{"id":3035,"date":"2020-10-10T08:00:26","date_gmt":"2020-10-10T08:00:26","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=3035"},"modified":"2020-10-08T21:57:02","modified_gmt":"2020-10-08T21:57:02","slug":"skolarnir-skolardnir-skoladnir-skolanir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/10\/10\/skolarnir-skolardnir-skoladnir-skolanir\/","title":{"rendered":"Sk\u00f3larnir, sk\u00f3lardnir, sk\u00f3ladnir, sk\u00f3lanir"},"content":{"rendered":"<p>Samhlj\u00f3\u00f0asambandi\u00f0 <em>rn<\/em> er bori\u00f0 fram \u00e1 \u00fdmsan h\u00e1tt \u00ed \u00edslensku. Upprunalegur frambur\u00f0ur hefur v\u00e6ntanlega veri\u00f0 s\u00e1 sem rith\u00e1tturinn bendir til, \u00fe.e. <em>r<\/em>+<em>n<\/em>. S\u00e1 frambur\u00f0ur hefur \u00e1 s\u00ed\u00f0ari \u00e1rum einkum veri\u00f0 bundinn vi\u00f0 Austur-Skaftafellss\u00fdslu en vir\u00f0ist n\u00fa vera a\u00f0 hverfa. \u00cd venjulegum frambur\u00f0i kemur lokhlj\u00f3\u00f0, <em>d<\/em>, \u00e1 milli <em>r<\/em> og <em>n<\/em>, \u00feannig a\u00f0 or\u00f0 eins og <em>barn<\/em> og <em>stjarna<\/em> eru borin fram <em>bardn<\/em> og <em>stjardna<\/em>. Stundum fellur <em>r<\/em> alveg brott, \u00feannig a\u00f0 frambur\u00f0urinn ver\u00f0ur <em>badn<\/em> og <em>stjadna<\/em>. Sta\u00f0a \u00feessara tilbrig\u00f0a er ekki alveg s\u00fa sama \u2013 <em>rdn<\/em>-frambur\u00f0urinn gengur alltaf, en sumum \u00feykir <em>dn<\/em>-frambur\u00f0urinn \u00f3formlegri og hann er s\u00ed\u00f0ur nota\u00f0ur \u00ed formlegu m\u00e1lsni\u00f0i. Hann er l\u00edka t\u00e6plega nota\u00f0ur \u00ed sumum or\u00f0um \u2013 \u00fe\u00f3tt \u00e9g beri <em>b\u00f6rnin <\/em>venjulega fram <em>b\u00f6dnin<\/em> myndi \u00e9g ekki bera <em>v\u00f6rnin <\/em>fram <em>v\u00f6dnin<\/em>.<\/p>\n<p>Me\u00f0 \u00feessum fyrirvara um m\u00e1lsni\u00f0 og einst\u00f6k or\u00f0 m\u00e1 segja a\u00f0 \u00feessi \u00ferj\u00fa tilbrig\u00f0i \u2013 <em>rn<\/em>, <em>rdn <\/em>og <em>dn<\/em> \u2013 nj\u00f3ti \u00f6ll vi\u00f0urkenningar sem g\u00f3\u00f0ur og gildur \u00edslenskur frambur\u00f0ur. En svo er eitt tilbrig\u00f0i enn, \u00fear sem <em>r<\/em>-i\u00f0 fellur alveg brott og <em>n<\/em> stendur eitt eftir. \u00deetta er a\u00f0 v\u00edsu miklu takmarka\u00f0ra en hin afbrig\u00f0in \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 kemur a\u00f0eins fyrir \u00e1 m\u00f3tum beygingarendinganna <em>-ar<\/em>, <em>-ir <\/em>og <em>-ur<\/em> og \u00e1kve\u00f0ins greinis, \u00fe.e. \u00ed or\u00f0um eins og <em>sk\u00f3lanir<\/em> \u00ed sta\u00f0 <em>sk\u00f3larnir<\/em>, <em>gestinir<\/em> \u00ed sta\u00f0 <em>gestirnir<\/em> og <em>b\u00e6kunar<\/em> \u00ed sta\u00f0 <em>b\u00e6kurnar<\/em>. Ekki er miki\u00f0 vita\u00f0 um \u00feennan frambur\u00f0 en samkv\u00e6mt ranns\u00f3knum Bj\u00f6rns Gu\u00f0finnssonar upp \u00far 1940 bar nokku\u00f0 \u00e1 honum um sunnan- og vestanvert landi\u00f0. Kristj\u00e1n \u00c1rnason telur \u00ed <em>\u00cdslenskri tungu I <\/em>a\u00f0 hann s\u00e9 \u00ed s\u00f3kn en \u00fea\u00f0 hefur ekki veri\u00f0 rannsaka\u00f0. En \u00f6fugt vi\u00f0 hin tilbrig\u00f0in n\u00fdtur \u00feessi frambur\u00f0ur ekki vi\u00f0urkenningar.