{"id":3650,"date":"2021-03-24T08:00:59","date_gmt":"2021-03-24T08:00:59","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=3650"},"modified":"2021-09-12T09:45:46","modified_gmt":"2021-09-12T09:45:46","slug":"skida-skauta-funda","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2021\/03\/24\/skida-skauta-funda\/","title":{"rendered":"sk\u00ed\u00f0a, skauta, funda"},"content":{"rendered":"<p>Fj\u00f6lmargar \u00edslenskar sagnir eru leiddar af nafnor\u00f0um \u00e1n nokk\u00adurs vi\u00f0skeytis \u2014 nafnh\u00e1ttarendingunni <em>-a<\/em> bara b\u00e6tt vi\u00f0 nafnor\u00f0sr\u00f3t\u00adina. Margar \u00feessara sagna eru gamlar, en n\u00fdjar eru s\u00edfellt a\u00f0 b\u00e6tast vi\u00f0 \u2014 og f\u00e1 misjafnar vi\u00f0t\u00f6kur. Me\u00f0al \u00feeirra sem hafa brei\u00f0st \u00fat \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ratugum eru <em>skauta <\/em>\u00ed merking\u00adunni \u02bbrenna s\u00e9r \u00e1 skautum\u02bc, <em>sk\u00ed\u00f0a <\/em>\u00ed merk\u00ading\u00adunni \u02bbrenna s\u00e9r \/ ganga \u00e1 sk\u00ed\u00f0\u00adum\u02bc og <em>funda <\/em>\u00ed merk\u00ading\u00adunni \u02bbhalda fund\u02bc. S\u00f6gn\u00adin <em>sk\u00ed\u00f0a <\/em>vir\u00f0ist vera r\u00fam\u00adlega 50 \u00e1ra g\u00f6mul \u00ed m\u00e1linu \u2014 \u00ed sum\u00adum elstu d\u00e6m\u00adunum um hana \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em> er h\u00fan h\u00f6f\u00f0 innan g\u00e6salappa sem s\u00fdnir a\u00f0 h\u00fan hefur veri\u00f0 n\u00fd og jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 afsaka notkun hennar. S\u00f6gnin <em>funda <\/em>er eitthva\u00f0 eldri, l\u00edk\u00adlega r\u00fam\u00adlega 60 \u00e1ra g\u00f6mul. S\u00f6gnin <em>skauta <\/em>er aftur \u00e1 m\u00f3ti g\u00f6mul \u00ed m\u00e1l\u00adinu \u00ed merk\u00adingunni \u02bbbera skaut\u02bc en \u00ed merk\u00adingunni \u02bbrenna s\u00e9r \u00e1 skaut\u00adum\u02bc er h\u00fan sennilega \u00e1 svip\u00adu\u00f0\u00adum aldri og hinar tv\u00e6r.<\/p>\n<p>\u00deessar sagnir koma \u00ed sta\u00f0 or\u00f0asambanda me\u00f0 nafnor\u00f0i eins og merkingarsk\u00fdringarnar s\u00fdna. Margir m\u00e1lv\u00f6nd\u00adun\u00adar\u00admenn hafa einmitt lagt \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 \u00edslenska s\u00e9 sagna\u00adm\u00e1l \u2014 noti sagnir \u00ed sta\u00f0 sambanda me\u00f0 nafnor\u00f0um eins og gert s\u00e9 \u00ed ensku sem s\u00e9 nafnor\u00f0am\u00e1l. N\u00fa hef \u00e9g reyndar aldrei s\u00e9\u00f0 nein r\u00f6k fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00edslenska og enska s\u00e9u \u00f3l\u00edk\u00ad tungum\u00e1l hva\u00f0 \u00feetta var\u00f0ar \u2014 engar t\u00f6lur sem bendi til \u00feess a\u00f0 hlut\u00adfallsleg t\u00ed\u00f0ni sagna \u00ed texta s\u00e9 h\u00e6rri \u00ed \u00edslensku en ensku. \u00deessi sta\u00f0\u00adh\u00e6fing vir\u00f0ist eing\u00f6ngu byggjast \u00e1 til\u00adfinn\u00adingu og er a\u00f0eins studd me\u00f0 einst\u00f6ku d\u00e6mum, oftast \u00feeim s\u00f6mu \u2014 \u00e9g veit ekki hversu oft \u00e9g hef s\u00e9\u00f0 nefnt a\u00f0 \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 <em>gera <\/em>e\u00f0a <em>framkv\u00e6ma ranns\u00f3kn <\/em>e\u00f0a <em>k\u00f6nnun<\/em> eigi a\u00f0 tala um a\u00f0 <em>rann<\/em>\u00ad<em>saka <\/em>e\u00f0a <em>kanna<\/em>.