{"id":1235,"date":"2026-08-14T15:21:10","date_gmt":"2026-08-14T15:21:10","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/?p=1235"},"modified":"2026-08-14T15:27:24","modified_gmt":"2026-08-14T15:27:24","slug":"hundavefrettir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2026\/08\/14\/hundavefrettir\/","title":{"rendered":"Hundav\u00e9fr\u00e9ttir"},"content":{"rendered":"<p style=\"text-align: justify\">\u00cd \u00edslenskri sagnahef\u00f0 lifa draugas\u00f6gur, huldus\u00f6gur og \u201ehundav\u00e9fr\u00e9ttir\u201c g\u00f3\u00f0u l\u00edfi. \u00de\u00e6r geta veri\u00f0 skemmtilegar ef vel eru fluttar. \u00de\u00e6r eiga \u00fe\u00f3 sameiginlegt a\u00f0 byggjast sjaldnast \u00e1 traustum heimildum sem h\u00e6gt er a\u00f0 sannreyna.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00cd Evr\u00f3puumr\u00e6\u00f0unni hafa \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu d\u00f6gum borist m\u00e9r \u00ed h\u00e6gra eyra \u2013 \u00e9g er heyrnarlaus \u00e1 \u00fev\u00ed vinstra \u2013 tv\u00e6r fur\u00f0us\u00f6gur um \u00feann hrylling sem kunni a\u00f0 b\u00ed\u00f0a \u00fej\u00f3\u00f0arinnar segi h\u00fan j\u00e1 29. \u00e1g\u00fast n\u00e6stkomandi.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Fyrri sagan er af tveimur \u00f3nafngreindum s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingum \u00ed m\u00e1lefnum ESB sem voru staddir \u00ed Par\u00eds fyrir ekki svo l\u00f6ngu s\u00ed\u00f0an. Munu \u00feeir \u00fear \u00ed borg hafa hlegi\u00f0 a\u00f0 \u00feeirri hugmynd a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0 geti veitt umbo\u00f0 til a\u00f0 hefja a\u00f0ildarvi\u00f0r\u00e6\u00f0ur \u00e1n \u00feess a\u00f0 skuldbinda sig fyrir fram til inng\u00f6ngu, heldur kanna fyrst hva\u00f0 s\u00e9 \u00ed bo\u00f0i um lykilm\u00e1lefni s\u00edn og taka s\u00ed\u00f0an afst\u00f6\u00f0u til ni\u00f0urst\u00f6\u00f0unnar.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deessir reyndu menn, eftir \u00fev\u00ed sem sagan hermir, hef\u00f0u geta\u00f0 spara\u00f0 s\u00e9r hl\u00e1turinn til betra tilefnis. Vir\u00f0ast \u00feeir ekki hafa vita\u00f0, ef sagan er \u00fe\u00e1 s\u00f6nn, a\u00f0 r\u00edki \u00feurfa ekki a\u00f0 skuldbinda sig til a\u00f0ildar a\u00f0 loknum vi\u00f0r\u00e6\u00f0um og geta \u00fea\u00f0 raunar sjaldnast. Evr\u00f3pur\u00edki hafa kosi\u00f0 um a\u00f0ildarferli\u00f0 \u00e1 mismunandi stigum: sum \u00e1\u00f0ur en vi\u00f0r\u00e6\u00f0ur h\u00f3fust, \u00f6nnur me\u00f0an \u00e1 ferlinu st\u00f3\u00f0 og enn \u00f6nnur eftir a\u00f0 vi\u00f0r\u00e6\u00f0um lauk, \u00feegar tillaga a\u00f0 a\u00f0ildarsamningi l\u00e1 fyrir. M\u00f6rg hafa ekki \u00feurft a\u00f0 breyta stj\u00f3rnarskr\u00e1 sinni, en \u00f6nnur ger\u00f0u \u00fea\u00f0 undir lok a\u00f0ildarferlisins ef \u00feess var talin \u00fe\u00f6rf.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Hvernig r\u00edkisstj\u00f3rnir afla s\u00e9r umbo\u00f0s til a\u00f0ildarvi\u00f0r\u00e6\u00f0na fer eftir stj\u00f3rnskipunarreglum og p\u00f3lit\u00edskum a\u00f0st\u00e6\u00f0um \u00ed hverju landi. ESB hefur ekki reglur sem \u00e1kve\u00f0a hvernig sl\u00edkt umbo\u00f0 skuli veitt e\u00f0a hversu v\u00ed\u00f0t\u00e6kt \u00fea\u00f0 skuli vera. \u00dea\u00f0 er alfari\u00f0 innanr\u00edkism\u00e1l. Ef ESB er tilb\u00fai\u00f0 til vi\u00f0r\u00e6\u00f0na vi\u00f0 \u00cdsland \u00e1 \u00feeim forsendum sem \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0slan byggir \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 bara svo og hl\u00e1tur \u00feessara \u00e1g\u00e6tu manna breytir \u00fear engu um.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Margt er \u00fe\u00f3 \u00f3lj\u00f3st um a\u00f0draganda \u00feessa tiltekna hl\u00e1turs og hva\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00e1kv\u00e6mlega var sem hlegi\u00f0 var a\u00f0. M\u00f6gulega hl\u00f3gu \u00feeir, ef \u00feessi hl\u00e1tur \u00e1tti s\u00e9r yfirh\u00f6fu\u00f0 sta\u00f0, a\u00f0 s\u00f6gumanni sj\u00e1lfum.