{"id":1224,"date":"2026-08-14T15:04:51","date_gmt":"2026-08-14T15:04:51","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/?p=1224"},"modified":"2026-08-14T15:05:09","modified_gmt":"2026-08-14T15:05:09","slug":"1224","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2026\/08\/14\/1224\/","title":{"rendered":"ESB og hinar dreif\u00f0u bygg\u00f0ir \u00cdslands"},"content":{"rendered":"<p><em>Pistill upphaflega birtur \u00e1 DV\/Eyjunni 1. j\u00fal\u00ed 2026<\/em><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Umr\u00e6\u00f0an um ESB beinist miki\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1var\u00fatvegi og landb\u00fana\u00f0i, enda skipta \u00feessar atvinnugreinar miklu m\u00e1li fyrir efnahagsl\u00edf landsins og hinar dreif\u00f0u bygg\u00f0ir. Minna hefur \u00fe\u00f3 fari\u00f0 fyrir umr\u00e6\u00f0u um a\u00f0ra \u00fe\u00e6tti sem \u00edb\u00faar landsbygg\u00f0arinnar l\u00e1ta sig ekki s\u00ed\u00f0ur var\u00f0a. H\u00e9r r\u00e6\u00f0i \u00e9g nokkur atri\u00f0i sem var\u00f0a t\u00e6kif\u00e6ri sem full a\u00f0ild a\u00f0 ESB g\u00e6ti skapa\u00f0 fyrir sveitarf\u00e9l\u00f6g, fyrirt\u00e6ki og \u00edb\u00faa landsbygg\u00f0arinnar.<\/p>\n<h3><em>Samheldnis- og bygg\u00f0a\u00fer\u00f3unarstefna ESB<\/em><\/h3>\n<p style=\"text-align: justify\">Markmi\u00f0 stefnunnar er me\u00f0al annars a\u00f0 draga \u00far efnahagslegum, f\u00e9lagslegum og landfr\u00e6\u00f0ilegum mismun milli sv\u00e6\u00f0a. Grunninn a\u00f0 stefnunni er a\u00f0 finna \u00ed 174.\u2013178. gr. s\u00e1ttm\u00e1lans um starfsh\u00e6tti ESB. \u00cd lokam\u00e1lsli\u00f0 174. gr. segir a\u00f0 athygli skuli me\u00f0al annars beina a\u00f0 dreifb\u00fdlum sv\u00e6\u00f0um, eysv\u00e6\u00f0um og sv\u00e6\u00f0um sem b\u00faa vi\u00f0 alvarlega og varanlega n\u00e1tt\u00farulega e\u00f0a l\u00fd\u00f0fr\u00e6\u00f0ilega annmarka.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Stefnunni er einkum hrint \u00ed framkv\u00e6md me\u00f0 Evr\u00f3pska bygg\u00f0a\u00fer\u00f3unarsj\u00f3\u00f0num (European Regional Development Fund<strong>,\u00a0<\/strong>ERDF), Evr\u00f3pska f\u00e9lagsm\u00e1lasj\u00f3\u00f0num (European Social Fund Plus, ESF+), Samheldnissj\u00f3\u00f0num (Cohesion Fund) og fleiri fj\u00e1rm\u00f6gnunarm\u00f6guleikum \u00e1 vettvangi ESB. Jafnframt geta a\u00f0ildarr\u00edki noti\u00f0 hagst\u00e6\u00f0ra l\u00e1na fr\u00e1 Evr\u00f3pska fj\u00e1rfestingarbankanum, en \u00feess ber a\u00f0 geta a\u00f0 \u00cdsland hefur \u00feegar noti\u00f0 l\u00e1na fr\u00e1 bankanum \u00e1 grundvelli s\u00e9rstakra samninga hans vi\u00f0 EFTA-r\u00edkin.<\/p>\n<h3 style=\"text-align: justify\"><em>Samg\u00f6ngur<\/em><\/h3>\n<p style=\"text-align: justify\">Samg\u00f6ngur eru me\u00f0al st\u00e6rstu vi\u00f0fangsefna bygg\u00f0astefnu ESB. Samg\u00f6ngustefna sambandsins mi\u00f0ar a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 byggja upp sam\u00fe\u00e6tt, \u00f6ruggt og sj\u00e1lfb\u00e6rt samg\u00f6ngukerfi sem tengir a\u00f0ildarr\u00edkin saman og tryggir grei\u00f0ar flutningslei\u00f0ir f\u00f3lks og varnings.