{"id":1468,"date":"2019-08-12T20:08:20","date_gmt":"2019-08-12T20:08:20","guid":{"rendered":"http:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=1468"},"modified":"2021-08-01T14:26:39","modified_gmt":"2021-08-01T14:26:39","slug":"hvor-annan","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/08\/12\/hvor-annan\/","title":{"rendered":"Hvor annan"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd M\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum \u00e1 Facebook var eitt sinn <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/groups\/1395992847329077\/permalink\/2304172146511138\/\">vakin athygli \u00e1<\/a> fr\u00e9tt \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu<\/em> \u00fear sem st\u00f3\u00f0 \u00ed fyrirs\u00f6gn \u201eNj\u00f3ta fullkomins skilnings hvort annars\u201c, og \u00ed fr\u00e9ttinni sj\u00e1lfri \u201ehvort \u00feau hafi eitthva\u00f0 n\u00e1\u00f0 a\u00f0 fylgjast me\u00f0 \u00e1rangri hvort annars um helgina\u201c. \u00dea\u00f0 hefur veri\u00f0 kennt a\u00f0 \u00ed \u00feessu sambandi eigi <em>hvor <\/em>a\u00f0 standa \u00ed sama falli (nefnifalli \u00ed \u00feessu tilviki) og frumlag setningarinnar (<em>\u00feau<\/em>, sem reyndar er sleppt \u00ed fyrra d\u00e6minu eins og algengt er \u00ed fyrirs\u00f6gnum) en <em>annar <\/em>\u00ed eignarfalli \u00feegar \u00fea\u00f0 st\u00fdrist af nafn\u00ador\u00f0i eins og \u00ed b\u00e1\u00f0um \u00feessum tilvikum (<em>skilnings <\/em>\u00ed fyrra d\u00e6minu, <em>\u00e1rangri <\/em>\u00ed \u00fev\u00ed seinna).<\/p>\n<p>Samkv\u00e6mt \u00feessu er sambandi\u00f0 r\u00e9tt nota\u00f0 \u00ed b\u00e1\u00f0um d\u00e6munum, en h\u00f6fundur innleggsins taldi \u00fea\u00f0 ranglega nota\u00f0 \u2013 og var sannarlega vorkunn, \u00fev\u00ed a\u00f0 annars konar notkun \u00feess er mj\u00f6g \u00fatbreidd. I\u00f0ulega er <em>hvor <\/em>l\u00e1ti\u00f0 sam\u00adbeygjast <em>annar <\/em>\u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 sambeygjast frumlaginu \u2013 d\u00e6min h\u00e9r a\u00f0 ofan eru \u00fe\u00e1 <em>skilnings hvors annars<\/em> og <em>\u00e1rangri hvors annars<\/em>. Sama gildir um \u00f6nnur afbrig\u00f0i \u00feessa sambands \u2013 oft er sagt t.d. <em>\u00feeim l\u00edkar vel vi\u00f0 hvort ann<\/em>\u00ad<em>a\u00f0<\/em> \u00ed sta\u00f0 <em>hvoru vi\u00f0 anna\u00f0<\/em>, <em>\u00feeir hata hvorn annan<\/em> \u00ed sta\u00f0 <em>hvor annan<\/em>, <em>\u00feeim er hl\u00fdtt til hvors annars<\/em> \u00ed sta\u00f0 <em>hvoru til annars<\/em>, o.s.frv.<\/p>\n<p>\u00deetta er engin n\u00fdjung. D\u00e6mi er um \u201eranga\u201c notkun \u00feessa sambands \u00ed <em>Eintali s\u00e1larinnar <\/em>sem Arngr\u00edmur J\u00f3nsson l\u00e6r\u00f0i \u00fe\u00fdddi \u00ed lok 16. aldar \u2013 \u201eheldur veit oss a\u00f0 v\u00e9r elskum hv\u00f6rn annan svo v\u00e9r bl\u00edfum \u00ed \u00fe\u00e9r og \u00fe\u00edn elska s\u00e9 fullkomin \u00ed oss\u201c. Um og eftir mi\u00f0ja 19. \u00f6ld fara a\u00f0 sj\u00e1st d\u00e6mi \u00e1 stangli en fer mj\u00f6g fj\u00f6lgandi \u00feegar kemur fram \u00e1 20. \u00f6ld, einkum eftir mi\u00f0ja \u00f6ldina, samkv\u00e6mt ranns\u00f3kn sem Dagbj\u00f6rt Gu\u00f0munds\u00add\u00f3ttir m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingur ger\u00f0i \u00ed <a href=\"https:\/\/skemman.is\/bitstream\/1946\/24080\/1\/Dagbj%C3%B6rt%20Gu%C3%B0mundsd%C3%B3ttirBAritger%C3%B0.pdf\">BA-ritger\u00f0<\/a> sinni. \u00c1 <em>t\u00edmarit.is<\/em> fann h\u00fan h\u00e1tt \u00e1 \u00e1ttunda \u00fe\u00fasund d\u00e6mi fr\u00e1 20. \u00f6ld um \u201eranga\u201c notkun \u00feessa sambands \u2013 \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 bl\u00f6\u00f0 og t\u00edmarit hafi yfir\u00adleitt veri\u00f0 pr\u00f3farkalesin \u00e1 \u00feeim t\u00edma.<\/p>\n<p>Breytingar \u00e1 \u00feessu sambandi eru \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r mj\u00f6g skiljan\u00adlegar vegna \u00feess a\u00f0 <em>hvor<\/em> \/ <em>hver<\/em> r\u00fdfur venjuleg tengsl or\u00f0a. \u00cd samb\u00f6ndum eins og <em>tala um<\/em> og <em>l\u00edka vi\u00f0<\/em> mynda s\u00f6gn og forsetning merkingarlega heild sem <em>hv-<\/em>or\u00f0i\u00f0 r\u00fdfur \u00feegar sagt er <em>tala hvor <\/em>\/ <em>hver um annan<\/em> og <em>l\u00edka hvorum <\/em>\/ <em>hverjum vi\u00f0 annan<\/em>. Til a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir \u00fea\u00f0 rof og halda \u00feessari heild er <em>hv<\/em>-or\u00f0i\u00f0 f\u00e6rt aftur fyrir forsetninguna. En \u00fear me\u00f0 eru tengsl for\u00adsetn\u00adingarinnar og andlags hennar rofin og \u00fev\u00ed er e\u00f0lilegt a\u00f0 m\u00e1lnotendur fari a\u00f0 skynja <em>hv<\/em>-or\u00f0i\u00f0 sem andlag og l\u00e1ti \u00fea\u00f0 sambeygjast raunverulega andlag\u00adinu \u2014 <em>tala um hvorn <\/em>\/ <em>hvern annan<\/em> og <em>l\u00edka vi\u00f0 hvorn <\/em>\/ <em>hvern annan<\/em>. Sama gerist \u00fear sem <em>annar<\/em> er andlag sagnar, eins og \u00ed <em>a\u00f0sto\u00f0a hvor <\/em>\/ <em>hver annan<\/em> og <em>hj\u00e1lpa hvor <\/em>\/ <em>hver \u00f6\u00f0rum<\/em> \u2014 \u00fear r\u00fdfur <em>hv<\/em>-or\u00f0i\u00f0 tengsl sagnar og andlags sem lei\u00f0ir til \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 er t\u00falka\u00f0 sem hluti andlagsins, <em>a\u00f0sto\u00f0a hvorn <\/em>\/ <em>hvern annan<\/em> og <em>hj\u00e1lpa hvorum <\/em>\/ <em>hverjum \u00f6\u00f0rum<\/em>.<\/p>\n<p>Af n\u00e6rri 40 \u00e1ra kennslu\u00adreynslu tel \u00e9g mig geta fullyrt a\u00f0 verulegur hluti f\u00f3lks notar \u00feetta samband ekki \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem kennt hefur veri\u00f0. \u00deetta sta\u00f0festist \u00ed vi\u00f0amikilli ranns\u00f3kn \u00e1 st\u00f6\u00f0u \u00eds\u00adlensk\u00adunnar sem vi\u00f0 Sigr\u00ed\u00f0ur Sigurj\u00f3nsd\u00f3ttir pr\u00f3fessor st\u00f3\u00f0um fyrir. \u00dear var f\u00f3lk \u00e1 \u00f6llum aldri be\u00f0i\u00f0 a\u00f0 leggja mat \u00e1 \u00fdmsar setningar, \u00fear \u00e1 me\u00f0al <em>\u00feeim l\u00edkar vel hvorum vi\u00f0 annan<\/em> sem hefur veri\u00f0 tali\u00f0 r\u00e9tt og <em>\u00feeim l\u00edkar vel vi\u00f0 hvorn annan<\/em> sem hefur veri\u00f0 tali\u00f0 rangt. Verulegur hluti f\u00f3lks \u00ed \u00f6llum aldursh\u00f3pum, fr\u00e1 13 \u00e1ra og upp \u00far, taldi a\u00f0 fyrri setningin, s\u00fa \u201er\u00e9tta\u201c, v\u00e6ri anna\u00f0hvort \u201emj\u00f6g \u00f3e\u00f0li\u00adleg\u201c e\u00f0a \u201efrekar \u00f3e\u00f0lileg\u201c. F\u00f3lk sem taldi a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri \u201emj\u00f6g e\u00f0lileg\u201c e\u00f0a \u201efrekar e\u00f0lileg\u201c var \u00ed minnihluta \u00ed flestum aldursh\u00f3pum.