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Hva\u00f0 sem \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0ur finnst m\u00e9r l\u00edklegt, af starfsreynslu \u00feeirra a\u00f0 d\u00e6ma, a\u00f0 \u00feessir vi\u00f0hl\u00e6jendur hafi vita\u00f0 \u00feetta allt saman. \u00deeir hlj\u00f3ta einnig a\u00f0 vita a\u00f0 j\u00e1 er j\u00e1, \u00fe\u00f3tt kj\u00f3sendur kunni a\u00f0 hafa \u00f3l\u00edkar \u00e1st\u00e6\u00f0ur fyrir atkv\u00e6\u00f0i s\u00ednu. Hi\u00f0 sama gildir um nei.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Hin sagan er s\u00fa a\u00f0 \u00feegar \u00fej\u00f3\u00f0 hefur sagt j\u00e1 vi\u00f0 vi\u00f0r\u00e6\u00f0um og fulltr\u00faar hennar m\u00e6ta \u00e1 fund \u00ed Brussel s\u00e9 h\u00fan komin \u00e1 braut sem vart ver\u00f0i af sn\u00fai\u00f0 og hlj\u00f3ti a\u00f0 enda me\u00f0 a\u00f0ild, sama hva\u00f0.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deessi sp\u00e1d\u00f3mur er settur fram af talsver\u00f0ri vissu, en \u00e1n \u00feess a\u00f0 v\u00edsa\u00f0 s\u00e9 til bindandi reglna, ford\u00e6ma e\u00f0a d\u00e6ma um r\u00edki sem hafi lent \u00ed sl\u00edkum hremmingum.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Sem sagt: engin g\u00f6gn liggja fyrir sem sty\u00f0ja \u00feann sp\u00e1d\u00f3m a\u00f0 \u00cdsland geti allt \u00ed einu or\u00f0i\u00f0 a\u00f0ildarr\u00edki ESB \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 \u00fev\u00ed, og \u00fea\u00f0 jafnvel \u00fe\u00f3tt s\u00ed\u00f0ari \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0sla hafi ekki fari\u00f0 fram \u00fear sem hennar er v\u00e6nst.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deetta g\u00e6ti jafnframt gerst l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur en \u00cdslendingum g\u00e6fist r\u00e1\u00f0r\u00fam til a\u00f0 breyta eigin stj\u00f3rnarskr\u00e1 samkv\u00e6mt \u00edslenskum stj\u00f3rnskipunarreglum me\u00f0 sam\u00feykki \u00e1 tveimur \u00feingum og kosningum til Al\u00feingis \u00e1 milli, og \u00e1\u00f0ur en \u00f6llum a\u00f0ildarr\u00edkjum sambandsins g\u00e6fist kostur \u00e1 a\u00f0 sam\u00feykkja a\u00f0ild \u00cdslands.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Og \u00fatger\u00f0in veit ekki sitt rj\u00fakandi r\u00e1\u00f0, en ungir menn og konur vakna upp einn morgun \u00ed \u00edmyndu\u00f0um hermannab\u00faningi sambandsins, me\u00f0 riffil vi\u00f0 \u00f6xl og herkva\u00f0ningu \u00ed brj\u00f3stvasanum.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deetta yr\u00f0i fremur \u00f3v\u00e6nt af \u00feeirri \u00e1st\u00e6\u00f0u einnig a\u00f0 \u00cdsland h\u00f3f, vegna skuldbindinga \u00ed EES-samningnum, a\u00f0l\u00f6gun a\u00f0 regluverki ESB um innri marka\u00f0inn fyrir um 35 \u00e1rum og hefur unni\u00f0 a\u00f0 henni s\u00ed\u00f0an eftir \u00fev\u00ed sem n\u00fdjar reglur hafa or\u00f0i\u00f0 til. A\u00f0 \u00fev\u00ed \u00e9g best veit hefur \u00cdsland \u00fe\u00f3 ekki \u00e1 \u00feessum \u00e1ratugum veri\u00f0 innlima\u00f0 \u00ed sambandi\u00f0 \u00e1n vitundar landsmanna og gegn vilja \u00feeirra.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Svo eitt \u00ed vi\u00f0b\u00f3t. S\u00f3ttu \u00cdslendingar ekki um a\u00f0ild \u00ed\u00a0j\u00fal\u00ed 2009 og fyrsti fundur a\u00f0ildarvi\u00f0r\u00e6\u00f0na haldinn um \u00e1ri s\u00ed\u00f0ar? S\u00ed\u00f0an eru 16 \u00e1r. Samt er \u00cdsland enn \u00fe\u00e1 fyrir utan sambandi\u00f0!? S\u00e9 ekki \u00ed lj\u00f3si \u00feessarar sta\u00f0reyndar a\u00f0 sp\u00e1d\u00f3mur \u00feessi f\u00e1i sta\u00f0ist. Er einhver \u00fearna \u00fati sem getur hj\u00e1lpa\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 skilja \u00feetta betur?<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c1 \u00feessu stigi l\u00edkjast sagan og hinn dularfulli sp\u00e1d\u00f3mur fremur \u201ehundav\u00e9fr\u00e9tt\u201c en fr\u00e6\u00f0ilegri r\u00f6ksemdaf\u00e6rslu. Verulegra \u00farb\u00f3ta er \u00fe\u00f6rf \u00e1 \u00feessum r\u00f6ksemdum ef \u00fe\u00e6r eiga a\u00f0 n\u00fdtast \u00fej\u00f3\u00f0inni \u00ed umr\u00e6\u00f0unni sem n\u00fa geisar.