{"id":3501,"date":"2021-01-09T22:37:41","date_gmt":"2021-01-09T22:37:41","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=3501"},"modified":"2021-01-12T21:13:56","modified_gmt":"2021-01-12T21:13:56","slug":"hlidina","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2021\/01\/09\/hlidina\/","title":{"rendered":"hli\u00f0in\u00e1"},"content":{"rendered":"<p>N\u00fdlega var m\u00e9r bent \u00e1 a\u00f0 ungt f\u00f3lk v\u00e6ri fari\u00f0 a\u00f0 nota <em>hli\u00f0in\u00e1<\/em> \u00ed sta\u00f0 sambandsins <em>vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1<\/em>, t.d. <em>\u00e9g st\u00f3\u00f0 hli\u00f0in\u00e1 henni<\/em>, <em>h\u00fasi\u00f0 er hli\u00f0in\u00e1 b\u00fa\u00f0inni<\/em>.\u00a0\u00c9g haf\u00f0i ekki teki\u00f0 eftir \u00feessu en sl\u00e6\u00f0ingur af d\u00e6mum finnst me\u00f0 g\u00fagli og \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni<\/em> eru <a href=\"https:\/\/malheildir.arnastofnun.is\/?mode=rmh2019#?stats_reduce=word&amp;isCaseInsensitive&amp;searchBy=word&amp;cqp=%5Bword%20!%3D%20%22vi%C3%B0%22%20%25c%5D%20%5B%5D%7B0,0%7D%20%5Bword%20%3D%20%22hli%C3%B0in%C3%A1%22%20%25c%5D&amp;hpp=1000&amp;search_tab=1&amp;search=cqp\">17 d\u00e6mi<\/a>. Talsvert fleiri d\u00e6mi, <a href=\"https:\/\/malheildir.arnastofnun.is\/?mode=rmh2019#?stats_reduce=word&amp;isCaseInsensitive&amp;searchBy=word&amp;cqp=%5Bword%20%3D%20%22vi%C3%B0%22%20%25c%5D%20%5B%5D%7B0,0%7D%20%5Bword%20%3D%20%22hli%C3%B0in%C3%A1%22%20%25c%5D&amp;hpp=1000&amp;search_tab=1&amp;search=cqp\">76 talsins<\/a>, eru um <em>vi\u00f0 hli\u00f0in\u00e1<\/em>, \u00fear sem fyrri forsetningin heldur s\u00e9r en nafnor\u00f0i\u00f0 og s\u00fa seinni renna saman. Sl\u00edkur samruni er vitaskuld fullkomlega e\u00f0lilegur \u00ed frambur\u00f0i en venjulega ekki vi\u00f0urkenndur \u00ed ritm\u00e1li, \u00fear sem reglan er s\u00fa a\u00f0 fara eftir uppruna \u2013 \u00fe\u00f3tt stundum s\u00e9 rita\u00f0 <em>on\u00ed<\/em>, <em>ni\u00f0r\u00ed<\/em>, <em>upp\u00ed<\/em> o.fl. samr\u00e6mist \u00fea\u00f0 ekki <a href=\"https:\/\/ritreglur.arnastofnun.is\/#2.\">ritreglum<\/a>.<\/p>\n<p>Elstu d\u00e6min sem \u00e9g finn \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em> um a\u00f0 <em>hli\u00f0in\u00e1<\/em> s\u00e9 skrifa\u00f0 \u00ed einu lagi eru fr\u00e1 1983 \u2013 \u00ed sm\u00e1s\u00f6gu \u00fear sem fj\u00f6lm\u00f6rg \u00f6nnur d\u00e6mi eru um a\u00f0 samb\u00f6nd sem eiga a\u00f0 vera \u00ed tvennu lagi samkv\u00e6mt stafsetningarreglum s\u00e9u \u00ed einu or\u00f0i, s.s. <em>bakvi\u00f0<\/em>, <em>inn\u00e1<\/em>, <em>\u00fearsem<\/em>, <em>einsog<\/em> o.fl. Kringum aldam\u00f3tin fer svo a\u00f0 sj\u00e1st d\u00e1l\u00edti\u00f0 af d\u00e6mum um <em>hli\u00f0in\u00e1<\/em>, yfirleitt me\u00f0 <em>vi\u00f0<\/em> \u00e1 undan. Ekki er \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 \u00e6tla a\u00f0 s\u00fa fj\u00f6lgun s\u00fdni einhverja breytingu \u00e1 frambur\u00f0i \u00feessa sambands e\u00f0a tilfinningu m\u00e1lnotenda fyrir \u00fev\u00ed, heldur ber h\u00fan v\u00e6ntanlega vott um a\u00f0 stafsetningarreglum s\u00e9 ekki fylgt jafnst\u00edft eftir.<\/p>\n<p>Elsta d\u00e6mi sem \u00e9g hef fundi\u00f0 um <em>hli\u00f0in\u00e1<\/em> eitt og s\u00e9r er \u00ed lesendabr\u00e9fi \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1998 \u00fear sem br\u00e9fritari segir fr\u00e1 reynslu sinni af n\u00fdrri tegund str\u00e6tisvagna: \u201e\u00deegar hann svo lag\u00f0i af sta\u00f0 s\u00e1 \u00e9g strax eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa ekki teki\u00f0 eyrnahl\u00edfar me\u00f0 m\u00e9r, \u00fear sem \u00e9g haf\u00f0i sest hli\u00f0in\u00e1 v\u00e9linni.