{"id":536,"date":"2022-12-08T00:15:44","date_gmt":"2022-12-08T00:15:44","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/?p=536"},"modified":"2022-12-09T16:10:54","modified_gmt":"2022-12-09T16:10:54","slug":"gudrun-eva-minervudottir-utsyni-bjartur-2022","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2022\/12\/08\/gudrun-eva-minervudottir-utsyni-bjartur-2022\/","title":{"rendered":"Gu\u00f0r\u00fan Eva M\u00ednervud\u00f3ttir \u2013 \u00dats\u00fdni (Bjartur 2022)"},"content":{"rendered":"<p>&nbsp;<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-542\" src=\"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/files\/2022\/12\/Utsyni_1024x1024@2x-1-196x300.jpg\" alt=\"\" width=\"135\" height=\"207\" srcset=\"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/files\/2022\/12\/Utsyni_1024x1024@2x-1-196x300.jpg 196w, https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/files\/2022\/12\/Utsyni_1024x1024@2x-1-669x1024.jpg 669w, https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/files\/2022\/12\/Utsyni_1024x1024@2x-1-768x1176.jpg 768w, https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/files\/2022\/12\/Utsyni_1024x1024@2x-1-1003x1536.jpg 1003w, https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/files\/2022\/12\/Utsyni_1024x1024@2x-1.jpg 1337w\" sizes=\"auto, (max-width: 135px) 100vw, 135px\" \/><\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Reynsluheimur minn er s\u00e1 a\u00f0 m\u00e9r hentar sk\u00e1st a\u00f0 skrifa b\u00f3klega \u00feanka um fr\u00e6\u00f0irit, a\u00f0allega sagnfr\u00e6\u00f0i og l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i, en einnig a\u00f0 nokkru \u00fea\u00f0 sem kalla m\u00e1 heimildas\u00f6gur, s\u00f6gulegar sk\u00e1lds\u00f6gur e\u00f0a s\u00f6gur sem hafa sk\u00fdra s\u00f6gulega tilv\u00edsun til raunverulegs f\u00f3lks og raunverulegra atbur\u00f0a. Ekki spillir fyrir ef \u00ed \u00feeim er dass af heimspeki, p\u00f3lit\u00edk og hagfr\u00e6\u00f0i. \u00c9g hef \u00fe\u00f3 lesi\u00f0 talsvert af sk\u00e1ldskap gegnum \u00e1ratugina. \u00deannig les \u00e9g til d\u00e6mis allt eftir Gyr\u00f0i El\u00edasson nema handritin sem hann er enn me\u00f0 \u00ed sk\u00faffunni hj\u00e1 s\u00e9r, enda kemst \u00e9g ekki \u00ed \u00feau \u00fear sem \u00e9g \u00feekki manninn ekki neitt og veit ekki hvar hann \u00e1 heima. Sagnaheimur hans h\u00f6f\u00f0ar s\u00e9rlega miki\u00f0 til m\u00edn. Ekki veit \u00e9g af hverju \u00fea\u00f0 er og hef ekki yfir a\u00f0 b\u00faa b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ilegum or\u00f0afor\u00f0a sem gerir m\u00e9r kleift a\u00f0 sk\u00fdra \u00fea\u00f0 \u00e1 sannf\u00e6randi h\u00e1tt. Kannski er \u00fea\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 allir \u00feessir introvertar og einfarar, sem Gyr\u00f0ir t\u00f6frar fram \u00ed b\u00f3kum s\u00ednum, h\u00f6f\u00f0a svona miki\u00f0 til m\u00edn. \u00der\u00e1tt fyrir \u00feessar takmarkanir m\u00ednar, og kannski vegna \u00feeirra, \u00e1kva\u00f0 \u00e9g, eftir a\u00f0 hafa r\u00e1fa\u00f0 einsamall langa stund milli drekkhla\u00f0inna b\u00f3kabor\u00f0anna \u00ed Pennanum \u00ed Kringlunni, a\u00f0 fara \u00fat fyrir \u00fe\u00e6gindarammann, og spreyta mig a\u00f0eins \u00e1 Gu\u00f0r\u00fanu Evu M\u00ednervud\u00f3ttur og b\u00f3k hennar <em>\u00dats\u00fdni<\/em>.