{"id":2887,"date":"2020-09-01T09:48:17","date_gmt":"2020-09-01T09:48:17","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=2887"},"modified":"2020-09-01T09:48:17","modified_gmt":"2020-09-01T09:48:17","slug":"af-rokrettu-mali","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/09\/01\/af-rokrettu-mali\/","title":{"rendered":"Af r\u00f6kr\u00e9ttu m\u00e1li"},"content":{"rendered":"<p>Algengasta r\u00f6ksemd sem beitt er gegn n\u00fdjungum og tilbrig\u00f0um \u00ed m\u00e1li er a\u00f0 \u00feau s\u00e9u <strong>ekki r\u00f6kr\u00e9tt<\/strong>. A\u00f0 margra \u00e1liti er \u00fea\u00f0 hin endanlegi d\u00f3mur yfir tilbrig\u00f0um og gefur \u00f3takmarka\u00f0 vei\u00f0ileyfi \u00e1 \u00feau. Me\u00f0al \u00feess sem er tali\u00f0 \u00f3r\u00f6kr\u00e9tt er<\/p>\n<ul>\n<li>a\u00f0 tala um a\u00f0<em> <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/08\/15\/opna-og-loka-hurd-eda-dyrum\/\">loka hur\u00f0inni<\/a><\/em> vegna \u00feess a\u00f0 hur\u00f0in er fleki sem lokast ekki \u2013 dyrnunum er loka\u00f0.<\/li>\n<li>a\u00f0 nota heiti\u00f0 <em><a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/09\/03\/ristavel\/\">ristav\u00e9l<\/a> <\/em>yfir <em>brau\u00f0rist<\/em> vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 er auglj\u00f3slega engin v\u00e9l \u00ed \u00feessu t\u00e6ki.<\/li>\n<li>a\u00f0 segja <em><a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/07\/05\/smit\/\">tv\u00f6 smit greindust \u00ed g\u00e6r<\/a><\/em> vegna \u00feess a\u00f0 <em>smit<\/em> er eint\u00f6luor\u00f0 og getur ekki sta\u00f0i\u00f0 \u00ed fleirt\u00f6lu.<\/li>\n<li>a\u00f0 tala um a\u00f0 <em><a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/08\/16\/erlendis\/\">fara erlendis<\/a><\/em> vegna \u00feess a\u00f0 <em>erlendis<\/em> merkir dv\u00f6l \u00e1 sta\u00f0, ekki hreyfingu til sta\u00f0ar.<\/li>\n<li>a\u00f0 segja <em><a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/08\/29\/verslunin-opnar\/\">verslunin opnar klukkan 9<\/a><\/em> vegna \u00feess a\u00f0 verslunin er ekki gerandi \u2013 einhver opnar hana.<\/li>\n<li>a\u00f0 segja <em><a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/09\/21\/ad-kynna-einhvern-fyrir-einhverju\/\">h\u00fan kynnti Svein fyrir \u00feessar n\u00fdjung<\/a><\/em> vegna \u00feess a\u00f0 Sveinn kynntist n\u00fdjunginni, ekki \u00f6fugt.<\/li>\n<li>a\u00f0 tala um <em><a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/09\/07\/getur-kjot-verid-nyslatrad\/\">n\u00fdsl\u00e1tra\u00f0 kj\u00f6t<\/a><\/em> vegna \u00feess a\u00f0 kj\u00f6tinu er ekki sl\u00e1tra\u00f0, heldur d\u00fdrinu sem \u00fea\u00f0 er af.<\/li>\n<li>a\u00f0 segja <em><a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/08\/30\/opnunartimi\/\">opnunart\u00edmi fr\u00e1 9-4<\/a><\/em> vegna \u00feess a\u00f0 <em>opnunart\u00edmi<\/em> merkir \u201at\u00edminn sem \u00fea\u00f0 tekur a\u00f0 opna\u2018.<\/li>\n<li>a\u00f0 tala um <em><a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/07\/10\/landamaeri-islands\/\">landam\u00e6ri \u00cdslands<\/a><\/em> vegna \u00feess a\u00f0 \u00cdsland er eyja sem liggur ekki a\u00f0 \u00f6\u00f0rum l\u00f6ndum.<\/li>\n<li>a\u00f0 segja <em><a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/groups\/348609846533094?post_id=360942645299814\">veltan er \u00ferisvar sinnum minni en \u00ed fyrra<\/a><\/em> vegna \u00feess a\u00f0 t\u00f6lur l\u00e6kka ekki vi\u00f0 margf\u00f6ldun.<\/li>\n<\/ul>\n<p>\u00c9g hef fjalla\u00f0 um flest \u00feessi atri\u00f0i \u00ed pistlum, og \u00fea\u00f0 v\u00e6ri au\u00f0velt a\u00f0 t\u00edna til margfalt fleiri af sama tagi. \u00c9g g\u00e6ti l\u00edka au\u00f0veldlega v\u00edsa\u00f0 \u00ed heimildir um a\u00f0 amast hafi veri\u00f0 vi\u00f0 \u00feessum atri\u00f0um \u00e1 \u00feeim forsendum a\u00f0 \u00feau s\u00e9u ekki r\u00f6kr\u00e9tt en \u00fea\u00f0 er \u00f3\u00fearfi \u2013 \u00fei\u00f0 \u00feekki\u00f0 \u00feetta \u00f6rugglega \u00f6ll. Sumt af \u00feessu byggist reyndar \u00e1 misskilningi \u00e1 merkingu or\u00f0a. \u00dea\u00f0 er t.d. lj\u00f3st a\u00f0 <em>erlendis<\/em> hefur alla t\u00ed\u00f0 geta\u00f0 merkt b\u00e6\u00f0i \u201a\u00ed \u00fatl\u00f6ndum\u2018 og \u201atil \u00fatlanda\u2018. S\u00f6mulei\u00f0is merkir <em>sl\u00e1tra<\/em> ekki bara \u201adrepa\u2018 heldur \u201al\u00f3ga d\u00fdri til matar og tilrei\u00f0a kj\u00f6t og innmat \u00ed \u00fev\u00ed skyni\u2018.