{"id":624,"date":"2023-06-18T09:04:02","date_gmt":"2023-06-18T09:04:02","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/?p=624"},"modified":"2023-06-19T06:50:33","modified_gmt":"2023-06-19T06:50:33","slug":"fjallid-tok-jodsott-og-faeddist-litil-mus-um-bok-hannesar-holmsteins-gissurarsonar-um-landsdomsmalid","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2023\/06\/18\/fjallid-tok-jodsott-og-faeddist-litil-mus-um-bok-hannesar-holmsteins-gissurarsonar-um-landsdomsmalid\/","title":{"rendered":"Fjalli\u00f0 t\u00f3k jo\u00f0s\u00f3tt og f\u00e6ddist l\u00edtil m\u00fas: B\u00f3k Hannesar H\u00f3lmsteins Gissurarsonar um Landsd\u00f3msm\u00e1li\u00f0"},"content":{"rendered":"<p style=\"text-align: justify\">I<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Fyrir s\u00ed\u00f0ustu j\u00f3l kom \u00fat b\u00f3kin <em>Landsd\u00f3msm\u00e1li\u00f0. Stj\u00f3rnm\u00e1larefjar og lagakl\u00e6kir<\/em>. \u00datgefandi er Almenna b\u00f3kaf\u00e9lagi\u00f0 (2022). H\u00f6fundur hennar er Hannes H\u00f3lmsteinn Gissurarson fyrrverandi pr\u00f3fessor \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lafr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 H\u00cd. Landsd\u00f3msm\u00e1li\u00f0 er einstakt \u00ed \u00edslenskri stj\u00f3rnm\u00e1la- og r\u00e9ttars\u00f6gu, en \u00fev\u00ed lauk me\u00f0 d\u00f3mi Landsd\u00f3ms 23. apr\u00edl 2012. M\u00e9r finnst \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 komist ver\u00f0i hj\u00e1 \u00feeim d\u00f3mi s\u00f6gunnar a\u00f0 m\u00e1larekstur \u00feessi \u00e1 hendur Geir Haarde, fyrrverandi fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra, hafi veri\u00f0 \u00f3r\u00e1\u00f0 og sneypuf\u00f6r hin mesta af h\u00e1lfu \u00feeirra sem fyrir honum st\u00f3\u00f0u og h\u00f6nnu\u00f0u. Undarlegt m\u00e1 heita a\u00f0 \u00feess hafi ekki veri\u00f0 freista\u00f0 fyrr en n\u00fa a\u00f0 gera \u00feessu merka m\u00e1li skil \u00e1 b\u00f3k.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">II<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Hannes H\u00f3lmsteinn er kunnur flestum \u00feeim sem fylgjast me\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0m\u00e1lum \u00e1 \u00cdsland. Vi\u00f0 vitum fyrir hva\u00f0 hann stendur \u00ed p\u00f3lit\u00edk, enda hefur hann aldrei fari\u00f0 leynt me\u00f0 \u00fea\u00f0. Vi\u00f0 vitum l\u00edka a\u00f0 hann er \u00f3v\u00e6ginn og har\u00f0sn\u00fainn \u00ed p\u00f3lit\u00edskum r\u00f6kr\u00e6\u00f0um og erfi\u00f0ur vi\u00f0 a\u00f0 eiga enda me\u00f0 afbrig\u00f0um vel lesinn, fr\u00f3\u00f0ur og minnugur. Vi\u00f0 vitum l\u00edka a\u00f0 hann er h\u00e6gri ma\u00f0ur \u00e1 hinu p\u00f3lit\u00edska litr\u00f3fi og setur frelsi manna til or\u00f0a og athafna og einkaframtaki\u00f0 ofar \u00f6\u00f0rum gildum. Hann er og eindreginn sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isma\u00f0ur. \u00deetta vissi \u00e9g au\u00f0vita\u00f0 allt saman \u00feegar \u00e9g las b\u00f3kina. Kom m\u00e9r \u00fev\u00ed ekki \u00e1 \u00f3vart a\u00f0 b\u00f3kin ber \u00feessa merki. N\u00fa m\u00e6tti \u00e6tla a\u00f0 \u00e9g teldi \u00feetta galla \u00e1 henni fr\u00e1 sj\u00f3narh\u00f3li fr\u00e6\u00f0imannsins. \u00de\u00f3 tel \u00e9g ekki svo vera enda Landsd\u00f3msm\u00e1li\u00f0 \u00ed e\u00f0li s\u00ednu st\u00f3rp\u00f3lit\u00edskt. Ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 ekki gert upp nema \u00f6ll sj\u00f3narmi\u00f0 komi fram, hvort sem \u00feau koma fr\u00e1 h\u00e6gri kantinum e\u00f0a \u00feeim vinstri. \u00c1hugavert v\u00e6ri fr\u00e1 fr\u00e6\u00f0ilegu sj\u00f3narmi\u00f0i a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0ra b\u00f3k um \u00feetta einstaka m\u00e1l me\u00f0 hressilegri vinstri slags\u00ed\u00f0u. \u00c9g mun \u00f6rugglega lesa hana l\u00edka.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">III<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00de\u00f3tt \u00e9g geri m\u00e9r fulla grein fyrir a\u00f0 \u00feessi einstaki m\u00e1larekstur hafi valdi\u00f0 \u00feeim sem \u00ed hlut \u00e1ttu miklu hugarangri vil \u00e9g segja, \u00e1\u00f0ur en lengra er haldi\u00f0, a\u00f0 lesi ma\u00f0ur b\u00f3kina \u00ed h\u00e6filegri p\u00f3lit\u00edskri fjarl\u00e6g\u00f0, me\u00f0 fullri vitund um sj\u00f3narhorn h\u00f6fundar og hafi ekki \u00far h\u00f3fi vi\u00f0kv\u00e6mt vinstra hjarta n\u00e9 misl\u00edki \u00feeim mun meira vi\u00f0 Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkinn, eins og margir eiga til, a\u00f0 h\u00fan er st\u00f3rskemmtileg aflestrar. J\u00e1, h\u00fan er eiginlega bara spennandi og reyfarakennd \u00e1 k\u00f6flum og lipurlega og vel skrifu\u00f0. \u00dea\u00f0 er ekki oft sem ma\u00f0ur getur sagt \u00feetta um b\u00e6kur um stj\u00f3rnm\u00e1l og l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i. Um hinar s\u00ed\u00f0arnefndu einkanlega hef \u00e9g m\u00e1tt reyna \u00e1 eigin skinni a\u00f0 algengast er a\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u frekar lei\u00f0inlegar, l\u00edka \u00fe\u00e6r sem \u00e9g hef skrifa\u00f0 sj\u00e1lfur, \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00e6r geti annars veri\u00f0 merkar og gagnlegar vi\u00f0 lagakennslu og l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ist\u00f6rf. Rifjast \u00fe\u00e1 upp fyrir m\u00e9r a\u00f0 Halld\u00f3r Laxness sag\u00f0i um hinn kunna og merka l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ing og r\u00e9ttars\u00f6gufr\u00e6\u00f0ing \u00d3laf L\u00e1russon a\u00f0 hann hafi veri\u00f0 skemmtilegur ma\u00f0ur \u00fe\u00f3tt b\u00e6kur hans um l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ileg efni b\u00e6ru \u00feess ekki merki.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">IV<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Svo sem kunnugt er snerist landsd\u00f3msm\u00e1li\u00f0 um \u00e1k\u00e6ru Al\u00feingis \u00e1 hendur fyrrverandi fors\u00e6tir\u00e1\u00f0herra Geir Haarde vegna \u00e6tla\u00f0ra athafna e\u00f0a eftir atvikum athafnaleysis hans \u00ed a\u00f0draganda fj\u00e1rm\u00e1lahrunsins 2008. A\u00f0dragandi \u00e1k\u00e6runnar er \u00ed stuttu m\u00e1li \u00feessi. Um hausti\u00f0 2008, \u00feegar fj\u00e1rm\u00e1lahruni\u00f0 skall \u00e1, var\u00f0 mikil \u00f3lga \u00ed \u00edslensku samf\u00e9lagi og vantraust \u00ed gar\u00f0 stj\u00f3rnvalda og stofnana samf\u00e9lagsins \u00fatbreitt. Krafa um afs\u00f6gn r\u00edkisstj\u00f3rnar Geirs Haarde, sem myndu\u00f0 var af Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokki og Samfylkingu, var h\u00e1v\u00e6r. R\u00edkisstj\u00f3rnin hr\u00f6kkla\u00f0ist a\u00f0 lokum fr\u00e1 v\u00f6ldum \u00feegar Samfylkingin sleit stj\u00f3rnarsamstarfinu \u00ed jan\u00faar 2009. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 var myndu\u00f0 minnihlutastj\u00f3rn Samfylkingar og\u00a0 VG me\u00f0 stu\u00f0ningi Frams\u00f3knarflokksins og settist J\u00f3hanna Sigur\u00f0ard\u00f3ttir \u00ed st\u00f3l fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra. \u00cd al\u00feingiskosningunum vori\u00f0 2009 j\u00f3kst fylgi Samfylkingar og VG og myndu\u00f0u \u00feessir flokkar meirihlutastj\u00f3rn a\u00f0 loknum kosningum me\u00f0 J\u00f3h\u00f6nnu \u00ed fors\u00e6ti. \u00dea\u00f0 var einmitt \u00ed t\u00ed\u00f0 \u00feessarar r\u00edkisstj\u00f3rnar sem Al\u00feingi lag\u00f0i upp \u00ed sinn mikla landsd\u00f3mslei\u00f0angur.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00de\u00e1 er \u00feess a\u00f0 geta a\u00f0 um hausti\u00f0 2008 haf\u00f0i Al\u00feingi skipa\u00f0 ranns\u00f3knarnefnd Al\u00feingis, undir formennsku P\u00e1ls Hreinssonar \u00fe\u00e1verandi h\u00e6star\u00e9ttard\u00f3mara, en me\u00f0 honum s\u00e1tu \u00ed nefndinni Tryggvi Gunnarsson \u00fe\u00e1verandi umbo\u00f0sma\u00f0ur Al\u00feingis og Sigr\u00ed\u00f0ur Benediktsd\u00f3ttir kennari \u00ed hagfr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 Yale h\u00e1sk\u00f3la \u00ed Bandar\u00edkjunum. Tilgangur nefndarinnar var a\u00f0 rannsaka a\u00f0draganda og orsakir hrunsins og semja sk\u00fdrslu \u00fear um. Sk\u00fdrslan var birt 12. apr\u00edl 2010 e\u00f0a nokkru s\u00ed\u00f0ar en lagt var upp me\u00f0 \u00ed upphafi. Al\u00feingi skipa\u00f0i \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 n\u00edu manna nefnd \u00feingmanna undir formennsku Atla G\u00edslasonar (VG) til a\u00f0 fjalla um sk\u00fdrsluna. Lauk \u00fev\u00ed starfi me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feingmannanefndin lag\u00f0i til, eftir nokku\u00f0 fum og f\u00e1t, a\u00f0 fj\u00f3rir fyrrum r\u00e1\u00f0herrar yr\u00f0u \u00e1k\u00e6r\u00f0ir fyrir Landsd\u00f3mi fyrir \u00e6tlu\u00f0 brot \u00ed st\u00f6rfum s\u00ednum sem r\u00e1\u00f0herrar, n\u00e1nar tilteki\u00f0 Geir Haarde fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra, \u00c1rna Mathiesen fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra, Ingibj\u00f6rg S\u00f3lr\u00fan G\u00edslad\u00f3ttir utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra og loks Bj\u00f6rgvin Sigur\u00f0sson vi\u00f0skiptar\u00e1\u00f0herra. Svo sem kunnugt er enda\u00f0i \u00feetta me\u00f0 \u00fev\u00ed eftir atkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0sluna \u00ed \u00feinginu a\u00f0 a\u00f0eins Geir Haarde st\u00f3\u00f0 eftir sem \u00e1k\u00e6r\u00f0ur. Var hann \u00fev\u00ed einn dreginn fyrir Landsd\u00f3m. Allt er \u00feetta n\u00e1kv\u00e6mlega raki\u00f0 \u00ed b\u00f3kinni og hvernig einstakir \u00feingmenn h\u00f6gu\u00f0u atkv\u00e6\u00f0i s\u00ednu. Lykta\u00f0i \u00feessi atkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0sla \u00f6ll fremur af p\u00f3lit\u00edskum sj\u00f3narmi\u00f0um fremur en refsir\u00e9ttarlegum. Sumir \u00feeirra sem greiddu atkv\u00e6\u00f0i me\u00f0 \u00e1k\u00e6ru hafa vi\u00f0urkennt mist\u00f6k s\u00edn s\u00ed\u00f0ar, en ekki allir, eins og raki\u00f0 er \u00ed lok b\u00f3karinnar. \u00dea\u00f0 er \u00f6nnur saga.