{"id":2613,"date":"2020-02-26T14:20:19","date_gmt":"2020-02-26T14:20:19","guid":{"rendered":"http:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=2613"},"modified":"2020-02-28T09:17:36","modified_gmt":"2020-02-28T09:17:36","slug":"umsogn-um-drog-ad-frumvarpi-til-laga-um-mannanofn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/02\/26\/umsogn-um-drog-ad-frumvarpi-til-laga-um-mannanofn\/","title":{"rendered":"Ums\u00f6gn um dr\u00f6g a\u00f0 frumvarpi til laga um mannan\u00f6fn"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g er samm\u00e1la \u00feeirri meginstefnu <a href=\"https:\/\/samradsgatt.island.is\/oll-mal\/$Cases\/Details\/?id=2637\">frumvarpsins<\/a> a\u00f0 leggja sem minnstar h\u00f6mlur \u00e1 form og e\u00f0li mannanafna. \u00c9g tel a\u00f0 auki\u00f0 frelsi \u00ed \u00feeim efnum s\u00e9 nau\u00f0synlegt vegna jafnr\u00e9ttis- og mannr\u00e9ttindasj\u00f3narmi\u00f0a, og ska\u00f0i ekki \u00edslenska tungu. N\u00e1nari r\u00f6k fyrir \u00feeirri afst\u00f6\u00f0u eru f\u00e6r\u00f0 h\u00e9r \u00e1 eftir.<\/p>\n<p>Samkv\u00e6mt frumvarpinu falla brott \u00e1kv\u00e6\u00f0i sem eru \u00ed <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/1996045.html\">n\u00fagildandi l\u00f6gum<\/a> um a\u00f0 eiginnafn skuli geta teki\u00f0 \u00edslenska eignarfallsendingu e\u00f0a hafa unni\u00f0 s\u00e9r hef\u00f0 \u00ed \u00edslensku m\u00e1li, megi ekki brj\u00f3ta \u00ed b\u00e1ga vi\u00f0 \u00edslenskt m\u00e1lkerfi og skuli rita\u00f0 \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 al\u00admenn\u00adar <a href=\"http:\/\/ritreglur.arnastofnun.is\/\">ritreglur<\/a> \u00edslensks m\u00e1ls nema hef\u00f0 s\u00e9 fyrir \u00f6\u00f0rum rith\u00e6tti \u00feess. Framangreind \u00e1kv\u00e6\u00f0i eru sett til verndar \u00edslenskri tungu og eru \u00feannig \u00fat af fyrir sig g\u00f3\u00f0ra gjalda ver\u00f0. En \u00feau eru \u00f6ll vandme\u00f0farin og h\u00e1\u00f0 t\u00falkun. N\u00f6fn eru tilfinningam\u00e1l og nafnr\u00e9ttur manna r\u00edkur, eins og sta\u00f0fest er me\u00f0 \u00fdmsum d\u00f3mum, b\u00e6\u00f0i fr\u00e1 <a href=\"https:\/\/statesassembly.gov.je\/scrutinyreviewresearches\/2008\/s-25669-41435-1552008.pdf\">Mannr\u00e9ttindad\u00f3mst\u00f3l Evr\u00f3pu<\/a>, <a href=\"https:\/\/www.heradsdomstolar.is\/default.aspx?pageid=347c3bb1-8926-11e5-80c6-005056bc6a40&amp;id=69090d21-0a13-4cf4-bd64-8a7f539140bf\">H\u00e9ra\u00f0s\u00add\u00f3mi Reykja\u00adv\u00edkur<\/a> o.fl., og me\u00f0 v\u00edsun til t.d. <a href=\"http:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/1994062.html\">mannr\u00e9ttindas\u00e1ttm\u00e1la Evr\u00f3pu<\/a> og <a href=\"http:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/1944033.html\">stj\u00f3rnarskr\u00e1r \u00cdslands<\/a>. R\u00e9ttur manns til nafns, og r\u00e9ttur foreldra til a\u00f0 r\u00e1\u00f0a nafni barns s\u00edns, ver\u00f0ur ekki takmarka\u00f0ur nema hagsmunir samf\u00e9lagsins krefjist.