0i \u00ed \u00e1ratugi, \u00fear hef\u00f0i ekki veri\u00f0 b\u00farekstur, h\u00fasakostur ekki veri\u00f0 fyrir hendi, \u00fe\u00e1 hafi j\u00f6r\u00f0in ekki haft bur\u00f0i til a\u00f0 framfleyta t\u00edu k\u00fagildum, svo sem skilyr\u00f0i var samkv\u00e6mt \u00e1b\u00fa\u00f0arl\u00f6gum nr. 64\/1976. \u00de\u00e1 hef\u00f0i j\u00f6r\u00f0in lengi hvorki veri\u00f0 \u00e1 jar\u00f0askr\u00e1 n\u00e9 l\u00f6gb\u00fdlaskr\u00e1.<\/p>\n<p>Stefndi h\u00e9lt \u00fev\u00ed aftur \u00e1 m\u00f3ti fram a\u00f0 Hvarfsdalur hef\u00f0i alltaf veri\u00f0 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0 j\u00f6r\u00f0 me\u00f0 afm\u00f6rku\u00f0 landamerki og vei\u00f0ir\u00e9tt. J\u00f6r\u00f0in hafi \u00e1vallt veri\u00f0 metin til ver\u00f0s \u00ed fasteignamati. \u00cd eldri l\u00f6ggj\u00f6f hef\u00f0i veri\u00f0 gert r\u00e1\u00f0 fyrir atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9tti ey\u00f0ijar\u00f0a. Svipting atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9ttar \u00ed vei\u00f0if\u00e9laginu bryti gegn eignarr\u00e9tti hans og f\u00e9lagafrelsi, \u00fear sem hann v\u00e6ri skylda\u00f0ur til a\u00f0ildar a\u00f0 vei\u00f0if\u00e9lagi en hef\u00f0i um lei\u00f0 engin raunveruleg \u00e1hrif \u00e1 r\u00e1\u00f0st\u00f6fun vei\u00f0ir\u00e9ttar s\u00edns sem n\u00e6mi um fimmtungi heildarr\u00e9ttar \u00ed \u00e1nni.<\/p>\n<p>\u00cd d\u00f3mi Landsr\u00e9ttar fr\u00e1 12. desember 2024 kemur me\u00f0al annars fram a\u00f0 \u00feegar l\u00f6gb\u00fdlisskilyr\u00f0i\u00f0 var fyrst teki\u00f0 upp me\u00f0 l\u00f6gum 53\/1957 um lax- og silungsvei\u00f0i hafi tilgangur \u00feess ekki veri\u00f0 a\u00f0 svipta menn atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9tti \u00ed vei\u00f0if\u00e9l\u00f6gum sem \u00feeir \u00e1ttu \u00feegar fyrir, heldur koma \u00ed veg fyrir a\u00f0 j\u00f6r\u00f0um yr\u00f0i skipt upp og eigendur g\u00e6tu \u00feannig auki\u00f0 atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9tt sinn. \u00c1 \u00feessum forsendum me\u00f0al annars var atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9ttur talinn fylgja Hvarfsdal.<\/p>\n<p>\u00cd d\u00f3mi H\u00e6star\u00e9ttar kemur fram a\u00f0 Hvarfsdalur hef\u00f0i lengi veri\u00f0 sj\u00e1lfst\u00e6tt l\u00f6gb\u00fdli me\u00f0 b\u00farekstri. H\u00fan hafi veri\u00f0 har\u00f0b\u00fdl og fari\u00f0 \u00ed ey\u00f0i um mi\u00f0bik fj\u00f3r\u00f0a \u00e1ratugar s\u00ed\u00f0ustu aldar. H\u00fan hafi lengi veri\u00f0 skr\u00e1\u00f0 sem ey\u00f0ij\u00f6r\u00f0 og s\u00ed\u00f0ar felld af jar\u00f0askr\u00e1. Samkv\u00e6mt eldri \u00e1b\u00fa\u00f0arl\u00f6gum nr. 36\/1961 f\u00e9ll l\u00f6gb\u00fdlisr\u00e9ttur ey\u00f0ijar\u00f0a ni\u00f0ur eftir a\u00f0 hafa veri\u00f0 25 \u00e1r \u00ed ey\u00f0i. \u00deegar Hvarfsdalur f\u00e9ll af jar\u00f0askr\u00e1 um fardaga\u00e1ri\u00f0 1967\u20131968 var s\u00e1 frestur l\u00f6ngu li\u00f0inn. H\u00e6stir\u00e9ttur taldi a\u00f0 hugtaki\u00f0 \u201ej\u00f6r\u00f0\u201c \u00ed 40. gr. laga nr. 61\/2006 v\u00e6ri