{"id":3365,"date":"2020-12-08T11:08:14","date_gmt":"2020-12-08T11:08:14","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=3365"},"modified":"2021-05-26T19:29:09","modified_gmt":"2021-05-26T19:29:09","slug":"hond-hendi-hend","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/12\/08\/hond-hendi-hend\/","title":{"rendered":"H\u00f6nd, hendi, hend?"},"content":{"rendered":"<p>Einu sinni fyrir \u00f3ral\u00f6ngu var \u00e9g a\u00f0 stj\u00f3rna fundi \u00ed Menntask\u00f3lanum \u00e1 Akureyri og ba\u00f0 \u00fe\u00e1 sem styddu einhverja till\u00f6gu a\u00f0 <em>r\u00e9tta upp hend<\/em>. \u00cd \u00fev\u00ed gekk sk\u00f3lameistari \u00ed salinn og sag\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 segja <em>r\u00e9tta upp h\u00f6nd<\/em>. Au\u00f0vita\u00f0 lei\u00f0r\u00e9tti \u00e9g mig samstundis enda var \u00e9g mikill m\u00e1lv\u00f6ndunarma\u00f0ur \u00ed \u00fe\u00e1 daga og vildi tala \u201er\u00e9tt\u201c, og \u00feessi \u201emist\u00f6k\u201c hafa seti\u00f0 \u00ed m\u00e9r s\u00ed\u00f0an. \u00cd <em>M\u00e1lfarsbankanum<\/em> <a href=\"http:\/\/malfar.arnastofnun.is\/grein\/66026\">segir<\/a>: \u201e\u00dea\u00f0 er \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 upprunalega beygingu a\u00f0 segja: <em>h\u00f6ndin \u00e1 honum st\u00f3\u00f0 fram \u00far erminni<\/em>, <em>hann t\u00f3k \u00ed h\u00f6ndina \u00e1 m\u00e9r<\/em>, <em>h\u00fan r\u00e9tti m\u00e9r h\u00f6ndina<\/em>, <em>h\u00fan h\u00e9lt \u00e1 t\u00f6skunni \u00ed hendinni<\/em>. S\u00ed\u00f0ur: \u201ehendin \u00e1 honum st\u00f3\u00f0 fram \u00far erminni\u201c, \u201ehann t\u00f3k \u00ed hendina \u00e1 m\u00e9r\u201c, \u201eh\u00fan r\u00e9tti m\u00e9r hendina\u201c, \u201eh\u00fan h\u00e9lt \u00e1 t\u00f6skunni \u00ed h\u00f6ndinni\u201c.\u201c<\/p>\n<p>En or\u00f0i\u00f0 <em>h\u00f6nd<\/em> er vi\u00f0sj\u00e1lsgripur. \u00dea\u00f0 v\u00edkur fr\u00e1 \u00fev\u00ed annars \u00f3fr\u00e1v\u00edkjanlega mynstri kvenkynsor\u00f0a a\u00f0 vera eins \u00ed \u00feolfalli og \u00fe\u00e1gufalli eint\u00f6lu, \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0urkennd beyging er <em>h\u00f6nd<\/em> \u2013 <em>h\u00f6nd<\/em> \u2013 <strong><em>hendi<\/em><\/strong> \u2013 <em>handar<\/em>. \u00dea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 ekki fur\u00f0a \u00fe\u00f3tt svo afbrig\u00f0ileg beyging raskist eitthva\u00f0, enda hefur \u00fea\u00f0 gerst \u00e1 \u00fdmsan h\u00e1tt. Reyndar eru til <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/11\/09\/beygingarmynstur-kvenkynsorda\/\">nokkur \u00f6nnur d\u00e6mi<\/a> um a\u00f0 sterk kvenkynsor\u00f0 f\u00e1i endingu \u00ed \u00fe\u00e1gufalli \u00fe\u00f3tt \u00feau s\u00e9u endingarlaus \u00ed \u00feolfalli \u2013 or\u00f0 eins og <em>j\u00f6r\u00f0<\/em>, <em>mold<\/em>, <em>stund<\/em> og f\u00e1ein fleiri \u2013 en \u00fear er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a leifar eldri beygingar sem birtast einkum \u00ed f\u00f6stum or\u00f0asamb\u00f6ndum, og endingarlausa myndin er s\u00fa venjulega og n\u00fdtur fullkominnar vi\u00f0urkenningar.