{"id":2590,"date":"2020-02-22T17:58:15","date_gmt":"2020-02-22T17:58:15","guid":{"rendered":"http:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=2590"},"modified":"2021-05-06T14:24:47","modified_gmt":"2021-05-06T14:24:47","slug":"til-selfossar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/02\/22\/til-selfossar\/","title":{"rendered":"Til Selfossar"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g hef i\u00f0ulega s\u00e9\u00f0 ger\u00f0ar athugasemdir vi\u00f0 a\u00f0 tala\u00f0 s\u00e9 um a\u00f0 fara <em>til Selfossar<\/em> eins og stundum heyrist. \u00dea\u00f0 er engin fur\u00f0a \u2013 or\u00f0i\u00f0 <em>foss <\/em>hefur fram undir \u00feetta veri\u00f0 endingarlaust \u00ed eignarfalli, (<em>til<\/em>)<em> foss<\/em>, og sama gildir um samsetningar af \u00fev\u00ed, \u00fear \u00e1 me\u00f0al (<em>til<\/em>) <em>Selfoss<\/em>. Okkur finnst e\u00f0lilegt og sj\u00e1lfsagt a\u00f0 or\u00f0 beygist \u00e1 \u00feann h\u00e1tt sem vi\u00f0 h\u00f6fum vanist, og kippumst \u00fev\u00ed vi\u00f0 \u00feegar vi\u00f0 heyrum brug\u00f0i\u00f0 \u00fat af hef\u00f0bundinni beygingu. \u00dea\u00f0 er vissulega \u00e6skilegt a\u00f0 vi\u00f0halda <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/02\/07\/hefdir-malsins\/?fbclid=IwAR1u1jrHNv65tA69ZWKCe3NR5DSdU6d11mBKmOwPN3jZggPSWV1qsfcNnFc\">m\u00e1lhef\u00f0<\/a> um beygingu or\u00f0a en \u00fe\u00f3 er r\u00e9tt a\u00f0 hafa \u00ed huga a\u00f0 \u00feessi breyting er fjarri \u00fev\u00ed a\u00f0 vera einsd\u00e6mi.<\/p>\n<p>Beyging fj\u00f6lmargra or\u00f0a hefur breyst fr\u00e1 fornu m\u00e1li til n\u00fat\u00edmans, \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi raska\u00f0 m\u00e1lkerfinu e\u00f0a valdi\u00f0 alvarlegu rofi \u00e1 m\u00e1lhef\u00f0. A\u00f0alatri\u00f0i\u00f0 er a\u00f0 or\u00f0in h\u00e6tti ekki a\u00f0 beygjast, \u00fe\u00f3tt \u00feau f\u00e6rist milli beygingaflokka. \u00dev\u00ed er ekki til a\u00f0 dreifa \u00ed \u00feessu tilviki \u2013 -<em>ar<\/em> er d\u00e6miger\u00f0 eignarfallsending sterkra karlkynsor\u00f0a \u00fe\u00f3tt <em>-s<\/em> s\u00e9 enn algengari. En \u00feessi breyting er reyndar \u00e1hugaver\u00f0ari en margar a\u00f0rar. Or\u00f0i\u00f0 <em>foss <\/em>er nefnilega nokku\u00f0 s\u00e9rstakt vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 er endingarlaust \u00ed eignarfalli eins og \u00e1\u00f0ur segir. \u00deetta er vissulega ekki einsd\u00e6mi en meginreglan er \u00fe\u00f3 a\u00f0 nafnor\u00f0 hafi s\u00e9rstaka eignarfallsendingu.<\/p>\n<p>\u00cd karlkynsor\u00f0um eru \u00fea\u00f0 bara or\u00f0 sem enda \u00e1 l\u00f6ngu (tv\u00f6f\u00f6ldu) <em>ss<\/em> eins og <em>foss<\/em>, <em>sess<\/em>, <em>rass <\/em>o.fl., svo og or\u00f0 sem enda \u00e1 samhlj\u00f3\u00f0i + <em>s<\/em> eins og <em>dans<\/em>, <em>h\u00e1ls<\/em>, <em>\u00feurs<\/em>, <em>snafs <\/em>o.fl. sem eru \u00e1n endingar \u00ed eignarfalli eint\u00f6lu. \u00deetta endingarleysi \u00e1 s\u00e9r langa s\u00f6gu og m\u00e1 sk\u00fdra me\u00f0 \u00e6vagamalli hlj\u00f3\u00f0\u00fer\u00f3un. En \u00fea\u00f0 getur leitt til \u00feess a\u00f0 sumum m\u00e1lnotendum finnist vanta \u00fearna einhverja endingu \u2013 f\u00e1i \u00fea\u00f0 \u00e1 tilfinninguna a\u00f0 or\u00f0in s\u00e9u ekki beyg\u00f0, og hyllist \u00feess vegna til \u00feess a\u00f0 b\u00e6ta eignarfallsendingu vi\u00f0 \u00feau, \u00fe\u00f3tt ekki s\u00e9 hef\u00f0 fyrir henni.<\/p>\n<p>\u00deetta er \u00fea\u00f0 sem gerist \u00feegar f\u00f3lk segir til <em>Selfossar <\/em>\u00ed sta\u00f0 til <em>Selfoss <\/em>\u2013 og svipu\u00f0u m\u00e1li gildir um \u00f6nnur sta\u00f0an\u00f6fn sem enda \u00e1 <em>-s<\/em>, t.d. <em>\u00d6lfus <\/em>og <em>Akranes<\/em>. \u00deau b\u00e6ta vissulega vi\u00f0 sig <em>-s<\/em> \u00ed eignarfalli \u00ed ritu\u00f0u m\u00e1li, <em>\u00d6lfuss <\/em>og <em>Akraness<\/em>. En \u00ed frambur\u00f0i er sjaldnast lengdarmunur \u00e1 einf\u00f6ldu og tv\u00f6f\u00f6ldu samhlj\u00f3\u00f0i \u00ed \u00e1herslulausu atkv\u00e6\u00f0i eins og \u00fearna. <em>\u00d6lfuss <\/em>er \u00fev\u00ed venjulega bori\u00f0 fram n\u00e1kv\u00e6mlega eins og <em>\u00d6lfus<\/em>, og <em>Akraness <\/em>er venjulega bori\u00f0 fram n\u00e1kv\u00e6mlega eins og <em>Akranes<\/em>. \u00deess vegna finnst m\u00e1lnotendum \u2013 sumum hverjum a.m.k. \u2013 vanta eignarfallsendingu \u00e1 \u00feessi or\u00f0 l\u00edka, og myndirnar til <em>Akranesar <\/em>og til <em>\u00d6lfusar <\/em>heyrast oft.