{"id":3897,"date":"2021-05-28T14:38:37","date_gmt":"2021-05-28T14:38:37","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=3897"},"modified":"2021-05-29T18:09:04","modified_gmt":"2021-05-29T18:09:04","slug":"ad-fara-eitthvert","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2021\/05\/28\/ad-fara-eitthvert\/","title":{"rendered":"A\u00f0 fara eitthvert"},"content":{"rendered":"<p>\u00d3\u00e1kve\u00f0in forn\u00f6fn me\u00f0 <em>-hver<\/em> sem seinni li\u00f0, <em>einhver <\/em>og <em>s\u00e9rhver<\/em>, hafa tv\u00e6r mismunandi myndir \u00ed nefnifalli og \u00feolfalli hvorugkyns eint\u00f6lu \u2013 <em>eitthvert<\/em>, <em>s\u00e9rhvert <\/em>og <em>eitthva\u00f0<\/em>, <em>s\u00e9rhva\u00f0<\/em>. Yfirleitt er gert r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00feessar myndir hafi me\u00f0 s\u00e9r verkaskiptingu, eins og <a href=\"http:\/\/malfar.arnastofnun.is\/grein\/66369\">segir<\/a> \u00ed <em>M\u00e1lfarsbankanum<\/em>: \u201eHvorugkyn eint\u00f6lu <strong>eitthva\u00f0 <\/strong>stendur sj\u00e1lfst\u00e6tt en <strong>eitthvert <\/strong>stendur me\u00f0 nafnor\u00f0i.\u201c Sama gildir um verkaskiptingu <em>s\u00e9rhva\u00f0 <\/em>og <em>s\u00e9rhvert<\/em>. \u00dea\u00f0 er a\u00f0 v\u00edsu algengt a\u00f0 myndin <em>eitthva\u00f0 <\/em>s\u00e9 notu\u00f0 me\u00f0 nafnor\u00f0i, eins og vara\u00f0 er s\u00e9rstaklega vi\u00f0 \u00ed <em>M\u00e1lfarsbankanum<\/em>: \u201e<em>H\u00fan vann eitthvert verk<\/em> (ekki: \u201eh\u00fan vann eitthva\u00f0 verk\u201c).\u201c \u00deetta er ekki n\u00fdtt \u2013 \u00ed <em>Ritm\u00e1lssafni <\/em>\u00c1rnastofnunar eru nokkur <a href=\"https:\/\/ritmalssafn.arnastofnun.is\/daemi\/662904\">d\u00e6mi<\/a> um <em>eitthva\u00f0 <\/em>me\u00f0 nafnor\u00f0i allt fr\u00e1 17. \u00f6ld.<\/p>\n<p>En einnig er \u00fev\u00ed oft haldi\u00f0 fram a\u00f0 myndin <em>eitthvert <\/em>s\u00e9 stundum ranglega notu\u00f0, eins og <em>M\u00e1lfarsbankinn <\/em>tekur d\u00e6mi um: \u201e<em>Hann f\u00f3r eitthva\u00f0 anna\u00f0<\/em> (ekki: \u201ehann f\u00f3r eitthvert anna\u00f0\u201c).\u201c \u00cd kverinu <em>G\u00e6tum tungunnar<\/em> fr\u00e1 1984 kemur einnig fram a\u00f0 r\u00e9tt s\u00e9 a\u00f0 segja \u201eHann er a\u00f0 fara <em>eitthva\u00f0 <\/em>\u00fat \u00ed buskann\u201c en ekki \u201eHann er a\u00f0 fara eitthvert \u00fat \u00ed buskann\u201c. \u00deetta er ekki heldur n\u00fdtt. Elsta d\u00e6mi sem \u00e9g fann \u00ed flj\u00f3tu brag\u00f0i um notkun <em>eitthvert <\/em>me\u00f0 <em>fara <\/em>er \u00ed <em>Bjarka <\/em>1899 \u2013 \u201eH\u00fan f\u00f3r eitthvert su\u00f0reftir me\u00f0 lestinni\u201c. \u00cd \u00feessum d\u00e6mum er myndin <em>eitthvert <\/em>vissulega notu\u00f0 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0, \u00e1n \u00feess a\u00f0 standa me\u00f0 nafnor\u00f0i, sem \u00ed flj\u00f3tu brag\u00f0i g\u00e6ti virst vera \u00ed andst\u00f6\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e6r reglur sem venjulega eru kenndar um verkaskiptingu \u00feessara mynda.