{"id":78,"date":"2010-05-15T11:25:37","date_gmt":"2010-05-15T11:25:37","guid":{"rendered":"http:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?page_id=78"},"modified":"2019-12-30T21:03:07","modified_gmt":"2019-12-30T21:03:07","slug":"kennsla-vid-haskola-islands","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/kennsla\/kennsla-vid-haskola-islands\/","title":{"rendered":"Yfirlit um kennslu"},"content":{"rendered":"<h3>Kennsla vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands<\/h3>\n<p>\u00c9g kenndi vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands fr\u00e1 \u00e1rsbyrjun 1981 - stundakennslu fyrstu fimm \u00e1rin, en sem fastur kennari fr\u00e1 1986. Alls kenndi \u00e9g r\u00famlega 90 n\u00e1mskei\u00f0 e\u00f0a n\u00e1mskei\u00f0shluta \u00ed almennum m\u00e1lv\u00edsindum, \u00edslensku B.A., \u00edslensku M.Paed., \u00edslenskri m\u00e1lfr\u00e6\u00f0i cand.mag.\/M.A. og m\u00e1lt\u00e6kni M.A. Au\u00f0vita\u00f0 kenndi \u00e9g m\u00f6rg \u00feessara n\u00e1mskei\u00f0a oftar en einu sinni me\u00f0 litlum breytingum, en alls eru \u00feetta meira en 30 mismunandi n\u00e1mskei\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c9g hef kennt almenn inngangsfr\u00e6\u00f0i m\u00e1lv\u00edsinda og byrjendan\u00e1mskei\u00f0 \u00ed hlj\u00f3\u00f0fr\u00e6\u00f0i, hlj\u00f3\u00f0kerfisfr\u00e6\u00f0i, beygingar- og or\u00f0myndunarfr\u00e6\u00f0i, setningafr\u00e6\u00f0i og merkingarfr\u00e6\u00f0i. \u00de\u00e1 hef \u00e9g kennt \u00e1 framhaldsn\u00e1mskei\u00f0um \u00e1 B.A.-stigi \u00ed \u00f6llum \u00feessum greinum nema merkingarfr\u00e6\u00f0i. Einnig hef \u00e9g kennt inngangsn\u00e1mskei\u00f0 um a\u00f0fer\u00f0ir og vinnubr\u00f6g\u00f0, svo og n\u00e1mskei\u00f0 sem teljast til kennaran\u00e1ms \u00ed \u00edslensku; Me\u00f0fer\u00f0 rita\u00f0s m\u00e1ls og M\u00e1lfr\u00e6\u00f0i \u00ed framhaldssk\u00f3lum. Auk \u00feess hef \u00e9g kennt n\u00e1mskei\u00f0 um t\u00f6lvur og tungum\u00e1l.<\/p>\n<p>\u00c1 meistarastigi hef \u00e9g kennt hlj\u00f3\u00f0kerfisfr\u00e6\u00f0i, beygingar- og or\u00f0myndunarfr\u00e6\u00f0i og samt\u00edmalega og s\u00f6gulega setningafr\u00e6\u00f0i, gagnam\u00e1lfr\u00e6\u00f0i og \u00fdmis n\u00e1mskei\u00f0 \u00e1 svi\u00f0i m\u00e1lt\u00e6kni.<\/p>\n<p>Auk \u00feessa hef \u00e9g haft umsj\u00f3n me\u00f0 fj\u00f6lm\u00f6rgum B.A.-ritger\u00f0um og allnokkrum meistarapr\u00f3fsritger\u00f0um (M.A. og M.Paed.), og seti\u00f0 \u00ed doktorsnefndum.<\/p>\n<h3>N\u00fdbreytni og frumkv\u00e6\u00f0i \u00ed kennslu<\/h3>\n<ul>\n<li>\u00c9g beitti m\u00e9r fyrir uppt\u00f6ku s\u00e9rstaks <a href=\"http:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/kennsla1.pdf\">kennaran\u00e1ms \u00ed \u00edslensku<\/a> hausti\u00f0 1988, sem \u00fer\u00f3a\u00f0ist svo yfir \u00ed M.Paed.-n\u00e1m f\u00e1um \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar. \u00c9g kenndi n\u00fd n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed n\u00e1mi, m.a. \u201eM\u00e1lfr\u00e6\u00f0i \u00ed framhaldssk\u00f3lum\u201c 1988-1989.<\/li>\n<li>\u00c9g t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed tilraun me\u00f0 <a href=\"https:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/fjarkis.pdf\">fjarkennslu innan \u00edslenskuskorar<\/a> H\u00cd hausti\u00f0 1999 a\u00f0 frumkv\u00e6\u00f0i P\u00e1ls Sk\u00falasonar og R\u00f6gnvaldar \u00d3lafssonar og innleiddi \u00fear \u00fdmsar n\u00fdjungar. \u00c9g st\u00f3\u00f0 s\u00ed\u00f0an sem skorarforma\u00f0ur fyrir mikilli aukningu fjarkennslu \u00ed \u00edslenskuskor 2006 \u2013 en st\u00f3\u00f0 jafnframt a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leggja hana ni\u00f0ur tveim \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar vegna skorts \u00e1 stu\u00f0ningi h\u00e1sk\u00f3layfirvalda.<\/li>\n<li>\u00c9g beitti m\u00e9r fyrir uppt\u00f6ku 90e <a href=\"https:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=1936802\">dipl\u00f3man\u00e1ms \u00ed hagn\u00fdtri \u00edslensku<\/a> hausti\u00f0 2000 og m\u00f3ta\u00f0i \u00fear m.a. og kenndi n\u00fdtt n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed textager\u00f0.