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Sagan af tveimur hl\u00e6jandi s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingum \u00ed Par\u00eds og sp\u00e1d\u00f3murinn um a\u00f0 \u00edslenska \u00fej\u00f3\u00f0in kunni a\u00f0 ver\u00f0a hlekkju\u00f0 vi\u00f0 fundarbor\u00f0i\u00f0 \u00ed Brussel, ef h\u00fan sam\u00feykkir a\u00f0 hefja vi\u00f0r\u00e6\u00f0ur \u00e1 n\u00fd, tilheyra fremur heimi drauga- og huldusagna en sta\u00f0reynda sem h\u00e6gt er a\u00f0 sannreyna.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">G\u00f6mul speki segir a\u00f0 s\u00e1 sem vill sj\u00e1 draug sj\u00e1i draug \u00ed hverju horni. Sama vir\u00f0ist stundum gilda um Evr\u00f3puumr\u00e6\u00f0una \u00fear sem n\u00fdir draugar skr\u00ed\u00f0a \u00far sk\u00famaskotum s\u00ednum dag hvern. S\u00e1 sem leitar a\u00f0 draugum finnur \u00fe\u00e1 alls sta\u00f0ar, jafnvel \u00fe\u00f3tt sta\u00f0reyndir \u00ed raunheimum gefi miklu frekar tilefni til a\u00f0 \u00e1lykta a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u ekki til.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Draugas\u00f6gur, huldus\u00f6gur og \u201ehundav\u00e9fr\u00e9ttir\u201c \u00fe\u00f3ttu skemmtileg af\u00fereying \u00e1 ba\u00f0stofuloftum fyrri alda \u00feegar kaldir vetrarvindar gnau\u00f0u\u00f0u utan vi\u00f0 lj\u00f3rann. \u00de\u00e6r eru aftur \u00e1 m\u00f3ti ekki hj\u00e1lplegar fyrir \u00edslenska \u00fej\u00f3\u00f0 sem n\u00fa stendur frammi fyrir st\u00e6rri p\u00f3lit\u00edskri \u00e1kv\u00f6r\u00f0un en h\u00fan hefur gert um langa hr\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Or\u00f0i\u00f0 \u201ehundav\u00e9fr\u00e9ttir\u201c kemur fyrir \u00ed sm\u00e1s\u00f6gunni \u201e\u00d3kv\u00e6\u00f0a vi\u00f0\u201c eftir \u00de\u00f3rarinn Eldj\u00e1rn. Hef ekki rekist \u00e1 \u00fea\u00f0 annars sta\u00f0ar. \u00c9g er ekki alveg kl\u00e1r \u00e1 \u00fev\u00ed hva\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir n\u00e1kv\u00e6mlega en hef \u00e1 tilfinningunni a\u00f0 \u00fea\u00f0 h\u00e6fi h\u00e9r \u00e1g\u00e6tlega. Hefur einhver sko\u00f0un \u00e1 \u00fev\u00ed?<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\"><em>H\u00f6fundur er l\u00f6gma\u00f0ur hj\u00e1 Thales l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i\u00fej\u00f3nustu.<\/em><\/p>\n<p>Upphaflega birt \u00e1 DV\/Eyjunni 8. \u00e1g\u00fast 2026<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd \u00edslenskri sagnahef\u00f0 lifa draugas\u00f6gur, huldus\u00f6gur og \u201ehundav\u00e9fr\u00e9ttir\u201c g\u00f3\u00f0u l\u00edfi. \u00de\u00e6r geta veri\u00f0 skemmtilegar ef vel eru fluttar. \u00de\u00e6r eiga \u00fe\u00f3 sameiginlegt a\u00f0 byggjast sjaldnast \u00e1 traustum heimildum sem h\u00e6gt er a\u00f0 sannreyna. \u00cd Evr\u00f3puumr\u00e6\u00f0unni hafa \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu d\u00f6gum borist &hellip; <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2026\/08\/14\/hundavefrettir\/\">Continue reading <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1298,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"link","meta":{"footnotes":""},"categories":[759],"tags":[],"class_list":["post-1235","post","type-post","status-publish","format-link","hentry","category-oflokkad","post_format-post-format-link"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1235","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1298"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1235"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1235\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1236,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1235\/revisions\/1236"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1235"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1235"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1235"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}