{"id":1833,"date":"2019-10-16T09:00:28","date_gmt":"2019-10-16T09:00:28","guid":{"rendered":"http:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=1833"},"modified":"2019-10-15T22:28:55","modified_gmt":"2019-10-15T22:28:55","slug":"maltaekni-i-thagu-samfelagsins","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/10\/16\/maltaekni-i-thagu-samfelagsins\/","title":{"rendered":"M\u00e1lt\u00e6kni \u00ed \u00fe\u00e1gu samf\u00e9lagsins"},"content":{"rendered":"<p>\u00de\u00f3tt nokkur verkefni \u00e1 svi\u00f0i m\u00e1lt\u00e6kni hafi veri\u00f0 unnin h\u00e9r \u00e1 landi undir lok 20. aldar m\u00e1 segja a\u00f0 skipuleg uppbygging \u00edslenskrar m\u00e1lt\u00e6kni hafi hafist fyrir r\u00famum 20 \u00e1rum me\u00f0 \u00fat\u00adtekt \u00e1 \u00e1standi og horfum \u00ed \u00edslenskri tungu\u00adt\u00e6kni eins og svi\u00f0i\u00f0 var kalla\u00f0 \u00fe\u00e1. <em><a href=\"https:\/\/brunnur.stjr.is\/mrn\/utgafuskra\/utgafa.nsf\/xsp\/.ibmmodres\/domino\/OpenAttachment\/mrn\/utgafuskra\/utgafa.nsf\/F0250A90B6D7F31B002576F00058D4B8\/Attachment\/tungutaekni.pdf\">Tungu\u00adt\u00e6kni \u2013 sk\u00fdrsla starfsh\u00f3ps<\/a><\/em> kom \u00fat snemma \u00e1rs 1999 en \u00fear var \u00e1\u00e6tla\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 kosta\u00f0i u.\u00fe.b. einn milljar\u00f0 kr\u00f3na a\u00f0 gera \u00edslenska m\u00e1l\u00adt\u00e6kni sj\u00e1lf\u00adb\u00e6ra. A\u00f0 teknu tilliti til ver\u00f0lagsbreytinga er \u00feetta reyndar svipu\u00f0 upph\u00e6\u00f0 og n\u00fa er gert r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 verja til verkefnisins.<\/p>\n<p>\u00cd kj\u00f6lfar sk\u00fdrslunnar kom r\u00edki\u00f0 \u00e1 f\u00f3t s\u00e9rstakri <a href=\"https:\/\/www.sky.is\/index.php?option=com_content&amp;view=article&amp;id=33&amp;Itemid=69\">tungut\u00e6kni\u00e1\u00e6tlun<\/a> sem f\u00e9kk sam\u00adtals 133 millj\u00f3nir kr\u00f3na \u00e1 fj\u00e1rl\u00f6gum \u00e1r\u00adanna 2000-2004. Fyrir \u00fea\u00f0 f\u00e9 voru unn\u00adin e\u00f0a sett af sta\u00f0 \u00fdmis verkefni sem sum lognu\u00f0ust \u00fat af, \u00f6nnur l\u00f6g\u00f0u dr\u00f6g a\u00f0 seinni t\u00edma starfi \u00e1 \u00feessu svi\u00f0i, og enn \u00f6nnur eru enn \u00ed fullu gildi. \u00dev\u00ed f\u00f3r \u00fe\u00f3 fjarri a\u00f0 \u00edslensk m\u00e1lt\u00e6kni v\u00e6ri or\u00f0in sj\u00e1lf\u00adb\u00e6r \u00feegar \u00e1\u00e6tluninni lauk og n\u00e6stu 10 \u00e1r var ekki sett neitt f\u00e9 \u00e1 fj\u00e1rl\u00f6gum \u00ed \u00eds\u00adlenska m\u00e1lt\u00e6kni en me\u00f0 f\u00e1einum styrkjum \u00far <a href=\"https:\/\/www.rannis.is\/sjodir\/rannsoknir\/rannsoknasjodur\/\">Rann\u00ads\u00f3knasj\u00f3\u00f0i<\/a>, m.a. einum <a href=\"https:\/\/malvis.hi.is\/hagkvaem_maltaekni_utan_ensku\">\u00f6ndvegis\u00adstyrk<\/a>, t\u00f3kst a\u00f0 halda l\u00edfi \u00ed ranns\u00f3knar- og \u00fer\u00f3unarstarfi.