<\/p>\n<p>\u00dat fr\u00e1 \u00feessu m\u00e6tti \u00e6tla a\u00f0 s\u00f6gnum eins og <em>funda<\/em>, <em>sk\u00ed\u00f0a<\/em> og <em>skauta<\/em> yr\u00f0i teki\u00f0 fagnandi. En \u00fev\u00ed er aldeilis ekki a\u00f0 heilsa. \u00c1rni B\u00f6\u00f0varsson sag\u00f0i a\u00f0 <em>funda <\/em>v\u00e6ri \u201eofnota\u00f0 or\u00f0\u201c sem sumum fyndist mega fara \u201ealveg burtu \u00far m\u00e1linu\u201c,og \u00ed \u00fe\u00e6tti G\u00edsla J\u00f3ns\u00adsonar um \u00edslenskt m\u00e1l \u00ed <em>Morg\u00adun<\/em>\u00ad<em>bla\u00f0inu<\/em> var marg\u00adoft am\u00adast vi\u00f0 \u00feessum s\u00f6gnum \u2014 \u00fe\u00e6r sag\u00f0ar vera \u201el\u00e1g\u00adk\u00faru\u00adlegar\u201c, \u201esnaut\u00adlegar\u201c, \u201ebarna\u00adleg\u00ad\u00adar\u201c, \u201e\u00f3mynd\u201c, \u201ef\u00e1\u00adt\u00e6kt\u00adarlegar\u201c, \u201eflatn\u00adeskja\u201c, \u201ebarnam\u00e1ls\u00adleg\u00adar\u201c, \u201ebj\u00e1lfa\u00adm\u00e1l\u201c, \u201el\u00e1g\u00adk\u00faru\u00ads\u00f6gn\u201c, \u201eflat\u00ad\u00adsagnir\u201c, bera vott um \u201em\u00e1l\u00adf\u00e1t\u00e6kt\u201c og vera vins\u00e6lar \u201eaf \u00feeim sem minnst\u00adan hafa m\u00e1ls\u00admetn\u00ada\u00f0 og dauf\u00adasta til\u00adfinningu\u201c. Og G\u00edsli er sann\u00adar\u00adlega ekki einn um a\u00f0 hafa haft \u00edmugust \u00e1 \u00feessum s\u00f6gnum.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er vissulega r\u00e9tt a\u00f0 or\u00f0\u00admyndun af \u00feessu tagi er mj\u00f6g al\u00adgeng \u00ed m\u00e1li barna, ekki s\u00edst \u00ed leikjum \u2014 sagnir eins og <em>kubba<\/em>, <em>leira<\/em>, <em>perla<\/em> og margar fleiri eru al\u00feekktar, og \u00feegar \u00e9g var str\u00e1kur var \u00e9g oft a\u00f0 leika m\u00e9r me\u00f0 \u00fej\u00f6l og <em>\u00fejala<\/em>. En \u00feetta er samt vitanlega fullgild or\u00f0myndun sem \u00e1 s\u00e9r fj\u00f6lda hli\u00f0\u00adst\u00e6\u00f0na \u00ed m\u00e1li fullor\u00f0inna og m\u00e9r er hulin r\u00e1\u00f0\u00adg\u00e1ta hva\u00f0 er svona vont vi\u00f0 umr\u00e6ddar sagnir. \u00deannig vir\u00f0ist <em>funda<\/em> alveg samb\u00e6rileg vi\u00f0 <em>\u00feinga<\/em> sem tala\u00f0 er um me\u00f0 vel\u00ad\u00fe\u00f3kn\u00adun, og <em>sk\u00ed\u00f0a <\/em>og <em>skauta <\/em>vir\u00f0ast hli\u00f0st\u00e6\u00f0ar vi\u00f0 <em>hj\u00f3la<\/em>. N\u00e1n\u00adast um lei\u00f0 og nafnor\u00f0i\u00f0 <em>s\u00edmi<\/em> var teki\u00f0 upp kom s\u00f6gnin <em>s\u00edma<\/em> fram og var mj\u00f6g miki\u00f0 notu\u00f0 lengi, \u00fe\u00f3tt h\u00fan s\u00e9 n\u00fa n\u00e1nast horfin \u00far m\u00e1linu. Svo m\u00e6tti lengi telja.<\/p>\n<p>\u00deessar sagnir hafa sk\u00fdra og auglj\u00f3sa merkingu og eru mun liprari en or\u00f0a\u00adsam\u00adb\u00f6ndin sem \u00fe\u00e6r leysa af h\u00f3lmi. Myndun sagna af nafn\u00ador\u00f0\u00adum \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt \u00e1 s\u00e9r langa hef\u00f0 og \u00f3tal ford\u00e6mi \u00ed m\u00e1linu. \u00c9g get ekki s\u00e9\u00f0 neitt sem sk\u00fdrir andst\u00f6\u00f0u vi\u00f0 \u00feess\u00adar sagnir ann\u00ada\u00f0 en a\u00f0 \u00fe\u00e6r eru n\u00fdlegar \u2014 og \u00fea\u00f0 tekur t\u00edma a\u00f0 venjast n\u00fdj\u00adungum \u00ed m\u00e1li. Reyndar hef \u00e9g ekki s\u00e9\u00f0 amast vi\u00f0 \u00e1\u00f0urnefndum s\u00f6gnum n\u00fa \u00ed nokkurn t\u00edma, sem g\u00e6ti bent til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e6r hafi veri\u00f0 teknar \u00ed s\u00e1tt. En \u00ed sta\u00f0inn er f\u00f3lk fari\u00f0 a\u00f0 hn\u00fdta \u00ed a\u00f0rar n\u00fdjar sagnir sem eru mynd\u00ada\u00f0ar \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt.<\/p>\n<p>Sl\u00edk or\u00f0myndun er nefnilega mj\u00f6g frj\u00f3 \u00ed m\u00e1linu \u2014 sem d\u00e6mi m\u00e1 nefna sagnirnar <em>hur\u00f0a <\/em>(\u02bbskemma b\u00edl me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 reka hur\u00f0 \u00e1 \u00f6\u00f0rum b\u00edl \u00ed hann\u02bc), <em>lykla <\/em>(\u02bbrispa lakk \u00e1 b\u00edl me\u00f0 lykli\u02bc), <em>tj\u00f3na <\/em>(\u02bbskemma b\u00edl, lenda \u00ed tj\u00f3ni\u02bc) og <em>tanka <\/em>(\u02bbsetja eldsneyti \u00e1 b\u00edl, fylla \u00e1 tankinn\u02bc). \u00deessar sagnir, a.m.k. <em>hur\u00f0a <\/em>og <em>lykla<\/em>, eru reyndar ekki jafn gagns\u00e6jar og \u00fe\u00e6r sem \u00e1\u00f0ur voru nefnd\u00adar. G\u00edsli J\u00f3nsson kalla\u00f0i <em>tj\u00f3na <\/em>\u201eflatneskjus\u00f6gn\u201c og sag\u00f0i \u201eekki \u00fe\u00f6rf \u00e1 svo kau\u00f0alegu n\u00fdyr\u00f0i\u201c sem <em>tj\u00f3na\u00f0ur<\/em>. Stund\u00adum er amast vi\u00f0 \u00feessum s\u00f6gnum \u00e1 \u00feeim for\u00adsend\u00adum a\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u mynda\u00f0ar me\u00f0 hli\u00f0sj\u00f3n af enskum s\u00f6gnum, en hr\u00e1efni\u00f0 er \u00eds\u00adlenskt og or\u00f0\u00admynd\u00adunin l\u00edka \u00fe\u00f3tt fyrirmyndin kunni a\u00f0 vera erlend, og \u201eekki er minna um \u00fea\u00f0 vert a\u00f0 \u00feau eru ekki b\u00fain til af f\u00ednni or\u00f0anefnd heldur hafa \u00feau sprotti\u00f0 upp \u00fati \u00e1 me\u00f0al almennings\u201c segir Anna Sigr\u00ed\u00f0ur \u00der\u00e1ins\u00add\u00f3ttir.<\/p>\n<p><a href=\"#_ednref1\" name=\"_edn1\"><\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fj\u00f6lmargar \u00edslenskar sagnir eru leiddar af nafnor\u00f0um \u00e1n nokk\u00adurs vi\u00f0skeytis \u2014 nafnh\u00e1ttarendingunni -a bara b\u00e6tt vi\u00f0 nafnor\u00f0sr\u00f3t\u00adina. Margar \u00feessara sagna eru gamlar, en n\u00fdjar eru s\u00edfellt a\u00f0 b\u00e6tast vi\u00f0 \u2014 og f\u00e1 misjafnar vi\u00f0t\u00f6kur. Me\u00f0al \u00feeirra sem hafa brei\u00f0st \u00fat \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ratugum eru skauta \u00ed merking\u00adunni \u02bbrenna s\u00e9r \u00e1 skautum\u02bc, sk\u00ed\u00f0a \u00ed merk\u00ading\u00adunni \u02bbrenna [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635,158638],"tags":[],"class_list":["post-3650","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar","category-malvillur"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3650","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3650"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3650\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":3986,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3650\/revisions\/3986"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3650"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3650"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3650"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}