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 beitingu hef\u00f0ar\u00e1kv\u00e6\u00f0isins hefur mannanafnanefnd komi\u00f0 s\u00e9r upp \u00e1kve\u00f0num <a href=\"https:\/\/www.island.is\/media\/pdf-skjol-a-island.is-2014\/vinnulagsreglur_mannanafnanefndar.pdf\">vinnulags\u00adreglum<\/a>. \u00dea\u00f0 er vitaskuld lofsvert og dregur \u00far h\u00e6ttu \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 samb\u00e6rileg m\u00e1l s\u00e9u afgreidd \u00e1 mismunandi h\u00e1tt. En vi\u00f0mi\u00f0in \u00ed \u00feessum reglum eru umdeilanleg og eiga s\u00e9r ekki beina sto\u00f0 \u00ed l\u00f6gum, \u00fe\u00f3tt \u00feau s\u00e9u vissulega nefnd \u00ed <a href=\"http:\/\/www.althingi.is\/altext\/120\/s\/0073.html\">athugasemdum<\/a> me\u00f0 frumvarpi til n\u00fagildandi laga. Ekki er \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0ur t\u00falkunaratri\u00f0i hvort n\u00f6fn brj\u00f3ti \u00ed b\u00e1ga vi\u00f0 \u00edslenskt m\u00e1lkerfi. \u00deegar \u00feessu \u00e1kv\u00e6\u00f0i hefur veri\u00f0 beitt er oft v\u00edsa\u00f0 til \u00feess a\u00f0 \u00ed n\u00f6fnum komi fyrir hlj\u00f3\u00f0 e\u00f0a hlj\u00f3\u00f0asamb\u00f6nd sem ekki eru \u00ed \u00edslensku, en einnig til or\u00f0myndunarfr\u00e6\u00f0ilegra, beygingarlegra og merkingarlegra atri\u00f0a. Oftast er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a mj\u00f6g matskennda \u00fe\u00e6tti \u00fear sem erfitt er a\u00f0 g\u00e6ta samr\u00e6mis og jafnr\u00e6\u00f0is.<\/p>\n<p>\u00dev\u00ed er oft haldi\u00f0 fram a\u00f0 \u00f3heftur straumur erlendra nafna geti haft \u00f3\u00e6skileg \u00e1hrif \u00e1 m\u00e1li\u00f0. \u00dea\u00f0 er \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r ekki \u00f3hugsandi a\u00f0 mikill fj\u00f6ldi or\u00f0a sem koma inn \u00ed m\u00e1li\u00f0 og greina sig fr\u00e1 \u00edslenskum erf\u00f0aor\u00f0um \u00e1 einhvern h\u00e1tt, t.d. \u00ed hlj\u00f3\u00f0afari e\u00f0a beygingum, hafi einhver \u00e1hrif \u00e1 tilfinningu m\u00e1lnotenda fyrir reglum og einkennum \u00edslenskunnar. En til \u00feess \u00feurfa or\u00f0in a\u00f0 vera mj\u00f6g m\u00f6rg og miki\u00f0 notu\u00f0. Erlend mannan\u00f6fn eiga n\u00fa \u00feegar tilt\u00f6lulega grei\u00f0a lei\u00f0 inn \u00ed m\u00e1li\u00f0, eins og au\u00f0s\u00e9\u00f0 er \u00feegar <a href=\"http:\/\/www.urskurdir.is\/DomsOgKirkjumala\/Mannanafnanefnd\">\u00farskur\u00f0ir mannanafnanefndar<\/a> eru sko\u00f0a\u00f0ir. \u00dea\u00f0 skiptir vart sk\u00f6pum fyrir framt\u00ed\u00f0 tung\u00adunnar hvort haldi\u00f0 er \u00ed \u00fe\u00e6r h\u00f6mlur sem eru \u00e1 uppt\u00f6ku n\u00fdrra erlendra (og innlendra) nafna. Mannan\u00f6fn eru svo s\u00e9rstakur og afmarka\u00f0ur hluti tungum\u00e1lsins a\u00f0 ekki er l\u00edklegt a\u00f0 \u00feau hafi veruleg \u00e1hrif \u00e1 a\u00f0ra \u00fe\u00e6tti \u00feess, enda eru n\u00fdleg n\u00f6fn sem reyna \u00e1 \u00e1kv\u00e6\u00f0i mannanafnalaga flest e\u00f0a \u00f6ll <a href=\"https:\/\/hagstofa.is\/talnaefni\/ibuar\/faeddir-og-danir\/nofn\/\">mj\u00f6g sjaldg\u00e6f<\/a>.