<\/li>\n<li>\u00c9g var upphafsma\u00f0ur <a href=\"https:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/meistara.pdf\">\u00feverfaglegs meistaran\u00e1ms \u00ed m\u00e1lt\u00e6kni<\/a> (sem \u00fe\u00e1 nefndist tungut\u00e6kni) hausti\u00f0 2002 og kenndi n\u00fd n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed n\u00e1mi. \u00c9g st\u00f3\u00f0 svo fyrir endurvakningu \u00feess n\u00e1ms \u00ed samvinnu vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann \u00ed Reykjav\u00edk hausti\u00f0 2007.<\/li>\n<li>\u00c9g t\u00f3k upp <a href=\"http:\/\/snjallskoli.is\/2014\/05\/tilraun-i-vendikennslu\/\">vendikennslu<\/a> \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu <a href=\"https:\/\/ugla.hi.is\/kv\/index2.php?sid=219&amp;namsknr=70616520140&amp;kennsluvefur_efnisatridi=1\">M\u00e1lkerfi\u00f0 - hlj\u00f3\u00f0 og or\u00f0<\/a> vori\u00f0 2014 - t\u00f3k alla fyrirlestra upp fyrir fram og f\u00e6kka\u00f0i kennslustundum um helming.<\/li>\n<li>\u00c9g\u00a0<a href=\"https:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/kemst.pdf\">fl\u00e9tta\u00f0i <\/a>\u00a0opi\u00f0 netn\u00e1mskei\u00f0 (<a href=\"https:\/\/www.futurelearn.com\/courses\/corpus-linguistics\/\">Corpus linguistics<\/a>) fr\u00e1 Lancaster University inn \u00ed kennsluna \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu, <a href=\"https:\/\/ugla.hi.is\/kv\/index2.php?sid=219&amp;namsknr=05401820140&amp;kennsluvefur_efnisatridi=1\">T\u00f6lvur og tungum\u00e1l<\/a>\u00a0vori\u00f0 2014 (og s\u00ed\u00f0ar).<\/li>\n<li>\u00c9g t\u00f3k mikinn \u00fe\u00e1tt \u00ed umr\u00e6\u00f0um um menntun \u00edslenskukennara og skrifa\u00f0i um \u00fea\u00f0 m\u00e1l greinar \u00ed <em><a href=\"https:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/kennsla1.pdf\">Sk\u00edmu<\/a><\/em>, <em><a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=1750344\">Morgunbla\u00f0i\u00f0<\/a><\/em> og v\u00ed\u00f0ar og flutti <a href=\"https:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/menntun.pdf\">erindi<\/a> \u00e1 r\u00e1\u00f0stefnum.<\/li>\n<li>Hausti\u00f0 2016 var m\u00e9r veitt \u00e1rleg <a href=\"https:\/\/www.hi.is\/frettir\/hljota_vidurkenningu_fyrir_lofsverdan_arangur_i_starfi\">vi\u00f0urkenning<\/a> H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands fyrir lofsvert framlag til kennslu.<\/li>\n<\/ul>\n<h3>Kennslua\u00f0fer\u00f0ir<\/h3>\n<p>\u00c9g kenndi lengst af \u00e1 svipa\u00f0an h\u00e1tt \u2013 me\u00f0 fyrirlestrum, en hvatti alltaf nemendur til a\u00f0 gr\u00edpa fram \u00ed og spyrja spurninga og \u00fdtt undir umr\u00e6\u00f0ur \u00ed t\u00edmum, \u00e1n \u00feess a\u00f0 vera me\u00f0 s\u00e9rstaka umr\u00e6\u00f0ut\u00edma. Fyrstu \u00e1rin skrifa\u00f0i \u00e9g fyrirlestra fr\u00e1 or\u00f0i til or\u00f0s en las \u00fe\u00e1 samt aldrei, heldur tala\u00f0i \u00fat fr\u00e1 \u00feeim og haf\u00f0i \u00fe\u00e1 kannski fyrst og fremst til \u00f6ryggis \u2013 \u00feeir s\u00e1u m\u00e9r fyrir \u00feeirri tilfinningu a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri me\u00f0 n\u00f3g efni fyrir t\u00edmann. \u00c9g haf\u00f0i yfirleitt \u00fea\u00f0 vi\u00f0mi\u00f0 a\u00f0 fara me\u00f0 8 handskrifa\u00f0ar s\u00ed\u00f0ur inn \u00ed t\u00edma \u2013 \u00fe\u00e1 taldi \u00e9g nokku\u00f0 \u00f6ruggt a\u00f0 \u00e9g yr\u00f0i ekki uppiskroppa me\u00f0 efni. \u00c9g held a\u00f0 \u00feegar \u00e9g var a\u00f0 kenna n\u00fdtt efni hafi \u00e9g skrifa\u00f0 fyrirlestra fr\u00e1 or\u00f0i til or\u00f0s fyrstu 20 \u00e1rin e\u00f0a svo.<\/p>\n<p>Framan af nota\u00f0i \u00e9g t\u00f6fluna miki\u00f0 og inn \u00e1 milli stundum gl\u00e6rur af g\u00f6mlu ger\u00f0inni, \u00fe.e. \u00e1 myndvarpa \u2013 \u00fe\u00e1 oftast lj\u00f3srit \u00far b\u00f3kum e\u00f0a greinum. Oft lj\u00f3srita\u00f0i \u00e9g l\u00edka efni, t.d. t\u00f6flur e\u00f0a d\u00e6mi, og dreif\u00f0i til nemenda. Hins vegar samdi \u00e9g yfirleitt ekki dreifibl\u00f6\u00f0 sj\u00e1lfur framan af. Hausti\u00f0 1991 var \u00e9g a\u00f0 kenna strembi\u00f0 fr\u00e6\u00f0ilegt n\u00e1mskei\u00f0 \u00fear sem lesefni\u00f0 var <a href=\"https:\/\/caio.ueberalles.net\/Introduction_to_Government_and_Binding_Theory-Liliane_Haegeman-1994.pdf\">\u00feykk b\u00f3k \u00e1 ensku<\/a>. \u00c9g s\u00e1 a\u00f0 nemendur r\u00e9\u00f0u varla vi\u00f0 hana og t\u00f3k \u00fea\u00f0 til brag\u00f0s a\u00f0 