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1ttaskil ur\u00f0u me\u00f0 \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00cdslands \u00ed evr\u00f3pska <a href=\"http:\/\/www.meta-net.eu\/front-page-is?set_language=is\">META-NET<\/a> verkefninu \u00e1rin 2011-2013. Megin\u00admarkmi\u00f0 \u00feess voru annars vegar a\u00f0 gera \u00edtarlega \u00fattekt \u00e1 st\u00f6\u00f0u m\u00e1lt\u00e6kni fyrir 30 evr\u00f3psk tungu\u00adm\u00e1l, og hins vegar a\u00f0 byggja upp og gera a\u00f0\u00adgengileg hvers kyns m\u00e1lleg gagnas\u00f6fn og hugb\u00fana\u00f0 fyrir \u00feessi m\u00e1l. \u00c1 \u00cdslandi t\u00f3kst a\u00f0 safna saman og byggja upp marg\u00adv\u00edsleg g\u00f6gn \u00e1 \u00feess\u00adum t\u00edma. \u00deau voru ger\u00f0 a\u00f0gengileg \u00ed var\u00f0veislusafninu <a href=\"http:\/\/www.meta-share.org\/\">META-SHARE<\/a> en einnig var settur upp vefurinn <em><a href=\"http:\/\/malfong.is\/\">m\u00e1lf\u00f6ng.is<\/a><\/em> \u00fear sem h\u00e6gt er a\u00f0 n\u00e1lgast \u00feessi g\u00f6gn.<\/p>\n<p>Auk \u00feess var skrifu\u00f0 \u00edtarleg sk\u00fdrsla, ein af 30 \u00ed sama sni\u00f0i: <em><a href=\"http:\/\/www.meta-net.eu\/whitepapers\/volumes\/icelandic-cover.jpg\">\u00cdslenska \u00e1 stafr\u00e6nni \u00f6ld<\/a><\/em>. \u00deegar ni\u00f0ur\u00adst\u00f6\u00f0ur sk\u00fdrslnanna voru bornar saman kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 \u00edslenska st\u00e6\u00f0i n\u00e6stverst m\u00e1lanna 30 hva\u00f0 var\u00f0ar m\u00e1l\u00adt\u00e6kni. \u00deessar ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur v\u00f6ktu t\u00f6luver\u00f0a at\u00adhygli h\u00e9r \u00e1 landi og voru m.a. <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/altext\/upptokur\/lidur\/?lidur=lid20121121T153618\">r\u00e6dd\u00adar \u00e1 Al\u00feingi<\/a>. \u00dea\u00f0 er \u00f3h\u00e6tt a\u00f0 segja a\u00f0 sk\u00fdrslan hafi veri\u00f0 einn helsti hvatinn a\u00f0 <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/altext\/143\/s\/1076.html\">\u00feings\u00ad\u00e1lykt\u00adun<\/a> sem var sam\u00feykkt einr\u00f3ma 2014 um ger\u00f0 \u00e1\u00e6tlunar um uppbyggingu \u00eds\u00adlenskrar m\u00e1l\u00adt\u00e6kni og leiddi a\u00f0 lokum til sk\u00fdrslunnar <em><a href=\"https:\/\/www.stjornarradid.is\/lisalib\/getfile.aspx?itemid=56f6368e-54f0-11e7-941a-005056bc530c\">M\u00e1lt\u00e6kni fyrir \u00eds\u00adlensku 2018-2022 \u2013 Verk\u00e1\u00e6tlun<\/a><\/em>.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1tttakan \u00ed META-NET s\u00fdndi okkur mikilv\u00e6gi al\u00fej\u00f3\u00f0legs samstarfs \u00e1 \u00feessu svi\u00f0i og \u00ed m\u00e1l\u00adt\u00e6kni\u00adsk\u00fdrslunni var lagt til a\u00f0 \u00cdsland ger\u00f0ist a\u00f0ili a\u00f0 evr\u00f3pska inn\u00advi\u00f0averk\u00adefninu <a href=\"https:\/\/www.clarin.eu\/\">CLARIN ERIC<\/a>. \u00dea\u00f0 var sett \u00e1 stofn til a\u00f0 sta\u00f0la og gera a\u00f0gengi\u00adleg gagna\u00ads\u00f6fn til nota \u00ed rann\u00ads\u00f3knum \u00e1 svi\u00f0i f\u00e9lags- og hugv\u00eds\u00adinda, en \u00feessi gagna\u00ads\u00f6fn geta einnig n\u00fdst \u00ed m\u00e1l\u00adt\u00e6kni og \u00feess vegna er a\u00f0ild a\u00f0 CLARIN mj\u00f6g gagnleg. \u00cdsland er \u00feegar or\u00f0i\u00f0 <a href=\"http:\/\/clarin.is\/\">\u00e1heyrnara\u00f0ili<\/a> a\u00f0 sam\u00adstarf\u00adinu og n\u00fa hefur \u00edslenskum l\u00f6gum veri\u00f0 breytt \u00feannig a\u00f0 \u00cdsland g\u00e6ti s\u00f3tt um fulla a\u00f0ild.