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 er a\u00f0 hafa \u00ed huga a\u00f0 erlend n\u00f6fn hafa streymt inn \u00ed m\u00e1li\u00f0 fr\u00e1 fyrstu t\u00ed\u00f0, og m\u00f6rg \u00feeirra hafa a\u00f0 geyma hlj\u00f3\u00f0asamb\u00f6nd sem ekki finnast \u00ed erf\u00f0aor\u00f0um. \u00dear m\u00e1 nefna n\u00f6fn eins og <em>Andrea<\/em>, <em>Lea<\/em>, <em>Magnea<\/em>, <em>Le\u00f3<\/em>, <em>The\u00f3d\u00f3ra<\/em>, <em>William<\/em>, <em>Sebastian<\/em>, <em>Patricia<\/em>, <em>Sophus<\/em>, <em>Zophon\u00edas<\/em>, <em>Arth\u00far<\/em>, <em>Zoe<\/em>, <em>Nikolai<\/em>, <em>Laila<\/em>, og \u00f3talm\u00f6rg fleiri. \u00d6ll \u00feessi n\u00f6fn er h\u00e6gt a\u00f0 gefa \u00edslenskum r\u00edkisborgurum \u00f3hindra\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau eru \u00e1 mannanafnaskr\u00e1 \u2013 sum hafa veri\u00f0 notu\u00f0 lengi en \u00f6nnur hafa veri\u00f0 heimilu\u00f0 \u00e1 starfst\u00edma mannanafnanefndar. Ekki ver\u00f0ur \u00feess samt vart a\u00f0 \u00feetta hafi haft neikv\u00e6\u00f0 \u00e1hrif \u00e1 tungum\u00e1li\u00f0.<\/p>\n<p>Au\u00f0vita\u00f0 m\u00e1 hugsa s\u00e9r n\u00f6fn sem innihalda meira framandi hlj\u00f3\u00f0asamb\u00f6nd en \u00feau sem h\u00e9r hafa veri\u00f0 nefnd, s.s. <em>Szczepan<\/em> \u00far p\u00f3lsku, <em>Nguyen<\/em> \u00far v\u00edetn\u00f6msku o.s.frv. En hlj\u00f3\u00f0skipunarreglur tungum\u00e1la breytast ekki svo glatt, og l\u00edkurnar \u00e1 a\u00f0 sl\u00edk n\u00f6fn hef\u00f0u einhver \u00e1hrif \u00e1 \u00edslenskt hlj\u00f3\u00f0kerfi og hlj\u00f3\u00f0skipunarreglur eru n\u00e1kv\u00e6mlega engar. Og vegna \u00feess a\u00f0 hlj\u00f3\u00f0asamb\u00f6nd \u00ed \u00feessum or\u00f0um eru n\u00e1nast \u00f3framberanleg fyrir \u00cdslendinga er ekki \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 n\u00f6fnin t\u00e6kju flj\u00f3tlega breytingum \u00ed \u00e1tt a\u00f0 \u00edslenskum hlj\u00f3\u00f0skipunarreglum.<\/p>\n<p>\u00dev\u00ed hefur einnig veri\u00f0 haldi\u00f0 fram a\u00f0 \u00f3heft innstreymi erlendra nafna g\u00e6ti <a href=\"https:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2019\/06\/21\/atti_simtol_heilu_naeturnar_um_mannanofn\/\">veikt beygingarkerfi\u00f0<\/a>. Eitt \u00feeirra skilyr\u00f0a sem n\u00f6fn \u00feurfa a\u00f0 uppfylla samkv\u00e6mt gildandi l\u00f6gum l\u00fdtur a\u00f0 \u00feessu \u2013 n\u00f6fn \u00feurfa a\u00f0 geta teki\u00f0 eignarfallsendingu. \u00de\u00f3 er fj\u00f6ldi \u00edslenskra erf\u00f0aor\u00f0a eins \u00ed \u00f6llum f\u00f6llum eint\u00f6lu og hefur \u00fear me\u00f0 enga s\u00e9rstaka eignarfallsendingu. \u00deetta eru t.d. veik hvorugkynsor\u00f0 (<em>hjarta<\/em>, <em>n\u00fdra<\/em> o.s.frv.), m\u00f6rg kvenkynsor\u00f0 sem enda \u00e1 <em>-i<\/em> (<em>gle\u00f0i<\/em>, <em>keppni<\/em>, <em>lygi<\/em>, <em>rei\u00f0i<\/em> o.m.fl.), karlkyns- og hvorugkynsor\u00f0 sem enda \u00e1 l\u00f6ngu <em>s<\/em> (<em>foss<\/em>, <em>koss<\/em>, <em>sess<\/em>, <em>hross<\/em>, <em>pl\u00e1ss<\/em> o.fl.) e\u00f0a samhlj\u00f3\u00f0i + <em>s<\/em> (<em>h\u00e1ls<\/em>, <em>\u00feurs<\/em>, <em>glans, gips<\/em> o.fl.) \u2013 og sitthva\u00f0 fleira m\u00e6tti nefna. \u00deessi or\u00f0 eru margfalt fleiri og algengari en \u00feau mannan\u00f6fn sem ekki taka eignarfallsendingu \u2013 jafnvel \u00fe\u00f3tt me\u00f0talin v\u00e6ru \u00f6ll n\u00f6fn sem hafna\u00f0 hefur veri\u00f0 \u00e1 \u00feeirri forsendu. Samt hvarflar ekki a\u00f0 neinum a\u00f0 \u00feessi or\u00f0 stu\u00f0li a\u00f0 ni\u00f0urbroti beygingarkerfisins e\u00f0a hafi einhver \u00f3\u00e6skileg \u00e1hrif \u00e1 m\u00e1li\u00f0.