{"id":2810,"date":"2020-08-11T08:00:38","date_gmt":"2020-08-11T08:00:38","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=2810"},"modified":"2020-08-11T09:52:54","modified_gmt":"2020-08-11T09:52:54","slug":"thetta-er-rangt-af-thvi-ad-thad-hefur-verid-kennt-ad-thad-se-rangt","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/08\/11\/thetta-er-rangt-af-thvi-ad-thad-hefur-verid-kennt-ad-thad-se-rangt\/","title":{"rendered":"\u00deetta er rangt af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 hefur veri\u00f0 kennt a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 rangt"},"content":{"rendered":"<p>H\u00e9r \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u minni og \u00e1 Facebook hef \u00e9g i\u00f0ulega haldi\u00f0 fram sko\u00f0unum sem ganga \u00ed berh\u00f6gg vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem tali\u00f0 hefur veri\u00f0 \u201er\u00e9tt m\u00e1l\u201c. \u00deannig hef \u00e9g sagt a\u00f0\u00a0<i>brau\u00f0rist<\/i>\u00a0megi alveg heita\u00a0<a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/09\/03\/ristavel\/\"><i>ristav\u00e9l<\/i><\/a>, \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00ed g\u00f3\u00f0u lagi a\u00f0\u00a0<i><a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/08\/16\/erlendis\/\">fara erlendis<\/a>,<\/i>\u00a0<a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/09\/09\/spaid-i-thessu\/\"><em>sp\u00e1 \u00ed einhverju<\/em><\/a> og augl\u00fdsa <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/09\/07\/getur-kjot-verid-nyslatrad\/\"><i>n\u00fdsl\u00e1tra\u00f0 lambakj\u00f6t<\/i><\/a>, segja\u00a0<a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/10\/01\/1820\/\"><i>m\u00e9r langar<\/i><\/a>, og \u00e9g veit ekki hva\u00f0 og hva\u00f0. \u00c9g tel mig hafa f\u00e6rt g\u00f3\u00f0 r\u00f6k fyrir \u00feessum sko\u00f0unum og stend vi\u00f0 \u00fe\u00e6r, en au\u00f0vita\u00f0 getur f\u00f3lk haft a\u00f0ra s\u00fdn \u00e1 m\u00e1lin \u2013 fundist r\u00f6k m\u00edn l\u00e9ttv\u00e6g e\u00f0a villandi, e\u00f0a tali\u00f0 mig draga rangar \u00e1lyktanir af \u00feeim. \u00c9g geri ekki athugasemd vi\u00f0 \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>\u00cd umfj\u00f6llun um \u00feessi atri\u00f0i hef \u00e9g hins vegar liti\u00f0 fram hj\u00e1 einni r\u00f6ksemd sem m\u00e6tti beita gegn m\u00e9r og \u00feeim tilbrig\u00f0um sem \u00e9g vil sam\u00feykkja. \u00c9g hef svo sem hvergi s\u00e9\u00f0 \u00fe\u00e1 r\u00f6ksemd or\u00f0a\u00f0a beint, en held a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 mj\u00f6g oft undirliggjandi hj\u00e1 \u00feeim sem amast vi\u00f0 m\u00e1lbreytingum. Hana m\u00e6tti or\u00f0a svona:<\/p>\n<p><b>\u00deetta er rangt af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 hefur veri\u00f0 kennt svo lengi a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 rangt.<\/b><\/p>\n<p>\u00cd flj\u00f3tu brag\u00f0i g\u00e6ti \u00feetta kannski virst l\u00e9ttv\u00e6g r\u00f6ksemd \u2013 e\u00f0a r\u00f6kleysa, eftir \u00fev\u00ed hvernig vi\u00f0 l\u00edtum \u00e1 m\u00e1li\u00f0. Vitanlega r\u00e9ttl\u00e6tir \u00fea\u00f0 ekki vitleysu a\u00f0 h\u00fan hafi lengi veri\u00f0 h\u00f6f\u00f0 fyrir satt. Ef \u00fea\u00f0 sannast a\u00f0 ma\u00f0ur sem hefur veri\u00f0 d\u00e6mdur fyrir gl\u00e6p og seti\u00f0 lengi \u00ed fangelsi er saklaus er hann ekki l\u00e1tinn sitja \u00e1fram inni \u2013 me\u00f0 \u00feeim r\u00f6kum a\u00f0 hann hafi seti\u00f0 svo lengi inni a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0ulaust s\u00e9 a\u00f0 sleppa honum \u00fe\u00f3tt sakleysi hans s\u00e9 sanna\u00f0.