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c1k\u00e6ran var \u00ed tveimur li\u00f0um, en s\u00e1 fyrri skiptist \u00ed fimm undirli\u00f0i. Fyrir Landsd\u00f3mi var tveimur af \u00feessum undirli\u00f0um \u00ed 1. li\u00f0 \u00e1k\u00e6runnar v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1 d\u00f3mi, sem vitnar um a\u00f0 \u00feeir hafi veri\u00f0 \u00feannig \u00far gar\u00f0i ger\u00f0ir a\u00f0 ekki var tali\u00f0 unnt a\u00f0 leggja \u00e1 \u00fe\u00e1 efnisd\u00f3m. Og \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3tt fremstu s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingar \u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u00e1 svi\u00f0i refsir\u00e9ttar hafi komi\u00f0 a\u00f0 sm\u00ed\u00f0i \u00feeirra sem r\u00e1\u00f0gjafar eins og raki\u00f0 er \u00ed b\u00f3kinni. \u00a0\u00de\u00e1 var Geir s\u00fdkna\u00f0ur af \u00feremur undirli\u00f0um \u00ed 1. li\u00f0. Geir var \u00e1 hinn b\u00f3ginn sakfelldur samkv\u00e6mt 2. li\u00f0 \u00e1k\u00e6runnar, en s\u00e1 li\u00f0ur laut a\u00f0 \u00fev\u00ed hann hef\u00f0i broti\u00f0 gegn 17. gr. stj\u00f3rnarskr\u00e1rinnar fyrir a\u00f0 halda ekki r\u00e1\u00f0herrafundi um mikilv\u00e6g stj\u00f3rnarm\u00e1lefni. Ni\u00f0ursta\u00f0a Landsd\u00f3ms um \u00feetta var \u00fe\u00f3 ekki einr\u00f3ma \u00fev\u00ed a\u00f0 henni st\u00f3\u00f0u n\u00edu d\u00f3marar, en sex voru \u00e1 m\u00f3ti og t\u00f6ldu a\u00f0 s\u00fdkna b\u00e6ri. \u00deess m\u00e1 geta a\u00f0 \u00e1liti margra l\u00f6gfr\u00e6\u00f0inga, \u00fear me\u00f0 tali\u00f0 undirrita\u00f0s, er a\u00f0 ni\u00f0ursta\u00f0a meirihlutans s\u00e9 bygg\u00f0 \u00e1 h\u00e6pinni, ef ekki rangri, t\u00falkun \u00e1 umr\u00e6ddu \u00e1kv\u00e6\u00f0i stj\u00f3rnarskr\u00e1rinnar. R\u00f6kstu\u00f0ningur minnihlutans ber einnig \u00fear vitni um. Hannes H\u00f3lmsteinn b\u00e6tir \u00ed \u00feau r\u00f6k me\u00f0 sannf\u00e6randi h\u00e6tti. \u00de\u00e1 er \u00feess a\u00f0 geta a\u00f0 Geir var ekki ger\u00f0 refsing og sakarkostna\u00f0ur lag\u00f0ur \u00e1 r\u00edkissj\u00f3\u00f0. Eftirtekjan af \u00feessum einstaka m\u00e1larekstri Al\u00feingis \u00e1 hendur Geir Haarde var \u00fev\u00ed harla r\u00fdr svo v\u00e6gt s\u00e9 til or\u00f0a teki\u00f0. M\u00e9r \u00feykir ekki \u00f3l\u00edklegt \u00ed framt\u00ed\u00f0inni muni margir l\u00edta \u00e1 \u00feessa vegfer\u00f0 sem blett \u00e1 stj\u00f3rnm\u00e1la- og r\u00e9ttars\u00f6gu \u00cdslendinga.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">V<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Framgreindri atbur\u00f0ar\u00e1s er l\u00fdst \u00ed talsver\u00f0um sm\u00e1atri\u00f0um \u00ed b\u00f3kinni. H\u00f6fundur telur a\u00f0 allt ferli\u00f0 hafi veri\u00f0 meingalla\u00f0. \u00deannig r\u00f6ksty\u00f0ur hann a\u00f0 \u00fdmsir vankantar hafi veri\u00f0 \u00e1 skipan ranns\u00f3knarnefndarinnar sem samdi sk\u00fdrsluna sem \u00feingnefndin lag\u00f0i til grundvallar ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u sinni. Einkum dregur hann \u00ed efa h\u00e6fi Sigr\u00ed\u00f0ar Benediktsd\u00f3ttur vegna umm\u00e6la sem