<\/p>\n<p>\u00dearna er \u00fe\u00f3 ekki allt sem s\u00fdnist. Eins og fram kemur \u00ed or\u00f0ab\u00f3kum er or\u00f0i\u00f0 <em>hvert <\/em>ekki bara hvorugkyn af spurnar<strong>fornafninu<\/strong> og \u00f3\u00e1kve\u00f0na fornafninu <em>hver<\/em>, heldur l\u00edka spurnar<strong>atviksor\u00f0<\/strong> \u00ed merkingunni 'til hva\u00f0a sta\u00f0ar', \u00ed setningum eins og <em>hvert ertu a\u00f0 fara?<\/em>. \u00deegar spurt er me\u00f0 atviksor\u00f0i er venjulega svara\u00f0 me\u00f0 atviksor\u00f0i e\u00f0a forsetningarli\u00f0 \u2013 <em>\u00e9g er a\u00f0 fara heim<\/em> \/ <em>ni\u00f0ur \u00ed b\u00e6<\/em> \/ <em>til Akureyrar<\/em> o.s.frv. Sl\u00edkum spurningum er ekki svara\u00f0 me\u00f0 nafnor\u00f0i, enda er s\u00f6gnin fara \u00e1hrifslaus og tekur ekki me\u00f0 s\u00e9r nafnor\u00f0. Reyndar er l\u00edka h\u00e6gt a\u00f0 segja <em>hva\u00f0 ertu a\u00f0 fara?<\/em> en \u00fea\u00f0 er yfirleitt nota\u00f0 \u00ed \u00f3eiginlegri merkingu, 'hva\u00f0 meinar\u00f0u?' e\u00f0a eitthva\u00f0 sl\u00edkt.<\/p>\n<p>En \u00fe\u00f3tt spurningunni <em>hvert ertu a\u00f0 fara? <\/em>s\u00e9 oft svara\u00f0 me\u00f0 <em>\u00e9g er a\u00f0 fara eitthvert <\/em>er aldrei h\u00e6gt a\u00f0 svara spurningum eins og <em>hva\u00f0 ertu a\u00f0 gera?<\/em> me\u00f0 *<em>\u00e9g er a\u00f0 gera eitthvert <\/em>\u2013 \u00feess \u00ed sta\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 segja <em>\u00e9g er a\u00f0 gera eitthva\u00f0<\/em>. \u00d6fugt vi\u00f0 <em>fara <\/em>ver\u00f0ur <em>gera <\/em>nefnilega a\u00f0 hafa me\u00f0 s\u00e9r andlag, og \u00feess vegna er ekki spurt me\u00f0 spurnar<strong>atviksor\u00f0i <\/strong>heldur spurnar<strong>fornafni<\/strong>, og \u00feess vegna er l\u00edka svara\u00f0 me\u00f0 fornafni, ekki atviksor\u00f0i. \u00de\u00f3tt <em>eitthva\u00f0 <\/em>geti veri\u00f0 andlag getur <em>eitthvert <\/em>sem stendur eitt og s\u00e9r ekki veri\u00f0 \u00fea\u00f0, heldur \u00fearf a\u00f0 hafa nafnor\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r, t.d. <em>\u00e9g er a\u00f0 gera eitthvert skammarstrik<\/em>.<\/p>\n<p>\u00deetta s\u00fdnir gl\u00f6ggt a\u00f0 enda \u00fe\u00f3tt or\u00f0ab\u00e6kur gefi <em>eitthvert <\/em>eing\u00f6ngu upp sem hvorugkyn af <em>einhver <\/em>leikur enginn vafi \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed samb\u00f6ndum eins og <em>\u00e9g er a\u00f0 fara eitthvert<\/em> er \u00fea\u00f0 atviksor\u00f0 en ekki fornafn. \u00dea\u00f0 segir sig eiginlega sj\u00e1lft a\u00f0 spurningum me\u00f0 spurnar<strong>atviksor\u00f0i<\/strong> er svara\u00f0 me\u00f0 atviksor\u00f0i, ekki fornafni. Reglan um a\u00f0 <em>eitthva\u00f0 <\/em>standi sj\u00e1lfst\u00e6tt en <em>eitthvert <\/em>standi me\u00f0 nafnor\u00f0i \u00e1 \u00fev\u00ed einfaldlega ekki vi\u00f0 \u00ed d\u00e6mum eins og <em>\u00e9g er a\u00f0 fara eitthvert<\/em> \u2013 h\u00fan tekur til fornafna, en <em>eitthvert <\/em>er atviksor\u00f0 \u00fearna og sta\u00f0aratviksor\u00f0 geta vitanlega sta\u00f0i\u00f0 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0. \u00dea\u00f0 er athyglisvert a\u00f0 \u00ed <em>\u00cdslenskri stafsetningaror\u00f0ab\u00f3k<\/em> er <em>eitthva\u00f0 <\/em>gefi\u00f0 upp sem atviksor\u00f0, me\u00f0 notkunard\u00e6minu <em>fara eitthva\u00f0<\/em>.