gera \u00edtarlegan \u00fatdr\u00e1tt og sta\u00f0f\u00e6rslu fyrir hvern kafla, og lj\u00f3srita\u00f0i \u00feetta og dreif\u00f0i til nemenda. \u00deetta <a href=\"https:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/setn95.htm\">efni<\/a> setti \u00e9g svo \u00e1 neti\u00f0 hausti\u00f0 1995 \u00feegar \u00e9g haf\u00f0i l\u00e6rt a\u00f0 \u00fatb\u00faa vefs\u00ed\u00f0ur. Upp fr\u00e1 \u00fev\u00ed lag\u00f0i \u00e9g \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 setja sem mest af efni \u00e1 neti\u00f0 \u2013 au\u00f0vita\u00f0 uppl\u00fdsingar um markmi\u00f0, lesefni, n\u00e1msmat o.fl., en einnig gl\u00e6rur, verkefni, og stundum handrit fyrirlestra. \u00deetta efni var \u00f6llum opi\u00f0 framan af, me\u00f0an \u00e9g setti \u00fea\u00f0 beint \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u m\u00edna.<\/p>\n<p>Vori\u00f0 1999 t\u00f3k \u00e9g svo PowerPoint \u00ed notkun og \u00fatbj\u00f3 <a href=\"http:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/kennsla\/kennsluefni\/\">gl\u00e6rur<\/a> fyrir \u00f6ll n\u00e1mskei\u00f0 sem \u00e9g kenndi, b\u00e6\u00f0i \u00feau sem \u00e9g haf\u00f0i kennt \u00e1\u00f0ur og n\u00fd n\u00e1mskei\u00f0. Fyrstu \u00ferj\u00fa \u00e1rin e\u00f0a svo prenta\u00f0i \u00e9g \u00fat g\u00f6mlu plastgl\u00e6rurnar og nota\u00f0i \u00e1 myndvarpa vegna \u00feess a\u00f0 \u00e1 \u00feessum t\u00edma voru skj\u00e1varpar ekki komnir nema \u00ed f\u00e1einar stofur. Vi\u00f0 \u00feetta h\u00e6tti \u00e9g t\u00f6fluskriftum a\u00f0 mestu, \u00fe\u00f3tt \u00e9g t\u00e6ki au\u00f0vita\u00f0 eitt og eitt sk\u00fdringard\u00e6mi \u00e1 t\u00f6flunni. En \u00feetta tengdist l\u00edka fjarkennslunni sem \u00e9g byrja\u00f0i \u00e1 um svipa\u00f0 leyti. \u00cd henni voru oft nota\u00f0ar uppt\u00f6kur \u00fear sem fjarnemar s\u00e1u a\u00f0eins \u00fea\u00f0 sem var \u00e1 t\u00f6lvuskj\u00e1num og \u00fev\u00ed var \u00f3heppilegt a\u00f0 nota t\u00f6fluna miki\u00f0 \u2013 \u00fear a\u00f0 auki skrifa \u00e9g alltaf verr og verr. En vi\u00f0 \u00feessa breytingu h\u00e6tti \u00e9g l\u00edka a\u00f0 skrifa fyrirlestra fr\u00e1 or\u00f0i til or\u00f0s, jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00e9g v\u00e6ri a\u00f0 kenna n\u00fdtt efni, en tala\u00f0i \u00feess \u00ed sta\u00f0 \u00fat fr\u00e1 gl\u00e6runum og reyndi yfirleitt a\u00f0 hafa \u00fe\u00e6r nokku\u00f0 \u00edtarlegar.<\/p>\n<p>Me\u00f0 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/1943280#page\/n36\/mode\/2up\">fjarkennslunni<\/a> 1999 t\u00f3k \u00e9g svo upp kennsluumhverfi\u00f0 <a href=\"https:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/WebCT\">WebCT<\/a> og setti allt mitt efni \u00fear inn til vors 2002. \u00dea\u00f0 haf\u00f0i \u00feann \u00f3kost a\u00f0 efni\u00f0 var loka\u00f0 \u00f6\u00f0rum en \u00feeim sem voru skr\u00e1\u00f0ir \u00ed vi\u00f0komandi n\u00e1mskei\u00f0 \u2013 og annar \u00f3kostur er reyndar s\u00e1 a\u00f0 talsvert af \u00feessu efni er n\u00fa glata\u00f0. \u00cd fjarkennslunni t\u00f3k \u00e9g upp \u00fdmsar <a href=\"https:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/fjarkis.pdf\">n\u00fdjungar<\/a>. Ein var s\u00fa a\u00f0 setja handrit fyrirlestra \u00ed heild \u00e1 vefinn sem \u00e9g ger\u00f0i \u00ed einu n\u00e1mskei\u00f0i. \u00dea\u00f0 efni var\u00f0 s\u00ed\u00f0ar stofninn \u00ed <a href=\"https:\/\/issuu.com\/eirikurr\/docs\/ritun2012\">kennsluefni<\/a> mitt \u00ed ritun. \u00d6nnur n\u00fdjung var raunt\u00edmaspjall vi\u00f0 fjarnema inni \u00ed WebCT eitt kv\u00f6ld \u00ed viku. \u00deri\u00f0ja n\u00fdjungin var svo \u201e<a href=\"https:\/\/notendur.hi.is\/~eirikur\/in\/\">talgl\u00e6rur<\/a>\u201c \u2013 a\u00f0 taka upp fyrirlestra og tengja \u00fe\u00e1 vi\u00f0 PowerPoint-gl\u00e6rur. \u00c9g held a\u00f0 \u00e9g hafi veri\u00f0 einn af \u00feeim fyrstu sem ger\u00f0i \u00feetta vi\u00f0 H\u00cd. Talgl\u00e6rurnar voru eing\u00f6ngu opnar fjarnemum og m\u00e6ltust vel fyrir \u00fe\u00f3tt hlj\u00f3\u00f0g\u00e6\u00f0i v\u00e6ru takm\u00f6rku\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 reynt var a\u00f0 hafa skr\u00e1rnar sem minnstar \u00fev\u00ed a\u00f0 flestir voru me\u00f0 h\u00e6gvirkar tengingar \u00ed \u00fe\u00e1 daga.