<\/p>\n<p>Samstarfsneti\u00f0 <a href=\"http:\/\/lr-coordination.eu\/\">European Language Re\u00adsource Coordination<\/a> hefur veri\u00f0 \u00ed gangi undanfarin fj\u00f6gur \u00e1r. \u00dea\u00f0 gengur einkum \u00fat \u00e1 a\u00f0 afla m\u00e1llegra gagna fr\u00e1 opinberum stofn\u00ad\u00adun\u00adum til nota \u00ed v\u00e9l\u00adr\u00e6num \u00fe\u00fd\u00f0ing\u00adum og n\u00fdta \u00feau \u00ed opinberri \u00fej\u00f3nustu. Anna\u00f0 samstarfs\u00adnet er <a href=\"https:\/\/www.european-language-grid.eu\/\">European Lan\u00adguage Grid<\/a> sem er n\u00fdtt og sn\u00fdst a\u00f0allega um g\u00f6gn sem n\u00fdt\u00adast fyrir\u00adt\u00e6kjum \u00ed i\u00f0na\u00f0i og vi\u00f0\u00adskipta\u00ad\u00adl\u00edfi. \u00cdsland tekur \u00fe\u00e1tt \u00ed b\u00e1\u00f0um \u00feessum netum sem skiptir g\u00edfurlegu m\u00e1li til a\u00f0 geta fylgst me\u00f0 \u00fer\u00f3uninni, fengi\u00f0 a\u00f0gang a\u00f0 g\u00f6gnum og \u00feekkingu og komi\u00f0 okkar eigin g\u00f6gnum \u00e1 framf\u00e6ri.<\/p>\n<p>M\u00e1lt\u00e6kni\u00e1\u00e6tlunin sem n\u00fa er veri\u00f0 a\u00f0 setja af sta\u00f0 mun kosta \u00e1 \u00feri\u00f0ja milljar\u00f0 kr\u00f3na. \u00de\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekki st\u00f3r hluti af heild\u00adar\u00ad\u00fatgj\u00f6ldum r\u00edkissj\u00f3\u00f0s er \u00feetta miki\u00f0 f\u00e9, a.m.k. \u00ed samanbur\u00f0i vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 sem vinnum me\u00f0 \u00edslenskt m\u00e1l erum v\u00f6n a\u00f0 sj\u00e1. \u00c9g er samt sannf\u00e6r\u00f0ur um a\u00f0 f\u00e1ar fj\u00e1r\u00adfest\u00adingar borga sig betur og \u00fej\u00f3\u00f0in \u00e1 eftir a\u00f0 f\u00e1 \u00feetta margfalt til baka. \u00cd huga margra tengist \u00feetta verkefni fyrst og fremst verndun og var\u00f0veislu \u00edslensk\u00adunn\u00adar og h\u00fan ver\u00f0ur vitanlega ekki metin til fj\u00e1r. En m\u00e1lt\u00e6kni er mikilv\u00e6g af fj\u00f6l\u00adm\u00f6rgum \u00f6\u00f0rum \u00e1st\u00e6\u00f0um og \u00e9g nefni \u00f6rf\u00e1 d\u00e6mi:<\/p>\n<ul>\n<li>Fyrir jafnr\u00e9tti og mannr\u00e9ttindi \u2013 m\u00e1lt\u00e6kni getur skipt sk\u00f6pum fyrir fj\u00f6lmarga sem b\u00faa vi\u00f0 ein\u00adhvers kon\u00adar h\u00f6mlun e\u00f0a sker\u00f0\u00adingu, au\u00f0veldar \u00feeim a\u00f0 fer\u00f0ast um, b\u00e6tir a\u00f0gengi \u00feeirra a\u00f0 margs kyns \u00fej\u00f3n\u00adustu og l\u00edfsg\u00e6\u00f0um og getur gert \u00feeim kleift a\u00f0 taka fullan \u00fe\u00e1tt \u00ed daglegu l\u00edfi og starfi.<\/li>\n<li>Fyrir t\u00e6kni\u00fer\u00f3un og n\u00fd\u00adsk\u00f6p\u00adun \u2013 m\u00e1lt\u00e6kni er al\u00fej\u00f3\u00f0leg og innan m\u00e1l\u00adt\u00e6kniverkefnisins gefst \u00edslensk\u00adum fyrir\u00adt\u00e6kjum t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 vinna me\u00f0 v\u00edsindam\u00f6nnum a\u00f0 \u00fer\u00f3un n\u00fdrrar t\u00e6kni og af\u00adur\u00f0a sem geta n\u00fdst \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0legum mark\u00ada\u00f0i, auk \u00feess sem a\u00f0fer\u00f0irnar n\u00fdtast v\u00ed\u00f0ar en \u00ed m\u00e1lt\u00e6kni.