bundi\u00f0 vi\u00f0 skilgreiningu \u00e1 l\u00f6gb\u00fdli samkv\u00e6mt \u00e1b\u00fa\u00f0arl\u00f6gum. \u00deegar mat v\u00e6ri lagt \u00e1 st\u00f6\u00f0u jar\u00f0ar vi\u00f0 gildist\u00f6ku jar\u00f0alaga nr. 65\/1976 b\u00e6ri a\u00f0 l\u00edta til \u00e1b\u00fa\u00f0arlaga nr. 64\/1976, \u00fear sem me\u00f0al annars var ger\u00f0 krafa um b\u00farekstrarh\u00e6fi og framf\u00e6rslugetu. Ey\u00f0ij\u00f6r\u00f0 g\u00e6ti a\u00f0eins talist l\u00f6gb\u00fdli ef henni hef\u00f0i ekki veri\u00f0 r\u00e1\u00f0stafa\u00f0 til annarra nota og h\u00fan uppfyllti \u00feessi skilyr\u00f0i. Mat H\u00e6stir\u00e9ttur \u00fea\u00f0 svo a\u00f0 Hvarfsdalur hef\u00f0i misst st\u00f6\u00f0u l\u00f6gb\u00fdlis l\u00f6ngu fyrir 1976. \u00de\u00e1 v\u00e6ri ekkert sem benti til \u00feess a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i haft bur\u00f0i til b\u00farekstrar vi\u00f0 gildist\u00f6ku laganna. S\u00f6nnunarbyr\u00f0i um hi\u00f0 gagnst\u00e6\u00f0a hv\u00edldi \u00e1 stefnda, sem hann hef\u00f0i ekki axla\u00f0.<\/p>\n<p>A\u00f0 \u00fev\u00ed er var\u00f0ar stj\u00f3rnskipuleg \u00e1litaefni um f\u00e9lagafrelsi taldi H\u00e6stir\u00e9ttur a\u00f0 skyldua\u00f0ild a\u00f0 vei\u00f0if\u00e9l\u00f6gum \u00e6tti s\u00e9r sk\u00fdra lagasto\u00f0 og v\u00e6ri r\u00e9ttl\u00e6tanleg me\u00f0 v\u00edsan til almannahagsmuna og r\u00e9ttinda annarra, sbr. 74. gr. stj\u00f3rnarskr\u00e1r. \u00de\u00e1 brytu reglur um atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9tt ekki gegn 72. gr. stj\u00f3rnarskr\u00e1rinnar, enda nyti stefndi \u00e1fram ar\u00f0s af vei\u00f0ir\u00e9tti s\u00ednum og hef\u00f0i \u00fdmis r\u00e9ttindi innan f\u00e9lagsins, \u00fe\u00f3tt hann hef\u00f0i ekki atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9tt. Var\u00f0 ni\u00f0ursta\u00f0an s\u00fa a\u00f0 Hvarfsdal fylgdi ekki atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9ttur \u00ed Vei\u00f0if\u00e9lagi B\u00fa\u00f0ardals\u00e1r og a\u00f0 s\u00fa ni\u00f0ursta\u00f0a bryti hvorki gegn eignarr\u00e9tti n\u00e9 f\u00e9lagafrelsi. Var s\u00fa ni\u00f0ursta\u00f0a reist \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 me\u00f0 j\u00f6r\u00f0 \u00ed fyrrgreindu \u00e1kv\u00e6\u00f0i laga um lax og silungsvei\u00f0i v\u00e6ri \u00e1tt vi\u00f0 jar\u00f0ir, \u00fear \u00e1 me\u00f0al ey\u00f0ijar\u00f0ir, sem fulln\u00e6g\u00f0u skilyr\u00f0um laga til a\u00f0 teljast l\u00f6gb\u00fdli vi\u00f0 gildist\u00f6ku eldri jar\u00f0alaga nr. 65\/1976.<\/p>\n<p>Tveir d\u00f3marar voru \u00f3samm\u00e1la \u00feessu. \u00deeir t\u00f6ldu a\u00f0 sk\u00fdring meirihlutans \u00e1 1. mgr. 40. gr. laga nr. 61\/2006 leiddi til verulegrar sker\u00f0ingar \u00e1 eignarr\u00e9tti eiganda ey\u00f0ijar\u00f0ar og a\u00f0 lagaheimildir v\u00e6ru ekki n\u00e6gilega sk\u00fdrar til a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ta sl\u00edka sviptingu atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9ttar. S\u00e9rstaklega var bent \u00e1 a\u00f0 breytingar \u00e1 l\u00f6gum \u00e1ri\u00f0 2009 hef\u00f0u haft a\u00f0 markmi\u00f0i a\u00f0 tryggja eigendum ey\u00f0ijar\u00f0a atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9tt \u00e1 n\u00fd. Me\u00f0 hli\u00f0sj\u00f3n af me\u00f0alh\u00f3fi og v\u00e6gi vei\u00f0ir\u00e9ttar stefnda t\u00f6ldu \u00feeir r\u00e9tt a\u00f0 sta\u00f0festa d\u00f3m Landsr\u00e9ttar.