<\/p>\n<p>Hausti\u00f0 2005 kom \u00e9g aftur til kennslu a\u00f0 loknu \u00e1rs ranns\u00f3knaleyfi og f\u00f3r \u00fe\u00e1 a\u00f0 nota Ugluna \u00ed \u00f6llum n\u00e1mskei\u00f0um og ger\u00f0i \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0an \u2013 hins vegar hef \u00e9g aldrei nota\u00f0 Moodle. Einnig f\u00f3r \u00e9g \u00fe\u00e1 a\u00f0 taka upp t\u00edmana \u00ed flestum m\u00ednum n\u00e1mskei\u00f0um me\u00f0 eMission og ger\u00f0i \u00fea\u00f0 oftast s\u00ed\u00f0an \u2013 \u00fe\u00f3 ekki t\u00edma \u00ed <a href=\"https:\/\/ugla.hi.is\/kv\/index2.php?sid=219&amp;namsknr=70616520140&amp;kennsluvefur_efnisatridi=1\">vendikennslun\u00e1mskei\u00f0inu<\/a> m\u00ednu (sj\u00e1 \u00e1 eftir). \u00c9g reyndi a\u00f0 hafa allt mitt efni \u00e1 Uglu, a.m.k. gl\u00e6rur og verkefni, uppt\u00f6kur \u00feegar \u00fe\u00e6r eru til sta\u00f0ar, og stundum eitthva\u00f0 af lesefni e\u00f0a kr\u00e6kjur \u00ed efni \u00e1 netinu. Gl\u00e6rur setti \u00e9g alltaf inn fyrir fram. S\u00ed\u00f0ustu fj\u00f6gur \u00e1rin haf\u00f0i \u00e9g <a href=\"http:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/kennsla\/onnur-kennsla\/\">flest m\u00edn n\u00e1mskei\u00f0<\/a> opin \u00f6llum \u00e1 Uglu og finnst a\u00f0 \u00feannig eigi \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera.<\/p>\n<p>Mesta breytingin \u00e1 kennslu minni var\u00f0 \u00feegar \u00e9g t\u00f3k upp <a href=\"http:\/\/snjallskoli.is\/2014\/05\/tilraun-i-vendikennslu\/\">vendikennslu<\/a> \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu <a href=\"https:\/\/ugla.hi.is\/kv\/index2.php?sid=219&amp;namsknr=70616520140&amp;kennsluvefur_efnisatridi=1\">M\u00e1lkerfi\u00f0 \u2013 hlj\u00f3\u00f0 og or\u00f0<\/a> vori\u00f0 2014. \u00c9g tek \u00fe\u00f3 fram a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki eins og \u00e9g hafi skipt algerlega yfir \u00ed vendikennslu \u2013 \u00fea\u00f0 var bara eitt n\u00e1mskei\u00f0 sem \u00e9g kenndi \u00feannig. \u00c9g haf\u00f0i reyndar lengi hugsa\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 gera sl\u00edka tilraun og byrja\u00f0 a\u00f0eins \u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed einu n\u00e1mskei\u00f0i fimm \u00e1rum fyrr, en guggna\u00f0i flj\u00f3tlega \u00e1 \u00fev\u00ed vegna t\u00edmaskorts. En hausti\u00f0 2013 var \u00e9g ekkert a\u00f0 kenna vegna \u00feess a\u00f0 \u00e9g \u00e1tti inni yfirvinnu sem deildin m\u00edn haf\u00f0i ekki efni \u00e1 a\u00f0 borga m\u00e9r. \u00de\u00e1 \u00e1kva\u00f0 \u00e9g a\u00f0 n\u00fdta n\u00f3vemberm\u00e1nu\u00f0 til a\u00f0 undirb\u00faa vendikennsluna \u2013 ganga fr\u00e1 <a href=\"https:\/\/ugla.hi.is\/kv\/index2.php?sid=219&amp;kennsluvefur_kennsluvefsnumer=53052&amp;kennsluvefur_efnisatridi=110&amp;cache=463148&amp;adgerd=efnisatridi_skoda\">gl\u00e6rum<\/a> og <a href=\"http:\/\/uc-media.rhi.hi.is\/tmp\/wqule\/hoi.pdf\">kennsluefni<\/a>, semja <a href=\"https:\/\/ugla.hi.is\/kv\/index2.php?sid=219&amp;kennsluvefur_kennsluvefsnumer=53052&amp;kennsluvefur_efnisatridi=4&amp;cache=641365&amp;adgerd=efnisatridi_skoda\">verkefni<\/a>, og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst \u2013 taka upp <a href=\"https:\/\/ugla.hi.is\/kv\/index2.php?sid=219&amp;kennsluvefur_kennsluvefsnumer=67041&amp;kennsluvefur_efnisatridi=73&amp;cache=346847&amp;adgerd=efnisatridi_skoda\">fyrirlestra<\/a>.<\/p>\n<p>\u00c9g t\u00f3k upp fyrirlestra heima hj\u00e1 m\u00e9r me\u00f0 eMission \u2013 alls 48, hvern a\u00f0 me\u00f0altali h\u00e1lft\u00edma a\u00f0 lengd. \u00c9g haf\u00f0i reyndar hugsa\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 hafa fyrirlestrana styttri og veit n\u00fana a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feykir ekki skynsamlegt a\u00f0 hafa \u00fe\u00e1 svona langa, en efni\u00f0 bara lag\u00f0ist \u00feannig. Nemendur geta l\u00edka gert hl\u00e9 \u00feegar \u00feeim s\u00fdnist \u00feannig a\u00f0 \u00e9g hef ekki s\u00e9\u00f0 \u00feetta sem st\u00f3rt vandam\u00e1l \u2013 og svo er l\u00edka h\u00e6gt a\u00f0 spila fyrirlestrana \u00e1 tv\u00f6f\u00f6ldum hra\u00f0a ef \u00fev\u00ed er a\u00f0 skipta. En \u00feetta hef\u00f0i ekki veri\u00f0 h\u00e6gt nema af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g ger\u00feekkti efni\u00f0 og haf\u00f0i kennt \u00fea\u00f0 margoft \u00e1\u00f0ur, \u00e1tti megni\u00f0 af gl\u00e6runum, og haf\u00f0i skrifa\u00f0 kennsluefni sem dekka\u00f0i \u00fea\u00f0 sem fari\u00f0 er yfir \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu. \u00cd raun og veru er l\u00edtill munur \u00e1 \u00feessum uppt\u00f6kum og talgl\u00e6runum sem \u00e9g nota\u00f0i um aldam\u00f3tin, nema \u00ed eMission-uppt\u00f6kunum var \u00e9g ekki bundinn vi\u00f0 gl\u00e6rurnar, heldur gat l\u00edka s\u00fdnt forrit, s\u00ed\u00f0ur \u00e1 netinu o.fl.