<\/p>\n<p>En \u00feetta er annars e\u00f0lis. \u00dea\u00f0 m\u00e1 vel halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 mikilv\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 festa r\u00edki \u00ed m\u00e1lsamf\u00e9laginu og ekki s\u00e9 hringla\u00f0 me\u00f0 vi\u00f0mi\u00f0. Ef b\u00fai\u00f0 er a\u00f0 kenna \u00e1ratugum saman a\u00f0 eitthva\u00f0 s\u00e9 rangt \u2013 \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 e\u00f0lilegt m\u00e1lfar fj\u00f6lda m\u00e1lnotenda \u2013 geti skapast \u00f3rei\u00f0a og lausung \u00ed m\u00e1linu ef \u00fea\u00f0 er allt \u00ed einu vi\u00f0urkennt sem r\u00e9tt m\u00e1l. \u00deetta valdi vandr\u00e6\u00f0um \u00ed kennslu og \u00fdti undir \u00fe\u00e1 hugmynd a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 alveg sama hvernig f\u00f3lk tali og skrifi.<\/p>\n<p>\u00deetta er sj\u00f3narmi\u00f0 mj\u00f6g margra og \u00e9g tek \u00fea\u00f0 alvarlega og ber vir\u00f0ingu fyrir \u00fev\u00ed. En \u00e9g held a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 rangt. \u00c9g held \u00fevert \u00e1 m\u00f3ti a\u00f0 einstrengingslegt bann vi\u00f0 tilbrig\u00f0um sem verulegur hluti \u2013 jafnvel meirihluti \u2013 m\u00e1lnotenda elst upp vi\u00f0 og notar \u00ed daglegu l\u00edfi s\u00e9 miklu frekar til \u00feess falli\u00f0 a\u00f0 skapa \u00f3vissu og \u00f3rei\u00f0u \u00ed m\u00e1lnotkun en vi\u00f0urkenning \u00feessara tilbrig\u00f0a.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er hins vegar anna\u00f0 sem \u00fearf a\u00f0 hafa \u00ed huga ef vi\u00f0mi\u00f0um er breytt og fari\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0urkenna eitthva\u00f0 sem \u00e1\u00f0ur hefur veri\u00f0 tali\u00f0 rangt. Vi\u00f0 erum nefnilega f\u00f6st \u00ed \u00fev\u00ed, m\u00f6rg hver (\u00e9g ekki undanskilinn), a\u00f0 d\u00e6ma f\u00f3lk eftir m\u00e1lfari \u2013 eftir \u00fev\u00ed hversu vel \u00fea\u00f0 fylgir \u00feeim vi\u00f0mi\u00f0um sem hafa veri\u00f0 notu\u00f0 um r\u00e9tt og rangt. \u00de\u00f3tt \u00feeim vi\u00f0mi\u00f0um v\u00e6ri breytt lei\u00f0ir \u00fea\u00f0 ekki sj\u00e1lfkrafa og umsvifalaust til breytingar \u00e1 vi\u00f0horfi okkar til tilbrig\u00f0anna \u2013 og f\u00f3lksins sem notar \u00feau.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 \u00feora a\u00f0 breyta stefnunni \u2013 vi\u00f0urkenna tilbrig\u00f0i sem eiga s\u00e9r langa s\u00f6gu og eru \u00fatbreidd \u00ed m\u00e1linu. \u00dea\u00f0 er engin uppgj\u00f6f. En vi\u00f0 \u00feurfum ekki s\u00ed\u00f0ur a\u00f0 h\u00e6tta a\u00f0 d\u00e6ma f\u00f3lk eftir m\u00e1lfari, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 tengja m\u00e1lfar vi\u00f0 andlegt e\u00f0a l\u00edkamlegt atgervi f\u00f3lks. Mismunun eftir m\u00e1lfari er engu betri en mismunun eftir kynfer\u00f0i, tr\u00fa, stj\u00f3rnm\u00e1lasko\u00f0unum, kynhneig\u00f0 o.s.frv.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00e9r \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u minni og \u00e1 Facebook hef \u00e9g i\u00f0ulega haldi\u00f0 fram sko\u00f0unum sem ganga \u00ed berh\u00f6gg vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem tali\u00f0 hefur veri\u00f0 \u201er\u00e9tt m\u00e1l\u201c. \u00deannig hef \u00e9g sagt a\u00f0\u00a0brau\u00f0rist\u00a0megi alveg heita\u00a0ristav\u00e9l, \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00ed g\u00f3\u00f0u lagi a\u00f0\u00a0fara erlendis,\u00a0sp\u00e1 \u00ed einhverju og augl\u00fdsa n\u00fdsl\u00e1tra\u00f0 lambakj\u00f6t, segja\u00a0m\u00e9r langar, og \u00e9g veit ekki hva\u00f0 og hva\u00f0. \u00c9g [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-2810","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2810","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2810"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2810\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2823,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2810\/revisions\/2823"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2810"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2810"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2810"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}