{"id":2955,"date":"2020-09-17T20:38:55","date_gmt":"2020-09-17T20:38:55","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=2955"},"modified":"2021-02-13T10:47:33","modified_gmt":"2021-02-13T10:47:33","slug":"hnjaa","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/09\/17\/hnjaa\/","title":{"rendered":"hnj\u00e1(a)"},"content":{"rendered":"<p>N\u00fdlega rakst \u00e9g \u00e1 setninguna \u201eh\u00fan hnj\u00e1r boltann \u00ed \u00feversl\u00e1na\u201c \u00ed knattspyrnul\u00fdsingu \u00e1 vefmi\u00f0li. \u00c9g hnaut um or\u00f0i\u00f0 <em>hnj\u00e1r<\/em> sem \u00e9g man ekki eftir a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 \u00e1\u00f0ur \u2013 en er auglj\u00f3slega s\u00f6gn mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 setningafr\u00e6\u00f0ilega st\u00f6\u00f0u, og vel skiljanleg af samhenginu. Nafnh\u00e1ttur sagnarinnar er v\u00e6ntanlega <em>hnj\u00e1<\/em> \u2013 sagnir sem hafa <em>\u00e1<\/em> \u00ed stofni hafa yfirleitt enga s\u00e9rstaka nafnh\u00e1ttarendingu, sbr. <em>sp\u00e1<\/em>, <em>f\u00e1<\/em>, <em>n\u00e1<\/em>, <em>sj\u00e1<\/em> o.fl. En ef nafnh\u00e1tturinn er <em>hnj\u00e1<\/em> m\u00e6tti reyndar b\u00faast vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00fat\u00ed\u00f0in v\u00e6ri einhvern veginn \u00f6\u00f0ruv\u00edsi en <em>hnj\u00e1r<\/em> \u2013 t.d. *<em>hnj\u00e1ir<\/em>, sbr. <em>sp\u00e1ir<\/em>, e\u00f0a *<em>hnj\u00e6r<\/em>, sbr. <em>f\u00e6r <\/em>og <em>n\u00e6r<\/em>, e\u00f0a *<em>hn\u00e9r<\/em>, sbr. <em>s\u00e9r<\/em>. \u00c9g finn samt engin d\u00e6mi um \u00fe\u00e6r or\u00f0myndir \u2013 og \u00feetta tiltekna d\u00e6mi, og anna\u00f0 um myndina <em>hnj\u00e1\u00f0i<\/em>, eru raunar einu d\u00e6min sem \u00e9g finn um myndir sem vir\u00f0ast leiddar af nafnh\u00e6ttinum <em>hnj\u00e1<\/em>.<\/p>\n<p>Hins vegar fann \u00e9g f\u00e1ein d\u00e6mi \u00e1 netinu um myndirnar <em>hnj\u00e1ar<\/em> og <em>hnj\u00e1a\u00f0i<\/em> sem \u00e6ttu a\u00f0 vera af nafnh\u00e6ttinum <em>hnj\u00e1a<\/em>. B\u00e1\u00f0ir nafnh\u00e6ttir, <em>hnj\u00e1<\/em> og <em>hnj\u00e1a<\/em>, g\u00e6tu vel sta\u00f0ist. Endingarleysi nafnh\u00e1tta me\u00f0 <em>\u00e1<\/em> \u00ed stofni m\u00e1 sk\u00fdra me\u00f0 hlj\u00f3\u00f0fr\u00e6\u00f0ilegum a\u00f0st\u00e6\u00f0um \u00ed m\u00e1linu fyrir m\u00f6rgum \u00f6ldum. En \u00fe\u00e6r hlj\u00f3\u00f0fr\u00e6\u00f0ilegu a\u00f0st\u00e6\u00f0ur eru ekki lengur fyrir hendi og \u00feess vegna er ekkert \u00f3e\u00f0lilegt a\u00f0 n\u00fdjar sagnir sem koma inn \u00ed m\u00e1li\u00f0 og hafa <em>\u00e1<\/em> \u00ed stofni b\u00e6ti vi\u00f0 sig nafnh\u00e1ttarendingunni <em>-a<\/em> eins og allar a\u00f0rar n\u00fdjar sagnir. Nafnh\u00e1tturinn <em>hnj\u00e1<\/em> v\u00e6ri \u00fev\u00ed mynda\u00f0ur me\u00f0 hli\u00f0sj\u00f3n af s\u00f6gnum sem fyrir eru \u00ed m\u00e1linu, en nafnh\u00e1tturinn <em>hnj\u00e1a<\/em> \u00fat fr\u00e1 \u00feeim reglum sem gilda \u00ed n\u00fat\u00edmam\u00e1li. Hvort tveggja er \u00ed g\u00f3\u00f0u lagi.