<\/p>\n<p>Nemendur \u00e1ttu a\u00f0 hlusta \u00e1 fj\u00f3ra fyrirlestra \u00ed viku, samtals t\u00e6pa tvo klukkut\u00edma. \u00c9g f\u00e6kka\u00f0i svo t\u00edmum \u00ed stofu um helming \u00feannig a\u00f0 \u00e9g hitti nemendur a\u00f0eins einu sinni \u00ed viku, tvo t\u00edma \u00ed senn, \u00ed sta\u00f0 tvisvar \u00ed viku eins og venjulega \u00ed 10e n\u00e1mskei\u00f0um. \u00deennan t\u00edma nota\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e1 til a\u00f0 fara yfir fl\u00f3kin atri\u00f0i, svara spurningum, fara yfir s\u00ed\u00f0asta heimaverkefni, o.fl. Einn kostur vi\u00f0 vendikennsluna sem \u00e9g haf\u00f0i ekki \u00e1tta\u00f0 mig \u00e1 fyrir fram er s\u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 er aldrei neitt stress a\u00f0 komast yfir efni\u00f0. \u00dea\u00f0 er b\u00fai\u00f0. \u00deess vegna getur ma\u00f0ur veri\u00f0 miklu afslappa\u00f0ri \u00ed t\u00edmum. I\u00f0ulega l\u00e9t \u00e9g nemendur skipta s\u00e9r \u00ed h\u00f3pa \u00ed seinni t\u00edmanum og byrja a\u00f0 vinna n\u00e6sta heimaverkefni. \u00c9g gekk \u00fe\u00e1 \u00e1 milli h\u00f3panna og lei\u00f0beindi \u00feeim eftir \u00fe\u00f6rfum. S\u00ed\u00f0an samdi \u00e9g <a href=\"https:\/\/ugla.hi.is\/kv\/index2.php?sid=219&amp;kennsluvefur_kennsluvefsnumer=53052&amp;kennsluvefur_efnisatridi=294&amp;cache=275890&amp;adgerd=efnisatridi_skoda\">fj\u00f6lvalspr\u00f3f<\/a> sem tengjast fyrirlestrunum og lesefninu. Nemendur \u00e1ttu a\u00f0 taka fj\u00f6gur sl\u00edk pr\u00f3f \u00e1 viku.<\/p>\n<p>\u00d6nnur tilraun sem \u00e9g ger\u00f0i vori\u00f0 2014 f\u00f3lst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00fdta vefn\u00e1mskei\u00f0 (MOOC) fr\u00e1 erlendum h\u00e1sk\u00f3la inn \u00ed mitt eigi\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0. Kennslum\u00e1lanefnd H\u00e1sk\u00f3lans augl\u00fdsti hausti\u00f0 2013 eftir \u00fe\u00e1tttakendum \u00ed sl\u00edka tilraun, \u00ed framhaldi af vinnu starfsh\u00f3ps rektors um MOOC-n\u00e1mskei\u00f0 sem \u00e9g sat m.a. \u00ed og skila\u00f0i <a href=\"https:\/\/www.hi.is\/sites\/default\/files\/atli\/pdf\/gamalt\/mooc_skyrsla_endanleg_mai2013_4.pdf\">\u00e1liti<\/a> vori\u00f0 2013. \u00dea\u00f0 vildi svo heppilega til a\u00f0 \u00e1 vormisseri 2014 var haldi\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed \u201e<a href=\"https:\/\/www.futurelearn.com\/courses\/corpus-linguistics\/\">Corpus linguistics<\/a>\u201c vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lann \u00ed Lancaster \u00e1 Englandi. Efni n\u00e1mskei\u00f0sins skara\u00f0ist a\u00f0 verulegu leyti vi\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 <a href=\"https:\/\/ugla.hi.is\/kv\/index2.php?sid=219&amp;namsknr=05401820140&amp;kennsluvefur_efnisatridi=1\">T\u00f6lvur og tungum\u00e1l<\/a> sem \u00e9g kenndi nokkrum sinnum og var einmitt \u00e1 dagskr\u00e1 \u00feetta vor. Kennari MOOC-n\u00e1mskei\u00f0sins var <a href=\"https:\/\/www.lancaster.ac.uk\/linguistics\/about\/people\/tony-mcenery\">Tony McEnery<\/a> sem er m.a. h\u00f6fundur <a href=\"https:\/\/www.cambridge.org\/core\/books\/corpus-linguistics\/16CC177EA9B6007B3187C64326F818AB\">b\u00f3kar<\/a> sem \u00e9g haf\u00f0i nota\u00f0 \u00ed m\u00ednu n\u00e1mskei\u00f0i.