<\/p>\n<p>\u00cd sumar var\u00f0 g\u00edfurlegt <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/groups\/1395992847329077\/permalink\/2590605661201117\/\">fja\u00f0rafok<\/a> \u00ed <em>M\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum<\/em> h\u00e9r \u00e1 Facebook \u00feegar menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra sag\u00f0i <em>sk\u00f3lanir <\/em>\u00ed sj\u00f3nvarpsvi\u00f0tali og nota\u00f0 \u00fear v\u00e6ntanlega \u00feann frambur\u00f0 sem h\u00fan \u00f3lst upp vi\u00f0, eins og vi\u00f0 gerum yfirleitt. En f\u00f3lk br\u00e1st \u00f3kv\u00e6\u00f0a vi\u00f0 og sag\u00f0i a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri \u201eekki bo\u00f0legt af menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra landsins\u201c, \u00fea\u00f0 v\u00e6ri \u201emj\u00f6g sorglegt a\u00f0 menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra skuli ekki tala betri \u00edslensku\u201c og v\u00e6ri jafnvel \u201eekki talandi \u00e1 eigin tungu\u201c, tala\u00f0i um \u201elatm\u00e6lgi\u201c og \u201elinm\u00e6lgi\u201c r\u00e1\u00f0herrans, \u201eamb\u00f6gur\u201c og \u201em\u00e1lhelti\u201c og \u00fdja\u00f0i jafnvel a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e1\u00f0herrann v\u00e6ri me\u00f0 tunguhaft. Sl\u00edkt or\u00f0f\u00e6ri um tiltekinn einstakling er au\u00f0vita\u00f0 algerlega \u00f3t\u00e6kt og \u00feeim til skammar sem vi\u00f0hafa \u00fea\u00f0. R\u00e1\u00f0herra er vitaskuld opinber pers\u00f3na sem er sj\u00e1lfsagt a\u00f0 gagnr\u00fdna m\u00e1lefnalega, en \u00feetta \u00e1tti ekkert skylt vi\u00f0 \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt \u00feessi frambur\u00f0ur s\u00e9 ekki algengur \u00e1 hann s\u00e9r langa hef\u00f0, e.t.v. allt fr\u00e1 18. \u00f6ld, og \u00e9g s\u00e9 ekki hvers vegna hann \u00e6tti a\u00f0 vera eitthva\u00f0 verri e\u00f0a \u00f3\u00e6skilegri en \u00f6nnur frambur\u00f0artilbrig\u00f0i sambandsins <em>rn<\/em> \u2013 e\u00f0a verri en \u00f6nnur sv\u00e6\u00f0isbundin frambur\u00f0artilbrig\u00f0i. Sta\u00f0bundnar frambur\u00f0arm\u00e1ll\u00fdskur e\u00f0a tilbrig\u00f0i hafa yfirleitt veri\u00f0 umborin e\u00f0a \u00feeim jafnvel hampa\u00f0 og engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 \u00feessi frambur\u00f0ur f\u00e1i a\u00f0ra me\u00f0fer\u00f0. \u00dea\u00f0 eru engin r\u00f6k \u00ed m\u00e1linu a\u00f0 \u00fea\u00f0 eigi a\u00f0 bera fram <em>r <\/em>\u00ed <em>sk\u00f3larnir <\/em>af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fear s\u00e9 skrifa\u00f0 <em>r<\/em> \u2013 me\u00f0 s\u00f6mu r\u00f6kum yr\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 hafna hinum venjulega frambur\u00f0i, <em>sk\u00f3lardnir<\/em>, sem hefur <em>d<\/em> \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 eigi ekki a\u00f0 koma fram \u00ed stafsetningunni. Stafsetningu er hvorki h\u00e6gt a\u00f0 nota til a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ta tiltekinn frambur\u00f0 n\u00e9 hafna.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Samhlj\u00f3\u00f0asambandi\u00f0 rn er bori\u00f0 fram \u00e1 \u00fdmsan h\u00e1tt \u00ed \u00edslensku. Upprunalegur frambur\u00f0ur hefur v\u00e6ntanlega veri\u00f0 s\u00e1 sem rith\u00e1tturinn bendir til, \u00fe.e. r+n. S\u00e1 frambur\u00f0ur hefur \u00e1 s\u00ed\u00f0ari \u00e1rum einkum veri\u00f0 bundinn vi\u00f0 Austur-Skaftafellss\u00fdslu en vir\u00f0ist n\u00fa vera a\u00f0 hverfa. \u00cd venjulegum frambur\u00f0i kemur lokhlj\u00f3\u00f0, d, \u00e1 milli r og n, \u00feannig a\u00f0 or\u00f0 eins og [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-3035","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3035","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3035"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3035\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":3052,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3035\/revisions\/3052"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3035"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3035"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3035"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}