{"id":4061,"date":"2021-12-08T11:40:07","date_gmt":"2021-12-08T11:40:07","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=4061"},"modified":"2021-12-08T16:46:28","modified_gmt":"2021-12-08T16:46:28","slug":"breytt-fallstjorn-er-engin-malspjoll","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2021\/12\/08\/breytt-fallstjorn-er-engin-malspjoll\/","title":{"rendered":"Breytt fallstj\u00f3rn er engin m\u00e1lspj\u00f6ll"},"content":{"rendered":"<p>Me\u00f0al \u00feeirra tilbrig\u00f0a \u00ed m\u00e1li sem f\u00f3lk ergir sig stundum yfir er breytt fallstj\u00f3rn sagna. \u00deetta er ekki n\u00fdtt \u2013 \u00e9g rakst \u00e1 \u00fdmis forvitnileg d\u00e6mi \u00ed <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/7459453?iabr=on#page\/n2\/\">grein<\/a> fr\u00e1 1942:<\/p>\n<p>\u201e\u00de\u00e1 tala menn um a\u00f0 pakka einhverju inn, \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 pakka <em>eitthva\u00f0 <\/em>inn. [\u2026] \u00de\u00e1 er sagt, a\u00f0 n\u00fa \u00feurfi a\u00f0 v\u00f6kva bl\u00f3munum, v\u00f6kva g\u00f6r\u00f0unum, \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 segja: a\u00f0 v\u00f6kva <em>bl\u00f3min<\/em>, v\u00f6kva <em>gar\u00f0ana <\/em>[...]. Menn tala og um a\u00f0 [...] framlengja v\u00edxlinum, \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 framlengja <em>v\u00edxillinn<\/em>. [\u2026] \u00cd einu Reykjav\u00edkurbla\u00f0anna var [\u2026] komizt svo a\u00f0 or\u00f0i: \u201eFleiri m\u00f6rkum var ekki skora\u00f0\u201c, \u00ed sta\u00f0: Fleiri <em>m\u00f6rk <\/em>voru ekki skoru\u00f0. (Skora <em>\u00fea\u00f0<\/em>, <em>marki\u00f0<\/em>, ekki a\u00f0 skora \u00fev\u00ed, markinu).\u201c<\/p>\n<p>\u201e\u00ddmsir munu ef til vill \u00e6tla, a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9u a\u00f0eins f\u00e1einir svonefndir alm\u00fagamenn, sem haga svo m\u00e1lfari s\u00ednu, er h\u00e9r hefur veri\u00f0 fr\u00e1 sk\u00fdrt, en svo er ekki. Menntamenn vorir eru margir \u00e1 s\u00f6mu braut. [...] \u00c1g\u00e6tur \u00edslenzkuma\u00f0ur skrifar \u00ed grein einni a\u00f0 flokka \u00feeim saman m. \u00f6. or\u00f0um hann l\u00e6tur s\u00f6gnina flokka taka me\u00f0 s\u00e9r \u00fe\u00e1gufall \u00ed sta\u00f0 <em>\u00feolfalls<\/em>, talar um a\u00f0 flokka einhverju, \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 flokka <em>eitthva\u00f0<\/em>. [...] Fyrir svo sem tug \u00e1ra mundi engum \u00edslenzkumanni hafa dotti\u00f0 \u00feetta \u00ed hug.\u201c<\/p>\n<p>\u00dearna kennir \u00fdmissa grasa. \u00c9g hef aldrei heyrt \u00feolfall me\u00f0 <em>pakka inn<\/em> og Sigf\u00fas Bl\u00f6ndal gefur s\u00f6gnina upp me\u00f0 <a href=\"https:\/\/blondal.arnastofnun.is\/leit\/pakka\">\u00fe\u00e1gufalli<\/a> \u00ed <em>\u00cdslensk-danskri or\u00f0ab\u00f3k<\/em> fr\u00e1 1920-1924 \u00feannig a\u00f0 \u00fea\u00f0 hefur a.m.k. ekki veri\u00f0 n\u00fdjung \u00feegar greinin var skrifu\u00f0. Aftur \u00e1 m\u00f3ti kannast \u00e9g ekki vi\u00f0 \u00fe\u00e1gufall \u00ed d\u00e6mum eins og <em>skora m\u00f6rkum <\/em>og finn ekki \u00f6nnur d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 en \u00fea\u00f0 sem greinarh\u00f6fundur v\u00edsar til. En \u00ed fornu m\u00e1li og fram \u00e1 20. \u00f6ld var nota\u00f0 \u00fe\u00e1gufall \u00ed sambandinu <em>skora einhverjum \u00e1 h\u00f3lm<\/em> og g\u00e6ti \u00fea\u00f0 hugsanlega haft \u00e1hrif \u00fearna. N\u00fa er alltaf nota\u00f0 \u00feolfall \u00ed \u00fev\u00ed sambandi og aldrei kalla\u00f0 m\u00e1lspj\u00f6ll.