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Mikilv\u00e6gasta fj\u00e1rm\u00f6gnunart\u00e6ki\u00f0 \u00e1 \u00feessu svi\u00f0i er Samtengisj\u00f3\u00f0ur Evr\u00f3pu (Connecting Europe Facility, CEF), sem sty\u00f0ur uppbyggingu samg\u00f6nguinnvi\u00f0a innan hins samevr\u00f3pska samg\u00f6ngunets, TEN-T. A\u00f0ildarr\u00edki geta s\u00f3tt um styrki til framkv\u00e6mda, undirb\u00faningsranns\u00f3kna og n\u00fdsk\u00f6punarverkefna. Fyrir \u00cdsland g\u00e6ti \u00feetta skapa\u00f0 viss t\u00e6kif\u00e6ri. \u00cd a\u00f0ildarvi\u00f0r\u00e6\u00f0um myndi \u00cdsland l\u00edklega leitast vi\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 Keflav\u00edkurflugv\u00f6ll, helstu v\u00f6ruflutningahafnir og mikilv\u00e6gar tengingar vi\u00f0 Evr\u00f3pu skilgreindar innan TEN-T og ef til vill fleiri flugvelli. Einnig g\u00e6ti fengist fj\u00e1rm\u00f6gnun til uppbyggingar hafna, flugvalla og annarra samg\u00f6ngumannvirkja sem teldust hluti af TEN-T-netinu, \u00fear \u00e1 me\u00f0al jar\u00f0ganga.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00d3v\u00edst er hins vegar a\u00f0 \u00cdsland hef\u00f0i sj\u00e1lfkrafa a\u00f0gang a\u00f0 Samheldnissj\u00f3\u00f0i ESB \u00fear sem \u00fej\u00f3\u00f0artekjur \u00e1 mann eru of h\u00e1ar. \u00c1 m\u00f3ti m\u00e6tti f\u00e6ra fyrir \u00fev\u00ed r\u00f6k a\u00f0 uppbygging samg\u00f6ngumannvirkja s\u00e9 s\u00e9rstaklega kostna\u00f0ars\u00f6m \u00ed st\u00f3ru, strj\u00e1lb\u00fdlu og har\u00f0b\u00fdlu landi me\u00f0 f\u00e1a \u00edb\u00faa svo sem \u00e1 vi\u00f0 um \u00cdsland. \u00cd a\u00f0ildarvi\u00f0r\u00e6\u00f0um m\u00e6tti leitast vi\u00f0 a\u00f0 semja um s\u00e9rst\u00f6k a\u00f0l\u00f6gunar\u00farr\u00e6\u00f0i e\u00f0a t\u00edmabundinn stu\u00f0ning vegna landfr\u00e6\u00f0ilegra a\u00f0st\u00e6\u00f0na, \u00fe\u00f3tt au\u00f0vita\u00f0 s\u00e9 ekki \u00e1 v\u00edsan a\u00f0 r\u00f3a \u00ed \u00fev\u00ed efni.<\/p>\n<h3 style=\"text-align: justify\"><em>Heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nusta<\/em><\/h3>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deegar kemur a\u00f0 heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustu eru \u00e1skoranir dreif\u00f0ra bygg\u00f0a vel \u00feekktar. Langar vegalengdir, skortur \u00e1 s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingum og erfi\u00f0leikar vi\u00f0 m\u00f6nnun heilbrig\u00f0isstofnana hafa lengi veri\u00f0 vi\u00f0varandi vandam\u00e1l. ESB tekur ekki \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 rekstri heilbrig\u00f0iskerfa a\u00f0ildarr\u00edkjanna, en sambandi\u00f0 hefur \u00e1 undanf\u00f6rnum \u00e1rum auki\u00f0 stu\u00f0ning sinn vi\u00f0 \u00fer\u00f3un heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 sl\u00edkar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">EU4Health-\u00e1\u00e6tlunin var sett \u00e1 laggirnar eftir heimsfaraldur COVID-19 me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 markmi\u00f0i a\u00f0 efla heilbrig\u00f0iskerfi Evr\u00f3pu, b\u00e6ta vi\u00f0b\u00fana\u00f0 vi\u00f0 fars\u00f3ttum og stu\u00f0la a\u00f0 \u00fer\u00f3un stafr\u00e6nna lausna. \u00cdsland getur n\u00fa \u00feegar teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00e1kve\u00f0num verkefnum \u00e1\u00e6tlunarinnar, en a\u00f0ild g\u00e6ti auki\u00f0 m\u00f6guleika \u00e1 \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00edslenskra stofnana \u00ed st\u00e6rri samstarfsverkefnum, enda hef\u00f0i \u00cdsland \u00fe\u00e1 fullan a\u00f0gang a\u00f0 \u00f6llum stj\u00f3rnt\u00e6kjum og fj\u00e1rm\u00f6gnunar\u00e1\u00e6tlunum sambandsins.