<\/p>\n<p>Myndin <em>hnj\u00e1-<\/em> kemur a\u00f0eins fyrir \u00ed \u00fe\u00e1gufalli og eignarfalli fleirt\u00f6lu af or\u00f0inu <em>hn\u00e9<\/em> \u2013 <em>hnj\u00e1m<\/em> og <em>hnj\u00e1a<\/em>. \u00cd \u00f6llum f\u00f6llum eint\u00f6lu er notu\u00f0 myndin <em>hn\u00e9<\/em> og vegna \u00feess a\u00f0 a\u00f0eins anna\u00f0 hn\u00e9\u00f0 er nota\u00f0 til a\u00f0 <em>hnj\u00e1<\/em>(<em>a<\/em>) hef\u00f0i e.t.v. m\u00e1tt b\u00faast vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00fa stofnmynd v\u00e6ri notu\u00f0 \u00ed or\u00f0mynduninni. \u00dea\u00f0 hefur reyndar veri\u00f0 gert \u2013 \u00e1 netinu m\u00e1 finna nafnh\u00e1ttinn <em>hn\u00e9a<\/em> og myndir eins og <em>hn\u00e9ar <\/em>og <em>hn\u00e9a\u00f0i<\/em>. Einnig m\u00e1 finna d\u00e6mi um myndirnar <em>hn\u00e9um<\/em> og <em>hn\u00e9a<\/em> \u00ed \u00fe\u00e1gufalli og eignarfalli fleirt\u00f6lu af <em>hn\u00e9<\/em>. \u00deessar myndir falla mun s\u00ed\u00f0ur a\u00f0 m\u00e1lkerfinu \u2013 r\u00f6\u00f0in <em>\u00e9a<\/em> er hvergi til nema \u00ed \u00fe\u00e1gufalli og eignarfalli or\u00f0sins <em>hl\u00e9<\/em> (<em>hl\u00e9um<\/em> og <em>hl\u00e9a<\/em>). \u00deess vegna eru myndirnar <em>hnj\u00e1<\/em> og <em>hnj\u00e1a<\/em> heppilegri en <em>hn\u00e9a<\/em>.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt s\u00f6gnin <em>hnj\u00e1<\/em>(<em>a<\/em>) hafi komi\u00f0 m\u00e9r sp\u00e1nskt fyrir sj\u00f3nir s\u00e9 \u00e9g \u00ed flj\u00f3tu brag\u00f0i ekki anna\u00f0 en h\u00fan s\u00e9 gagnleg vi\u00f0b\u00f3t vi\u00f0 or\u00f0afor\u00f0a m\u00e1lsins og geti alveg samr\u00e6mst reglum \u00feess. Hvernig \u00e6tti annars a\u00f0 or\u00f0a \u00fea\u00f0 \u00feegar leikma\u00f0ur notar hn\u00e9\u00f0 til a\u00f0 breyta stefnu boltans \u2013 e\u00f0a rekur hn\u00e9\u00f0 \u00ed annan leikmann? Er ekki bara f\u00ednt a\u00f0 hafa s\u00e9rstaka s\u00f6gn til a\u00f0 tj\u00e1 \u00fe\u00e1 merkingu frekar en nota einhverja langloku?<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>N\u00fdlega rakst \u00e9g \u00e1 setninguna \u201eh\u00fan hnj\u00e1r boltann \u00ed \u00feversl\u00e1na\u201c \u00ed knattspyrnul\u00fdsingu \u00e1 vefmi\u00f0li. \u00c9g hnaut um or\u00f0i\u00f0 hnj\u00e1r sem \u00e9g man ekki eftir a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 \u00e1\u00f0ur \u2013 en er auglj\u00f3slega s\u00f6gn mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 setningafr\u00e6\u00f0ilega st\u00f6\u00f0u, og vel skiljanleg af samhenginu. Nafnh\u00e1ttur sagnarinnar er v\u00e6ntanlega hnj\u00e1 \u2013 sagnir sem hafa \u00e1 \u00ed stofni hafa [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-2955","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2955","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2955"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2955\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":3601,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2955\/revisions\/3601"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2955"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2955"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2955"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}