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c1 k\u00e1pu b\u00f3karinnar er saga Gu\u00f0r\u00fanar Evu <em>A\u00f0fer\u00f0ir til a\u00f0 lifa af<\/em> ausin lofi af vi\u00f0urkenndum og \u00feekktum b\u00f3kmenntad\u00f3mendum, en svo vill til a\u00f0 \u00feetta er eina b\u00f3kin sem \u00e9g hef \u00e1\u00f0ur lesi\u00f0 eftir \u00feennan h\u00f6fund. Lofgj\u00f6r\u00f0ir af \u00feessu tagi \u00e1 b\u00f3kark\u00e1pum hafa marka\u00f0s\u00e1hrif \u00e1 mig og auka kaupl\u00f6ngun m\u00edna. \u00c9g fell gjarnan fyrir svona augl\u00fdsingabrellum \u00ed b\u00f3kamenntageiranum og hef oft seti\u00f0 uppi me\u00f0 b\u00e6kur sem m\u00e9r \u00fe\u00f3ttu ekki r\u00edsa undir lofinu. \u00c9g hef \u00fev\u00ed oft veri\u00f0 gabba\u00f0ur til a\u00f0 kaupa vondar b\u00e6kur, svo \u00fea\u00f0 s\u00e9 n\u00fa sagt. \u00cd \u00feessu tilfelli, vil \u00e9g tr\u00faa, a\u00f0 meira m\u00e1li hafi skipt a\u00f0 m\u00e9r fannst <em>A\u00f0fer\u00f0ir til a\u00f0 lifa af<\/em> \u00e1hugaver\u00f0 og m\u00e9r l\u00e9k forvitni \u00e1 a\u00f0 kynnast h\u00f6fundinum betur. \u00deori varla a\u00f0 segja \u00fea\u00f0, en h\u00fan minnti mig \u00e1 Gyr\u00f0i.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Sagan er um unga konu Sigurlilju de Waal, sem er svo h\u00e1vaxin og mj\u00f3 a\u00f0 h\u00fan g\u00e6ti m\u00e1la\u00f0 \u201eskipsm\u00f6stur a\u00f0 innan\u201c. Sigurlilja er svol\u00edti\u00f0 \u00e1 skj\u00f6n \u00ed l\u00edfinu, a\u00f0 \u00e1liti m\u00f3\u00f0ur hennar. H\u00f6fundur \u00e1r\u00e9ttar \u00feessa s\u00e9rst\u00f6\u00f0u s\u00f6gupers\u00f3nu sinnar me\u00f0 \u00fdmsum h\u00e6tti. H\u00fan \u00e1 hollenskan f\u00f6\u00f0ur sem hefur l\u00edti\u00f0 af henni a\u00f0 segja. H\u00fan passar ekki \u00ed b\u00edls\u00e6ti og flugv\u00e9lar og ekki inn \u00ed l\u00e6knav\u00edsindin, j\u00e1 eiginlega ekki inn \u00ed heiminn.\u00a0 \u00c1 dimmu vetrarkv\u00f6ldi \u00ed Hafnarfir\u00f0i s\u00e9r h\u00fan lj\u00f3sboga \u00e1 himni, eins konar geimskip, l\u00ed\u00f0ur \u00fat af og er vakin upp og fylgt heim af \u00f3kunnugum manni, sem kemur ekki frekar vi\u00f0 s\u00f6gu. Ef \u00e9g skil r\u00e9tt er h\u00fan eftir \u00feetta \u00feeim h\u00e6fileika b\u00fain a\u00f0 sj\u00e1 veruleikann me\u00f0 augum annarra \u00ed b\u00f3kstaflegri merkingu. \u00deetta gengur eiginlega svol\u00edti\u00f0 lengra \u00fev\u00ed h\u00fan n\u00e1nast kl\u00e6\u00f0ir sig h\u00fa\u00f0 annarra og er um t\u00edma \u00fea\u00f0 f\u00f3lk hvers augum h\u00fan s\u00e9r heiminn me\u00f0, a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti en \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan getur ekki teki\u00f0 l\u00edf \u00feeirra yfir og st\u00fdrt \u00fev\u00ed hva\u00f0 \u00fea\u00f0 tekur s\u00e9r fyrir hendur.