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>IV<\/p>\n<p>B\u00e6\u00f0i meirihluti og minnihluti hafa nokku\u00f0 til s\u00edns m\u00e1ls. Vissulega m\u00e1 segja a\u00f0 ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u meirihlutans lei\u00f0i af vi\u00f0urkenndum a\u00f0fer\u00f0um vi\u00f0 me\u00f0fer\u00f0 r\u00e9ttarheimilda og l\u00f6gsk\u00fdringar. V\u00edsar meirihlutinn me\u00f0al annars til d\u00f3ms H\u00e6star\u00e9ttar m\u00e1li\u00a0 nr. 263\/1998 \u00fear sem segir a\u00f0 skipan vei\u00f0im\u00e1la \u00e1 \u00cdslandi hafi um langan aldur veri\u00f0 tengd \u00e1b\u00fa\u00f0 \u00e1 l\u00f6gb\u00fdlum. Af \u00fev\u00ed lei\u00f0i, a\u00f0 vi\u00f0 sk\u00fdringu \u00e1kv\u00e6\u00f0a um atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9tt \u00ed vei\u00f0if\u00e9l\u00f6gum samkv\u00e6mt l\u00f6gum um lax- og silungsvei\u00f0i ver\u00f0i a\u00f0 l\u00edta til l\u00f6ggjafar um landb\u00fana\u00f0arm\u00e1lefni, \u00fear sem hugtaki\u00f0 l\u00f6gb\u00fdli er skilgreint. Minnihlutinn fer aftur \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00e1 lei\u00f0 a\u00f0 n\u00e1lgast m\u00e1li\u00f0 fr\u00e1 sj\u00f3narmi\u00f0um um sk\u00fdrar lagaheimildir fyrir sker\u00f0ingu grundvallarr\u00e9ttinda sem bygg\u00f0ar s\u00e9u \u00e1 m\u00e1lefnalegum grunni.<\/p>\n<p>V<\/p>\n<p>D\u00f3murinn gefur tilefni til sm\u00e1 huglei\u00f0inga. \u00c1st\u00e6\u00f0a er til a\u00f0 staldra a\u00f0eins vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e1r\u00e9ttingu a\u00f0 skipan vei\u00f0im\u00e1la \u00e1 \u00cdslandi hafi um langan aldur veri\u00f0 tengd \u00e1b\u00fa\u00f0 \u00e1 l\u00f6gb\u00fdlum og af \u00fev\u00ed lei\u00f0i a\u00f0 vi\u00f0 sk\u00fdringu \u00e1kv\u00e6\u00f0a um atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9tt \u00ed vei\u00f0if\u00e9l\u00f6gum samkv\u00e6mt l\u00f6gum um lax- og silungsvei\u00f0i ver\u00f0i a\u00f0 l\u00edta til l\u00f6ggjafar um landb\u00fana\u00f0arm\u00e1lefni, \u00fear sem hugtaki\u00f0 l\u00f6gb\u00fdli er skilgreint. Fr\u00e1 l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ilegu sj\u00f3narmi\u00f0i er \u00feetta sannf\u00e6randi, en fr\u00e1 lagap\u00f3lit\u00edsku sj\u00f3narmi\u00f0i er \u00feetta umhugsunarvert.