{"id":3950,"date":"2021-06-23T12:00:01","date_gmt":"2021-06-23T12:00:01","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=3950"},"modified":"2021-06-23T17:59:02","modified_gmt":"2021-06-23T17:59:02","slug":"ordraedugreining-fyrir-lengra-komna","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2021\/06\/23\/ordraedugreining-fyrir-lengra-komna\/","title":{"rendered":"Or\u00f0r\u00e6\u00f0ugreining fyrir lengra komna"},"content":{"rendered":"<p>\u00de\u00f3tt margt hafi \u00feegar veri\u00f0 skrifa\u00f0 um n\u00fdjustu \u201eafs\u00f6kunarbei\u00f0ni\" Samherja vil \u00e9g ekki l\u00e1ta mitt eftir liggja me\u00f0 a\u00f0 greina or\u00f0r\u00e6\u00f0una \u00ed henni.<\/p>\n<p>\u201e\u00c1m\u00e6lisver\u00f0ir vi\u00f0skiptah\u00e6ttir fengu a\u00f0 vi\u00f0gangast \u00ed starfsemi \u00fatger\u00f0ar Samherja \u00ed Namib\u00edu.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd upphafi er nota\u00f0 l\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 \u201e\u00e1m\u00e6lisver\u00f0ir\u201c \u2013 miklu v\u00e6gara or\u00f0 en \u201esakn\u00e6mir\u201c, \u201evafasamir\u201c e\u00f0a \u00f6nnur svipu\u00f0 sem hef\u00f0u komi\u00f0 til greina. Notu\u00f0 er mi\u00f0myndars\u00f6gnin \u201evi\u00f0gangast\u201c sem hefur engan geranda \u2013 \u00fea\u00f0 ger\u00f0i enginn neitt, \u00fea\u00f0 bara ger\u00f0ist. En \u00fea\u00f0 er ekki einu sinni sagt \u201evi\u00f0gengust\u201c, heldur \u201efengu a\u00f0 vi\u00f0gangast\u201c \u2013 svona eins og til a\u00f0 gefa \u00ed skyn a\u00f0 einhverjir a\u00f0rir, t.d. eftirlitsa\u00f0ilar, hef\u00f0u \u00e1tt a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0. Ekki er sagt \u201evi\u00f0skiptah\u00e6ttir okkar voru \u00e1m\u00e6lisver\u00f0ir\u201c.<\/p>\n<p>\u201eVeikleikar voru \u00ed stj\u00f3rnskipulagi og lausat\u00f6k sem ekki \u00e1ttu a\u00f0 l\u00ed\u00f0ast.\u201c<\/p>\n<p>H\u00e9r kemur n\u00e1nari \u00fatf\u00e6rsla \u00e1 \u00fev\u00ed hvers vegna vi\u00f0skiptah\u00e6ttirnir voru \u201e\u00e1m\u00e6lisver\u00f0ir\u201c \u2013 \u00fea\u00f0 f\u00f3lst ekki \u00ed sakn\u00e6mum ath\u00f6fnum, heldur \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u201eveikleikar \u00ed stj\u00f3rnskipulagi\u201c og \u201elausat\u00f6k\u201c voru \u00ed rekstrinum.<\/p>\n<p>\u201eVi\u00f0 brug\u00f0umst ekki vi\u00f0 eins og okkur bar.\u201c<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er athyglisvert a\u00f0 h\u00e9r er allt \u00ed einu skipt yfir \u00ed germynd \u2013 \u201eVi\u00f0 brug\u00f0umst ekki vi\u00f0\u201c \u2013 eins og eina s\u00f6k fyrirt\u00e6kisins felist \u00ed l\u00e9legri stj\u00f3rnun. J\u00fa, vi\u00f0 l\u00e9tum \u00feetta dankast, en vi\u00f0 ger\u00f0um ekkert af okkur. Og hverjir eru \u00feessir \u201evi\u00f0\u201c?<\/p>\n<p>\u201e\u00deetta hefur valdi\u00f0 uppn\u00e1mi hj\u00e1 starfsf\u00f3lki okkar, f\u00f6lskyldum, vinum, samstarfsa\u00f0ilum, vi\u00f0skiptavinum og v\u00ed\u00f0a \u00ed samf\u00e9laginu.