<\/p>\n<h3 style=\"text-align: justify\"><em>F\u00e9lagsleg m\u00e1lefni<\/em><\/h3>\n<p style=\"text-align: justify\">A\u00f0ildarr\u00edki ESB hafa n\u00fdtt Evr\u00f3pska f\u00e9lagsm\u00e1lasj\u00f3\u00f0inn og Evr\u00f3pska bygg\u00f0a\u00fer\u00f3unarsj\u00f3\u00f0inn til a\u00f0 fj\u00e1rmagna ge\u00f0heilbrig\u00f0isverkefni, starfsendurh\u00e6fingu, stu\u00f0ningsb\u00fasetu og uppbyggingu og \u00fer\u00f3un s\u00e9rh\u00e6f\u00f0ra f\u00e9lagslegra \u00farr\u00e6\u00f0a sem draga \u00far f\u00e9lagslegri einangrun \u00ed afskekktum bygg\u00f0um. Fyrir \u00cdsland g\u00e6ti \u00feetta or\u00f0i\u00f0 vi\u00f0b\u00f3t vi\u00f0 innlenda fj\u00e1rm\u00f6gnun, einkum \u00ed dreif\u00f0um bygg\u00f0um \u00fear sem s\u00e9rh\u00e6f\u00f0 \u00fej\u00f3nusta er v\u00ed\u00f0a takm\u00f6rku\u00f0.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Svipa\u00f0 \u00e1 vi\u00f0 um f\u00e9lags\u00fej\u00f3nustu almennt. Sj\u00f3\u00f0ir ESB eru \u00fe\u00f3 fyrst og fremst hugsa\u00f0ir til uppbyggingar, n\u00fdsk\u00f6punar og \u00fer\u00f3unar n\u00fdrra \u00farr\u00e6\u00f0a en ekki til daglegs reksturs sveitarf\u00e9laga. Stu\u00f0ningur f\u00e6list fremur \u00ed auknum m\u00f6guleikum sveitarf\u00e9laga, stofnana og f\u00e9lagasamtaka til a\u00f0 fj\u00e1rmagna \u00fer\u00f3unarverkefni og byggja upp s\u00e9rh\u00e6f\u00f0a \u00fej\u00f3nustu.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00cdsland tekur \u00feegar \u00fe\u00e1tt \u00ed Interreg-samstarfs\u00e1\u00e6tlunum ESB, sem er hluti af bygg\u00f0ar\u00fer\u00f3unar\u00e1\u00e6tlun sambandsins, \u00ed gegnum EES-samninginn. \u00cdslensk sveitarf\u00e9l\u00f6g, h\u00e1sk\u00f3lar, stofnanir og fyrirt\u00e6ki hafa \u00feegar noti\u00f0 sl\u00edks stu\u00f0nings. Full a\u00f0ild g\u00e6ti \u00fe\u00f3 auki\u00f0 m\u00f6guleika \u00edslenskra a\u00f0ila til \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed fleiri verkefnum og styrkt st\u00f6\u00f0u \u00feeirra vi\u00f0 a\u00f0 lei\u00f0a umfangsmeiri al\u00fej\u00f3\u00f0leg samstarfsverkefni.<\/p>\n<h3 style=\"text-align: justify\"><em>Landb\u00fana\u00f0ur<\/em><\/h3>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deegar r\u00e6tt er um landb\u00fana\u00f0arstefnu ESB (CAP) \u00fearf a\u00f0 greina \u00e1 milli tveggja \u00fe\u00e1tta. Annars vegar vi\u00f0skipti me\u00f0 landb\u00fana\u00f0arv\u00f6rur og hins vegar stu\u00f0ningskerfi vi\u00f0 landb\u00fana\u00f0.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Var\u00f0andi vi\u00f0skipti me\u00f0 landb\u00fana\u00f0arv\u00f6rur myndi a\u00f0ild a\u00f0 ESB fela \u00ed s\u00e9r \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed sameiginlegum marka\u00f0i sambandsins fyrir landb\u00fana\u00f0arv\u00f6rur, nema um anna\u00f0 t\u00e6kist a\u00f0 semja. Tollar \u00e1 vi\u00f0skiptum innan sambandsins hyrfu, sem l\u00edklega myndi lei\u00f0a til l\u00e6kkunar \u00e1 ver\u00f0i landb\u00fana\u00f0arvara og \u00edslenskir b\u00e6ndur \u00feyrftu \u00ed r\u00edkari m\u00e6li a\u00f0 keppa vi\u00f0 framlei\u00f0endur fr\u00e1 st\u00e6rri l\u00f6ndum. Skiljanlega hafa \u00edslenskir b\u00e6ndur margir \u00e1hyggjur af \u00feessu. \u00de\u00f3 ber a\u00f0 geta \u00feess a\u00f0 \u00ed sta\u00f0inn myndu \u00edslenskir b\u00e6ndur f\u00e1 tollfrj\u00e1lsan a\u00f0gang a\u00f0 marka\u00f0i 450 millj\u00f3na neytenda. \u00cd \u00fev\u00ed felast margv\u00edsleg t\u00e6kif\u00e6ri.