{"id":946,"date":"2024-09-12T13:07:28","date_gmt":"2024-09-12T13:07:28","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/?p=946"},"modified":"2024-09-18T18:40:01","modified_gmt":"2024-09-18T18:40:01","slug":"foreldrautilokun-og-rettur-til-fjolskyldu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2024\/09\/12\/foreldrautilokun-og-rettur-til-fjolskyldu\/","title":{"rendered":"Foreldra\u00fatilokun og r\u00e9ttur til fj\u00f6lskyldu"},"content":{"rendered":"<p style=\"text-align: justify\"><strong>\u00a0<\/strong><\/p>\n<p style=\"text-align: center\">I<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Stj\u00f3rnarmenn \u00ed f\u00e9laginu <a href=\"Foreldrajafnr\u00e9tti\">Foreldrajafnr\u00e9tti<\/a> \u00a0\u00feau Sigga S\u00f3lan og Brj\u00e1nn J\u00f3nsson, f\u00f3ru \u00feess \u00e1 leit vi\u00f0 mig a\u00f0 \u00e9g t\u00e6ki \u00fe\u00e1tt \u00ed r\u00e1\u00f0stefnu \u00ed Osl\u00f3 \u00e1 vegum al\u00fej\u00f3\u00f0samtaka f\u00e9laga um foreldrajafnr\u00e9tti. H\u00f3purinn sem st\u00f3\u00f0 a\u00f0 r\u00e1\u00f0stefnunni kallar sig \u00e1 ensku Parental Alienation Study Group (PASG <a href=\"https:\/\/www.pasg.info\/\">https:\/\/www.pasg.info\/<\/a> og hefur undanfarin \u00e1r reglulega haldi\u00f0 r\u00e1\u00f0stefnur af \u00feessu tagi \u00ed Evr\u00f3pu og Bandar\u00edkjunum. Undirrita\u00f0ur var fenginn til a\u00f0 fjalla um d\u00f3ma Mannr\u00e9ttindad\u00f3mst\u00f3ls Evr\u00f3pu sem var\u00f0a foreldra\u00fatilokun (e. parental alienation).<\/p>\n<p style=\"text-align: center\">II<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00cd erindi m\u00ednu ger\u00f0i \u00e9g grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed MSE felast tvenns konar skyldur. Annars vegar neikv\u00e6\u00f0ar skyldur og hins vegar j\u00e1kv\u00e6\u00f0ar. \u00cd neikv\u00e6\u00f0um skyldum felst a\u00f0 r\u00edki \u00e1 ekki a\u00f0 ganga \u00e1 r\u00e9ttindi sem s\u00e1ttm\u00e1linn verndar, nema \u00fea\u00f0 ver\u00f0i r\u00e9ttl\u00e6tt me\u00f0 v\u00edsan til \u00feeirra \u00e1kv\u00e6\u00f0a s\u00e1ttm\u00e1lans sem heimila sl\u00edkar takmarkanir. \u00cd j\u00e1kv\u00e6\u00f0um skyldum felst a\u00f0 r\u00edki \u00feurfa a\u00f0 gr\u00edpa til s\u00e9rstakra \u00farr\u00e6\u00f0a til a\u00f0 tryggja r\u00e9ttindin sem s\u00e1ttm\u00e1linn verndar. Til a\u00f0 sk\u00fdra \u00feetta frekar m\u00e1 nefna a\u00f0 8. gr. mannr\u00e9ttindas\u00e1ttm\u00e1la Evr\u00f3pu (MSE) sem verndar fri\u00f0helgi einkal\u00edfs og fj\u00f6lskyldu. Hluti af fri\u00f0helgi einkal\u00edfs eru til d\u00e6mis s\u00edmt\u00f6l sem ma\u00f0ur \u00e1 vi\u00f0 fj\u00f6lskyldu e\u00f0a vini. Neikv\u00e6\u00f0 skylda r\u00edkisins felur \u00ed s\u00e9r a\u00f0 r\u00edki\u00f0 vir\u00f0i \u00feann r\u00e9tt og hleri ekki s\u00edmt\u00f6lin nema nau\u00f0syn beri til, t.d. vegna ranns\u00f3knar \u00e1 afbrotum og \u00fe\u00e1 a\u00f0 undangengnum d\u00f3ms\u00farskur\u00f0i. \u00cd \u00e1kv\u00e6\u00f0inu felst l\u00edka r\u00e9ttur til fj\u00f6lskyldu, en margoft hefur veri\u00f0 d\u00e6mt a\u00f0 samband barns og foreldra teljist til