<\/p>\n<p>En \u00feetta er ekki a\u00f0alatri\u00f0i m\u00e1lsins, heldur hitt a\u00f0 tungum\u00e1li\u00f0 er ekki, hefur aldrei veri\u00f0, og <strong>\u00e1 ekki a\u00f0 vera<\/strong> r\u00f6kr\u00e9tt. Tungum\u00e1li\u00f0 er samskiptakerfi sem hefur \u00fer\u00f3ast \u00ed hundru\u00f0 \u00fe\u00fasunda \u00e1ra og m\u00f3tast af alls konar a\u00f0st\u00e6\u00f0um \u00e1 tilviljanakenndan h\u00e1tt. \u00cd lj\u00f3si s\u00f6gunnar v\u00e6ri mj\u00f6g undarlegt ef \u00fea\u00f0 v\u00e6ri fullkomlega \u201er\u00f6kr\u00e9tt\u201c. Tungum\u00e1li\u00f0 \u00fearf hins vegar a\u00f0 vera noth\u00e6ft sem samskiptat\u00e6ki og til \u00feess \u00fearf a\u00f0 vera s\u00e6milegt samkomulag \u00ed m\u00e1lsamf\u00e9laginu um form \u00feess og beitingu. En forsenda \u00feess samkomulags er ekki a\u00f0 m\u00e1li\u00f0 s\u00e9 \u201er\u00f6kr\u00e9tt\u201c.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem \u00e9g hef hins vegar reynt a\u00f0 s\u00fdna fram \u00e1 \u00ed pistlunum sem v\u00edsa\u00f0 er \u00ed h\u00e9r a\u00f0 framan er a\u00f0 \u00feessi \u201e\u00f3r\u00f6kr\u00e9ttu\u201c tilbrig\u00f0i s\u00e9u miklu merkilegri og \u00e1hugaver\u00f0ari en svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 v\u00edsa \u00feeim \u00fat \u00ed hafsauga sem tilviljanakenndum r\u00f6kleysum, \u201em\u00e1lvillum\u201c. \u00devert \u00e1 m\u00f3ti \u2013 \u00ed flestum tilvikum er h\u00e6gt a\u00f0 s\u00fdna fram \u00e1, e\u00f0a a.m.k. lei\u00f0a r\u00f6k a\u00f0 \u00fev\u00ed, a\u00f0 tilbrig\u00f0in stafi af \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00e1lnotendur eru \u2013 \u00f3me\u00f0vita\u00f0 \u2013 a\u00f0 leita a\u00f0 kerfi. M\u00e1ltilfinning \u00feeirra finnur eitthva\u00f0 athugavert vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem hefur veri\u00f0 tali\u00f0 \u201er\u00e9tt\u201c, finnst \u00fea\u00f0 ekki falla almennilega a\u00f0 \u00fev\u00ed m\u00e1lkerfi sem \u00feeir hafa komi\u00f0 s\u00e9r upp, og leitast vi\u00f0 a\u00f0 b\u00e6ta \u00far \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p>S\u00fa hugmynd e\u00f0a krafa a\u00f0 tungum\u00e1li\u00f0 eigi alltaf a\u00f0 vera <strong>r\u00f6kr\u00e9tt<\/strong> ber vott um dj\u00fapst\u00e6\u00f0an en almennan misskilning \u00e1 e\u00f0li tungum\u00e1lsins. H\u00fan er vond vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan er r\u00f6ng. En h\u00fan er l\u00edka vond vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan vinnur gegn tungum\u00e1linu. H\u00fan bannar m\u00e1lnotendum a\u00f0 leita betra samr\u00e6mis \u00ed m\u00e1lkerfi s\u00ednu og eykur \u00feannig \u00e1 \u00f3st\u00f6\u00f0ugleika sem \u00e1 endanum getur \u00fdtt undir m\u00e1lbreytingar \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 hamla \u00feeim. Og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst \u2013 h\u00fan hamlar hvers kyns n\u00fdsk\u00f6pun, frj\u00f3rri hugsun, og leik me\u00f0 tungum\u00e1li\u00f0. Tungum\u00e1l sem v\u00e6ri fullkomlega r\u00f6kr\u00e9tt v\u00e6ri \u00f3b\u00e6rilega lei\u00f0inlegt. \u00de\u00e1 g\u00e6tum vi\u00f0 eins tala\u00f0 forritunarm\u00e1l.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Algengasta r\u00f6ksemd sem beitt er gegn n\u00fdjungum og tilbrig\u00f0um \u00ed m\u00e1li er a\u00f0 \u00feau s\u00e9u ekki r\u00f6kr\u00e9tt. A\u00f0 margra \u00e1liti er \u00fea\u00f0 hin endanlegi d\u00f3mur yfir tilbrig\u00f0um og gefur \u00f3takmarka\u00f0 vei\u00f0ileyfi \u00e1 \u00feau. Me\u00f0al \u00feess sem er tali\u00f0 \u00f3r\u00f6kr\u00e9tt er a\u00f0 tala um a\u00f0 loka hur\u00f0inni vegna \u00feess a\u00f0 hur\u00f0in er fleki sem lokast ekki [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-2887","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2887","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2887"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2887\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2888,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2887\/revisions\/2888"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2887"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2887"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2887"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}