{"id":961,"date":"2024-11-13T11:16:33","date_gmt":"2024-11-13T11:16:33","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/?p=961"},"modified":"2024-11-13T15:22:28","modified_gmt":"2024-11-13T15:22:28","slug":"ees-rettindi-eda-tjorukagga-thorgeirs-havarssonar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2024\/11\/13\/ees-rettindi-eda-tjorukagga-thorgeirs-havarssonar\/","title":{"rendered":"EES-r\u00e9ttindi e\u00f0a tj\u00f6rukagga \u00deorgeirs H\u00e1varssonar?"},"content":{"rendered":"<p style=\"text-align: justify\">\u00cdslendingar b\u00faa sig undir a\u00f0 ganga a\u00f0 kj\u00f6rbor\u00f0inu 30. n\u00f3vember n\u00e6stkomandi. A\u00f0dragandinn er stuttur og flokkarnir misvel undirb\u00fanir fyrir kosningaslaginn. Hva\u00f0 sem \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0ur er a\u00f0 teiknast upp mynd af \u00e1herslum\u00e1lum flokkanna, sem eru efnahagsm\u00e1l (ver\u00f0b\u00f3lga, h\u00e1tt vaxtastig og r\u00edkisfj\u00e1rm\u00e1l), h\u00fasn\u00e6\u00f0ism\u00e1l, heilbrig\u00f0ism\u00e1l og \u00fatlendingam\u00e1l. Sitthva\u00f0 fleira er nefnt og au\u00f0vita\u00f0a tengist \u00feetta allt saman og geta flokkanna til a\u00f0 efna fyrirheitin sem \u00feeir gefa veltur, \u00feegar allt kemur til alls alltaf \u00e1 heilbrig\u00f0u og \u00f6flugu atvinnul\u00edfi \u00ed v\u00ed\u00f0asta skilningi; atvinnul\u00edfi sem b\u00fdr vi\u00f0 vi\u00f0skiptafrelsi, samkeppni, vir\u00f0ingu fyrir r\u00e9ttindum og grei\u00f0um a\u00f0gangi a\u00f0 m\u00f6rku\u00f0um, sem og a\u00f0gangi a\u00f0 l\u00e1nsf\u00e9 \u00e1 vi\u00f0r\u00e1\u00f0anlegum kj\u00f6rum og sanngj\u00f6rnu skattkerfi sem geri fyrirt\u00e6kjum og einstaklingum kleift a\u00f0 starfa og skapa ver\u00f0m\u00e6ti fyrir \u00fej\u00f3\u00f0arb\u00fai\u00f0.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Talandi um efnahagsm\u00e1l. Flokkarnir \u00ed yfirstandandi kosningabar\u00e1ttu er, a\u00f0 \u00fev\u00ed er best ver\u00f0ur s\u00e9\u00f0, ekki s\u00e9rlega uppteknir af EES-samningnum \u00fe\u00f3tt ekki s\u00e9 deilt mikilv\u00e6gi hans fyrir \u00edslenskt vi\u00f0skipta- og efnahagsl\u00edf. \u00cd ma\u00ed sl.\u00a0 var haldi\u00f0 m\u00e1l\u00feing h\u00e9r \u00e1 landi \u00ed tilefni af 30 \u00e1ra afm\u00e6li samningsins. \u00cd opnunar\u00e1varpi \u00deord\u00edsar Kolbr\u00fanar Reykfj\u00f6r\u00f0 Gylfad\u00f3ttur utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra kom fram a\u00f0 a\u00f0ild \u00cdslands a\u00f0 EES-samningnum hef\u00f0i veri\u00f0 miki\u00f0 heillaspor fyrir \u00fej\u00f3\u00f0ina og a\u00f0 \u00e1vinningur \u00cdslands af EES samstarfinu v\u00e6ri \u00f3tv\u00edr\u00e6\u00f0ur.\u00a0Innri marka\u00f0ur ESB, sem EES-samningurinn hafi veitt \u00cdslandi a\u00f0gang a\u00f0, v\u00e6ri \u00ed raun \u00fea\u00f0 sem r\u00e1\u00f0herrann nefndi kj\u00f6lfestumarka\u00f0ur fyrir \u00fatflutning fr\u00e1 \u00cdslandi. \u00de\u00e1 kom fram a\u00f0 a\u00f0gangur a\u00f0 innri marka\u00f0inum yr\u00f0i \u00e1fram lykillinn a\u00f0 efnahagslegu \u00f6ryggi \u00cdslands til langframa. \u00deegar h\u00f6f\u00f0 eru \u00ed huga r\u00e9ttindi \u00feau sem \u00cdslendingar nj\u00f3ta \u00e1 grundvelli EES-samningsins og mikilv\u00e6gi hans fyrir \u00edslenskt efnahagsl\u00edf hef\u00f0i m\u00e1tt \u00e6tla a\u00f0 \u00cdslendingar leg\u00f0u sig s\u00e9rstaklega fram um a\u00f0 g\u00e6ta \u00feessa fj\u00f6reggs s\u00edns me\u00f0al annars me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 g\u00e6ta a\u00f0 \u00feeim skuldbindingum sem samningnum fylgja. \u00c1 \u00feetta skortir hj\u00e1 sumum stj\u00f3rnm\u00e1lam\u00f6nnum.