<\/p>\n<p>En reyndar geta langflest n\u00f6fn teki\u00f0 eignarfallsendingu og \u00fev\u00ed er beygingarleysi sjaldan forsenda synjunar nafns. \u00dea\u00f0 eru helst kvenmannsn\u00f6fn sem enda \u00e1 <em>-e<\/em> sem erfitt getur veri\u00f0 a\u00f0 setja eignarfallsendingu \u00e1 og nokkrum sl\u00edkum n\u00f6fnum hefur veri\u00f0 hafna\u00f0, s.s. <em>Maxine<\/em>, <em>Aveline<\/em> og <em>Jette<\/em>, \u00fe\u00f3tt n\u00f6fnin <em>Charlotte<\/em>, <em>Christine<\/em>, <em>Elsie<\/em>, <em>Irene<\/em>, <em>Kristine<\/em>, <em>Louise<\/em>, <em>Marie<\/em> og <em>Salome<\/em>\/<em>Sal\u00f3me<\/em> hafi komist \u00e1 mannanafnaskr\u00e1 vegna hef\u00f0ar. Af \u00feessum n\u00f6fnum er a\u00f0eins \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0astnefnda nota\u00f0 eitthva\u00f0 a\u00f0 r\u00e1\u00f0i og hefur t\u00e6plega spillt beygingarkerfinu. \u00de\u00f3tt \u00f6rf\u00e1um \u00f6\u00f0rum n\u00f6fnum hafi veri\u00f0 hafna\u00f0 \u00e1 \u00feeirri forsendu a\u00f0 \u00feau taki ekki eignarfallsendingu tel \u00e9g \u00fea\u00f0 h\u00e6pna t\u00falkun.<\/p>\n<p>Annar h\u00f3pur nafna sem ekki taka eignarfallsendingu eru karlmannsn\u00f6fn sem enda \u00e1 samhlj\u00f3\u00f0i + <em>s<\/em> \u2013 <em>Gils<\/em>, <em>Hans<\/em>, <em>Jens<\/em> o.fl. Aldrei er \u00fe\u00f3 amast vi\u00f0 sl\u00edkum n\u00f6fnum, v\u00e6ntanlega vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 er engin s\u00e9rviska \u00feeirra a\u00f0 taka ekki eignarfallsendingu heldur er \u00fea\u00f0 einfaldlega \u00fatiloka\u00f0 af hlj\u00f3\u00f0afarslegum \u00e1st\u00e6\u00f0um \u2013 samhlj\u00f3\u00f0 getur ekki veri\u00f0 langt \u00e1 eftir \u00f6\u00f0ru samhlj\u00f3\u00f0i og \u00feess vegna er ekki h\u00e6gt a\u00f0 b\u00e6ta eignarfalls-<em>s<\/em> vi\u00f0 \u00feessi n\u00f6fn. (Reyndar v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 nota eignarfallsendinguna <em>-ar<\/em> \u00ed sta\u00f0inn, en \u00fea\u00f0 er ekki gert.) En \u00feegar a\u00f0 er g\u00e1\u00f0 gegnir \u00ed raun og veru alveg sama m\u00e1li um kvenmannsn\u00f6fnin sem enda \u00e1 <em>-e<\/em> \u2013 \u00fea\u00f0 eru hlj\u00f3\u00f0afarslegar \u00e1st\u00e6\u00f0ur fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau geta ekki teki\u00f0 eignarfallsendinguna <em>-ar<\/em> (sem er s\u00fa eina sem kemur til greina). Tv\u00f6 gr\u00f6nn s\u00e9rhlj\u00f3\u00f0 eins og <em>e<\/em> og <em>a<\/em> geta ekki me\u00f0 g\u00f3\u00f0u m\u00f3ti sta\u00f0i\u00f0 saman \u00ed \u00edslensku. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed \u00ed raun fr\u00e1leitt a\u00f0 hafna \u00e1\u00f0urnefndum kvenmannsn\u00f6fnum \u00e1 \u00feessari forsendu.<\/p>\n<p>Meira a\u00f0 segja <em>J\u00f3n<\/em>, algengasta karlmannsnafn \u00e1 \u00cdslandi fyrr og s\u00ed\u00f0ar, fellur ekki fullkomlega a\u00f0 m\u00e1lkerfinu \u2013 til \u00feess \u00feyrfti \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera <em>J\u00f3nn<\/em>, eins og <em>prj\u00f3nn<\/em>, <em>s\u00f3nn<\/em> og <em>t\u00f3nn<\/em> \u2013 sem reyndar eru allt g\u00f6mul t\u00f6kuor\u00f0 sem hafa a\u00f0lagast kerfinu. \u00deegar <em>J\u00f3n<\/em> haf\u00f0i veri\u00f0 \u00ed m\u00e1linu \u00ed margar aldir