{"id":1736,"date":"2019-09-21T23:29:41","date_gmt":"2019-09-21T23:29:41","guid":{"rendered":"http:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=1736"},"modified":"2021-05-09T22:14:28","modified_gmt":"2021-05-09T22:14:28","slug":"ad-kynna-einhvern-fyrir-einhverju","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/09\/21\/ad-kynna-einhvern-fyrir-einhverju\/","title":{"rendered":"A\u00f0 kynna einhvern fyrir einhverju"},"content":{"rendered":"<p>I\u00f0ulega eru ger\u00f0ar athugasemdir vi\u00f0 notkun sagnarinnar <em>kynna <\/em>og bent \u00e1 a\u00f0 dau\u00f0ir hlutir s\u00e9u kynntir fyrir f\u00f3lki en ekki \u00f6fugt. \u00c1\u00f0ur gat \u00feolfallsandlagi\u00f0 \u00ed samb\u00f6ndum eins og <em>kynna einhvern fyrir einhverjum<\/em> a\u00f0eins v\u00edsa\u00f0 til f\u00f3lks eins og s\u00e9st \u00ed sk\u00fdringu sambandsins \u00ed <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k<\/em>: 'uppl\u00fdsa e-n um nafn e-s a\u00f0 honum vi\u00f0st\u00f6ddum me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed huga a\u00f0 kynni takist'. En n\u00fdlega er fari\u00f0 a\u00f0 nota \u00feetta or\u00f0alag l\u00edka um hugmyndir og dau\u00f0a hluti \u2013 <em>kynna till\u00f6guna fyrir Sveini<\/em>, <em>kynna samkv\u00e6misdans fyrir henni<\/em> o.s.frv. Elstu d\u00e6mi sem \u00e9g hef fundi\u00f0 um \u00feetta eru um \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1ra g\u00f6mul.<\/p>\n<p>\u00deegar b\u00e1\u00f0ir nafnli\u00f0irnir sem fylgja <em>kynna <\/em>v\u00edsa til f\u00f3lks skiptir ekki \u00f6llu m\u00e1li hvor \u00feeirra stendur \u00ed \u00feolfalli og hvor stendur \u00ed \u00fe\u00e1gufalli, anna\u00f0hvort sem andlag e\u00f0a \u00ed forsetningarli\u00f0. <em>H\u00fan kynnti Svein fyrir P\u00e1li<\/em> merkir nokkurn veginn \u00fea\u00f0 sama og <em>h\u00fan kynnti P\u00e1l fyrir Sveini<\/em> \u2013 \u00fatkoman er \u00ed b\u00e6\u00f0i skiptin s\u00fa a\u00f0 \u00feessir tveir menn kynnast. Ef einhvers konar vir\u00f0ingarmunur er \u00e1 m\u00f6nnunum sem um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a er vissulega venja a\u00f0 hafa \u00feann sem er ne\u00f0ar \u00ed vir\u00f0ingarstiganum \u00ed \u00feolfalli \u2013 <em>h\u00fan kynnti mig fyrir forsetanum<\/em> \u00feykir e\u00f0lilegra en <em>h\u00fan kynnti forsetann fyrir m\u00e9r<\/em>. En vi\u00f0 \u00e1\u00f0urnefnda breytingu fer r\u00f6\u00f0 li\u00f0anna a\u00f0 skipta m\u00e1li \u2013 \u00fe\u00f3tt Sveinn kynnist till\u00f6gunni er varla h\u00e6gt a\u00f0 segja a\u00f0 tillagan kynnist Sveini, e\u00f0a Sveinn og tillagan kynnist.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 skiptir hins vegar m\u00e1li \u00ed \u00feessu sambandi a\u00f0 andlag \u00ed \u00feolfalli t\u00e1knar mj\u00f6g oft einhvers konar \u00feolanda, \u00feann sem ver\u00f0ur fyrir einhverjum \u00e1hrifum af \u00feeim verkna\u00f0i sem s\u00f6gnin l\u00fdsir. \u00cd setningum eins og <em>h\u00fan sendi \u00feessa b\u00f3k til m\u00edn<\/em> e\u00f0a <em>h\u00fan keypti \u00feessa b\u00f3k<\/em> m\u00e1 segja a\u00f0 andlagi\u00f0 <em>\u00feessa b\u00f3k<\/em> ver\u00f0i fyrir \u00e1kve\u00f0num \u00e1hrifum \u2013 breyti um sta\u00f0setningu e\u00f0a eiganda. Vissulega er \u00feetta ekki algilt en \u00fe\u00f3 svo algengt a\u00f0 ekki er \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 m\u00e1lnotendur hafi tilfinningu fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 e\u00f0lilegt hlutverk \u00feolfallsandlags s\u00e9 a\u00f0 vera einhvers konar \u00feolandi.