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er vissulega h\u00e6gt a\u00f0 hafna \u00feessari beygingu \u00e1 \u00feeirri forsendu a\u00f0 engin hef\u00f0 s\u00e9 fyrir henni. En \u00fea\u00f0 er l\u00edka h\u00e6gt a\u00f0 taka henni fagnandi vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan s\u00fdnir a\u00f0 m\u00e1lnotendur hafa sterka tilfinningu fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 eignarfall eigi a\u00f0 f\u00e1 endingu, og setja \u00feess vegna endingu \u00fear sem \u00feeim finnst hana vanta. Breyting af \u00feessu tagi s\u00fdnir \u00fev\u00ed styrk beygingarkerfisins \u2013 me\u00f0an breytingar af \u00feessu tagi koma upp er kerfinu \u00f3h\u00e6tt, og \u00fea\u00f0 er meginatri\u00f0i\u00f0. Ef eignarfall umr\u00e6ddra or\u00f0a hef\u00f0i veri\u00f0 <em>Selfossar<\/em>, <em>Akranesar <\/em>og <em>\u00d6lfusar <\/em>en v\u00e6ri a\u00f0 breytast \u00ed <em>Selfoss<\/em>, <em>Akranes<\/em>(<em>s<\/em>) og <em>\u00d6lfus<\/em>(<em>s<\/em>) v\u00e6ri hins vegar fremur \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 hafa \u00e1hyggjur af kerfinu.<\/p>\n<p>Ef \u00e9g \u00e6tti barn \u00e1 m\u00e1lt\u00f6kuskei\u00f0i sem seg\u00f0i <em>til<\/em> <em>Selfossar <\/em>\/ <em>Akranesar <\/em>\/<em>\u00d6lfusar<\/em> myndi \u00e9g lei\u00f0r\u00e9tta \u00fea\u00f0 (sem sennilega k\u00e6mi fyrir l\u00edti\u00f0). Ef \u00e9g v\u00e6ri pr\u00f3farkalesari og r\u00e6kist \u00e1 \u00feessar myndir myndi \u00e9g breyta \u00feeim \u00ed <em>Selfoss <\/em>\/ <em>Akraness <\/em>\/ <em>\u00d6lfuss <\/em>\u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 hef\u00f0. Ef \u00e9g v\u00e6ri kennari myndi \u00e9g gera athugasemdir vi\u00f0 \u00feessar myndir \u00ed ritger\u00f0um nemenda og reyna a\u00f0 sk\u00fdra \u00fe\u00e6r \u00fat eins og gert er h\u00e9r a\u00f0 framan, en \u00e9g myndi aldrei gefa rangt fyrir \u00fe\u00e6r \u00e1 pr\u00f3fi \u2013 og dytti raunar aldrei \u00ed hug a\u00f0 pr\u00f3fa \u00ed \u00feeim. En ef \u00e9g v\u00e6ri almennur m\u00e1lnotandi sem hef\u00f0i vanist \u00e1 a\u00f0 segja <em>til<\/em> <em>Selfossar <\/em>\/ <em>Akranesar <\/em>\/ <em>\u00d6lfusar <\/em>myndi \u00e9g l\u00edklega bara halda \u00fev\u00ed \u00e1fram.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g hef i\u00f0ulega s\u00e9\u00f0 ger\u00f0ar athugasemdir vi\u00f0 a\u00f0 tala\u00f0 s\u00e9 um a\u00f0 fara til Selfossar eins og stundum heyrist. \u00dea\u00f0 er engin fur\u00f0a \u2013 or\u00f0i\u00f0 foss hefur fram undir \u00feetta veri\u00f0 endingarlaust \u00ed eignarfalli, (til) foss, og sama gildir um samsetningar af \u00fev\u00ed, \u00fear \u00e1 me\u00f0al (til) Selfoss. Okkur finnst e\u00f0lilegt og sj\u00e1lfsagt a\u00f0 or\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635,158638],"tags":[],"class_list":["post-2590","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar","category-malvillur"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2590","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2590"}],"version-history":[{"count":7,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2590\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":3797,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2590\/revisions\/3797"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2590"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2590"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2590"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}