fj\u00f6lskyldutengsla sem r\u00edki\u00f0 ber ekki a\u00f0eins skylda til a\u00f0 rj\u00fafa ekki, nema br\u00fdnar \u00e1st\u00e6\u00f0ur beri til, heldur l\u00edka til a\u00f0 gr\u00edpa til a\u00f0ger\u00f0a til a\u00f0 tryggja a\u00f0 barn og foreldri geti veri\u00f0 saman og mynda\u00f0 tengsl, nema \u00fea\u00f0 s\u00e9 au\u00f0lj\u00f3slega ekki \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 hagsmuni barnsins. Hi\u00f0 s\u00ed\u00f0ara er einmitt \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 k\u00f6llum j\u00e1kv\u00e6\u00f0ar skyldu r\u00edkisins sem felast \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 gr\u00edpa til nau\u00f0synlegra r\u00e1\u00f0stafana til a\u00f0 foreldri sem hefur umgengnisr\u00e9tt vi\u00f0 barn sitt f\u00e1i noti\u00f0 hans \u00ed raun og a\u00f0 foreldri sem hefur barna hj\u00e1 s\u00e9r komist ekki upp me\u00f0 a\u00f0 \u00fatiloka \u00e1 \u00f3l\u00f6gm\u00e6tan h\u00e1tt sl\u00edka umgengni.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Framkv\u00e6md MDE hefur a\u00f0 geyma d\u00f3ma \u00fear sem \u00feessar skyldur eru \u00e1r\u00e9tta\u00f0ar. Um \u00feessar d\u00f3ma fjalla\u00f0i \u00e9g \u00ed erindi m\u00ednu og \u00fe\u00e1 a\u00f0allega um bindandi gildi \u00feeirra og \u00fe\u00e1\u00a0 \u00fe\u00fd\u00f0ingu sem \u00feeir hafa, \u00fdmist fyrir a\u00f0ila m\u00e1lsins og vi\u00f0komandi r\u00edki, en einnig almennt s\u00e9\u00f0 sem fyrirmyndir fyrir samningsr\u00edkin um hvernig sta\u00f0i\u00f0 skuli a\u00f0 m\u00e1lum sem var\u00f0a foreldra\u00fatilokun.<\/p>\n<p style=\"text-align: center\">III<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00cd 46. gr. MSE er fjalla\u00f0 um bindandi \u00e1hrif d\u00f3ma Mannr\u00e9ttindad\u00f3mst\u00f3ls Evr\u00f3pu (MDE) og fullnustu \u00feeirra. \u00dear kemur fram \u00ed 1. mgr. a\u00f0 samningsa\u00f0ilar heiti \u00fev\u00ed a\u00f0 hl\u00edta endanlegum d\u00f3mi d\u00f3mst\u00f3lsins \u00ed hverju \u00fev\u00ed m\u00e1li sem \u00feeir eru a\u00f0ilar a\u00f0. \u00de\u00e1 segir \u00ed 2. mgr. a\u00f0 endanlegur d\u00f3mur d\u00f3mst\u00f3lsins skuli fenginn r\u00e1\u00f0herranefnd Evr\u00f3pur\u00e1\u00f0sins sem hafi umsj\u00f3n me\u00f0 fullnustu hans. \u00c1kv\u00e6\u00f0i \u00feessi gilda um um alla d\u00f3ma MDE \u00fear sem komist hefur veri\u00f0 a\u00f0 \u00feeirri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 broti\u00f0 hafi veri\u00f0 gegn r\u00e9tti k\u00e6randa samkv\u00e6mt s\u00e1ttm\u00e1lanum. \u00cd \u00fev\u00ed felst a\u00f0 ni\u00f0ursta\u00f0a d\u00f3mst\u00f3lsins leggur \u00e1 r\u00edki\u00f0 lagalega skyldu til a\u00f0 binda enda \u00e1 broti\u00f0 og b\u00e6ta fyrir aflei\u00f0ingar \u00feess.