\u00a0 Reynsla, hugsanir og kenndir \u00feessa f\u00f3lks ver\u00f0a hennar eigin \u00e1 \u00feennan pass\u00edfa h\u00e1tt. En h\u00fan er s\u00e9rlega h\u00e1vaxin og \u00feannig er \u00fats\u00fdni hennar meira en okkar hinna sem eru svona r\u00e9tt \u00ed me\u00f0allagi og svo \u00e9g tali n\u00fa ekki um \u00fe\u00e1 sem l\u00e1gvaxnari eru. N\u00fa veit \u00e9g a\u00f0 margir sem \u00e9g \u00feekki lesa ekki undir nokkrum kringumst\u00e6\u00f0um b\u00e6kur sem fjalla um geimverur, handanveruleika og \u00f6nnur sl\u00edk hindurvitni. Ver\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka fram strax og \u00feessi b\u00f3k Gu\u00f0r\u00fanar Evu hefur, eftir m\u00ednum skilningi, ekkert sem sl\u00edkt a\u00f0 gera.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Ramminn sem h\u00f6fundur m\u00f3tar kringum \u00feessa s\u00e9rst\u00e6\u00f0u og margslungnu s\u00f6gu er \u00fe\u00f3 frekar einfaldur. Sagan hefst \u00e1 a\u00f0 Sigurlilja (Lilja) tekur s\u00e9r fyrir hendur, a\u00f0 \u00f3sk m\u00f3\u00f0ur sinnar, fer\u00f0alag til Bakkafjar\u00f0ar um sumars\u00f3lst\u00f6\u00f0ur til a\u00f0 ganga fr\u00e1 d\u00e1narb\u00fai eftir aldra\u00f0a fr\u00e6nku \u00feeirra m\u00e6\u00f0gna, Teresu. \u00c1 \u00feessu fer\u00f0alagi hittir h\u00fan fj\u00f6lda f\u00f3lks. \u00deessi einfaldi s\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0ur heldur s\u00f6gunni saman og skapar henni ramma, en innan hans er heill heimur og miklu st\u00e6rri t\u00edmarammi en \u00fearf til a\u00f0 leysa \u00feetta tiltekna verkefni af hendi. \u00c9g \u00e6tla ekki a\u00f0 spilla lestrinum fyrir m\u00f6gulegum lesendum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 rekja s\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0inn h\u00e9r n\u00e1nar.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c1 fer\u00f0alaginu kynnist lesandinn fj\u00f6lda f\u00f3lks; s\u00f6gupers\u00f3nunni sj\u00e1lfri, Teresu fr\u00e6nku, n\u00e1gr\u00f6nnum og kunningjum hennar \u00e1 Bakkafir\u00f0i, \u00f6llu \u00fev\u00ed f\u00f3lki sem h\u00fan tekur s\u00e9r b\u00f3lfestu \u00ed til a\u00f0 sj\u00e1 heiminn \u00ed gegnum og \u00fdmsu \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki sem staldra\u00f0 hefur vi\u00f0 \u00ed l\u00edfi hennar, svo sem sk\u00f3laf\u00e9l\u00f6gum, vinnuf\u00e9l\u00f6gum og \u201evinum\u201c, \u00fev\u00ed \u00f3lj\u00f3st er hvort h\u00fan getur \u00e1tt vini yfirh\u00f6fu\u00f0. \u00a0\u00deannig eru innan \u00feessa ramma margar sm\u00e1s\u00f6gur \u00fear sem \u00feessar pers\u00f3nur birtast, segja s\u00edna s\u00f6gu og hverfa svo. \u00dearna er meira a\u00f0 segja gl\u00e6pasaga. \u00deannig stendur a\u00f0alpers\u00f3nan \u00ed mi\u00f0ju \u00feessu pers\u00f3nugaller\u00edi og setur sig \u00ed spor alls \u00feessa f\u00f3lks og hlustar \u00e1 s\u00f6gur \u00feeirra. \u00dear stendur Sigurlilja utan vi\u00f0 sj\u00e1lfa sig, ef svo