<\/p>\n<p>\u00c9g \u00e1kva\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gera tilraun me\u00f0 a\u00f0 <a href=\"https:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/kemst.pdf\">fl\u00e9tta<\/a> \u00feetta n\u00e1mskei\u00f0 inn \u00ed mitt n\u00e1mskei\u00f0 og sendi nemendum t\u00f6lvup\u00f3st milli j\u00f3la og n\u00fd\u00e1rs 2013 um a\u00f0 skr\u00e1 sig \u00ed MOOC-n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0. \u00dea\u00f0 h\u00f3fst \u00ed lok jan\u00faar og st\u00f3\u00f0 \u00ed 8 vikur. Me\u00f0an \u00e1 \u00fev\u00ed st\u00f3\u00f0 f\u00e6kka\u00f0i \u00e9g t\u00edmum \u00ed stofu um helming en haf\u00f0i fulla kennslu \u00ed einhverjar vikur \u00e1 undan og eftir. \u00c9g lag\u00f0i fyrir nemendur a\u00f0 horfa \u00e1 alla fyrirlestra \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu, taka fj\u00f6lvalspr\u00f3f, og taka \u00fe\u00e1tt \u00ed spjall\u00fer\u00e1\u00f0um sem bo\u00f0i\u00f0 var upp \u00e1 \u00fear sem a\u00f0sto\u00f0arkennarar sv\u00f6ru\u00f0u fyrirspurnum. Nemendur virtust vera nokku\u00f0 s\u00e1ttir vi\u00f0 \u00feetta. \u00c9g endurt\u00f3k \u00feetta svo vori\u00f0 2016, me\u00f0 \u00fev\u00ed fr\u00e1viki a\u00f0 \u00fe\u00e1 var n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 \u201e<a href=\"https:\/\/www.futurelearn.com\/courses\/corpus-linguistics\/\">Corpus linguistics<\/a>\u201c ekki \u00ed gangi \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 v\u00e6ri opi\u00f0. Eini munurinn var s\u00e1 a\u00f0 \u00fe\u00e1 g\u00e1tu nemendur ekki teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed spjall\u00fer\u00e1\u00f0um e\u00f0a leita\u00f0 uppl\u00fdsinga hj\u00e1 a\u00f0sto\u00f0arkennurum.<\/p>\n<p>\u00c9g lag\u00f0i alltaf mikla \u00e1herslu \u00e1 verkefnavinnu nemenda og var venjulega me\u00f0 vikuleg verkefni \u00ed flestum n\u00e1mskei\u00f0um sem \u00e9g kenndi, a.m.k. grunnn\u00e1mskei\u00f0um. Reynslan s\u00fdnir a\u00f0 nemendur tileinka s\u00e9r efni\u00f0 ekki almennilega nema \u00e1 \u00feann h\u00e1tt. Oftast giltu \u00feessi verkefni eitthva\u00f0 til n\u00e1msmats, en venjulega \u00fe\u00f3 ekki miki\u00f0. \u00cd kennsluk\u00f6nnunum f\u00e9kk \u00e9g oft athugasemdir fr\u00e1 nemendum um a\u00f0 verkefnin v\u00e6ru alltof t\u00edmafrek mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 hva\u00f0 \u00feau gildi l\u00edti\u00f0. \u00c9g svara\u00f0i \u00fev\u00ed alltaf til a\u00f0 verkefnin v\u00e6ru hluti af kennslunni \u2013 ekki bara a\u00f0fer\u00f0 til a\u00f0 finna einhverja t\u00f6lu til a\u00f0 hengja \u00e1 nemendur og kalla einkunn. \u00c9g f\u00e9kk l\u00edka stundum athugasemdir vi\u00f0 a\u00f0 fyrirm\u00e6lin \u00ed verkefnunum v\u00e6ru ekki n\u00f3gu sk\u00fdr \u2013 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekki n\u00f3gu lj\u00f3st til hvers v\u00e6ri \u00e6tlast. Stundum \u00e1tti \u00feetta r\u00e9tt \u00e1 s\u00e9r, en oft sag\u00f0i \u00e9g nemendum samt a\u00f0 svona \u00e6tti \u00feetta a\u00f0 vera. \u00deeir \u00e6ttu a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 leggja eitthva\u00f0 \u00e1 sig til a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 hva\u00f0 \u00feeir \u00e6ttu a\u00f0 gera.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er l\u00edka misjafnt hvernig fari\u00f0 var yfir verkefnin. \u00c9g samdi alltaf \u00edtarleg <a href=\"https:\/\/ugla.hi.is\/kv\/index2.php?sid=219&amp;kennsluvefur_kennsluvefsnumer=67041&amp;kennsluvefur_efnisatridi=245&amp;cache=388730&amp;adgerd=efnisatridi_skoda\">\u00farlausnarbl\u00f6\u00f0<\/a> ef m\u00f6gulegt var, og hvatti nemendur til a\u00f0 bera eigin \u00farlausn saman vi\u00f0 \u00feau. Stundum voru verkefnin au\u00f0vita\u00f0 \u00feess e\u00f0lis a\u00f0 \u00feetta var ekki h\u00e6gt. Ef \u00e9g var me\u00f0 st\u00f3ran nemendah\u00f3p, einkum ef \u00e9g var ekki me\u00f0 a\u00f0sto\u00f0armann, l\u00e9t \u00e9g oft n\u00e6gja a\u00f0 renna lauslega yfir \u00farlausnir nemenda og athuga hvort \u00feeir hef\u00f0u gl\u00edmt vi\u00f0 alla \u00fe\u00e6tti verkefnisins. Ef \u00feeir hef\u00f0u gert \u00fea\u00f0 fengu \u00feeir stig fyrir \u00fea\u00f0, \u00f3h\u00e1\u00f0 \u00fev\u00ed hvort \u00feeir leystu verkefni\u00f0 r\u00e9tt. Vissulega hef\u00f0i veri\u00f0 betra a\u00f0 geta veitt hverjum og einum \u00edtarlega endurgj\u00f6f, en \u00fea\u00f0 hef\u00f0i or\u00f0i\u00f0 mj\u00f6g t\u00edmafrekt og leitt til \u00feess a\u00f0 verkefnin yr\u00f0u mun f\u00e6rri. \u00c9g tel, og sag\u00f0i nemendum \u00fea\u00f0, a\u00f0 ef \u00feeir n\u00fdti s\u00e9r \u00farlausnarbl\u00f6\u00f0in vel l\u00e6ri \u00feeir meira \u00e1 verkefnunum en endurgj\u00f6finni og \u00feess vegna s\u00e9 betra fyrir \u00fe\u00e1 a\u00f0 f\u00e1 m\u00f6rg verkefni sem ekki er fari\u00f0 \u00edtarlega yfir en f\u00e6rri verkefni sem fari\u00f0 er vandlega yfir.