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00deegar r\u00e6tt er um fullnustu d\u00f3ma er gjarnan greint \u00e1 milli skyldna r\u00edkja til a\u00f0 gr\u00edpa til <em>einstakra r\u00e1\u00f0stafana<\/em> annars vegar og <em>almennra r\u00e1\u00f0stafana<\/em> hins vegar. \u00cd tengslum vi\u00f0 einstakar r\u00e1\u00f0stafanir er tala\u00f0 um <em>restitutio in integrum<\/em>, en me\u00f0 \u00fev\u00ed er \u00e1tt vi\u00f0 a\u00f0 markmi\u00f0i\u00f0 er a\u00f0 koma k\u00e6randa, a\u00f0 \u00fev\u00ed marki sem unnt er, \u00ed \u00fe\u00e1 st\u00f6\u00f0u sem hann hef\u00f0i veri\u00f0 hef\u00f0i broti\u00f0 ekki \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0. Ef um foreldra\u00fatilokun er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a felst \u00ed \u00feessu skylda r\u00edkisins til a\u00f0 grei\u00f0a d\u00e6mdar b\u00e6tur og m\u00e1lskostna\u00f0. \u00de\u00e1 felst \u00ed \u00feessu a\u00f0 uppr\u00e6ta beri \u00fe\u00e6r \u00f3l\u00f6gm\u00e6tu a\u00f0st\u00e6\u00f0ur sem leiddu til brostins, me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um st\u00f6\u00f0va foreldra\u00fatilokunina.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Almennt hl\u00edta r\u00edki d\u00f3mi me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 grei\u00f0a k\u00e6randa b\u00e6tur og m\u00e1lskostna\u00f0, \u00fe\u00f3tt \u00e1 \u00fev\u00ed geti stundum geti veri\u00f0 misbrestur. Vissulega geta fj\u00e1rhagslegar b\u00e6tur veri\u00f0 betra en ekkert og geta skipt m\u00e1li fyrir k\u00e6randa. En \u00fea\u00f0 segir sig sj\u00e1lft a\u00f0 \u00fe\u00e6r hr\u00f6kkva \u00ed flestum tilfellum skammt til b\u00e6ta fyrir \u00feann mikla ska\u00f0a sem foreldra\u00fatilokun til margra \u00e1ra kann a\u00f0 hafa valdi\u00f0 barni og foreldri.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">A\u00f0 \u00fev\u00ed er var\u00f0ar skyldu til a\u00f0 binda enda \u00e1 hi\u00f0 \u00f3l\u00f6gm\u00e6ta \u00e1stand vandast m\u00e1li\u00f0 \u00feegar um foreldra\u00fatilokun er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. I\u00f0ulega hafa m\u00e1lin veri\u00f0 a\u00f0 velkjast fyrir yfirv\u00f6ldum og d\u00f3mst\u00f3lum heimafyrir \u00e1rum saman \u00fear sem hvorki gengur n\u00e9 rekur, \u00e1\u00f0ur en \u00feau fara til MDE. \u00deannig geta li\u00f0i\u00f0 m\u00f6rg fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hindranir \u00e1 umgengni h\u00f3fust fyrst og \u00fear til d\u00f3mur gengur \u00ed MDE og \u00ed sumum tilvikum er b\u00f6rnin or\u00f0in l\u00f6gr\u00e1\u00f0a \u00feegar MDE kve\u00f0ur upp sinn d\u00f3m e\u00f0a n\u00e1l\u00e6gt \u00fev\u00ed svo sem var raunin \u00ed m\u00e1li <em><a href=\"Pisica%20gegn%20Mold\u00f3vu\">Pisica gegn Mold\u00f3vu<\/a><\/em> fr\u00e1 2020, en b\u00f6rnin sem um r\u00e6\u00f0ir voru or\u00f0in 18 \u00e1ra \u00feegar d\u00f3mur f\u00e9ll. Vi\u00f0 \u00feessar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur er ekki lengur um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a a\u00f0 \u00fevinga fram umgengni. \u00cd svona tilfellum er hagn\u00fdtt gildi d\u00f3ms fr\u00e1 MDE ekkert, \u00fe\u00f3tt ni\u00f0ursta\u00f0an kunni a\u00f0 einhverju marki a\u00f0 vera huggun harmi gegn fyrir k\u00e6randa og fela \u00ed s\u00e9r einhvers konar uppreist fyrir hann. D\u00f3murinn kemur allt of seint til a\u00f0 hafa a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti hagn\u00fdta \u00fe\u00fd\u00f0ingu fyrir k\u00e6randa sj\u00e1lfan.