\u201c<\/p>\n<p>H\u00e9r er byrja\u00f0 \u00e1 \u00e1bendingarfornafninu \u201e\u00feetta\u201c sem ekki er alveg lj\u00f3st \u00ed hva\u00f0 \u00e1 a\u00f0 v\u00edsa \u2013 v\u00e6ntanlega \u00ed \u201eveikleika \u00ed stj\u00f3rnskipulagi\u201c og \u201elausat\u00f6k\u201c sem nefnd eru \u00ed efnisgreininni \u00e1 undan. Or\u00f0alagi\u00f0 \u201evaldi\u00f0 uppn\u00e1mi\u201c er ekki mj\u00f6g n\u00e1kv\u00e6m l\u00fdsing \u00e1 sakam\u00e1laranns\u00f3kn \u00ed \u00feremur l\u00f6ndum. R\u00f6\u00f0in \u00e1 \u00feeim sem eru be\u00f0in afs\u00f6kunar er athyglisver\u00f0 \u2013 byrja\u00f0 \u00e1 starfsf\u00f3lki, fj\u00f6lskyldu og vinum sem \u201eveikleikar \u00ed stj\u00f3rnskipulagi\u201c og \u201elausat\u00f6k\u201c hafa varla angra\u00f0 miki\u00f0. Hins vegar er alveg sleppt a\u00f0 nefna almenning \u00ed Namib\u00edu.<\/p>\n<p>\u201eVi\u00f0 h\u00f6rmum \u00feetta og bi\u00f0jumst einl\u00e6glega afs\u00f6kunar.\u201c<\/p>\n<p>H\u00e9r er aftur ekki alveg lj\u00f3st til hvers \u201e\u00feetta\u201c v\u00edsar - v\u00e6ntanlega \u00feess a\u00f0 hafa \u201evaldi\u00f0 uppn\u00e1mi\u201c. \u00dea\u00f0 er ekki be\u00f0ist afs\u00f6kunar \u00e1 ger\u00f0um fyrirt\u00e6kisins, heldur \u00e1 vi\u00f0br\u00f6g\u00f0um annarra. Eins og oft vill ver\u00f0a varpar \u201eafs\u00f6kunarbei\u00f0nin\u201c \u00fev\u00ed \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 a\u00f0ra.<\/p>\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 geri \u00e9g pers\u00f3nulega sem forstj\u00f3ri og einnig fyrir h\u00f6nd f\u00e9lagsins sem \u00e6t\u00ed\u00f0 hefur haft v\u00f6ndu\u00f0 vinnubr\u00f6g\u00f0 a\u00f0 lei\u00f0arlj\u00f3si \u00ed allri sinni starfsemi.\u201c<\/p>\n<p>A\u00f0 hafa \u201ev\u00f6ndu\u00f0 vinnubr\u00f6g\u00f0 a\u00f0 lei\u00f0arlj\u00f3si\u201c merkir ekki \u00fea\u00f0 sama og \u201e\u00e1stunda v\u00f6ndu\u00f0 vinnubr\u00f6g\u00f0\u201c. \u00dea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 hafa fallega stefnu \u00e1n \u00feess a\u00f0 fylgja henni eftir \u00ed verki. \u00ddmis d\u00e6mi hafa veri\u00f0 nefnd um \u00f3v\u00f6ndu\u00f0 og vafas\u00f6m vinnubr\u00f6g\u00f0 Samherja og n\u00e6rt\u00e6kast a\u00f0 v\u00edsa \u00ed \u201eafs\u00f6kunarbei\u00f0ni\u201c fyrirt\u00e6kisins n\u00fdlega vegna starfsemi \u201esk\u00e6ruli\u00f0adeildar\u201c \u00feess.<\/p>\n<p>\u201eVi\u00f0 viljum ekki l\u00e1ta vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sitja a\u00f0 bi\u00f0jast afs\u00f6kunar heldur draga l\u00e6rd\u00f3m af \u00feessum mist\u00f6kum og tryggja a\u00f0 ekkert sl\u00edkt gerist aftur.\u201c<\/p>\n<p>Enn er dregi\u00f0 \u00far \u2013 \u201emist\u00f6k\u201c er mun v\u00e6gara or\u00f0 en \u201e\u00e1m\u00e6lisver\u00f0ir vi\u00f0skiptah\u00e6ttir\u201c sem gengist var vi\u00f0 \u00ed upphafi.