<\/p>\n<p>Mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 mynstur annarra kvenkynsor\u00f0a v\u00e6ri e\u00f0lilegast a\u00f0 \u00fe\u00e1gufalli\u00f0 breyttist og yr\u00f0i <em>h\u00f6nd<\/em> \u00ed sta\u00f0 <em>hendi<\/em> \u2013 beygingin er \u00fe\u00e1 <em>h\u00f6nd<\/em> \u2013 <em>h\u00f6nd<\/em> \u2013 <em>h\u00f6nd<\/em> \u2013 <em>handar<\/em> og fellur fullkomlega a\u00f0 venjulegu beygingarmynstri kvenkynsor\u00f0a. \u00deetta gerist vissulega, en ekki s\u00ed\u00f0ur hitt, a\u00f0 \u00fe\u00e1gufallsmyndin yfirtaki nefnifall og \u00feolfall \u00feannig a\u00f0 beygingin ver\u00f0i <em>hendi<\/em> \u2013 <em>hendi<\/em> \u2013 <em>hendi<\/em> \u2013 <em>handar<\/em>. \u00c1 \u00feann h\u00e1tt n\u00e6st einnig samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00feekkt beygingarmynstur, eins og <em>hei\u00f0i<\/em> \u2013 <em>hei\u00f0i <\/em>\u2013 <em>hei\u00f0i <\/em>\u2013 <em>hei\u00f0ar<\/em>. \u00de\u00f3tt b\u00e6\u00f0i \u00feessi tilbrig\u00f0i \u00ed beygingu or\u00f0sins s\u00e9u \u00ed g\u00f3\u00f0u samr\u00e6mi vi\u00f0 m\u00e1lkerfi\u00f0 n\u00fdtur hvorugt \u00feeirra vi\u00f0urkenningar eins og fram kemur \u00ed <a href=\"http:\/\/malfar.arnastofnun.is\/grein\/66026\">tilvitnuninni<\/a>\u00a0\u00ed <em>M\u00e1lfarsbankann<\/em>.<\/p>\n<p>En fleiri afbrig\u00f0i eru til. \u00cd knattspyrnum\u00e1li er notu\u00f0 myndin <em>hendi<\/em> \u2013 \u00fea\u00f0 er aldrei d\u00e6md *<em>h\u00f6nd<\/em> \u00e1 leikmann. \u00deessi mynd er l\u00edka notu\u00f0 \u00ed eignarfalli \u2013 <em>marki\u00f0 var d\u00e6mt af vegna hendi<\/em>, alls ekki *<em>vegna handar<\/em>. Or\u00f0i\u00f0 beygist \u00fe\u00e1 <em>hendi <\/em>\u2013 <em>hendi<\/em> \u2013 <em>hendi<\/em> \u2013 <em>hendi<\/em>. \u00deetta afbrig\u00f0i beygingarinnar fellur l\u00edka a\u00f0 \u00feekktu mynstri kvenkynsor\u00f0a sem enda \u00e1 <em>-i<\/em>, t.d. <em>gle\u00f0i<\/em>. Og svo er myndin sem nefnd var \u00ed upphafi, \u00feolfallsmyndin <em>hend<\/em>, \u00e1n endingar \u2013 or\u00f0i\u00f0 getur sem s\u00e9 l\u00edka beygst <em>hend<\/em> \u2013 <em>hend<\/em> \u2013 <em>hend<\/em> \u2013 <em>handar<\/em>. S\u00fa beyging er au\u00f0vita\u00f0 \u00ed fullu samr\u00e6mi vi\u00f0 beygingu flestra sterkra kvenkynsor\u00f0a.