<\/p>\n<p style=\"text-align: center\">IV<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00cd d\u00f3mi getur falist skylda r\u00edkis til a\u00f0 taka til <em>almennra r\u00e1\u00f0stafana<\/em> sem mi\u00f0a a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir samb\u00e6rileg brot \u00ed framt\u00ed\u00f0inni.\u00a0 \u00cd fyrsta lagi getur veri\u00f0 um r\u00e6\u00f0a \u00farb\u00e6tur innanlands til a\u00f0 uppr\u00e6ta \u00fe\u00e6r a\u00f0st\u00e6\u00f0ur sem til grundvallar broti l\u00e1gu. \u00de\u00e1 getur \u00feurft a\u00f0 gera lagabreytingar. \u00deetta getur veri\u00f0 \u00fdmsum vandkv\u00e6\u00f0um bundi\u00f0. Sum a\u00f0ildarr\u00edki \u00feverskallast vi\u00f0 a\u00f0 gr\u00edpa til almennra r\u00e1\u00f0stafna af p\u00f3lit\u00edskum, menningarlegum e\u00f0a lagalegum \u00e1st\u00e6\u00f0um. \u00deessi m\u00f3tspyrna getur leitt til a\u00f0 tafa \u00e1 a\u00f0 ger\u00f0ar s\u00e9u almennar r\u00e1\u00f0stafanir e\u00f0a jafnvel a\u00f0 r\u00edki hafni \u00fev\u00ed a\u00f0 fara a\u00f0 d\u00f3mi.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Innlei\u00f0ing almennra a\u00f0ger\u00f0a e\u00f0a \u00farr\u00e6\u00f0a krefst oft v\u00ed\u00f0t\u00e6kra lagaumb\u00f3ta e\u00f0a breytinga \u00e1 stj\u00f3rns\u00fdsluh\u00e1ttum e\u00f0a starfsemi d\u00f3mst\u00f3la, sem getur veri\u00f0 fl\u00f3ki\u00f0 og t\u00edmafrekt verkefni. \u00deetta er l\u00edklega vandam\u00e1l \u00ed m\u00f6rgum tilfellum um \u00fear sem um foreldra\u00fatilokun er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. Loks er \u00fea\u00f0 alltaf \u00e1litam\u00e1l hvers konar r\u00e1\u00f0stafanir eru vi\u00f0eigandi og r\u00e9ttl\u00e6tanlegar til a\u00f0 \u00fer\u00fdsta \u00e1 foreldri a\u00f0 vir\u00f0a umgengnisr\u00e9tt, \u00feegar \u00fea\u00f0 er sta\u00f0r\u00e1\u00f0i\u00f0 \u00ed a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 ekki. Er unnt a\u00f0 beita valdi og \u00fe\u00e1 a\u00f0 hva\u00f0a marki? Getum vi\u00f0 beitt valdi me\u00f0 atbeina l\u00f6greglu e\u00f0a annars valdb\u00e6rs a\u00f0ila til taka barn af foreldri me\u00f0 a\u00f0fararger\u00f0? Getum vi\u00f0 beitt dagsektum gagnvart a\u00f0ila sem kannski \u00e1 fyrir vi\u00f0 fj\u00e1rhagsvandr\u00e6\u00f0i a\u00f0 str\u00ed\u00f0a o.s.frv.? M\u00e1 nefna a\u00f0 \u00ed 45. gr. barnalaganna \u00edslensku er gert r\u00e1\u00f0 fyrir \u00feessum \u00farr\u00e6\u00f0um, en \u00ed framkv\u00e6md hefur reynst erfitt a\u00f0 framfylgja \u00feeim og hafa \u00feau \u00ed heild reynst harla haldl\u00edtil.<\/p>\n<p style=\"text-align: center\">V<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00c1 r\u00e1\u00f0stefnunni voru me\u00f0al annars kynntar ranns\u00f3knir \u00e1 \u00e1hrifum foreldra\u00fatilokunar til skemmri og lengri t\u00edma. \u00de\u00e1 stigu fram \u00ed umr\u00e6\u00f0um konur og karlar sem hafa veri\u00f0 beitt sl\u00edkri \u00fatilokun sem foreldri e\u00f0a sem b\u00f6rn. Af \u00feessu m\u00e1 r\u00e1\u00f0a a\u00f0 foreldra\u00fatilokun og tengslarof sem af sl\u00edkri \u00fatilokun lei\u00f0ir er mj\u00f6g ska\u00f0leg og getur hugsanlega