h\u00fan haf\u00f0i frammi \u00ed bandar\u00edsku sk\u00f3labla\u00f0i, Yale Daily News, \u00ed mars 2009, \u00fear sem h\u00fan rakti fj\u00e1rm\u00e1lahruni\u00f0 til \u00f6fgafullrar gr\u00e6\u00f0gi og gl\u00e6fralegs andvaraleysis \u00feeirra stofnana sem \u00e1ttu a\u00f0 hafa eftirlit. H\u00f6fundur b\u00f3karinnar f\u00e6rir fyrir \u00fev\u00ed gild l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ileg r\u00f6k a\u00f0 Sigr\u00ed\u00f0ur hafi \u00ed raun veri\u00f0 vanh\u00e6f til \u00e1framhaldandi setu \u00ed nefndinni vegna \u00feessara umm\u00e6la, sem aftur er til \u00feess falli\u00f0 a\u00f0 varpa r\u00fdr\u00f0 \u00e1 tr\u00faver\u00f0ugleika sk\u00fdrslunnar. \u00de\u00e1 gefur Hannes H\u00f3lmsteinn l\u00edti\u00f0 fyrir \u00fe\u00e1 meginsk\u00fdringu nefndarinnar a\u00f0 bankarnir hafi veri\u00f0 of st\u00f3rir. Telur hann \u00feetta nokkurs konar r\u00f6kfr\u00e6\u00f0ilega tuggu (klifun\/tautol\u00f3g\u00edu). Bankar falli ekki vegna \u00feess a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u of st\u00f3rir, heldur \u00feurfi fleira a\u00f0 koma til, r\u00e9tt eins og gler brotni ekki af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 s\u00e9 broth\u00e6tt. St\u00e6r\u00f0 bankanna hafi veri\u00f0 nau\u00f0synlegt skilyr\u00f0i fyrir hruni \u00feeirra, en ekki n\u00e6gilegt. Hinn r\u00e9tta sk\u00fdring s\u00e9 lausafj\u00e1r\u00ferurr\u00f0 bankanna og \u00cdslendingum hafi veri\u00f0 neita\u00f0 um fyrirgrei\u00f0slu \u00ed \u00feeim efnum sem a\u00f0rir bankar hafi fengi\u00f0. Sk\u00fdrslan, \u00fear sem engin l\u00f6gbrot hafi fundist \u00fer\u00e1tt fyrir mikla leit, hafi veri\u00f0 l\u00f6g\u00f0 til grundvallar \u00e1kv\u00f6r\u00f0un Al\u00feingis um a\u00f0 \u00e1k\u00e6ra Geir \u00e1n \u00feess a\u00f0 nokkur sakam\u00e1laranns\u00f3kn hafi fari\u00f0 fram. Um hafi veri\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00e1kv\u00f6r\u00f0un sem ekki hafi veri\u00f0 tekin \u00e1 refsir\u00e9ttarlegum forsendum, heldur hreinum p\u00f3lit\u00edskum. R\u00e9ttarh\u00f6ldin hafi \u00ed raun veri\u00f0 p\u00f3lit\u00edsk!<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c1fram heldur h\u00f6fundur b\u00f3karinnar og rekur \u00fdmsa meinbugi sem hann telur a\u00f0 hafi veri\u00f0 \u00e1 skipan Landsd\u00f3ms og samsetningu. \u00deannig telur hann a\u00f0 Eir\u00edkur T\u00f3masson hafi veri\u00f0 vanh\u00e6fur til a\u00f0 sitja \u00ed d\u00f3minum af \u00fdmsum \u00e1st\u00e6\u00f0um m.a. vegna \u00feess a\u00f0 hann hafi \u00e1tt hlutabr\u00e9f \u00ed b\u00f6nkum, sem ur\u00f0u ver\u00f0laus \u00ed bankahruninu. \u00de\u00e1 hafi hann birt grein \u00e1 netinu, sem hafi horfi\u00f0 flj\u00f3tlega \u00fea\u00f0an, \u00fear sem hann mun hafa raki\u00f0 a\u00f0 bankahruni\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 rekja til \u00feess, a\u00f0 r\u00e1\u00f0herrar hef\u00f0u misbeitt valdi. Enn nefnir h\u00f6fundur a\u00f0 Eir\u00edkur kunni a\u00f0 hafa veri\u00f0 argur \u00fat \u00ed Geir \u00fear sem s\u00e1 s\u00ed\u00f0arnefndi sem settur d\u00f3msm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra 2004 hafi gengi\u00f0 fram hj\u00e1 honum vi\u00f0 val \u00e1 h\u00e6star\u00e9ttard\u00f3mara. \u00de\u00e1 telur hann a\u00f0 tveir a\u00f0rir