m\u00e1 segja og uppl\u00fdsir l\u00edti\u00f0 um sig, \u00e1form s\u00edn, langanir og \u00fer\u00e1r ef einhverjar eru. Lestur b\u00f3karinnar er afar s\u00e9rstakt fer\u00f0alag sem h\u00f6fundurinn b\u00fd\u00f0ur lesandanum me\u00f0 s\u00e9r \u00ed. Endir s\u00f6gunnar er einnig s\u00e9rst\u00e6\u00f0ur, svona \u00ed samhengi s\u00f6gunnar\u201a ef svo m\u00e1 segja, \u00fev\u00ed sk\u00fdringar \u00e1 \u00feessum h\u00e6fileikum Sigurlilju eru jar\u00f0bundnari en ma\u00f0ur kynni a\u00f0 \u00e6tla. Segi ekki meira um \u00fea\u00f0. \u00deetta sk\u00fdrist s\u00ed\u00f0ari hluta b\u00f3karinnar.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Hver er l\u00e6rd\u00f3murinn? N\u00fa ver\u00f0ur l\u00edklega hver og einn lesandi a\u00f0 r\u00e1\u00f0a \u00ed \u00fea\u00f0 eftir s\u00ednum skilningi, eins og \u00e1 vi\u00f0 um allar g\u00f3\u00f0ar sk\u00e1lds\u00f6gur. M\u00e9r vir\u00f0ist \u00fdmislegt koma til greina \u00fe\u00f3tt ekki s\u00e9 tryggt a\u00f0 h\u00f6fundurinn myndi fallast \u00e1 neitt af \u00fev\u00ed, enda hef \u00e9g ekki \u00feann h\u00e6fileika a\u00f0 sj\u00e1 s\u00f6guna me\u00f0 augum h\u00f6fundarins sj\u00e1lfs. \u00c9g les bara textann eins og hann liggur fyrir \u00fat fr\u00e1 m\u00ednu afgirta sj\u00f3narhorni. \u00cd \u00f6llu falli minnir sagan \u00e1 a\u00f0 vi\u00f0 erum \u00ed raun alltaf loku\u00f0 af vi\u00f0 eigi\u00f0 sj\u00f3narhorn. Allir eiga s\u00e9r s\u00edna s\u00f6gu og allar eru \u00feessar s\u00f6gur \u00e1hugaver\u00f0ar og ver\u00f0ugar. Sumar \u00feeirra kunna a\u00f0 \u00feykja hversdagslegar \u00e1 ytra bor\u00f0i, en a\u00f0rar eru dramat\u00edskar og tilfinninga\u00ferungnar. G\u00f3\u00f0ur er s\u00e1 eiginleiki a\u00f0 geta sett sig \u00ed spor annarra og freista \u00feess a\u00f0 horfa \u00e1 heiminn fr\u00e1 annarra sj\u00f3narh\u00f3li og leggja sig fram um a\u00f0 skilja \u00feannig afst\u00f6\u00f0u \u00feeirra og s\u00e9rst\u00f6\u00f0u betur. Hvert og eitt l\u00edf er \u00feess ver\u00f0ugt a\u00f0 \u00fev\u00ed s\u00e9 lifa\u00f0 og \u00fea\u00f0 er s\u00e9rstakt og fr\u00e1sagnarvert. \u00a0En \u00feessi eiginleiki a\u00f0 sj\u00e1 heiminn s\u00edfellt me\u00f0 augum annarra er \u00fe\u00f3 ekki heppilegur a\u00f0 \u00f6llu leyti \u00fev\u00ed hann kann a\u00f0 lei\u00f0i til \u00feess a\u00f0 ma\u00f0ur setji eigi\u00f0 sj\u00e1lf til hli\u00f0ar. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 lifa l\u00edfi annarra setur ma\u00f0ur sitt eigi\u00f0 til hli\u00f0ar. \u00dea\u00f0 er einmitt \u00fea\u00f0 sem a\u00f0alpers\u00f3nan gerir lengst af, h\u00fan dregur sig \u00ed hl\u00e9, hefur engin pl\u00f6n fyrir sig e\u00f0a metna\u00f0 s\u00e9r til handa og er fjarl\u00e6g og einr\u00e6n. H\u00fan lifir \u00ed fj\u00f6lskr\u00fa\u00f0ugu l\u00edfi annarra. Eins og Gu\u00f0r\u00fan Eva segir, Sigurlilja vistar s\u00ednar \u201esj\u00e1lfur\u201c \u00ed s\u00edmann sinn, en \u00fe\u00e6r hverfa s\u00ed\u00f0an \u00feegar l\u00edft\u00edma hans l\u00fdkur, svona eins og hann