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">H\u00f6fum \u00ed huga a\u00f0 \u00edslenska r\u00edki\u00f0 neytir fullveldisr\u00e9ttinda sinna me\u00f0al annars me\u00f0 \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed EES-samstarfinu af frj\u00e1lsum vilja og samkv\u00e6mt eigin \u00e1kv\u00f6r\u00f0un. H\u00fan er bygg\u00f0 \u00e1 a\u00f0 \u00fe\u00e1tttaka \u00ed samstarfinu s\u00e9 \u00ed \u00fe\u00e1gu hagsmuna \u00edslenskra borgara og annarra \u00feeirra sem h\u00e9r kj\u00f3sa a\u00f0 lifa og starfa. \u00deetta vill gleymast hj\u00e1 m\u00f6rgum og er ekki laust vi\u00f0 a\u00f0 \u00e1skilna\u00f0ur um fullveldi landsins s\u00e9 nota\u00f0ur til a\u00f0 ala \u00e1 tortryggni gagnvart EES-samstarfinu \u00ed heild me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tala um skuldbindingar sem af honum lei\u00f0a, eins og um s\u00e9 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00f3r\u00e9ttm\u00e6tan yfirgang og afskipti erlends valds af innanlandsm\u00e1lum \u00cdslendinga. Litlu breytir fyrir \u00fe\u00e1 sem \u00feannig tala \u00fe\u00f3tt reglurnar \u00ed samningnum f\u00e6ri borgurunum, \u00fe.m.t. laun\u00feegum, og \u00edslenskum a\u00f0ilum \u00ed atvinnurekstri, \u00ed raun a\u00f0allega r\u00e9ttindi, \u00fe\u00f3tt au\u00f0vita\u00f0 fylgi \u00feeim l\u00edka vissar skyldur, eins og \u00f6llum r\u00e9ttindum. \u00c9g hef \u00e1\u00f0ur sagt og endurtek h\u00e9r a\u00f0 or\u00f0r\u00e6\u00f0a \u00feessi minnir mig \u00e1 s\u00f6guna af \u00deorgeiri H\u00e1varssyni \u00feegar hann skrei\u00f0 upp \u00far tj\u00f6rukagganum og \u00de\u00f3r\u00f0ur j\u00f3msv\u00edkingur str\u00fatharaldssonask\u00e1ld spur\u00f0i hetjuna: \u201eHv\u00ed ertu eigi geinginn vi\u00f0 \u00f6\u00f0rum m\u00f6nnum og ausinn vatni \u00ed tj\u00f6ru sta\u00f0?\u201c \u201eEg em \u00edslenskur ma\u00f0ur\u201c, m\u00e6lti \u00deorgeir H\u00e1varsson \u201c\u2026 og f\u00fdsir mig l\u00edtt a\u00f0 fara a\u00f0 si\u00f0um annarra manna\u201c. (HKL\u00a0<em>Gerpla<\/em> 25. kafli).<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">\u00a0L\u00edfss\u00fdn \u00deorgeirs H\u00e1varssonar birtist me\u00f0al annars \u00ed andst\u00f6\u00f0u vi\u00f0 frumvarp sem fyrst var lagt fyrir Al\u00feingi snemma \u00e1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri, en hefur ekki enn hloti\u00f0 afgrei\u00f0slu. \u00cd frumvarpinu eru lag\u00f0ar til breytingar \u00e1 l\u00f6gunum sem innlei\u00f0a EES-samninginn til a\u00f0 fulln\u00e6gja skuldbindingum \u00cdslands samkv\u00e6mt b\u00f3kun 35 vi\u00f0 hann og setja reglu sem tryggir sk\u00fdrum og \u00f3skilyrtum laga\u00e1kv\u00e6\u00f0um, sem r\u00e9ttilega innlei\u00f0a skuldbindingu samkv\u00e6mt EES-samningnum, forgang fram yfir a\u00f0rar reglur \u00edslensks r\u00e9ttar. Regla \u00feessi um forgang ESB\/EES-reglna er grundvallarregla \u00ed r\u00e9tti sambandsins og EES-samstarfinu og byggir \u00e1 \u00feeirri einf\u00f6ldu hugsun a\u00f0 forsenda fyrir sameiginlegum marka\u00f0i \u00e1 svi\u00f0i v\u00f6ruvi\u00f0skipta, \u00fej\u00f3nustu, fj\u00e1rmagnsflutninga og vinnuafls s\u00e9 a\u00f0 s\u00f6mu reglur gildi alls sta\u00f0ar \u00e1 honum. Me\u00f0 EES-samningnum og b\u00f3kun 35 gengust \u00cdslendingar fyrir 30 \u00e1rum s\u00ed\u00f0an undir \u00fe\u00e1 skuldbindingu a\u00f0 tryggja einmitt \u00feetta. \u00deetta hefur ekki veri\u00f0 gert enn \u00fer\u00e1tt fyrir snuprur fr\u00e1 Eftirlitsstofnun EFTA, sem vel a\u00f0 merkja er stofnun sem \u00cdslendingar \u00e1ttu sj\u00e1lfir \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 setja \u00e1 f\u00f3t og eiga fulla a\u00f0ild a\u00f0. \u00dea\u00f0 er m\u00e9r r\u00e1\u00f0g\u00e1ta hvers vegna ekki er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 afgrei\u00f0a \u00feetta sj\u00e1lfsag\u00f0a m\u00e1l fyrir l\u00f6ngu s\u00ed\u00f0an.