<\/p>\n<p>Aftur \u00e1 m\u00f3ti taldi yfirgn\u00e6fandi meirihluti f\u00f3lks \u00ed \u00f6llum ald\u00adurs\u00adh\u00f3pum a\u00f0 seinni setningin, s\u00fa \u201eranga\u201c, v\u00e6ri anna\u00f0\u00adhvort \u201emj\u00f6g e\u00f0lileg\u201c e\u00f0a \u201efrekar e\u00f0lileg\u201c, en mj\u00f6g f\u00e1um fannst h\u00fan \u201emj\u00f6g \u00f3e\u00f0lileg\u201c e\u00f0a \u201efrekar \u00f3e\u00f0li\u00adleg\u201c.Vegna \u00feess hve munur aldursh\u00f3pa er l\u00edtill er ekki h\u00e6gt a\u00f0 kenna ungu kynsl\u00f3\u00f0inni um \u00feessa m\u00e1lbreytingu \u2013 og ekki er heldur h\u00e6gt a\u00f0 skella skuldinni \u00e1 hrakandi \u00edslensku\u00adkennslu. \u00deetta er einfaldlega m\u00e1lbreyting sem \u00e1 s\u00e9r gaml\u00adar r\u00e6tur og er or\u00f0in svo \u00fatbreidd a\u00f0 \u00f3h\u00e6tt er a\u00f0 fullyr\u00f0a a\u00f0 mikill meirihluti landsmanna s\u00e9 alinn upp vi\u00f0 \u201eranga\u201c notkun sambandsins og hafi tileinka\u00f0 s\u00e9r hana \u00e1 m\u00e1l\u00adt\u00f6ku\u00adskei\u00f0i.<\/p>\n<p>Bar\u00e1ttan gegn \u00feessari breytingu er auglj\u00f3slega l\u00f6ngu t\u00f6p\u00adu\u00f0 og m\u00e9r finnst ekkert vit \u00ed a\u00f0 halda henni \u00e1fram. \u00dea\u00f0 t\u00e1kn\u00adar au\u00f0vita\u00f0 ekki a\u00f0 d\u00e6min \u00far fr\u00e9tt <em>Morgunbla\u00f0sins <\/em>sem nefnd voru \u00ed upphafi eigi a\u00f0 h\u00e6tta a\u00f0 teljast r\u00e9tt, en ver\u00f0i r\u00f6ng \u00ed sta\u00f0inn. \u00deetta eiga einfaldlega a\u00f0 vera tv\u00f6 jafn\u00adgild og jafnr\u00e9tth\u00e1 afbrig\u00f0i. \u00dea\u00f0 er ekkert a\u00f0 \u00fev\u00ed. Tungu\u00adm\u00e1li\u00f0 \u00fearf ekki alltaf a\u00f0 vera anna\u00f0hvort \u2013 e\u00f0a; \u00fea\u00f0 m\u00e1 l\u00edka stundum vera b\u00e6\u00f0i \u2013 og.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd M\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum \u00e1 Facebook var eitt sinn vakin athygli \u00e1 fr\u00e9tt \u00ed Morgunbla\u00f0inu \u00fear sem st\u00f3\u00f0 \u00ed fyrirs\u00f6gn \u201eNj\u00f3ta fullkomins skilnings hvort annars\u201c, og \u00ed fr\u00e9ttinni sj\u00e1lfri \u201ehvort \u00feau hafi eitthva\u00f0 n\u00e1\u00f0 a\u00f0 fylgjast me\u00f0 \u00e1rangri hvort annars um helgina\u201c. \u00dea\u00f0 hefur veri\u00f0 kennt a\u00f0 \u00ed \u00feessu sambandi eigi hvor a\u00f0 standa \u00ed sama falli [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635,158638],"tags":[],"class_list":["post-1468","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar","category-malvillur"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1468","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1468"}],"version-history":[{"count":8,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1468\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":3963,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1468\/revisions\/3963"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1468"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1468"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1468"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}