\u201c Auk \u00e1\u00f0urnefndra d\u00e6ma \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni<\/em> eru einst\u00f6ku d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 \u00ed bl\u00f6\u00f0um og t\u00edmaritum fr\u00e1 allra s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum a\u00f0 <em>hli\u00f0in\u00e1 <\/em>s\u00e9 nota\u00f0 \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt, sem sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0 forsetning \u00e1n <em>vi\u00f0<\/em>. Og \u00feetta hefur l\u00edka <a href=\"https:\/\/thordisgisla.blogspot.com\/2019\/01\/ananasklipping.html\">s\u00e9st<\/a> \u00ed prentu\u00f0um b\u00f3kum.<\/p>\n<p>\u00cd sj\u00e1lfu s\u00e9r er \u00feetta mj\u00f6g e\u00f0lilegt. Vi\u00f0 h\u00f6fum s\u00e9rstakar forsetningar fyrir \u00fdmiss konar afst\u00f6\u00f0u milli f\u00f3lks og hluta \u2013 <em>\u00e1<\/em>, <em>undir<\/em>, <em>yfir<\/em>, <em>hj\u00e1<\/em>, <em>vi\u00f0<\/em> o.fl. Stundum er ekki til eitt or\u00f0 fyrir einhverja afst\u00f6\u00f0u, heldur nota\u00f0 or\u00f0asamband, en \u00fea\u00f0 hefur \u00fe\u00e1 tilhneigingu til a\u00f0 styttast e\u00f0a renna saman eins og \u00e1\u00f0ur eru nefnd d\u00e6mi um \u2013 <em>on\u00e1<\/em>, <em>ni\u00f0r\u00ed<\/em>, <em>bakvi\u00f0<\/em>. \u00cd \u00feessu tilviki er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00feriggja or\u00f0a samband \u00fear sem fyrsta or\u00f0i\u00f0, <em>vi\u00f0<\/em>, er mj\u00f6g \u00e1herslul\u00edti\u00f0 \u00ed frambur\u00f0i og leggur \u00ed raun l\u00edti\u00f0 af m\u00f6rkum til merkingarinnar og \u00fev\u00ed e\u00f0lilegt a\u00f0 \u00fea\u00f0 falli brott.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er ekki einsd\u00e6mi a\u00f0 forsetningar ver\u00f0i til \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt. H\u00e9r var \u00e1\u00f0ur nefnt <em>bak vi\u00f0<\/em> sem \u00e1 a\u00f0 rita \u00ed tvennu lagi samkv\u00e6mt uppruna og er oftast rita\u00f0 \u00feannig, en e\u00f0lilegast v\u00e6ri a\u00f0 l\u00edta \u00e1 sem eitt or\u00f0, forsetninguna <em>bakvi\u00f0<\/em>. Sambandi\u00f0 hefur reyndar oft veri\u00f0 rita\u00f0 \u00ed einu lagi \u2013 \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em> eru h\u00e1tt \u00ed 19 \u00fe\u00fasund d\u00e6mi um <em>bakvi\u00f0<\/em>, allt fr\u00e1 \u00fev\u00ed snemma \u00e1 19. \u00f6ld. Upprunalega er \u00feetta \u00feriggja or\u00f0a samband, <em>\u00e1 bak vi\u00f0<\/em>, \u00fe.e. forsetning \u2013 nafnor\u00f0i\u00f0 <em>bak<\/em> \u2013 forsetning, og getur vissulega veri\u00f0 \u00fea\u00f0 enn, en h\u00e6gt hefur veri\u00f0 a\u00f0 sleppa <em>\u00e1 <\/em>fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1 <a href=\"http:\/\/malfar.arnastofnun.is\/grein\/73956\">16. \u00f6ld<\/a>.<\/p>\n<p>Anna\u00f0 d\u00e6mi m\u00e1 taka af forsetningunum <em>sakir<\/em> (<em>einhvers<\/em>) og <em>s\u00f6kum<\/em> (<em>einhvers<\/em>), eins og J\u00f3n G. Fri\u00f0j\u00f3nsson <a href=\"http:\/\/malfar.arnastofnun.is\/grein\/73624\">hefur raki\u00f0<\/a>. \u00cd b\u00e1\u00f0um tilvikum er upphaflega um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a nafnor\u00f0i\u00f0\u00a0<em>s\u00f6k\u00a0<\/em>\u00ed fleirt\u00f6lu, annars vegar \u00ed \u00feolfalli \u00ed sambandinu\u00a0<em>fyrir sakir <\/em>(<em>einhvers<\/em>) og hins vegar \u00ed \u00fe\u00e1gufalli \u00ed sambandinu\u00a0<em>af<\/em>\/<em>fyrir s\u00f6kum <\/em>(<em>einhvers<\/em>). \u201eEr og Grettir fr\u00e6gur ma\u00f0ur fyrir sakir afls og hreysti\u201c segir \u00ed\u00a0<em>Grettis s\u00f6gu;<\/em>\u00a0\u201e\u00fev\u00ed a\u00f0 eg er n\u00fa fyrir elli s\u00f6kum til engis f\u00e6r\u201c segir \u00ed <em>V\u00edga-Gl\u00fams s\u00f6gu<\/em>.