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify\">Stj\u00f3rnm\u00e1lamenn sem tala gegn b\u00f3kun 35 vir\u00f0ast sumir ekki hafa \u00e1tta\u00f0 sig \u00e1 a\u00f0 grunne\u00f0li EES-samningsins er a\u00f0 hann veitir einstaklingum og a\u00f0ilum \u00ed atvinnurekstri a\u00f0ild a\u00f0 sameiginlegum marka\u00f0i ESB og \u00fear me\u00f0 fyrst og fremst r\u00e9ttindi \u00e1 \u00feessum kj\u00f6lfestumarka\u00f0i \u00cdslendinga \u00fear sem b\u00faa um 450 millj\u00f3nir manna. Forgangsreglan, me\u00f0al annarra reglna, sem gildir \u00ed \u00f6llum \u00f6\u00f0rum r\u00edkjum ESB og EES, tryggir \u00cdslendingum a\u00f0 \u00feeir geti n\u00fdtt s\u00e9r EES\/ESB r\u00e9ttindi \u00ed \u00f6\u00f0rum r\u00edkjum. G\u00e6ta \u00fearf \u00feessa fj\u00f6reggs sem innri marka\u00f0ur ESB er fyrir \u00cdslendinga og EES-samningurinn tryggir a\u00f0gang a\u00f0 og r\u00edsa af heilindum undir \u00feeirri \u00e1byrg\u00f0 sem \u00fev\u00ed fylgir a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 vera \u00fear me\u00f0. \u00deeir stj\u00f3rnm\u00e1lamenn sem ala \u00e1 tortryggni gagnvart ESS-samningnum, \u00fear me\u00f0 tali\u00f0 b\u00f3kun 35, tala a\u00f0 m\u00ednu viti gegn r\u00e9ttindum \u00cdslendinga og \u00fear me\u00f0 \u00edslenskum hagsmunum. \u00deeir kj\u00f3sa fremur vist \u00ed tj\u00f6rukagganum me\u00f0 \u00deorgeiri H\u00e1varssyni.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cdslendingar b\u00faa sig undir a\u00f0 ganga a\u00f0 kj\u00f6rbor\u00f0inu 30. n\u00f3vember n\u00e6stkomandi. A\u00f0dragandinn er stuttur og flokkarnir misvel undirb\u00fanir fyrir kosningaslaginn. Hva\u00f0 sem \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0ur er a\u00f0 teiknast upp mynd af \u00e1herslum\u00e1lum flokkanna, sem eru efnahagsm\u00e1l (ver\u00f0b\u00f3lga, h\u00e1tt vaxtastig og r\u00edkisfj\u00e1rm\u00e1l), &hellip; <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/2024\/11\/13\/ees-rettindi-eda-tjorukagga-thorgeirs-havarssonar\/\">Continue reading <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1298,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"link","meta":{"footnotes":""},"categories":[759],"tags":[],"class_list":["post-961","post","type-post","status-publish","format-link","hentry","category-oflokkad","post_format-post-format-link"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/961","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1298"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=961"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/961\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":963,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/961\/revisions\/963"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=961"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=961"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/davidth\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=961"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}