<\/p>\n<h3>\u00de\u00e1tttaka \u00ed nefndum og stj\u00f3rnum sem tengjast kennslu<\/h3>\n<ul>\n<li>Kennaramenntunarnefnd H\u00e1sk\u00f3lans 1988-1992, undir forystu Andra \u00cdsakssonar og s\u00ed\u00f0ar J\u00f3ns Torfa J\u00f3nassonar.<\/li>\n<li>Nefnd \u00e1 vegum menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0uneytisins um lesskilning og or\u00f0afor\u00f0a 1989, undir formennsku Gu\u00f0na Olgeirssonar.<\/li>\n<li>Verkefnisstj\u00f3rn hagn\u00fdtra n\u00e1msbrauta 1999, undir formennsku P\u00e1ls Jenssonar.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/fjar.pdf\">Nefnd Heimspekideildar um fjarkennslu<\/a>, 2004.<\/li>\n<li>Starfsh\u00f3pur til a\u00f0 undirb\u00faa dr\u00f6g a\u00f0 stefnu H\u00e1sk\u00f3lans um uppl\u00fdsingat\u00e6kni og fjarkennslu, 2006-2007.<\/li>\n<li><a href=\"https:\/\/skemman.is\/bitstream\/1946\/13132\/5\/Fylgiskj_menntavisinda_loka_greinagerd.pdf\">Verkefnish\u00f3pur um skipulag n\u00e1ms \u00e1 Menntav\u00edsindasvi\u00f0i<\/a>, 2007-2008.<\/li>\n<li>N\u00e1msstj\u00f3rn um menntun framhaldssk\u00f3lakennara, 2012-2015.<\/li>\n<li><a href=\"https:\/\/www.hi.is\/sites\/default\/files\/atli\/pdf\/gamalt\/mooc_skyrsla_endanleg_mai2013_4.pdf\">Starfsh\u00f3pur rektors um vefstudda kennslu og n\u00e1m<\/a>, 2012-2013.<\/li>\n<li>Stj\u00f3rn Samtaka m\u00f3\u00f0urm\u00e1lskennara 1984-1986 og 2010-2012 og \u00ed ritnefnd <em>Sk\u00edmu<\/em> 1994-1997.<\/li>\n<\/ul>\n<h3>Greinar um kennslum\u00e1l<\/h3>\n<ul>\n<li>2014. <a href=\"https:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/kemst.pdf\">Opi\u00f0 erlent netn\u00e1mskei\u00f0 fl\u00e9tta\u00f0 inn \u00ed n\u00e1mskei\u00f0 vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.<\/a> <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0 Kennslumi\u00f0st\u00f6\u00f0var 2014.<\/em><\/li>\n<li>2014. <a href=\"http:\/\/www.hugras.is\/2014\/09\/tilraun-i-kennslu-astaeda-forsaga-utfaersla-utkoma\/\">Tilraun \u00ed kennslu \u2013 \u00e1st\u00e6\u00f0a, forsaga, \u00fatf\u00e6rsla, \u00fatkoma.<\/a> <em>Hugr\u00e1s, vefrit Hugv\u00edsindasvi\u00f0s<\/em>, 3. september.<\/li>\n<li>1999. <a href=\"https:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=1936802\">N\u00fd n\u00e1mslei\u00f0 \u00ed \u00edslensku vi\u00f0 H\u00cd.<\/a> <em>Morgunbla\u00f0i\u00f0<\/em> 1. j\u00fan\u00ed, s. 43.<\/li>\n<li>1998. <a href=\"http:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/vefurinn.pdf\">Vefurinn \u00ed kennslu.<\/a> <em>Fr\u00e9ttabr\u00e9f H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands,<\/em> mars.<\/li>\n<li>1994. <a href=\"http:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/abyrgd.pdf\">Hver ber \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00edslenskukennslunni \u00ed H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands?<\/a> <em>Sk\u00edma <\/em>17,1:31-33.<\/li>\n<li>1991. <a href=\"https:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=1750344\">Minnkandi \u00edslenskukunn\u00e1tta? \u2013 Versnandi \u00edslenskukennsla?<\/a> <em>Morgunbla\u00f0i\u00f0<\/em> 12. september, s. 22.<\/li>\n<li>1988. <a href=\"http:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/kennsla2.pdf\">Um \u00edslenskun\u00e1m vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands s\u00ed\u00f0asta \u00e1ratug \u2013 og hva\u00f0 svo?<\/a> <em>M\u00edmir <\/em>[kom aldrei \u00fat].<\/li>\n<li>1988. <a href=\"http:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/kennsla1.pdf\">Kennaran\u00e1m \u00ed \u00edslensku vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.<\/a> <em>Sk\u00edma<\/em> 11,1:6-8.<\/li>\n<\/ul>\n<h3>Erindi um kennslum\u00e1l<\/h3>\n<ul>\n<li><a href=\"https:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/Kennslukaffi.pdf\">Kennsla m\u00edn.<\/a> Kennslukaffi Kennslumi\u00f0st\u00f6\u00f0var H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, Reykjav\u00edk, 7. desember 2016.<\/li>\n<li><a href=\"https:\/\/www.youtube.com\/watch?v=cF9U0vpxf14#t=1130\">MOOC-n\u00e1mskei\u00f0 og vendikennsla.<\/a> <i>H\u00e1sk\u00f3lakennsla \u00ed takt vi\u00f0 t\u00edmann \u2013 f\u00e6rni og t\u00e6kif\u00e6ri \u00ed bl\u00f6ndu\u00f0u n\u00e1mi.