\u00a0\u00cd fyrra tilvikinu fellur forsetningin <em>fyrir<\/em> brott \u00e1 13. \u00f6ld, en elsta d\u00e6mi um brottfall\u00a0<em>af<\/em>\/<em>fyrir<\/em> \u00e1 undan\u00a0<em>s\u00f6kum<\/em> er fr\u00e1 upphafi 14. aldar.<\/p>\n<p>Enn eitt d\u00e6mi er <em>handa<\/em>. S\u00fa forsetning er mj\u00f6g algeng \u00ed n\u00fat\u00edmam\u00e1li en ekki til \u00ed fornu m\u00e1li \u2013 \u00fear er nota\u00f0ur forsetningarli\u00f0urinn <em>til handa <\/em>(<em>einhverjum<\/em>) \u00fear sem <em>handa<\/em> er eignarfall fleirt\u00f6lu af <em>h\u00f6nd<\/em>. \u201eTekur Nj\u00e1ll n\u00fa upp go\u00f0or\u00f0i\u00f0 til handa H\u00f6skuldi\u201c segir \u00ed <em>Nj\u00e1lu<\/em>, og fj\u00f6lm\u00f6rg \u00f6nnur d\u00e6mi eru \u00ed fornm\u00e1li um \u00feetta samband. Nafnor\u00f0i\u00f0 <em>h\u00f6nd<\/em> st\u00fdrir \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e1gufalli eins og nafnor\u00f0 gera \u00ed sumum tilvikum (<em><a href=\"https:\/\/notendur.hi.is\/~kristinb\/datsymp11.pdf\">dativus sympatheticus<\/a><\/em>). En \u00e1 <a href=\"https:\/\/malid.is\/leit\/handa\">16. \u00f6ld<\/a> fellur forsetningin brott og eftir stendur a\u00f0eins <em>handa<\/em>, sem m\u00e1lnotendur fara \u00fe\u00e1 a\u00f0 skynja sem forsetningu.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 m\u00e1li\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 nota \u00feessa s\u00f6mu a\u00f0fer\u00f0, a\u00f0 fella forsetningu framan af nafnor\u00f0i, til a\u00f0 koma s\u00e9r upp n\u00fdrri forsetningu, <em>hli\u00f0in\u00e1<\/em>. \u00dea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 h\u00e6gt a\u00f0 amast vi\u00f0 \u00feessari breytingu ef f\u00f3lk vill og kalla \u00feetta hina \u00f6rgustu m\u00e1lvillu. M\u00e9r finnst \u00feetta hins vegar br\u00e1\u00f0skemmtilegt d\u00e6mi um a\u00f0 \u00edslenskan er sprelllifandi og getur jafnvel b\u00e6tt or\u00f0um \u00ed h\u00f3p forsetninga sem venjulega er talinn loka\u00f0ur or\u00f0flokkur. \u00deessi breyting \u00e1 s\u00e9r l\u00edka sk\u00fdrar hli\u00f0st\u00e6\u00f0ur \u00ed tilur\u00f0 forsetninga sem engum dettur \u00ed hug a\u00f0 hafa nokku\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti. M\u00e9r finnst a\u00f0 vi\u00f0 eigum a\u00f0 taka <em>hli\u00f0in\u00e1<\/em> fagnandi.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>N\u00fdlega var m\u00e9r bent \u00e1 a\u00f0 ungt f\u00f3lk v\u00e6ri fari\u00f0 a\u00f0 nota hli\u00f0in\u00e1 \u00ed sta\u00f0 sambandsins vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1, t.d. \u00e9g st\u00f3\u00f0 hli\u00f0in\u00e1 henni, h\u00fasi\u00f0 er hli\u00f0in\u00e1 b\u00fa\u00f0inni.\u00a0\u00c9g haf\u00f0i ekki teki\u00f0 eftir \u00feessu en sl\u00e6\u00f0ingur af d\u00e6mum finnst me\u00f0 g\u00fagli og \u00ed Risam\u00e1lheildinni eru 17 d\u00e6mi. Talsvert fleiri d\u00e6mi, 76 talsins, eru um vi\u00f0 hli\u00f0in\u00e1, [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-3501","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3501","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3501"}],"version-history":[{"count":11,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3501\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":3514,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3501\/revisions\/3514"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3501"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3501"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3501"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}