<\/p>\n<p>\u00cd \u00feessu sambandi \u00fearf a\u00f0 hafa \u00ed huga a\u00f0 um \u201eskipan vei\u00f0im\u00e1la\u201c \u00e1 \u00cdslandi almennt gilda tv\u00e6r grundvallarreglur. \u00cd fyrsta lagi a\u00f0 \u00a0ekki er unnt a\u00f0 eignast vei\u00f0ir\u00e9tt \u00ed straumvatni e\u00f0a st\u00f6\u00f0uvatni nema me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 eignast land sem liggur a\u00f0 sl\u00edku vatni. \u00cd \u00f6\u00f0ru lagi hefur s\u00fa regla lengi gilt, sbr. n\u00fa 4. mgr. 2. gr. lax- og silungsvei\u00f0ilaga, a\u00f0 ekki megi skilja vei\u00f0ir\u00e9tt a\u00f0 nokkru leyti e\u00f0a \u00f6llu varanlega vi\u00f0 landareign, hvorki fyrir fullt og allt n\u00e9 um tiltekinn t\u00edma. \u00de\u00f3 \u00fearf a\u00f0 hafa \u00ed huga 5. mgr. 14. gr. laganna sem heimilar a\u00f0 stangvei\u00f0ir\u00e9tt megi skilja vi\u00f0 landareign um tilteki\u00f0 t\u00edmabil, sem \u00fe\u00f3 m\u00e1 ekki vera lengra en 10 \u00e1r, nema me\u00f0 leyfi r\u00e1\u00f0herra. \u00deri\u00f0ja reglan sem jafnframt \u00fearf a\u00f0 hafa h\u00e9r \u00ed huga, er s\u00fa a\u00f0 l\u00f6g m\u00e6la fyrir um skyldua\u00f0ild landeiganda a\u00f0 vei\u00f0if\u00e9lagi \u00e1 sameiginlegu vatnasvi\u00f0i jar\u00f0a \u00feeirra sem a\u00f0 \u00fev\u00ed liggja, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um lax og silungsvei\u00f0i.<\/p>\n<p>Af tveimur fyrstu reglunum lei\u00f0ir a\u00f0 vei\u00f0ir\u00e9tt stefnda lei\u00f0ir af eignarhaldi hans \u00e1 Hvarfsdal og engu \u00f6\u00f0ru. \u00de\u00e1 \u00a0lei\u00f0ir af annarri reglunni a\u00f0 hann getur ekki varanlega skili\u00f0 vei\u00f0ir\u00e9ttinn \u00ed B\u00fa\u00f0ardals\u00e1 fr\u00e1 landareign sinni. Loks lei\u00f0ir af s\u00ed\u00f0astnefndu reglunni a\u00f0 stefndi er skyldur til vera \u00ed vei\u00f0if\u00e9lagi B\u00fa\u00f0ardals\u00e1r. Reglur \u00feessar gilda \u00f3h\u00e1\u00f0 \u00fev\u00ed hvort unnt er a\u00f0 reka landb\u00fana\u00f0 e\u00f0a ekki \u00e1 landareigninni. \u00cd stuttu m\u00e1li, grunnreglur um skipan vei\u00f0im\u00e1la \u00e1 \u00cdslandi gilda \u00ed raun \u00f3h\u00e1\u00f0 \u00e1b\u00fa\u00f0 \u00e1 l\u00f6gb\u00fdlum e\u00f0a l\u00f6ggj\u00f6f um landb\u00fana\u00f0arm\u00e1l a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti hva\u00f0 sem l\u00ed\u00f0ur fyrrgreindum or\u00f0um \u00ed d\u00f3mi H\u00e6star\u00e9ttar.<\/p>\n<p>Sem fyrr segir m\u00e6la l\u00f6g um lax- og silungsvei\u00f0i fyrir um skyldua\u00f0ild a\u00f0 vei\u00f0if\u00e9lagi sem tekur til allra vei\u00f0ir\u00e9ttareigenda sem land eiga a\u00f0 tilteknu vei\u00f0isv\u00e6\u00f0i. \u00deessi f\u00e9l\u00f6g hafa \u00fea\u00f0 hlutverk a\u00f0 skipuleggja vei\u00f0i \u00ed umd\u00e6mi s\u00ednu til a\u00f0 tryggja hagkv\u00e6ma og sj\u00e1lfb\u00e6ra n\u00fdtingu fiskistofna og g\u00e6ta me\u00f0 \u00fev\u00ed hagsmuna f\u00e9lagsmanna. Ekki er \u00e1greiningur um a\u00f0 skyldua\u00f0ild a\u00f0 vei\u00f0if\u00e9l\u00f6gum er heimil takm\u00f6rkun sem r\u00famast innan \u00e1kv\u00e6\u00f0is stj\u00f3rnarskr\u00e1rinnar um f\u00e9lagafrelsi. \u00dea\u00f0 er ekki \u00fear sem sagt af \u00fev\u00ed lei\u00f0i endilega a\u00f0 sanngjarnt s\u00e9 og e\u00f0lilegt a\u00f0 synja f\u00e9lagsm\u00f6nnum um atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9tt \u00ed f\u00e9lagi, sem \u00feeim er skylt a\u00f0 vera \u00ed, \u00fe\u00f3tt ekki s\u00e9 unnt a\u00f0 n\u00fdta \u00fea\u00f0 land sem er undirsta\u00f0a vei\u00f0ir\u00e9ttarins til b\u00farekstrar, enda er ver\u00f0m\u00e6ti lands vi\u00f0 \u00fe\u00e6r a\u00f0st\u00e6\u00f0ur a\u00f0allega og jafnvel eing\u00f6ngu tengt vei\u00f0ir\u00e9ttindum.