{"id":3913,"date":"2021-06-01T16:08:30","date_gmt":"2021-06-01T16:08:30","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=3913"},"modified":"2021-06-01T16:38:09","modified_gmt":"2021-06-01T16:38:09","slug":"sitthvor","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2021\/06\/01\/sitthvor\/","title":{"rendered":"sitthvor"},"content":{"rendered":"<p>Forn\u00f6fnin <em>hvor<\/em> og <em>sinn<\/em> tengjast oft n\u00e1num b\u00f6ndum, eru eiginlega eitt tv\u00edyrt fornafn \u00fear sem <em>hvor<\/em> sambeygist or\u00f0inu sem \u00fea\u00f0 v\u00edsar til en <em>sinn <\/em>sambeygist or\u00f0inu sem \u00fea\u00f0 stendur me\u00f0. Stundum er greint \u00e1 milli tvenns konar merkingar sambandsins eftir \u00fev\u00ed \u00ed hva\u00f0a r\u00f6\u00f0 or\u00f0in standa. \u00deegar <em>hvor<\/em> er \u00e1 undan er tala\u00f0 um eignarmerkingu \u2013 \u201eF\u00f3ru \u00fe\u00e1 hvorir til skipa sinna\u201c segir \u00ed <em>Heimskringlu<\/em>. S\u00e9 <em>sinn<\/em> \u00e1 undan er tala\u00f0 um dreifimerkingu e\u00f0a deilimerkingu \u2013 \u201eGestur Oddleifsson f\u00f3r vestan af Bar\u00f0astr\u00f6nd og \u00deorkell S\u00farsson \u00e1 s\u00ednu skipi hvor \u00feeirra\u201c segir \u00ed <em>G\u00edsla s\u00f6gu<\/em>. \u00cd fyrra tilvikinu eiga menn \u00feau skip sem um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a, en \u00ed seinna tilvikinu er ekki v\u00edsa\u00f0 til eignarhalds, heldur a\u00f0eins \u00e1tt vi\u00f0 a\u00f0 \u00feeir f\u00f3ru ekki \u00e1 sama skipi.<\/p>\n<p>\u00deessi greinarmunur er oftast ger\u00f0ur \u00ed fornu m\u00e1li. \u00cd n\u00fat\u00edmam\u00e1li er munurinn l\u00edklega flestum m\u00e1lnotendum framandi og b\u00e1\u00f0ar ra\u00f0irnar nota\u00f0ar \u00ed b\u00e1\u00f0um merkingum. Einnig kemur fyrir a\u00f0 hlutverkum s\u00e9 v\u00edxla\u00f0 \u00feannig a\u00f0 <em>sinn<\/em> sambeygist or\u00f0inu sem \u00fea\u00f0 v\u00edsar til en <em>hvor<\/em> or\u00f0inu sem \u00fea\u00f0 stendur me\u00f0. \u00cd kverinu <em>G\u00e6tum tungunnar <\/em>segir: \u201eEkki mun tali\u00f0 rangt a\u00f0 segja: \u00deeir f\u00f3ru sinn \u00ed hvora \u00e1ttina. En best f\u00e6ri: \u00deeir f\u00f3ru <em>\u00ed s\u00edna \u00e1ttina hvor<\/em>.\u201c \u00cd <em>M\u00e1lfarsbankanum <\/em>segir: \u201eOr\u00f0in\u00a0<strong>hvor<\/strong>\u00a0og\u00a0<strong>sinn<\/strong>\u00a0eiga ekki a\u00f0 beygjast saman.\u00a0<em>Br\u00e6\u00f0urnir komu hvor \u00e1 s\u00ednum b\u00edlnum<\/em>\u00a0(ekki: \u201ebr\u00e6\u00f0urnir komu \u00e1 sitthvorum b\u00edlnum\u201c).\u00a0<em>B\u00f6rnin hlupu sitt \u00ed hvora \u00e1ttina<\/em>\u00a0(ekki: \u201eb\u00f6rnin hlupu \u00ed sitthvora \u00e1ttina\u201c).\u201c<\/p>\n<p>Eins og \u00feessi d\u00e6mi benda til renna forn\u00f6fnin i\u00f0ulega saman \u00ed eitt \u2013 <em>sitthvor<\/em>. \u00deessi samruni er mj\u00f6g algengur \u2013 h\u00e1tt \u00ed fimm \u00fe\u00fasund d\u00e6mi \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em>, \u00fea\u00f0 elsta fr\u00e1 1914. D\u00e6mum fer \u00fe\u00f3 ekki a\u00f0 fj\u00f6lga a\u00f0 r\u00e1\u00f0i fyrr en eftir 1980, og \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni<\/em> eru r\u00fam fimm \u00fe\u00fasund d\u00e6mi. \u00deegar forn\u00f6fnin renna saman \u00ed eitt or\u00f0 er algengast a\u00f0 a\u00f0eins seinni hlutinn beygist og hvorugkynsmyndin <em>sitt<\/em> s\u00e9 notu\u00f0 \u00ed fyrri hlutanum \u2013 <em>\u00feeir <\/em>\/ <em>\u00fe\u00e6r<\/em> \/ <em>\u00feau eiga sitthvorn b\u00edlinn. <\/em>En einnig er til a\u00f0 fyrri hlutinn taki kynbeygingu \u2013 <em>\u00feeir eiga sinnhvorn b\u00edlinn<\/em> \/ <em>\u00fe\u00e6r eiga s\u00ednhvorn b\u00edlinn<\/em>. \u00deetta er \u00fe\u00f3 mj\u00f6g sjaldg\u00e6ft, og d\u00e6mum um <em>sinnhvor<\/em> og <em>s\u00ednhvor <\/em>vir\u00f0ist fara f\u00e6kkandi \u2013 eru t\u00e6p 5% af heildinni \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em> en innan vi\u00f0 1% \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni<\/em>.