kom t\u00f6kuor\u00f0i\u00f0 <em>telef\u00f3n<\/em> inn \u00ed m\u00e1li\u00f0 seint \u00e1 19. \u00f6ld, en \u00fea\u00f0 t\u00f3k ekki langan t\u00edma a\u00f0 laga\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 m\u00e1linu \u00feannig a\u00f0 \u00fea\u00f0 var\u00f0 (<em>tele<\/em>)<em>f\u00f3nn<\/em> \u00ed nefnifalli. \u00der\u00e1tt fyrir t\u00ed\u00f0ni og \u00fatbrei\u00f0slu nafnsins <em>J\u00f3n<\/em> haf\u00f0i endingarleysi \u00feess \u00ed nefnifalli sem s\u00e9 ekki \u00e1hrif \u00e1 \u00feetta n\u00fdja t\u00f6kuor\u00f0.<\/p>\n<p>En gefum okkur n\u00fa \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 n\u00f6fn sem falla ekki a\u00f0 \u00edslensku hlj\u00f3\u00f0- og beygingarkerfi g\u00e6tu \u201esmita\u00f0 \u00fat fr\u00e1 s\u00e9r\u201c ef svo m\u00e1 segja \u2013 komi\u00f0 af sta\u00f0 e\u00f0a hra\u00f0a\u00f0 breytingum \u00e1 \u00edslensku m\u00e1lkerfi. \u00de\u00e1 hl\u00fdtur \u00fea\u00f0 a\u00f0 eiga vi\u00f0 um \u00f6ll n\u00f6fn sem eru notu\u00f0 \u00ed m\u00e1lsamf\u00e9laginu, n\u00f6fn sem vi\u00f0 heyrum og notum \u00ed daglegu l\u00edfi \u2013 ekki bara n\u00f6fn \u00edslenskra r\u00edkisborgara, sem eru \u00feeir einu sem falla undir \u00edslensk mannanafnal\u00f6g. H\u00e9r b\u00faa n\u00fa og starfa tugir \u00fe\u00fasunda \u00fatlendinga \u2013 f\u00f3lk sem vi\u00f0 t\u00f6lum um og t\u00f6lum vi\u00f0, og notum \u00fev\u00ed \u00ed daglegu tali fj\u00f6lda nafna sem ekki yr\u00f0u sam\u00feykkt. Ef \u00edslensku m\u00e1lkerfi stafar h\u00e6tta af erlendum n\u00f6fnum hl\u00fdtur s\u00fa h\u00e6tta a\u00f0allega a\u00f0 stafa fr\u00e1 n\u00f6fnum \u00feessa f\u00f3lks en ekki \u00feeim tilt\u00f6lulega f\u00e1u n\u00f6fnum sem \u00edslenskir r\u00edkisborgarar s\u00e6kja um a\u00f0 bera.<\/p>\n<p>Einnig m\u00e1 benda \u00e1 a\u00f0 mannan\u00f6fn eru ekki st\u00f3r hluti af or\u00f0afor\u00f0a m\u00e1lsins. \u00c1 <a href=\"https:\/\/www.island.is\/mannanofn\/leit-ad-nafni\/\">mannanafnaskr\u00e1<\/a> eru r\u00famlega 4100 n\u00f6fn, m\u00f6rg \u00feeirra mj\u00f6g sjaldg\u00e6f og \u00ed m\u00f6rgum tilvikum er \u00f6rugglega bara einn nafnberi. N\u00fa m\u00e1 au\u00f0vita\u00f0 nota \u00fdmsa m\u00e6likvar\u00f0a \u00e1 st\u00e6r\u00f0 \u00edslensks or\u00f0afor\u00f0a en \u00ed <a href=\"http:\/\/ritmalssafn.arnastofnun.is\/\">ritm\u00e1lssafni<\/a> \u00c1rnastofnunar eru t.d. d\u00e6mi um u.\u00fe.b. 700 \u00fe\u00fasund or\u00f0. M\u00f6rg \u00feeirra eru l\u00edka sjaldg\u00e6f og jafnvel a\u00f0eins eitt d\u00e6mi um \u00feau, \u00feannig a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki fr\u00e1leitt a\u00f0 bera \u00feetta saman. Samkv\u00e6mt \u00fev\u00ed v\u00e6ru n\u00f6fn langt innan vi\u00f0 1% af heildaror\u00f0afor\u00f0anum.Vissulega m\u00e1 reikna \u00feetta \u00e1 annan h\u00e1tt en sama hvernig \u00fea\u00f0 er gert ver\u00f0a n\u00f6fnin alltaf bara brot af or\u00f0afor\u00f0anum. Og um \u00f6nnur or\u00f0 \u2013 allt a\u00f0 99% or\u00f0afor\u00f0ans \u2013 gilda engin l\u00f6g.