haft mj\u00f6g neikv\u00e6\u00f0 \u00e1hrif \u00e1 alla \u00fe\u00e6tti \u00feroska og l\u00ed\u00f0an barns. H\u00fan er oft r\u00f3t tilfinningalegs og s\u00e1lr\u00e6ns ska\u00f0a sem l\u00fdsir s\u00e9r me\u00f0al annars \u00ed brengla\u00f0ri s\u00fdn \u00e1 n\u00e1in samb\u00f6nd og traust, skertan f\u00e9lagslegan \u00feroska sem aftur getur leitt af s\u00e9r f\u00e9lagslega einangrun. Foreldra\u00fatlokun vekur einnig upp lagaleg og si\u00f0fer\u00f0ileg \u00e1litam\u00e1l og getur haft \u00e1hrif fr\u00e1 einni kynsl\u00f3\u00f0 til annarrar\u00a0 \u00fear sem heg\u00f0un er endurtekin og fj\u00f6lskyldutengsl rofna o.s.frv. Langt\u00edmaaflei\u00f0ingar geta teygt sig inn \u00ed fullor\u00f0ins\u00e1r og haft \u00e1hrif \u00e1 ge\u00f0heilsu og almenn l\u00edfsg\u00e6\u00f0i vi\u00f0komandi.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Eitt af \u00fev\u00ed sem vekur athygli \u00ed \u00feessum d\u00f3mum MDE er a\u00f0 hugtaki\u00f0 foreldra\u00fatilokun (parental alinenation) hefur \u00fear \u00f6\u00f0last \u00e1kve\u00f0inn sess. Nefna m\u00e1 d\u00f3m m\u00e1li <em>Pisica<\/em> gegn <em>Mold\u00f3vu<\/em>, sem fyrr er nefndur, \u00fear sem m\u00f3\u00f0ir haf\u00f0i af f\u00f6\u00f0ur veri\u00f0 \u00fatiloku\u00f0 fr\u00e1 samneyti vi\u00f0 b\u00f6rn s\u00edn, \u00e1rum saman me\u00f0al annars vegna a\u00f0ger\u00f0arleysis yfirvalda vi\u00f0 a\u00f0 framfylgja l\u00f6gm\u00e6tum \u00e1kv\u00f6r\u00f0unum d\u00f3mst\u00f3la um a\u00f0 koma samneyti \u00e1. \u00cd d\u00f3minum er byggt \u00e1 a\u00f0 b\u00f6rnin hef\u00f0u vegna a\u00f0ger\u00f0arleysis yfirvalda\u00a0 til marga \u00e1ra \u00ed raun veri\u00f0 haldi\u00f0 fr\u00e1 m\u00f3\u00f0ur sinni og v\u00e6ru \u00fej\u00f6ku\u00f0 af \u00fev\u00ed sem \u00ed s\u00e9rfr\u00e6\u00f0isk\u00fdrslum var skilgreint sem \u201ealienation syndrome\u201c. \u00cd d\u00f3minum er \u00feetta \u00farr\u00e6\u00f0aleysi yfirvalda \u00ed Mold\u00f3vu \u00e1tali\u00f0 og tali\u00f0 fel \u00ed s\u00e9r brot \u00e1 j\u00e1kv\u00e6\u00f0um skyldum r\u00edkisins til a\u00f0 gr\u00edpa til a\u00f0ger\u00f0a til a\u00f0 vi\u00f0halda tengslum barnanna vi\u00f0 m\u00f3\u00f0ur s\u00edna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tryggja l\u00f6gm\u00e6ta umgengni.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">D\u00f3murinn er nokku\u00f0 merkilegur fyrir \u00fe\u00e6r sakir a\u00f0 hann byggir \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u201eforeldra\u00fatilokun\u201c (parent\/child alienantion) og aflei\u00f0ingar hennar s\u00e9 raunverulegt og alvarlegt vandam\u00e1l. Hafa sumir vilja\u00f0 l\u00edta svo \u00e1 a\u00f0 foreldra\u00fatilokun s\u00e9 \u00ed e\u00f0li s\u00ednu ofbeldi (andlegt) af h\u00e1lfu \u00feess sem henni beitir. Hefur veri\u00f0 varpa\u00f0 fram hugmyndum um a\u00f0 skilgreina eigi \u00feessa heg\u00f0un sem refsivert brot \u00ed hegningarl\u00f6gum e\u00f0a s\u00e9rl\u00f6gum. \u00deetta vir\u00f0ist svona vi\u00f0 fyrstu s\u00fdn hafa talsvert til s\u00edn m\u00e1ls og \u00ed \u00f6llu falli, a\u00f0 \u00e6tla megi, \u00fat fr\u00e1 