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er vands\u00e9\u00f0 anna\u00f0 en e\u00f0lilegt s\u00e9 a\u00f0 greina <em>eitthvert <\/em>sem atviksor\u00f0 \u00ed \u00feessari notkun fyrst <em>eitthva\u00f0 <\/em>er greint \u00feannig. Vilji f\u00f3lk amast vi\u00f0 setningum eins og <em>fara eitthvert<\/em> me\u00f0 \u00feeim r\u00f6kum a\u00f0 atviksor\u00f0i\u00f0 <em>eitthvert <\/em>s\u00e9 \u201eekki til\u201c ver\u00f0ur ekki s\u00e9\u00f0 \u00e1 hverju \u00fea\u00f0 byggist. En \u00fea\u00f0 er l\u00edka h\u00e6gt a\u00f0 segja <em>\u00e9g er a\u00f0 fara eitthva\u00f0<\/em>, \u00ed u.\u00fe.b. s\u00f6mu merkingu \u2013 \u00fe\u00f3tt <strong>forn\u00f6fnin <\/strong><em>eitthva\u00f0 <\/em>og <em>eitthvert <\/em>hafi me\u00f0 s\u00e9r verkaskiptingu gildir \u00fea\u00f0 ekki um samhlj\u00f3\u00f0a <strong>atviksor\u00f0<\/strong>. \u00d6fugt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem <em>M\u00e1lfarsbankinn <\/em>og <em>G\u00e6tum tungunnar <\/em>segja er \u00fev\u00ed ekkert athugavert vi\u00f0 setningar eins og <em>\u00e9g er a\u00f0 fara eitthvert <\/em>\u2013 \u00fe\u00e6r eru fullkomlega \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 reglur og hef\u00f0ir m\u00e1lsins.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d3\u00e1kve\u00f0in forn\u00f6fn me\u00f0 -hver sem seinni li\u00f0, einhver og s\u00e9rhver, hafa tv\u00e6r mismunandi myndir \u00ed nefnifalli og \u00feolfalli hvorugkyns eint\u00f6lu \u2013 eitthvert, s\u00e9rhvert og eitthva\u00f0, s\u00e9rhva\u00f0. Yfirleitt er gert r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00feessar myndir hafi me\u00f0 s\u00e9r verkaskiptingu, eins og segir \u00ed M\u00e1lfarsbankanum: \u201eHvorugkyn eint\u00f6lu eitthva\u00f0 stendur sj\u00e1lfst\u00e6tt en eitthvert stendur me\u00f0 nafnor\u00f0i.\u201c Sama gildir [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635,158638],"tags":[],"class_list":["post-3897","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar","category-malvillur"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3897","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3897"}],"version-history":[{"count":9,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3897\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":3906,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3897\/revisions\/3906"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3897"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3897"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3897"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}