<\/p>\n<p>En \u00ed <em>h\u00fan kynnti \u00feessa n\u00fdjung fyrir m\u00e9r<\/em> e\u00f0a <em>h\u00fan kynnti m\u00e9r \u00feessa n\u00fdjung<\/em> ver\u00f0ur \u00feolfallsandlagi\u00f0 <em>\u00feessa n\u00fdjung<\/em> ekki fyrir neinum \u00e1hrifum fr\u00e1 s\u00f6gninni \u2013 \u00e1hrifin koma fram hj\u00e1 \u00feeim sem kynnist n\u00fdjunginni, <em>m\u00e9r<\/em>, hvort sem s\u00fa pers\u00f3na er tj\u00e1\u00f0 \u00ed forsetningarli\u00f0 e\u00f0a sem andlag. \u00deess vegna m\u00e1 segja a\u00f0 <em>h\u00fan kynnti mig fyrir \u00feessari n\u00fdjung<\/em> s\u00e9 \u00ed betra samr\u00e6mi vi\u00f0 venjuleg mynstur m\u00e1lsins. Vi\u00f0 getum gert r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi einhver \u00e1hrif \u00e1 mig a\u00f0 komast \u00ed kynni vi\u00f0 \u00feessa n\u00fdjung, og \u00fev\u00ed er \u201ee\u00f0lilegt\u201c a\u00f0 s\u00e1 sem ver\u00f0ur fyrir \u00e1hrifum komi strax \u00e1 eftir s\u00f6gn.<\/p>\n<p>\u00c9g held \u00fev\u00ed a\u00f0 d\u00e6mi eins og <em>h\u00fan kynnti mig fyrir \u00feessari n\u00fdjung <\/em>megi sk\u00fdra me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00e1lnotendum finnist e\u00f0lilegt a\u00f0 \u00feolfallsandlag s\u00e9 einhvers konar \u00feolandi og hafi \u00feess vegna tilhneigingu til a\u00f0 hafa pers\u00f3nuna \u00ed \u00feolfalli n\u00e6st \u00e1 eftir s\u00f6gninni. \u00dea\u00f0 au\u00f0veldi svo e\u00f0a \u00fdti undir \u00feessa tilhneigingu a\u00f0 m\u00e1lnotendur eru vanir \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00f6\u00f0 li\u00f0anna skipti litlu m\u00e1li \u00feegar b\u00e1\u00f0ir v\u00edsa til pers\u00f3na. Hugsanlega spila \u00e1hrif fr\u00e1 ensku \u00fearna inn \u00ed l\u00edka, en \u00fear er \u00feetta reyndar einnig <a href=\"https:\/\/english.stackexchange.com\/questions\/84467\/introduce-person-to-object-or-introduce-object-to-person\">sitt \u00e1 hva\u00f0<\/a>.<\/p>\n<p>\u00c9g er ekki a\u00f0 m\u00e6la me\u00f0 \u00feessari breytingu e\u00f0a hvetja til \u00feess a\u00f0 f\u00f3lk l\u00e1ti hana afskiptalausa \u2013 \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur hver a\u00f0 eiga vi\u00f0 sig. Hins vegar er h\u00fan meinlaus a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti a\u00f0 h\u00fan veldur engum misskilningi. \u00de\u00f3tt okkur kunni a\u00f0 finnast <em>h\u00fan kynnti mig fyrir \u00feessari n\u00fdjung <\/em>\u00f3r\u00f6kr\u00e9tt og\/e\u00f0a rangt erum vi\u00f0 ekki \u00ed neinum vanda me\u00f0 a\u00f0 skilja hva\u00f0 vi\u00f0 er \u00e1tt. \u00dea\u00f0 er eitt megineinkenni tilbrig\u00f0a \u00ed m\u00e1linu \u2013 \u00feau valda yfirleitt ekki misskilningi. \u00deess vegna geta \u00feau lifa\u00f0 hli\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0 \u00ed m\u00e1linu, jafnvel langt\u00edmum saman.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>I\u00f0ulega eru ger\u00f0ar athugasemdir vi\u00f0 notkun sagnarinnar kynna og bent \u00e1 a\u00f0 dau\u00f0ir hlutir s\u00e9u kynntir fyrir f\u00f3lki en ekki \u00f6fugt. \u00c1\u00f0ur gat \u00feolfallsandlagi\u00f0 \u00ed samb\u00f6ndum eins og kynna einhvern fyrir einhverjum a\u00f0eins v\u00edsa\u00f0 til f\u00f3lks eins og s\u00e9st \u00ed sk\u00fdringu sambandsins \u00ed \u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k: 'uppl\u00fdsa e-n um nafn e-s a\u00f0 honum vi\u00f0st\u00f6ddum me\u00f0 \u00fea\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635,158638],"tags":[],"class_list":["post-1736","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar","category-malvillur"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1736","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1736"}],"version-history":[{"count":9,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1736\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":3827,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1736\/revisions\/3827"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1736"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1736"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1736"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}