<\/p>\n<p>Enn er ekki allt upptali\u00f0. \u00dea\u00f0 er vel \u00feekkt a\u00f0 or\u00f0 beygist \u00f6\u00f0ruv\u00edsi \u00ed samsetningum en ein s\u00e9r, venjulega \u00fe\u00e1 \u00feannig a\u00f0 afbrig\u00f0ileiki \u00ed beygingunni skilar s\u00e9r ekki inn \u00ed samsetta or\u00f0i\u00f0. \u00deannig er \u00fe\u00e1gufall samsetninga me\u00f0 <em>h\u00f6nd<\/em> oft e\u00f0a alltaf <em>-h\u00f6nd<\/em> frekar en <em>-hendi<\/em> \u2013 venjulega er sagt <em>me\u00f0 s\u00f6mu<\/em> <em>rith\u00f6nd<\/em> frekar en <em>rithendi<\/em>, og oftast er tala\u00f0 um a\u00f0 <em>hafa eitthva\u00f0 \u00ed bakh\u00f6ndinni<\/em>. Einnig kemur fleirtalan <em>handir<\/em> stundum fyrir, einkum \u00ed merkingunni 'rithendur'. Fleirtalan <em>h\u00f6ndur<\/em> var l\u00edka nokku\u00f0 algeng \u00e1\u00f0ur fyrr, framan af 20. \u00f6ld, og \u00e9g man eftir f\u00f3lki f\u00e6ddu \u00ed lok 19. aldar sem nota\u00f0i hana. En h\u00fan er n\u00fa l\u00edklega alveg horfin.<\/p>\n<p>H\u00e9r hafa veri\u00f0 nefnd fj\u00f6gur afbrig\u00f0i beygingar or\u00f0sins <em>h\u00f6nd<\/em>\/<em>hendi<\/em>\/<em>hend<\/em> sem \u00f6ll eiga \u00fea\u00f0 sameiginlegt a\u00f0 samr\u00e6mast \u00feekktum beygingarmynstrum kvenkynsor\u00f0a. Fimmta mynstri\u00f0, \u00fea\u00f0 sem tali\u00f0 er \u201er\u00e9tt\u201c, er \u00fea\u00f0 eina sem gerir \u00fea\u00f0 ekki. <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/11\/09\/beygingarmynstur-kvenkynsorda\/\">Samb\u00e6rilegar breytingar<\/a> \u00e1 breytingu \u00fdmissa or\u00f0a eru fullkomlega vi\u00f0urkenndar, t.d. brottfall <em>-u<\/em> \u00ed \u00fe\u00e1gufalli \u00fdmissa kvenkynsor\u00f0a. \u00a0\u201eVi\u00f0urkennda\u201c beygingin <em>h\u00f6nd<\/em> \u2013 <em>h\u00f6nd <\/em>\u2013 <em>hendi<\/em> \u2013 <em>handar<\/em> er leifar af fornu beygingarmynstri og var afbrig\u00f0ileg \u00feegar \u00ed fornu m\u00e1li. \u00a0Er ekki t\u00edmi til kominn a\u00f0 taka \u00f6nnur mynstur \u00ed s\u00e1tt?<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Einu sinni fyrir \u00f3ral\u00f6ngu var \u00e9g a\u00f0 stj\u00f3rna fundi \u00ed Menntask\u00f3lanum \u00e1 Akureyri og ba\u00f0 \u00fe\u00e1 sem styddu einhverja till\u00f6gu a\u00f0 r\u00e9tta upp hend. \u00cd \u00fev\u00ed gekk sk\u00f3lameistari \u00ed salinn og sag\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 segja r\u00e9tta upp h\u00f6nd. Au\u00f0vita\u00f0 lei\u00f0r\u00e9tti \u00e9g mig samstundis enda var \u00e9g mikill m\u00e1lv\u00f6ndunarma\u00f0ur \u00ed \u00fe\u00e1 daga og vildi tala \u201er\u00e9tt\u201c, [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635,158638],"tags":[],"class_list":["post-3365","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar","category-malvillur"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3365","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3365"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3365\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":3888,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3365\/revisions\/3888"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3365"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3365"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3365"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}