<\/p>\n<p>Enda eru erlend or\u00f0 af \u00fdmsu tagi s\u00edfellt a\u00f0 koma inn \u00ed m\u00e1li\u00f0, \u00e1n \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum nokkra stj\u00f3rn \u00e1 \u00fev\u00ed. M\u00f6rg \u00feeirra falla ekki fullkomlega a\u00f0 \u00edslensku m\u00e1lkerfi \u2013 eru \u00f3beyg\u00f0, brj\u00f3ta hlj\u00f3\u00f0skipunarreglur, e\u00f0a hvort tveggja. Sum \u00feessara or\u00f0a eru l\u00edti\u00f0 notu\u00f0 e\u00f0a um stuttan t\u00edma, \u00f6nnur haldast \u00ed m\u00e1linu og laga sig \u00fe\u00e1 i\u00f0ulega a\u00f0 \u00feeim or\u00f0um sem fyrir eru \u2013 breyta um frambur\u00f0, fara a\u00f0 beygjast, o.s.frv. \u00d6nnur haldast \u00ed m\u00e1linu \u00e1n \u00feess a\u00f0 laga sig a\u00f0 \u00fev\u00ed \u2013 en \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u201esmita \u00fat fr\u00e1 s\u00e9r\u201c, \u00fe.e. \u00e1n \u00feess a\u00f0 valda nokkrum breytingum \u00e1 \u00edslenskum or\u00f0um. M\u00e9r er \u00f3m\u00f6gulegt a\u00f0 sj\u00e1 tilganginn \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 koma l\u00f6gum yfir l\u00edti\u00f0 brot or\u00f0afor\u00f0ans en l\u00edta fram hj\u00e1 hugsanlegum \u00e1hrifum allra hinna or\u00f0anna.<\/p>\n<p>\u00cd \u00feessu sambandi m\u00e1 nefna a\u00f0 \u00fea\u00f0 er alsi\u00f0a a\u00f0 nefna b\u00f6rn \u00ed h\u00f6fu\u00f0 skyldmenna, ekki s\u00edst afa og \u00f6mmu. \u00deetta \u00feykir bera vott um r\u00e6ktarsemi vi\u00f0 \u00e6tt og uppruna og er m\u00f6rgum miki\u00f0 tilfinningam\u00e1l. En stundum er foreldrum beinl\u00ednis banna\u00f0 a\u00f0 nefna b\u00f6rn s\u00edn \u00ed h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00e1 afa og \u00f6mmu \u00fe\u00f3tt vilji standi til \u00feess. F\u00f3lk sem f\u00e6r \u00edslenskan r\u00edkisborgarar\u00e9tt er vissulega ekki lengur \u00fevinga\u00f0 til a\u00f0 breyta nafni s\u00ednu, en \u00fev\u00ed er meina\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 nafna e\u00f0a n\u00f6fnur \u00feegar barnab\u00f6rnin koma, ef n\u00f6fnin sem um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a eru ekki \u00e1 mannanafnaskr\u00e1 og fulln\u00e6gja ekki skilyr\u00f0um til a\u00f0 komast \u00e1 hana. \u00deetta getur valdi\u00f0 miklum s\u00e1rindum og hugarangri \u00feeirra sem \u00ed hlut eiga, enda auglj\u00f3s mismunun sem stenst ekki n\u00fat\u00edmahugmyndir um jafnr\u00e6\u00f0i.<\/p>\n<p>Annar \u00fe\u00e1ttur \u00ed mannanafnal\u00f6gum sem var\u00f0ar \u00edslenska m\u00e1lstefnu eru \u00e6ttarn\u00f6fnin. Oft er bent \u00e1 a\u00f0 \u00cdslendingar hafi <a href=\"http:\/\/www.althingi.is\/altext\/120\/s\/0073.html\">einir germanskra \u00fej\u00f3\u00f0a<\/a> var\u00f0veitt \u00feann si\u00f0 a\u00f0 kenna sig til f\u00f6\u00f0ur e\u00f0a m\u00f3\u00f0ur, og mikilv\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 halda \u00feeim si\u00f0 \u00e1fram. I\u00f0ulega er l\u00e1ti\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed liggja a\u00f0 bann vi\u00f0 uppt\u00f6ku \u00e6ttarnafna s\u00e9 li\u00f0ur \u00ed vernd \u00edslenskrar tungu. Engin lei\u00f0 er \u00fe\u00f3 a\u00f0 halda \u00fev\u00ed fram. \u00deessi si\u00f0ur er hluti af \u00edslenskri menningu, en ekki s\u00e9rstaklega af \u00edslenskri tungu au\u00f0vita\u00f0 s\u00e9 stutt \u00fear \u00e1 milli \u00ed \u00feessu. \u00c6ttarn\u00f6fn eru \u00ed e\u00f0li s\u00ednu hvorki \u00edslenskulegri n\u00e9 \u00f3\u00edslenskulegri en f\u00f6\u00f0ur- og m\u00f3\u00f0ur\u00adn\u00f6fn. Fj\u00f6ldi \u00e6ttarnafna er af al\u00edslenskum r\u00f3tum og \u00f3\u00fearft a\u00f0 taka d\u00e6mi um \u00fea\u00f0, og ef upptaka \u00e6ttarnafna yr\u00f0i gefin frj\u00e1ls m\u00e1 b\u00faast vi\u00f0 a\u00f0 sl\u00edkum n\u00f6fnum myndi fj\u00f6lga. M\u00f6rg \u00e6ttar\u00adn\u00f6fn eiga s\u00e9r vissulega erlendan uppruna en sama m\u00e1 segja um eiginn\u00f6fn. Erfitt er a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 notkun \u00e6ttarnafna valdi einhverjum s\u00e9rst\u00f6kum m\u00e1lspj\u00f6llum.<\/p>\n<p>\u00c9g er ekki sannf\u00e6r\u00f0ur um a\u00f0 f\u00f3lk myndi \u00ed st\u00f3rh\u00f3pum leggja ni\u00f0ur f\u00f6\u00f0ur- og m\u00f3\u00f0urn\u00f6fn og taka upp \u00e6ttarn\u00f6fn \u00ed sta\u00f0inn, \u00fe\u00f3tt sl\u00edkt yr\u00f0i leyft. Stundum er v\u00edsa\u00f0 til \u00feess a\u00f0 <a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/2016160619280\/ottast-ad-islenskur-nafnasidir-deyi-ut\">f\u00f6\u00f0urn\u00f6fn hafi horfi\u00f0<\/a> \u00ed Danm\u00f6rku og Noregi \u00e1 stuttum t\u00edma, en sl\u00edkar v\u00edsanir til \u00f3l\u00edkra samf\u00e9laga \u00e1 \u00f6\u00f0rum t\u00edmum hafa takmarka\u00f0 gildi. N\u00fat\u00edmavi\u00f0horf \u00ed jafnr\u00e9ttism\u00e1lum eru t.d. l\u00edkleg til a\u00f0 valda \u00fev\u00ed a\u00f0 konur s\u00e9u \u00f3f\u00fasari en \u00e1\u00f0ur a\u00f0 taka upp \u00e6ttarnafn eiginmannsins. H\u00e9r m\u00e1 enn fremur benda \u00e1 a\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 \u00cdslendingar hafa einir haldi\u00f0 \u00feeim si\u00f0 a\u00f0 kenna sig til f\u00f6\u00f0ur (e\u00f0a m\u00f3\u00f0ur) er \u00fea\u00f0 \u00e1kve\u00f0i\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0areinkenni sem vel m\u00e1 hugsa s\u00e9r a\u00f0 margir vilji halda \u00ed \u00feess vegna, en um sl\u00edkt var ekki a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00ed Danm\u00f6rku og Noregi. Einnig m\u00e1 v\u00edsa til \u00feess a\u00f0 \u00ed F\u00e6reyjum mun hafa <a href=\"https:\/\/www.visindavefur.is\/svar.php?id=4585\">f\u00e6rst \u00ed v\u00f6xt<\/a> \u00e1 seinustu \u00e1rum a\u00f0 kenna sig til f\u00f6\u00f0ur.<\/p>\n<p>\u00c9g tek heils hugar undir \u00fea\u00f0 a\u00f0 kenning til f\u00f6\u00f0ur e\u00f0a m\u00f3\u00f0ur er menningarhef\u00f0 sem \u00e6skilegt er a\u00f0 vi\u00f0halda. En hef\u00f0ir eru l\u00edtils vir\u00f0i nema samf\u00e9lagi\u00f0 \u00fear sem \u00fe\u00e6r gilda hafi \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 halda \u00ed \u00fe\u00e6r. Hef\u00f0 sem \u00fearf a\u00f0 vi\u00f0halda me\u00f0 l\u00f6gum er ekki hef\u00f0 \u2013 heldur nau\u00f0ung. H\u00e9r vegur \u00fe\u00f3 \u00feyngst a\u00f0 n\u00fagildandi l\u00f6g standast ekki me\u00f0 nokkru m\u00f3ti jafnr\u00e6\u00f0iskr\u00f6fur samt\u00edmans \u2013 og eru raunar a\u00f0 \u00fev\u00ed er best ver\u00f0ur s\u00e9\u00f0 brot \u00e1 65. grein <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/1944033.html\">stj\u00f3rnarskr\u00e1rinnar<\/a> \u00fear sem \u00fear sem segir m.a. a\u00f0 allir \u201eskulu vera jafnir fyrir l\u00f6gum og nj\u00f3ta mannr\u00e9tt\u00adinda \u00e1n tillits til [\u2026] \u00e6tternis [\u2026]\u201c. \u00dea\u00f0 stenst \u00fev\u00ed ekki a\u00f0 sumum s\u00e9 leyft \u00fea\u00f0 sem \u00f6\u00f0rum leyfist ekki. \u00c1 \u00feetta hefur oft veri\u00f0 bent, t.d. \u00ed <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/altext\/120\/s\/0073.html\">athugasemdum<\/a> nefndar sem samdi frumvarp a\u00f0 gildandi mannanafnal\u00f6gum, og \u00ed <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/altext\/erindi\/120\/120-229.pdf\">athugasemdum<\/a> \u00cdslenskrar m\u00e1lnefndar vi\u00f0 \u00fea\u00f0 frumvarp.<\/p>\n<p>Ni\u00f0ursta\u00f0a m\u00edn er \u00feessi: Engin \u00e1st\u00e6\u00f0a er til a\u00f0 \u00e6tla a\u00f0 \u00edslenskri tungu stafi h\u00e6tta af \u00feeim breytingum sem felast \u00ed fyrirliggjandi frumvarpi. Erlend mannan\u00f6fn eiga n\u00fa \u00feegar grei\u00f0a lei\u00f0 inn \u00ed m\u00e1li\u00f0 og ekki hefur veri\u00f0 s\u00fdnt fram \u00e1 a\u00f0 \u00feau hafi valdi\u00f0 m\u00e1lspj\u00f6llum. Kenning til f\u00f6\u00f0ur og m\u00f3\u00f0ur er vissulega hluti \u00edslensks menningararfs en \u00e6ttarn\u00f6fn eru samt ekkert s\u00ed\u00f0ur hluti \u00edslenskrar tungu en f\u00f6\u00f0ur- og m\u00f3\u00f0urn\u00f6fn. Ekkert liggur fyrir um \u00fea\u00f0 a\u00f0 kenning til f\u00f6\u00f0ur og m\u00f3\u00f0ur hverfi \u00e1 stuttum t\u00edma \u00fe\u00f3tt \u00e6ttarn\u00f6fn ver\u00f0i almennt leyf\u00f0. Fyrirliggjandi frumvarp er veruleg r\u00e9ttarb\u00f3t og afnemur \u00fe\u00e1 mismunun sem felst \u00ed gildandi l\u00f6gum og er \u00ed raun mannr\u00e9ttindabrot. St\u00edfar reglur sem v\u00edsa \u00ed \u00edslenska m\u00e1lstefnu en samr\u00e6mast ekki jafnr\u00e9ttishugmyndum og str\u00ed\u00f0a gegn r\u00e9ttl\u00e6tiskennd f\u00f3lks geta or\u00f0i\u00f0 til \u00feess a\u00f0 ala \u00e1 neikv\u00e6\u00f0um vi\u00f0horfum f\u00f3lks til \u00edslenskunnar. \u00dev\u00ed \u00fearf h\u00fan s\u00edst af \u00f6llu \u00e1 a\u00f0 halda um \u00feessar mundir.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g er samm\u00e1la \u00feeirri meginstefnu frumvarpsins a\u00f0 leggja sem minnstar h\u00f6mlur \u00e1 form og e\u00f0li mannanafna. \u00c9g tel a\u00f0 auki\u00f0 frelsi \u00ed \u00feeim efnum s\u00e9 nau\u00f0synlegt vegna jafnr\u00e9ttis- og mannr\u00e9ttindasj\u00f3narmi\u00f0a, og ska\u00f0i ekki \u00edslenska tungu. N\u00e1nari r\u00f6k fyrir \u00feeirri afst\u00f6\u00f0u eru f\u00e6r\u00f0 h\u00e9r \u00e1 eftir. Samkv\u00e6mt frumvarpinu falla brott \u00e1kv\u00e6\u00f0i sem eru \u00ed n\u00fagildandi l\u00f6gum [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-2613","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2613","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2613"}],"version-history":[{"count":7,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2613\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2623,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2613\/revisions\/2623"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2613"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2613"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2613"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}