er ger\u00f0ur til. Sigurlilja skilur sj\u00e1lfa sig eftir \u00e1 fer\u00f0 sinni um l\u00edf, huga, afst\u00f6\u00f0u og sj\u00f3narhorn annarra. Svo taka hlutirnir \u00e1 sig a\u00f0ra mynd \u00feegar ma\u00f0ur hefur ekki lengur \u00fe\u00e1 s\u00e9rst\u00f6\u00f0u a\u00f0 vera hlutlaus og velvilja\u00f0ur \u00e1horfandi og ver\u00f0a \u00feess \u00ed sta\u00f0 \u00e1byrgur fyrir sj\u00e1lfum s\u00e9r og \u00f6\u00f0rum. Sagan er vissulega margr\u00e6\u00f0 og unnt a\u00f0 leggja \u00fat fr\u00e1 henni \u00e1 mismunandi vegu. L\u00edklegt er a\u00f0 einstaka lesendur geri einmitt \u00fea\u00f0, hver og einn \u00fat fr\u00e1 s\u00ednu afmarka\u00f0a\u00a0 sj\u00f3narhorni.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">M\u00e9r hugnast st\u00edlinn \u00e1 b\u00f3kinni s\u00e9rleg vel. Um lei\u00f0 og hann er einfaldur, t\u00e6r og bl\u00e1tt \u00e1fram er hann fullur af n\u00e6mni og sk\u00e1ldlegri andagift og l\u00e9ttri k\u00edmni \u00feegar \u00fea\u00f0 \u00e1 vi\u00f0. Og svo er hann alveg laus vi\u00f0 \u00fereytandi or\u00f0skr\u00fa\u00f0, \u00f3\u00f0am\u00e6li og tilger\u00f0arlega upphafningu sem einkennir suma h\u00f6funda.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Vel ger\u00f0 og \u00e1hugaver\u00f0 sk\u00e1ldsaga sem skrifu\u00f0 er af r\u00edku inns\u00e6i og n\u00e6mni.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>&nbsp; Reynsluheimur minn er s\u00e1 a\u00f0 m\u00e9r hentar sk\u00e1st a\u00f0 skrifa b\u00f3klega \u00feanka um fr\u00e6\u00f0irit, a\u00f0allega sagnfr\u00e6\u00f0i og l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i, en einnig a\u00f0 nokkru \u00fea\u00f0 sem kalla m\u00e1 heimildas\u00f6gur, s\u00f6gulegar sk\u00e1lds\u00f6gur e\u00f0a s\u00f6gur sem hafa sk\u00fdra s\u00f6gulega tilv\u00edsun til raunverulegs f\u00f3lks &hellip; <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2022\/12\/08\/gudrun-eva-minervudottir-utsyni-bjartur-2022\/\">Continue reading <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1298,"featured_media":539,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"link","meta":{"footnotes":""},"categories":[25923],"tags":[],"class_list":["post-536","post","type-post","status-publish","format-link","has-post-thumbnail","hentry","category-baekur","post_format-post-format-link"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/536","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1298"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=536"}],"version-history":[{"count":12,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/536\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":558,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/536\/revisions\/558"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/media\/539"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=536"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=536"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=536"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}