<\/p>\n<p>Spurningin er \u00fe\u00e1 s\u00fa hvort \u00fat fr\u00e1 nefndum grunnreglum um skipan vei\u00f0im\u00e1la \u00e1 \u00cdslandi a\u00f0 m\u00e1lefnalegt s\u00e9 a\u00f0 skilyr\u00f0a atkv\u00e6\u00f0ir\u00e9tt \u00ed vei\u00f0if\u00e9lagi vi\u00f0 jar\u00f0ir sem uppfylltu \u00e1 \u00e1kve\u00f0um t\u00edmapunkti skilyr\u00f0i til a\u00f0 teljast l\u00f6gb\u00fdli. N\u00fa \u00e1 d\u00f6gum er algengt, og raunar \u00e1 \u00fea\u00f0 vi\u00f0 um B\u00fa\u00f0ardals\u00e1, a\u00f0 vei\u00f0ir\u00e9ttur landeigenda s\u00e9 leig\u00f0ur \u00fat til a\u00f0ila sem hafa a\u00f0 markmi\u00f0i a\u00f0 hagnast \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka \u00e1 leigu vei\u00f0ir\u00e9tt \u00ed \u00e1m og v\u00f6tnum af vei\u00f0if\u00e9l\u00f6gum (landeigendum). \u00deessir leigutakar selja yfirleitt s\u00ed\u00f0an vei\u00f0ileyfi til sportvei\u00f0imanna, innlendra sem erlendra, me\u00f0 a\u00f0 markmi\u00f0i a\u00f0 hagnast \u00e1 vi\u00f0skiptunum. Vir\u00f0i vei\u00f0ir\u00e9ttarins tengist \u00feannig \u00ed raun ekki b\u00faskap \u00e1 j\u00f6r\u00f0unum, heldur m\u00f3tast eing\u00f6ngu af eftirspurn sportvei\u00f0imanna og \u00fev\u00ed ver\u00f0i sem \u00feeir eru tilb\u00fanir til a\u00f0 grei\u00f0a fyrir a\u00f0 draga lax a\u00f0 landi. Raunar a\u00f0allega til a\u00f0 sleppa laxinum aftur \u00ed \u00e1na til a\u00f0 geta veitt hann aftur s\u00ed\u00f0ar, en \u00fea\u00f0 er \u00f6nnur saga!<\/p>\n<p>Vi\u00f0skipti me\u00f0 vei\u00f0ir\u00e9ttindi \u00ed \u00e1m og v\u00f6tnum sem fara fram me\u00f0 \u00feessum h\u00e6tti standa \u00ed raun oft ekki \u00ed neinum tengslum vi\u00f0 b\u00farekstur \u00e1 j\u00f6r\u00f0um e\u00f0a framlei\u00f0slugetu \u00feeirra a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti, enda netavei\u00f0i b\u00e6nda \u00e1 laxi mj\u00f6g takm\u00f6rku\u00f0 n\u00faor\u00f0i\u00f0. M\u00e1 nefna a\u00f0 efnahagslegt vir\u00f0i \u00feessarar starfsemi einnar og s\u00e9r \u00e1 \u00e1rsgrundvelli \u00e1 \u00cdslandi er meti\u00f0 \u00ed millj\u00f6r\u00f0um kr\u00f3na. Ef m\u00e1li\u00f0 er sko\u00f0a\u00f0 fr\u00e1 \u00feessu sj\u00f3nahorni m\u00e1 segja a\u00f0 raunverulegt vir\u00f0i Hvarfsdals fyrir eiganda hennar, \u00a0felist eing\u00f6ngu \u00ed ver\u00f0m\u00e6ti vei\u00f0ir\u00e9ttindanna sem \u00e1kvar\u00f0ast af seldum vei\u00f0ileyfum til \u00feeirra sem stunda laxvei\u00f0ar sem t\u00f3mstundagaman.<\/p>\n<p>\u00deegar m\u00e1li\u00f0 er sko\u00f0a\u00f0 m\u00e1 spyrja hvort sk\u00fdr m\u00e1lefnaleg sj\u00f3narmi\u00f0 b\u00fai a\u00f0 baki \u00fev\u00ed a\u00f0 synja eiganda Hvarfsdals um atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9tt \u00ed f\u00e9lagi sem hann er skylda\u00f0ur til a\u00f0 vera \u00ed og tekur \u00ed raun \u00e1kvar\u00f0anir um r\u00e1\u00f0st\u00f6fun einu r\u00e9ttindanna sem tengjast landi hans sem eitthva\u00f0 ver\u00f0gildi hafa, ver\u00f0igildi sem aftur er algj\u00f6rlega \u00f3h\u00e1\u00f0 eiginleikum landsins til a\u00f0\u00a0 stunda \u00fear landb\u00fana\u00f0 a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti.<\/p>\n<p>\u00cd lokin er r\u00e9tt a\u00f0 nefna a\u00f0 \u00e1greiningur um atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9tt \u00ed vei\u00f0if\u00e9l\u00f6gum hefur lengi veri\u00f0 deilum\u00e1l og eins og r\u00e1\u00f0a m\u00e1 af frumvarpi \u00fev\u00ed sem var\u00f0 a\u00f0 gildandi l\u00f6gum um lax- og silungsvei\u00f0i. Me\u00f0 gildandi reglum er liti\u00f0 svo \u00e1 a\u00f0 stu\u00f0la\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 treysta rekstrargrundv\u00f6ll b\u00faja\u00f0ra. \u00de\u00e1 er um d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi a\u00f0 erlendir au\u00f0k\u00fdfingar sanki a\u00f0 s\u00e9r j\u00f6r\u00f0um sem vei\u00f0ir\u00e9ttur fylgir og eiga jafnvel margar ja\u00f0rir sem liggja a\u00f0 sama vei\u00f0isv\u00e6\u00f0i, jar\u00f0ir sem vi\u00f0komandi n\u00fdtir annars ekki til b\u00fareksturs. Hafa \u00fdmsir \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feessi \u00fer\u00f3un geti leitt af s\u00e9r a\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 ekki s\u00e9 teki\u00f0 n\u00e6gilegt tillit til hagsmuna \u00feeirra sem jafnframt stunda b\u00farekstur \u00e1 j\u00f6r\u00f0um s\u00ednum. \u00deannig eru vissulega \u00fdmsar hli\u00f0ar \u00e1 \u00feessu m\u00e1li.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>&nbsp; I Hinn 17. desember sl. var kve\u00f0inn upp d\u00f3mur \u00ed\u00a0 H\u00e6star\u00e9tti \u00ed m\u00e1li nr. 16\/2025 (H ehf. gegn B ehf - m\u00e1l nr. 16\/2025). \u00cd m\u00e1linu var deilt um hvort j\u00f6r\u00f0inni Hvarfsdal fylgdi atkv\u00e6\u00f0isr\u00e9ttur \u00ed Vei\u00f0if\u00e9lagi B\u00fa\u00f0ardals\u00e1r. Vei\u00f0if\u00e9lag B\u00fa\u00f0ardals\u00e1r &hellip; <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2026\/02\/11\/hvarfsdalur-atkvaedisrettur-i-veidifelagi\/\">Continue reading <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1298,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"link","meta":{"footnotes":""},"categories":[759],"tags":[],"class_list":["post-1183","post","type-post","status-publish","format-link","hentry","category-oflokkad","post_format-post-format-link"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1183","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1298"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1183"}],"version-history":[{"count":6,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1183\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1190,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1183\/revisions\/1190"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1183"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1183"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1183"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}