<\/li>\n<li>Fyrir hagkv\u00e6mni og hagr\u00e6\u00f0\u00adingu \u00ed rekstri \u2013 me\u00f0 hj\u00e1lp talgreiningar, tal\u00adgerv\u00adingar og gervi\u00adgreind\u00ad\u00adar geta fyrir\u00adt\u00e6ki sem reka \u00fej\u00f3n\u00adustu\u00adver t.d. l\u00e1ti\u00f0 t\u00f6lvur sinna verulegum hluta a\u00f0sto\u00f0ar\u00adbei\u00f0na sem b\u00e6\u00f0i l\u00e6kkar kostna\u00f0 og styttir bi\u00f0t\u00edma og eykur \u00feannig \u00e1n\u00e6gju vi\u00f0skiptavina.<\/li>\n<li>Fyrir skilvirkni \u00ed opinberri \u00fej\u00f3nustu \u2013 me\u00f0 notkun m\u00e1lt\u00e6kni m\u00e1 hra\u00f0a samskiptum milli opinberra a\u00f0ila innbyr\u00f0is en fyrst og fremst st\u00f3rb\u00e6ta og au\u00f0velda a\u00f0\u00adgengi almennings a\u00f0 \u00fej\u00f3nustu opin\u00adberra stofnana og hra\u00f0a afgrei\u00f0slu erinda og fyrirspurna.<\/li>\n<li>Fyrir hra\u00f0a og \u00f6ryggi \u00ed heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustu \u2013 me\u00f0 notkun m\u00e1l\u00adt\u00e6kni vi\u00f0 greiningu og l\u00fdsingu rann\u00ads\u00f3kn\u00adar\u00ad\u00adgagna og hvers kyns skr\u00e1ningu og mi\u00f0lun uppl\u00fdsinga m\u00e1 hra\u00f0a uppl\u00fdsinga\u00adstreymi og \u00feannig fl\u00fdta fyrir sj\u00fak\u00add\u00f3ms\u00adgrein\u00adingu og auka l\u00edkur \u00e1 l\u00e6kn\u00adingu.<\/li>\n<li>Fyrir al\u00admanna\u00advarn\u00adir vi\u00f0 n\u00e1tt\u00faruv\u00e1 \u2013 me\u00f0 sj\u00e1lf\u00advirk\u00adum textaskrifum og v\u00e9lr\u00e6num \u00fe\u00fd\u00f0\u00ading\u00adum m\u00e1 t.d. koma uppl\u00fdsingum um yfir\u00advof\u00adandi eldgos e\u00f0a fl\u00f3\u00f0 \u00e1 fj\u00f6lda tungum\u00e1la til fer\u00f0amanna hvar sem \u00feeir eru staddir og b\u00e6ta samskipti milli vi\u00f0brag\u00f0sa\u00f0ila innbyr\u00f0is og vi\u00f0 almenning.<\/li>\n<\/ul>\n<p>T\u00f6lvut\u00e6knin er n\u00fa or\u00f0in fl\u00e9ttu\u00f0 inn \u00ed flestar daglegar athafnir okkar. Tungu\u00adm\u00e1li\u00f0 er helsta sam\u00adskiptat\u00e6ki okkar \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um mannl\u00edfsins og \u00feess vegna \u00feurfum vi\u00f0 m\u00e1lt\u00e6kni \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0\u00adum \u2013 \u00edslenska m\u00e1lt\u00e6kni. Uppbygging hennar og \u00fer\u00f3un er sannarlega \u00ed \u00fe\u00e1gu samf\u00e9lagsins.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00de\u00f3tt nokkur verkefni \u00e1 svi\u00f0i m\u00e1lt\u00e6kni hafi veri\u00f0 unnin h\u00e9r \u00e1 landi undir lok 20. aldar m\u00e1 segja a\u00f0 skipuleg uppbygging \u00edslenskrar m\u00e1lt\u00e6kni hafi hafist fyrir r\u00famum 20 \u00e1rum me\u00f0 \u00fat\u00adtekt \u00e1 \u00e1standi og horfum \u00ed \u00edslenskri tungu\u00adt\u00e6kni eins og svi\u00f0i\u00f0 var kalla\u00f0 \u00fe\u00e1. Tungu\u00adt\u00e6kni \u2013 sk\u00fdrsla starfsh\u00f3ps kom \u00fat snemma \u00e1rs 1999 en \u00fear [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-1833","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1833","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1833"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1833\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1837,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1833\/revisions\/1837"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1833"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1833"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1833"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}