almennri skynsemi, a\u00f0 \u00fatilokun foreldris fr\u00e1 samskiptum vi\u00f0 barn sitt hlj\u00f3ti alla jafnan a\u00f0 vera mj\u00f6g ska\u00f0aleg fyrir barni\u00f0 sem og hi\u00f0 \u00fatiloka\u00f0a foreldri, sem \u00fe\u00f3 hefur tali\u00f0 h\u00e6ft til umgengni vi\u00f0 barni\u00f0. Samt sem \u00e1\u00f0ur eru \u00fdmsir, einkum sumir bar\u00e1ttuh\u00f3par fyrir hagsmunum kvenna, sem andm\u00e6la ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um v\u00edsinda og fr\u00e6\u00f0imanna um e\u00f0li \u00feessa heg\u00f0unar sem ofbeldisheg\u00f0unar og ska\u00f0semi hennar fyrir b\u00f6rn. Hafa sumir h\u00f3par fem\u00ednista hafna\u00f0 \u00feessum kenningum sem reistum \u00e1 gerviv\u00edsindum. Horfa fem\u00ednistar \u00fe\u00e1 gjarnan \u00e1 m\u00e1li\u00f0 fr\u00e1 sj\u00f3narh\u00f3li m\u00f3\u00f0ur sem \u00fatilokar f\u00f6\u00f0ur til a\u00f0 vernda barni\u00f0 fyrir ofbeldi af hans hendi, jafnvel \u00fe\u00f3tt yfirv\u00f6ld hafi komist a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fa\u00f0ir s\u00e9 talinn fullkomlega h\u00e6fur til a\u00f0 umgangast barni\u00f0 og barninu stafi enginn h\u00e6tta af honum, nema s\u00ed\u00f0ur s\u00e9. Hva\u00f0 sem l\u00ed\u00f0ur sl\u00edkum vi\u00f0horfum eru \u00fe\u00f3 flestir \u00e1 \u00feeirri sko\u00f0un a\u00f0 l\u00edtill vafi s\u00e9 \u00e1 foreldara\u00fatilokun s\u00e9 mj\u00f6g ska\u00f0leg heg\u00f0un sem br\u00fdnt s\u00e9 vegna hagsmuna barna og foreldra a\u00f0 uppr\u00e6ta og koma \u00ed veg fyrir eftir \u00fev\u00ed sem kostur er.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00a0 I Stj\u00f3rnarmenn \u00ed f\u00e9laginu Foreldrajafnr\u00e9tti \u00a0\u00feau Sigga S\u00f3lan og Brj\u00e1nn J\u00f3nsson, f\u00f3ru \u00feess \u00e1 leit vi\u00f0 mig a\u00f0 \u00e9g t\u00e6ki \u00fe\u00e1tt \u00ed r\u00e1\u00f0stefnu \u00ed Osl\u00f3 \u00e1 vegum al\u00fej\u00f3\u00f0samtaka f\u00e9laga um foreldrajafnr\u00e9tti. H\u00f3purinn sem st\u00f3\u00f0 a\u00f0 r\u00e1\u00f0stefnunni kallar sig \u00e1 &hellip; <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2024\/09\/12\/foreldrautilokun-og-rettur-til-fjolskyldu\/\">Continue reading <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1298,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"link","meta":{"footnotes":""},"categories":[759],"tags":[],"class_list":["post-946","post","type-post","status-publish","format-link","hentry","category-oflokkad","post_format-post-format-link"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/946","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1298"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=946"}],"version-history":[{"count":9,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/946\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":956,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/946\/revisions\/956"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=946"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=946"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=946"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}