d\u00f3mendur \u00ed Landsd\u00f3mi, Mark\u00fas Sigurbj\u00f6rnsson og Vi\u00f0ar M\u00e1r Matth\u00edasson hafi a\u00f0 \u00f6llum l\u00edkindum veri\u00f0 vanh\u00e6fir \u00fear sem \u00feeir hafi tapa\u00f0 st\u00f3rf\u00e9 \u00ed hlutabr\u00e9fum og peningamarka\u00f0ssj\u00f3\u00f0um \u00ed bankahruninu. Ekki er h\u00e9r tekin afsta\u00f0a til \u00feessara r\u00f6ksemda h\u00f6fundar fr\u00e1 lagalegu sj\u00f3narmi\u00f0i, en fyrir afst\u00f6\u00f0u sinni f\u00e6rir hann mj\u00f6g framb\u00e6rileg r\u00f6k. \u00ddmsar fleiri athugasemdir eru ger\u00f0ar vi\u00f0 samsetningu og skipan Landsd\u00f3ms sem ekki ver\u00f0a raktar h\u00e9r.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00de\u00e1 fjallar h\u00f6fundur um a\u00f0 ranns\u00f3kn og sk\u00fdrsla ranns\u00f3knarnefndar hafi ekki veri\u00f0 jafngildi sakam\u00e1laranns\u00f3knar og sk\u00fdrslan \u00fev\u00ed ekki haft s\u00f6nnunargildi \u00ed sakam\u00e1linu \u00e1 hendur Geir. Engin sl\u00edk ranns\u00f3kn hef\u00f0i fari\u00f0 fram \u00fe\u00f3tt \u00feingmannanefndin hef\u00f0i haft heimild til a\u00f0 gera sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0a ranns\u00f3kn, eins og nau\u00f0synlegt hef\u00f0i veri\u00f0. Geir hafi ekki noti\u00f0 r\u00e9ttar sem saka\u00f0ur ma\u00f0ur vi\u00f0 ranns\u00f3kn m\u00e1lsins og \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um \u00e1k\u00e6ru eins og venjulegir sakborningar nj\u00f3ti \u00ed sakam\u00e1li. Rekur hann margv\u00edslega annmarka sem hann telur a\u00f0 hafi veri\u00f0 \u00e1 vinnubr\u00f6g\u00f0um \u00feingnefndarinnar, Al\u00feingis og saks\u00f3knara. H\u00e9r aftur ver\u00f0ur ekki tekin afsta\u00f0a til \u00feessa, en r\u00f6k h\u00f6fundar eru \u00e1 \u00fdmsan h\u00e1tt sannf\u00e6randi og umhugsunarver\u00f0.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00cd b\u00f3kinni kemur einnig fram a\u00f0 Geir k\u00e6r\u00f0i ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u Landsr\u00e9ttar til Mannr\u00e9ttindad\u00f3mst\u00f3ls Evr\u00f3pu en \u00fear var \u00edslenska r\u00edki\u00f0 s\u00fdkna\u00f0 af kr\u00f6fum Geirs um vi\u00f0urkenningu \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 broti\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 \u00e1 honum r\u00e9ttur til r\u00e9ttl\u00e1trar m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0ar samkv\u00e6mt 6. gr. s\u00e1ttm\u00e1lans sem og broti\u00f0 gegn 7. gr. hans vegna \u00feess a\u00f0 17. gr. stj\u00f3rnskr\u00e1rinnar hafi ekki veri\u00f0 vi\u00f0hl\u00edtandi refsiheimild e\u00f0a eftir atvikum hafi t\u00falkun hennar veri\u00f0 r\u00f6ng hj\u00e1 meirihluta Landsd\u00f3ms. H\u00f6fundur b\u00f3karinnar gerir \u00fdmsar athugasemdir vi\u00f0 ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u Mannr\u00e9ttindad\u00f3mst\u00f3lsins. \u00c9g \u00e6tla ekki a\u00f0 fara n\u00e1nar \u00fat \u00fea\u00f0 h\u00e9r enda er \u00fea\u00f0 of langt m\u00e1l og sn\u00fai\u00f0. Vil \u00fe\u00f3 vekja athygli \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 eftir a\u00f0 Landsd\u00f3mur haf\u00f0i v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1 tveimur \u00e1k\u00e6ruli\u00f0um og s\u00fdkna\u00f0 af \u00feremur var \u00ed rauninni l\u00edti\u00f0 e\u00f0a ekkert