<\/p>\n<p>\u201e\u00cd \u00fev\u00ed skyni h\u00f6fum vi\u00f0 gripi\u00f0 til vi\u00f0amikilla r\u00e1\u00f0stafana.\u201c<\/p>\n<p>Ekki er minnst \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00ed hverju \u00feessar r\u00e1\u00f0stafanir felist \u00feannig a\u00f0 \u00feetta segir ekki neitt.<\/p>\n<p>\u201eFr\u00e1 upphafi hefur \u00fea\u00f0 veri\u00f0 meginmarkmi\u00f0 okkar a\u00f0 framlei\u00f0a h\u00e1g\u00e6\u00f0a sj\u00e1varafur\u00f0ir \u00ed s\u00e1tt vi\u00f0 umhverfi\u00f0 me\u00f0 r\u00edka \u00e1herslu \u00e1 sj\u00e1lfb\u00e6rni og g\u00f3\u00f0a umgengni vi\u00f0 au\u00f0lindir sj\u00e1var. Vi\u00f0 viljum halda \u00fev\u00ed \u00e1fram og horfa fram \u00e1 veginn.\u201c<\/p>\n<p>H\u00e9r kemur sj\u00e1lfsh\u00f3l um fyrirt\u00e6ki\u00f0, skreytt me\u00f0 fr\u00f6sum eins og \u201e\u00ed s\u00e1tt vi\u00f0 umhverfi\u00f0\u201c, og \u201eme\u00f0 r\u00edka \u00e1herslu \u00e1 sj\u00e1lfb\u00e6rni\u201c. \u00deetta kemur m\u00e1linu ekkert vi\u00f0 en er til \u00feess \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 skapa j\u00e1kv\u00e6\u00f0a \u00edmynd og milda hug lesenda \u00feannig a\u00f0 \u00feeir fyrirgefi frekar \u201emist\u00f6kin\u201c.<\/p>\n<p>\u201eMist\u00f6k okkar \u00ed Namib\u00edu eru ekki s\u00edst okkur sj\u00e1lfum mikil vonbrig\u00f0i. Vi\u00f0 munum ekki l\u00e1ta sl\u00edkt henda aftur.\u201c<\/p>\n<p>Sem sagt: Vi\u00f0 p\u00f6ssum okkur \u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed framt\u00ed\u00f0inni a\u00f0 l\u00e1ta ekki komast upp um okkur.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00de\u00f3tt margt hafi \u00feegar veri\u00f0 skrifa\u00f0 um n\u00fdjustu \u201eafs\u00f6kunarbei\u00f0ni\" Samherja vil \u00e9g ekki l\u00e1ta mitt eftir liggja me\u00f0 a\u00f0 greina or\u00f0r\u00e6\u00f0una \u00ed henni. \u201e\u00c1m\u00e6lisver\u00f0ir vi\u00f0skiptah\u00e6ttir fengu a\u00f0 vi\u00f0gangast \u00ed starfsemi \u00fatger\u00f0ar Samherja \u00ed Namib\u00edu.\u201c \u00cd upphafi er nota\u00f0 l\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 \u201e\u00e1m\u00e6lisver\u00f0ir\u201c \u2013 miklu v\u00e6gara or\u00f0 en \u201esakn\u00e6mir\u201c, \u201evafasamir\u201c e\u00f0a \u00f6nnur svipu\u00f0 sem hef\u00f0u komi\u00f0 til greina. [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-3950","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3950","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3950"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3950\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":3951,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3950\/revisions\/3951"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3950"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3950"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3950"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}