<\/p>\n<p>\u00c9g kannast ekki heldur vi\u00f0 \u00fe\u00e1gufall me\u00f0 <em>flokka<\/em>, en \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 sem greinarh\u00f6fundur segir er \u00fea\u00f0 engin n\u00fdjung. \u00c9g finn nokkur d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 fr\u00e1 19. \u00f6ld, \u00fea\u00f0 elsta fr\u00e1 1877, og vel fram \u00e1 20. \u00f6ld. \u00c9g hef ekki heldur heyrt \u00fe\u00e1gufall me\u00f0 <em>v\u00f6kva<\/em> en \u00fea\u00f0 vir\u00f0ist \u00fe\u00f3 hafa t\u00ed\u00f0kast fyrir hundra\u00f0 \u00e1rum \u2013 Sigf\u00fas Bl\u00f6ndal gefur s\u00f6gnina upp me\u00f0 b\u00e6\u00f0i <a href=\"https:\/\/blondal.arnastofnun.is\/faersla\/257313\/merkja\/v%C3%B6kva\">\u00feolfalli og \u00fe\u00e1gufalli<\/a> og tekur d\u00e6mi\u00f0 <em>v\u00f6kva bl\u00f3m<\/em>(<em>um<\/em>). Aftur \u00e1 m\u00f3ti er \u00fe\u00e1gufall me\u00f0 <em>framlengja <\/em>vel \u00feekkt og i\u00f0ulega amast vi\u00f0 \u00fev\u00ed. Elsta d\u00e6mi sem \u00e9g hef fundi\u00f0 um \u00fea\u00f0 er fr\u00e1 1928.<\/p>\n<p>En \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00e1gufall s\u00e9 ekki nota\u00f0 n\u00fa me\u00f0 <em>flokka<\/em> og <em>v\u00f6kva<\/em>, svo a\u00f0 \u00e9g viti, \u00e6tti s\u00fa fallnotkun ekki a\u00f0 koma \u00e1 \u00f3vart. E\u00f0lilegt er a\u00f0 tengja <em>v\u00f6kva<\/em> vi\u00f0 sagnir eins og <em>brynna<\/em> og <em>vatna<\/em> sem b\u00e1\u00f0ar taka \u00fe\u00e1gufall. \u00dea\u00f0 er kannski svol\u00edti\u00f0 langs\u00f3ttara me\u00f0 <em>flokka<\/em> en \u00fe\u00f3 v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 tengja hana vi\u00f0 <em>ra\u00f0a<\/em> e\u00f0a <em>skipa <\/em>(<em>\u00ed flokka<\/em>) sem b\u00e1\u00f0ar taka \u00fe\u00e1gufall, e\u00f0a eitthva\u00f0 sl\u00edkt. Samb\u00e6rileg sk\u00fdring \u00e1 \u00fe\u00e1gufallinu me\u00f0 <em>framlengja<\/em> liggur ekki eins \u00ed augum uppi en h\u00fan er samt \u00f6rugglega til.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er nefnilega ekki \u00feannig a\u00f0 sl\u00edkar breytingar \u00e1 fallstj\u00f3rn stafi af \u00fev\u00ed a\u00f0 um \u201ealm\u00fagamenn\u201c s\u00e9 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a, e\u00f0a \u00fe\u00e6r megi rekja til f\u00e1visku, menntunarskorts, greindarskorts, l\u00edtillar n\u00e1msgetu, e\u00f0a hreinlega leti. \u00devert \u00e1 m\u00f3ti. Breytingarnar s\u00fdna a\u00f0 m\u00e1lnotendur eru a\u00f0 leita \u2013 leita a\u00f0 samr\u00e6mi, leita a\u00f0 fyrirmyndum, leita a\u00f0 kerfi. Vi\u00f0 eigum ekki a\u00f0 amast vi\u00f0 \u00fev\u00ed \u00fe\u00f3tt s\u00fa leit lei\u00f0i stundum til annarrar ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u en hj\u00e1 okkur \u2013 fj\u00f6ldi sagna hefur breytt um fallstj\u00f3rn fr\u00e1 fornu m\u00e1li. Vi\u00f0 eigum a\u00f0 gle\u00f0jast yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta s\u00fdnir a\u00f0 tungum\u00e1li\u00f0 er lifandi og m\u00e1lkerfi f\u00f3lks virkar. Ef \u00fea\u00f0 er ekki fagna\u00f0arefni veit \u00e9g ekki hva\u00f0 \u00fea\u00f0 er.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Me\u00f0al \u00feeirra tilbrig\u00f0a \u00ed m\u00e1li sem f\u00f3lk ergir sig stundum yfir er breytt fallstj\u00f3rn sagna. \u00deetta er ekki n\u00fdtt \u2013 \u00e9g rakst \u00e1 \u00fdmis forvitnileg d\u00e6mi \u00ed grein fr\u00e1 1942: \u201e\u00de\u00e1 tala menn um a\u00f0 pakka einhverju inn, \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 pakka eitthva\u00f0 inn. [\u2026] \u00de\u00e1 er sagt, a\u00f0 n\u00fa \u00feurfi a\u00f0 v\u00f6kva bl\u00f3munum, [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-4061","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4061","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4061"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4061\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":4065,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4061\/revisions\/4065"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4061"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4061"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4061"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}