<\/p>\n<p>En fleiri tilbrig\u00f0i m\u00e1 finna af \u00feessu sambandi eins og sj\u00e1 m\u00e1 af n\u00e6stelsta d\u00e6minu um <em>sitthvor<\/em> sem er \u00far <em>I\u00f0unni<\/em> 1919, \u00ed grein eftir \u00c1g\u00fast H. Bjarnason pr\u00f3fessor: \u201eEn pers\u00f3nugervingar \u00feessir voru svo \u00f3l\u00edkir af \u00fev\u00ed, a\u00f0 sitthvort heilakerfi\u00f0 starfa\u00f0i \u00ed sitt hvort sinni\u00f0 og sitt me\u00f0 hverjum h\u00e6tti.\u201c \u00dearna eru b\u00e1\u00f0ir hlutar sambandsins tv\u00edteknir og annar stendur \u00fear sem <em>sinn<\/em> \u00e6tti a\u00f0 vera en hinn \u00fear sem <em>hvor <\/em>\u00e6tti a\u00f0 vera \u00a0\u2013 hef\u00f0bundi\u00f0 m\u00e1l v\u00e6ri <em>sitt heilakerfi\u00f0 stafa\u00f0i \u00ed hvort sinni\u00f0<\/em>. Nokkur d\u00e6mi eru um \u00feetta \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni<\/em>, t.d. \u201eHalld\u00f3r segir \u00fea\u00f0 vera s\u00e9rstakt a\u00f0 sitthvor r\u00e1\u00f0herrann s\u00e9 me\u00f0 sitthvora stefnuna en \u00fe\u00f3 \u00ed s\u00f6mu r\u00edkisstj\u00f3rninni\u201c.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt myndin <em>sitthvor <\/em>nj\u00f3ti ekki fullrar vi\u00f0urkenningar hefur h\u00fan komist inn \u00ed or\u00f0ab\u00e6kur og kennslub\u00e6kur \u2013 fyrst \u00ed b\u00f3k J\u00f3ns Hilmars J\u00f3nssonar, <em>Islandsk grammatikk for utlendinger<\/em>, \u00e1ri\u00f0 1984 \u00fear sem h\u00fan er nefnd \u00e1n nokkurra athugasemda. \u00cd \u00feri\u00f0ju \u00fatg\u00e1fu <em>\u00cdslenskrar or\u00f0ab\u00f3kar<\/em> fr\u00e1 2002 eru myndirnar <em>sinnhvor<\/em>, <em>s\u00ednhvor<\/em> og <em>sitthvor<\/em> \u00ferj\u00e1r sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ar flettur \u2013 s\u00fa fyrstnefnda merkt sem \u00f3formlegt m\u00e1l en hinar sem m\u00e1l sem n\u00fdtur ekki fullrar vi\u00f0urkenningar. \u00cd <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k<\/em> er a\u00f0eins <em>sitthvor<\/em> <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/60117\">gefi\u00f0<\/a> og sagt \u201e\u00f3formlegt, ekki fullvi\u00f0urkennt m\u00e1l\u201c. En \u00ed lj\u00f3si aldurs og t\u00ed\u00f0ni or\u00f0sins <em>sitthvor<\/em> er kominn t\u00edmi til a\u00f0 vi\u00f0urkenna \u00fea\u00f0 a\u00f0 fullu sem e\u00f0lilegt og r\u00e9tt m\u00e1l.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Forn\u00f6fnin hvor og sinn tengjast oft n\u00e1num b\u00f6ndum, eru eiginlega eitt tv\u00edyrt fornafn \u00fear sem hvor sambeygist or\u00f0inu sem \u00fea\u00f0 v\u00edsar til en sinn sambeygist or\u00f0inu sem \u00fea\u00f0 stendur me\u00f0. Stundum er greint \u00e1 milli tvenns konar merkingar sambandsins eftir \u00fev\u00ed \u00ed hva\u00f0a r\u00f6\u00f0 or\u00f0in standa. \u00deegar hvor er \u00e1 undan er tala\u00f0 um eignarmerkingu [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635,158638],"tags":[],"class_list":["post-3913","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar","category-malvillur"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3913","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3913"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3913\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":3914,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3913\/revisions\/3914"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3913"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3913"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3913"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}