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c1 hinn b\u00f3ginn er sameiginlega landb\u00fana\u00f0arstefnan (CAP) eitt umfangsmesta stu\u00f0ningskerfi heims vi\u00f0 landb\u00fana\u00f0 og dreifb\u00fdli. Innan hennar er Evr\u00f3pski landb\u00fana\u00f0arsj\u00f3\u00f0urinn fyrir bygg\u00f0a\u00fer\u00f3un (European Agricultural Fund for Rural Development, EAFRD) sem hefur veri\u00f0 n\u00fdttur til a\u00f0 sty\u00f0ja n\u00fdli\u00f0un \u00ed landb\u00fana\u00f0i, fj\u00e1rfestingar \u00ed b\u00farekstri, jar\u00f0r\u00e6kt, matv\u00e6lavinnslu, fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustu, sm\u00e1framlei\u00f0slu og samf\u00e9lagsverkefni \u00ed dreif\u00f0um bygg\u00f0um.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Einnig m\u00e1 h\u00e9r minna \u00e1 reynslu Finnlands, en \u00feegar landi\u00f0 gekk \u00ed Evr\u00f3pusambandi\u00f0 var vi\u00f0urkennt a\u00f0 loftslagsskilyr\u00f0i \u00ed nor\u00f0urhluta landsins v\u00e6ru mj\u00f6g fr\u00e1brug\u00f0in a\u00f0st\u00e6\u00f0um v\u00ed\u00f0a annars sta\u00f0ar \u00ed Evr\u00f3pu. \u00dev\u00ed var sami\u00f0 um s\u00e9rstakan stu\u00f0ning vi\u00f0 b\u00faskap \u00e1 nor\u00f0l\u00e6gum sv\u00e6\u00f0um sem tekur mi\u00f0 af stuttum vaxtart\u00edma, erfi\u00f0u loftslagi og l\u00f6ngum flutningslei\u00f0um. Stu\u00f0ningurinn byggist b\u00e6\u00f0i \u00e1 almennum reglum hinna sameiginlegu landb\u00fana\u00f0arstefnu og s\u00e9rst\u00f6kum \u00e1kv\u00e6\u00f0um sem sami\u00f0 var um \u00ed tengslum vi\u00f0 a\u00f0ild Finnlands \u00e1ri\u00f0 1995.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Nefna ber einnig a\u00f0 nor\u00f0urh\u00e9ru\u00f0 Finnlands hafa um \u00e1rabil noti\u00f0 verulegs stu\u00f0nings \u00far samheldnis- og bygg\u00f0a\u00fer\u00f3unarsj\u00f3\u00f0um ESB vegna strj\u00e1lb\u00fdlis og erfi\u00f0ra n\u00e1tt\u00faruskilyr\u00f0a. Finnland er \u00fev\u00ed eitt sk\u00fdrasta d\u00e6mi\u00f0 um a\u00f0 samheldnisstefnan beinist einnig a\u00f0 afskekktum sv\u00e6\u00f0um innan efnameiri a\u00f0ildarr\u00edkja.<\/p>\n<h3 style=\"text-align: justify\"><em>Menning<\/em><\/h3>\n<p style=\"text-align: justify\">Menningarstarf er v\u00ed\u00f0a mikilv\u00e6gur \u00fe\u00e1ttur \u00ed hinum dreif\u00f0u bygg\u00f0um. Auk Erasmus+ og Creative Europe hafa sveitarf\u00e9l\u00f6g og menningarstofnanir \u00ed a\u00f0ildarr\u00edkjum ESB geta\u00f0 n\u00fdtt fj\u00e1rm\u00f6gnun \u00far bygg\u00f0a\u00fer\u00f3unarsj\u00f3\u00f0um til a\u00f0 endurn\u00fdja menningarh\u00fas, efla skapandi greinar og \u00fer\u00f3a menningartengda fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustu. Fyrir \u00edslenskar bygg\u00f0ir g\u00e6tu sl\u00edkar fj\u00e1rm\u00f6gnunarlei\u00f0ir skapa\u00f0 aukin t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 efla menningarl\u00edf og fj\u00f6lbreytt atvinnul\u00edf.<\/p>\n<h3 style=\"text-align: justify\"><em>Ni\u00f0urlag<\/em><\/h3>\n<p style=\"text-align: justify\">H\u00e9r hefur veri\u00f0 stikla\u00f0 \u00e1 st\u00f3ru a\u00f0 \u00fev\u00ed var\u00f0ar \u00feau t\u00e6kif\u00e6ri sem \u00cdslandi kynnu a\u00f0 bj\u00f3\u00f0ast ef til fullrar a\u00f0ildar k\u00e6mi og eru \u00feau ekki t\u00e6mandi talin. Vitaskuld ver\u00f0ur \u00fe\u00f3 a\u00f0 g\u00e6ta h\u00f3fs \u00ed v\u00e6ntingum. Evr\u00f3pusambandi\u00f0 tekur a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u ekki a\u00f0 s\u00e9r rekstur \u00edslensks