eftir af m\u00e1linu fyrir d\u00f3mendur \u00ed Strassborg a\u00f0 fjalla um. \u00cd \u00fev\u00ed sambandi er vert nefna, sem h\u00f6fundur kemur raunar inn \u00e1 a\u00f0 Mannr\u00e9ttindad\u00f3mst\u00f3llinn er ekki \u00e1fr\u00fdjunard\u00f3mst\u00f3ll og getur ekki, \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 n\u00e1l\u00e6g\u00f0arregluna og regluna um svigr\u00fam til mats, endursko\u00f0a\u00f0 t\u00falkun innlendra d\u00f3mst\u00f3la \u00e1 l\u00f6gum, heldur eing\u00f6ngu svara\u00f0 \u00feeirri spurningu hvort l\u00f6g eins og \u00feau eru t\u00falku\u00f0 og \u00feeim beitt \u00ed einst\u00f6kum m\u00e1lum feli \u00ed s\u00e9r brot \u00e1 s\u00e1ttm\u00e1lanum.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">VI<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c1hugavert er \u00ed meira lagi a\u00f0 Mannr\u00e9ttindad\u00f3mst\u00f3linn segir \u00e1 einum sta\u00f0 \u00ed d\u00f3minum a\u00f0 ferli\u00f0 sem leiddi til \u00e1k\u00e6runnar \u00e1 hendur k\u00e6randa, hafi ekki veri\u00f0 gerr\u00e6\u00f0islegt, \u00feegar til alls er liti\u00f0 n\u00e9 heldur p\u00f3lit\u00edsk a\u00f0 \u00fev\u00ed marki, a\u00f0 sanngirni r\u00e9ttarhaldsins hafi veri\u00f0 skert. H\u00f6fundur b\u00f3karinnar bendir \u00e1 \u00feetta og telur \u00feetta fr\u00e1leitt. Nokku\u00f0 er til \u00ed \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Sumir kynnu a\u00f0 freistast til a\u00f0 l\u00edta svo \u00e1 a\u00f0 ni\u00f0ursta\u00f0a Mannr\u00e9ttindad\u00f3mst\u00f3lsins feli \u00ed s\u00e9r eins konar syndakvittun fyrir \u00edslenska r\u00edki\u00f0. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri misr\u00e1\u00f0i\u00f0, enda helgast ni\u00f0ursta\u00f0an fyrst og fremst af \u00fev\u00ed hvernig d\u00f3mst\u00f3llinn beitir valdi s\u00ednu \u00ed lj\u00f3si n\u00e1l\u00e6g\u00f0arreglunnar (subsidiarity) og reglunnar um svigr\u00fam til mats (margin of appreciation). Sta\u00f0reyndin er s\u00fa a\u00f0 a\u00f0ildarr\u00edkin fara mj\u00f6g mismunandi lei\u00f0ir \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 koma fram r\u00e1\u00f0herra\u00e1byrg\u00f0 (impeachment procedure) og hefur d\u00f3mst\u00f3linn fari\u00f0 varleg \u00ed a\u00f0 taka fram fyrir hendur a\u00f0ildarr\u00edkja \u00ed \u00feeim efnum, enda m\u00f3tast reglur um \u00feetta af r\u00edkum p\u00f3lit\u00edskum og s\u00f6gulegum hef\u00f0um sem geta veri\u00f0 mj\u00f6g mismunandi fr\u00e1 einu r\u00edki til annars.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Hva\u00f0 sem \u00feessu l\u00ed\u00f0ur er ni\u00f0ursta\u00f0a h\u00f6fundar b\u00f3karinnar alveg sk\u00fdr um a\u00f0 atkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0slan \u00e1 Al\u00feingi um \u00e1k\u00e6ru \u00e1 hendur Geir hafi veri\u00f0 af hreinum p\u00f3lit\u00edskum toga og r\u00e9ttarh\u00f6ldin \u00ed \u00feeim skilningi p\u00f3lit\u00edsk. Eftir lestur b\u00f3karinnar er erfitt a\u00f0 komast a\u00f0 annarri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u en \u00feessari. \u00c1 hinn b\u00f3ginn ber a\u00f0 hafa \u00ed huga a\u00f0 mikilv\u00e6gustu \u00e1k\u00e6ruli\u00f0unum var \u00fdmist v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1 e\u00f0a Geir s\u00fdkna\u00f0ur af \u00feeim. \u00deannig