<\/i> Samstarf opinberu h\u00e1sk\u00f3lanna, Reykjav\u00edk, 29. apr\u00edl 2014.<\/li>\n<li><a href=\"https:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/ER_haskolathing.pdf\">Tilraunir me\u00f0 n\u00fdtingu opins vefn\u00e1mskei\u00f0s og vendikennslu.<\/a> H\u00e1sk\u00f3la\u00feing, H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, Reykjav\u00edk, 11. apr\u00edl 2014.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/menntun.pdf\">Menntun faggreinakennara.<\/a><a href=\"http:\/\/upptokur.hi.is\/player\/default.aspx?r=c1e0f765-141c-46e3-96e5-0d90eccb4b3a\"> H\u00e6fni kennara og lei\u00f0ir \u00ed menntun<\/a>, fundar\u00f6\u00f0 Menntav\u00edsindasvi\u00f0s, H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, Reykjav\u00edk, 3. j\u00fan\u00ed 2010.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/undirb.pdf\">\u00cdslenska og undirb\u00faningur fyrir h\u00e1sk\u00f3lan\u00e1m.<\/a> Fundur me\u00f0 framhaldssk\u00f3lum, H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, Reykjav\u00edk, 11. ma\u00ed 2009.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/fjarkennsla.pdf\">Fjarkennsla \u00e1 Hugv\u00edsindasvi\u00f0i.<\/a> <em><a href=\"http:\/\/vimeo.com\/24166522\">M\u00e1l\u00feing um fjarkennslu og fjarn\u00e1m.<\/a><\/em> H\u00e1sk\u00f3li \u00cdslands, Reykjav\u00edk, 6. mars 2009.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/meistara.pdf\">Meistaran\u00e1m \u00ed tungut\u00e6kni vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. <\/a><em>R\u00e1\u00f0stefna um tungut\u00e6kni<\/em>, Verkefnisstj\u00f3rn \u00ed tungut\u00e6kni, K\u00f3pavogi, 13. n\u00f3vember 2001.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/fjarkis.pdf\">Fjarkennsla \u00ed \u00edslensku vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.<\/a> <em>UT 2001<\/em>, r\u00e1\u00f0stefna menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0uneytisins \u00ed Borgarholtssk\u00f3la, 9. mars 2001.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/fjark.pdf\">Fjarkennsla - hva\u00f0 \u00fearf til?<\/a> <em>Fundur um fjarkennslu<\/em>, H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, Reykjav\u00edk, 12. apr\u00edl 2000.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/mimir.pdf\">Hvers konar m\u00e1lfr\u00e6\u00f0i \u00e1 a\u00f0 kenna \u00e1 h\u00e1sk\u00f3lastigi?<\/a> <em>Afm\u00e6lisr\u00e1\u00f0stefna M\u00edmis<\/em>, Reykjav\u00edk, 12. okt\u00f3ber 1996.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/malst-96.pdf\">M\u00e1lstefna \u00edslenskuskorar.<\/a> <em>H\u00e1degisfundur M\u00edmis<\/em>, Reykjav\u00edk, 7. mars 1996.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/notendur.hi.is\/eirikur\/kennaramenntun.pdf\">Hlutverk Heimspekideildar \u00ed \u00edslenskri kennaramenntun.<\/a> <em>M\u00e1l\u00feing \u00fer\u00f3unarnefndar Heimspekideildar<\/em>, Reykjav\u00edk, 17. mars 1982.<\/li>\n<\/ul>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Kennsla vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands \u00c9g kenndi vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands fr\u00e1 \u00e1rsbyrjun 1981 - stundakennslu fyrstu fimm \u00e1rin, en sem fastur kennari fr\u00e1 1986. Alls kenndi \u00e9g r\u00famlega 90 n\u00e1mskei\u00f0 e\u00f0a n\u00e1mskei\u00f0shluta \u00ed almennum m\u00e1lv\u00edsindum, \u00edslensku B.A., \u00edslensku M.Paed., \u00edslenskri m\u00e1lfr\u00e6\u00f0i cand.mag.\/M.A. og m\u00e1lt\u00e6kni M.A. Au\u00f0vita\u00f0 kenndi \u00e9g m\u00f6rg \u00feessara n\u00e1mskei\u00f0a oftar en einu sinni me\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"parent":5,"menu_order":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-78","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/78","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=78"}],"version-history":[{"count":45,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/78\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1953,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/78\/revisions\/1953"}],"up":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/5"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=78"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}