velfer\u00f0arkerfis. \u00cdsland myndi \u00e1fram bera \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 samg\u00f6nguinnvi\u00f0um. \u00de\u00e1 tekur ESB ekki yfir daglegan rekstur sveitarf\u00e9laga e\u00f0a leysir fj\u00e1rhagsvanda \u00feeirra. \u00deessi m\u00e1lefni yr\u00f0u au\u00f0vita\u00f0 \u00e1fram \u00e1 \u00e1byrg\u00f0 \u00cdslendinga eins og veri\u00f0 hefur. Flestir styrkir sambandsins eru sameiginleg fj\u00e1rm\u00f6gnunarverkefni \u00fear sem r\u00edki, sveitarf\u00e9l\u00f6g e\u00f0a stofnanir leggja sj\u00e1lf til hluta kostna\u00f0arins.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00der\u00e1tt fyrir \u00feessar takmarkanir yr\u00f0i full a\u00f0ild n\u00e6sta l\u00edklega til \u00feess a\u00f0 opna a\u00f0gang a\u00f0 fj\u00f6lbreyttari fj\u00e1rm\u00f6gnunarlei\u00f0um og \u00fear me\u00f0 skapa\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 hra\u00f0a uppbyggingu innvi\u00f0a, efla hafnir og samg\u00f6ngur, \u00fer\u00f3a n\u00fd \u00farr\u00e6\u00f0i \u00ed heilbrig\u00f0is- og f\u00e9lags\u00fej\u00f3nustu og sty\u00f0ja menningu og fj\u00f6lbreyttara atvinnul\u00edf \u00ed hinum dreif\u00f0u bygg\u00f0um landsins.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Fyrir \u00edb\u00faa landsbygg\u00f0arinnar er \u00fev\u00ed full \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 kynna s\u00e9r n\u00e1nar hva\u00f0a t\u00e6kif\u00e6ri felast \u00ed samheldnis- og bygg\u00f0a\u00fer\u00f3unarstefnu Evr\u00f3pusambandsins. S\u00e1 \u00fe\u00e1ttur hefur hinga\u00f0 til veri\u00f0 mun minna r\u00e6ddur h\u00e9r \u00e1 landi en efni standa til.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\"><em>H\u00f6fundur er p\u00f3fessor emeritus vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann \u00e1 Akureyri og h\u00e6star\u00e9ttarl\u00f6gma\u00f0ur hj\u00e1 Thales-l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i\u00fej\u00f3nustu<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Pistill upphaflega birtur \u00e1 DV\/Eyjunni 1. j\u00fal\u00ed 2026 Umr\u00e6\u00f0an um ESB beinist miki\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1var\u00fatvegi og landb\u00fana\u00f0i, enda skipta \u00feessar atvinnugreinar miklu m\u00e1li fyrir efnahagsl\u00edf landsins og hinar dreif\u00f0u bygg\u00f0ir. Minna hefur \u00fe\u00f3 fari\u00f0 fyrir umr\u00e6\u00f0u um a\u00f0ra \u00fe\u00e6tti sem &hellip; <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2026\/08\/14\/1224\/\">Continue reading <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1298,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"link","meta":{"footnotes":""},"categories":[759],"tags":[],"class_list":["post-1224","post","type-post","status-publish","format-link","hentry","category-oflokkad","post_format-post-format-link"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1224","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1298"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1224"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1224\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1226,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1224\/revisions\/1226"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1224"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1224"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1224"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}