m\u00e1 segja a\u00f0 Landsd\u00f3mur hafi \u00ed \u00f6llum mikilv\u00e6gustu atri\u00f0um hrundi\u00f0 \u00e1k\u00e6runni, \u00fe\u00f3tt hn\u00fdtt hafi veri\u00f0 \u00ed \u00e1k\u00e6r\u00f0a me\u00f0 \u00fdmsum h\u00e6tti \u00ed r\u00f6kstu\u00f0ningi fyrir s\u00fdknu. Eftir st\u00f3\u00f0 sakfelling fyrir atri\u00f0i sem telja m\u00e1 minnih\u00e1ttar \u00ed heildarsamhenginu, auk \u00feess sem s\u00fa sakfelling stendur \u00e1 mj\u00f6g veikum grunni. \u00cd \u00fea\u00f0 minnst \u00e1 vi\u00f0 h\u00e9r a\u00f0 fjalli\u00f0 t\u00f3k jo\u00f0s\u00f3tt og f\u00e6ddist l\u00edtil m\u00fas.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c9g get ekki anna\u00f0 en m\u00e6lt me\u00f0 \u00feessari b\u00f3k fyrir alla \u00e1hugamenn um stj\u00f3rnm\u00e1l, stj\u00f3rnm\u00e1las\u00f6gu og l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i. H\u00fan er mikilv\u00e6gt innlegg \u00ed umr\u00e6\u00f0u um \u00feetta einstaka d\u00f3msm\u00e1l og uppgj\u00f6r \u00feess.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00cd b\u00f3kinni fylgir \u00edtarleg heimildaskr\u00e1 og listi yfir vi\u00f0m\u00e6lendur og lj\u00f3st a\u00f0 h\u00f6fundur hefur leita\u00f0 v\u00ed\u00f0a fanga. \u00de\u00e1 er \u00ed upphafi b\u00f3karinnar \u00edtarlegt efnisyfilit og \u00fatdr\u00e1ttur \u00ed t\u00f6lusettum li\u00f0um en allt \u00feetta, auk nafnaskr\u00e1r \u00ed lokin, au\u00f0veldar mj\u00f6g lesturinn og notkun ritsins fyrir \u00fe\u00e1 sem vilja gl\u00f6ggva sig \u00e1 einst\u00f6kum atri\u00f0um.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>I Fyrir s\u00ed\u00f0ustu j\u00f3l kom \u00fat b\u00f3kin Landsd\u00f3msm\u00e1li\u00f0. Stj\u00f3rnm\u00e1larefjar og lagakl\u00e6kir. \u00datgefandi er Almenna b\u00f3kaf\u00e9lagi\u00f0 (2022). H\u00f6fundur hennar er Hannes H\u00f3lmsteinn Gissurarson fyrrverandi pr\u00f3fessor \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lafr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 H\u00cd. Landsd\u00f3msm\u00e1li\u00f0 er einstakt \u00ed \u00edslenskri stj\u00f3rnm\u00e1la- og r\u00e9ttars\u00f6gu, en \u00fev\u00ed lauk me\u00f0 &hellip; <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2023\/06\/18\/fjallid-tok-jodsott-og-faeddist-litil-mus-um-bok-hannesar-holmsteins-gissurarsonar-um-landsdomsmalid\/\">Continue reading <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1298,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"link","meta":{"footnotes":""},"categories":[759],"tags":[],"class_list":["post-624","post","type-post","status-publish","format-link","hentry","category-oflokkad","post_format-post-format-link"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/624","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1298"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=624"}],"version-history":[{"count":11,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/624\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":638,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/624\/revisions\/638"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=624"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=624"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=624"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}