{"id":4411,"date":"2022-08-14T09:53:14","date_gmt":"2022-08-14T09:53:14","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=4411"},"modified":"2022-08-14T09:53:14","modified_gmt":"2022-08-14T09:53:14","slug":"ad-undirbua-sig-undir-eftirspurn-eftir-einhverju","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2022\/08\/14\/ad-undirbua-sig-undir-eftirspurn-eftir-einhverju\/","title":{"rendered":"A\u00f0 undirb\u00faa sig undir eftirspurn eftir einhverju"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd Facebook-h\u00f3pnum M\u00e1lspjall voru \u00ed g\u00e6r til umr\u00e6\u00f0u or\u00f0asamb\u00f6nd \u00fear sem sama myndani\u00f0 er b\u00e6\u00f0i fyrri hluti samsetningar og sj\u00e1lfst\u00e6tt or\u00f0 (atviksor\u00f0 e\u00f0a forsetning) sem fylgir samsetningunni. Samsetta or\u00f0i\u00f0 getur b\u00e6\u00f0i veri\u00f0 s\u00f6gn, eins og <em>undirb\u00faa sig undir eitthva\u00f0<\/em>, og nafnor\u00f0, eins og <em>undirb\u00faningur undir eitthva\u00f0<\/em> og <em>eftirspurn eftir einhverju<\/em>. Sumum finnst fara illa \u00e1 sl\u00edkum tv\u00edtekningum og G\u00edsli J\u00f3nsson ama\u00f0ist t.d. \u00f3tal sinnum vi\u00f0 \u00feeim \u00ed \u00fe\u00e1ttum s\u00ednum \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu<\/em> \u2013 kalla\u00f0i \u00fe\u00e6r \u201eFr\u00f3\u00f0\u00e1rsel\u201c me\u00f0 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/1633566?iabr=on#page\/n27\/\">v\u00edsun<\/a> til \u00feess \u201ea\u00f0 \u00ed Fr\u00f3\u00f0\u00e1rundrum, sem l\u00fdst er \u00ed Eyrbyggju, lyftist selshausinn fyrst \u00ed sta\u00f0 \u00feeim mun ofar sem hann var oftar barinn ni\u00f0ur\u201c. G\u00edsla var s\u00e9rstaklega \u00ed n\u00f6p vi\u00f0 sambandi\u00f0 <em>eftirspurn eftir<\/em> og vildi \u00feess \u00ed sta\u00f0 tala um <em>spurn eftir<\/em>.<\/p>\n<p>Ekki var \u00feetta \u00fe\u00f3 sko\u00f0un allra. \u00cd einum <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/1878986?iabr=on#page\/n36\/\">\u00fe\u00e6tti<\/a> s\u00ednum birti G\u00edsli br\u00e9f fr\u00e1 Veturli\u00f0a \u00d3skarssyni m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingi sem taldi G\u00edsla stundum ganga fulllangt \u00ed \u00feessari bar\u00e1ttu og benti \u00e1 \u00fdmis d\u00e6mi \u00fear sem ekki er h\u00e6gt a\u00f0 komast hj\u00e1 tv\u00edtekningu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sleppa fyrri li\u00f0 samsetningarinnar \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e1 kemur anna\u00f0hvort \u00fat \u00f6nnur merking e\u00f0a merkingarleysa. \u00deannig er t.d. me\u00f0 samb\u00f6ndin <em>yfirlit yfir eitthva\u00f0<\/em> og <em>a\u00f0gangur a\u00f0 einhverju<\/em> \u2013 ekki er h\u00e6gt a\u00f0 segja *<em>lit yfir eitthva\u00f0<\/em> e\u00f0a *<em>gangur a\u00f0 einhverju<\/em>. Veturli\u00f0i benti \u00e1 a\u00f0 \u201espurn \u00ed merkingunni 'eftirspurn' er varla til \u00ed m\u00e6ltu m\u00e1li\u201c. G\u00edsli t\u00f3k \u00feessu vel og kva\u00f0st vi\u00f0urkenna \u201ea\u00f0 hafa gengi\u00f0 \u00fat \u00e1 ystu \u00feremi me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 and\u00e6fa \u201ea\u00f0gangur a\u00f0\u201c, \u201eeftirspurn eftir\u201c og \u201etilefni til\u201c. Hann h\u00e9lt \u00fe\u00f3 \u00e1fram a\u00f0 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/1914161?iabr=on#page\/n40\/\">hr\u00f3sa<\/a> fr\u00e9ttaf\u00f3lki fyrir notkun s\u00ed\u00f0arnefnda or\u00f0alagsins.<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 var ekki bara \u00ed m\u00e6ltu m\u00e1li sem <em>spurn eftir<\/em> var varla til. \u00c1\u00f0ur en G\u00edsli f\u00f3r a\u00f0 tala um \u00feetta vir\u00f0ist sambandi\u00f0 t\u00e6past hafa veri\u00f0 til \u00ed ritm\u00e1li heldur \u2013 \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em> er fj\u00f6ldi d\u00e6ma um <em>spurn eftir <\/em>u.\u00fe.b. 0,2% af fj\u00f6lda d\u00e6ma um <em>eftirspurn eftir<\/em> fram til 1990. \u00dea\u00f0 m\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed raun halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 <em>spurn eftir einhverju<\/em> hafi veri\u00f0 rangt m\u00e1l a.m.k. fram \u00e1 t\u00edunda \u00e1ratug s\u00ed\u00f0ustu aldar. \u00cd <em>Risam\u00e1lheildinni<\/em> sem hefur a\u00f0 geyma texta fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ustu 20 \u00e1rum er hlutfall d\u00e6ma um <em>spurn eftir<\/em> hins vegar 6,6%. Hlutfalli\u00f0 \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu<\/em> (a\u00f0 me\u00f0t\u00f6ldu <em>mbl.is<\/em>) er \u00fe\u00f3 nokkru h\u00e6rra, e\u00f0a 10,5%, sem bendir til \u00feess a\u00f0 \u00e1hrifa G\u00edsla g\u00e6ti helst \u00fear. \u00dea\u00f0 er lj\u00f3st a\u00f0 nokkur fj\u00f6ldi f\u00f3lks hefur tileinka\u00f0 s\u00e9r sambandi\u00f0 <em>spurn eftir<\/em> \u00ed riti, en \u00e9g er samt nokku\u00f0 viss um a\u00f0 \u00feetta er l\u00edti\u00f0 sem ekkert nota\u00f0 \u00ed talm\u00e1li.<\/p>\n<p>Fleiri d\u00e6mi m\u00e1 nefna um a\u00f0 h\u00e6pi\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 sleppa fyrri li\u00f0 samsetningarinnar. Arftaki G\u00edsla J\u00f3nssonar \u00ed \u00fe\u00e6ttinum \u201e\u00cdslenskt m\u00e1l\u201c \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu<\/em>, sonur hans Hj\u00f6rtur G\u00edslason, ama\u00f0ist einu sinni vi\u00f0 sambandinu <em>ummerki um<\/em> og <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/3457476?iabr=on#page\/n47\/\">sag\u00f0i<\/a>: \u201e\u00deegar forsetningin um hefur or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 forskeyti \u00ed or\u00f0inu ummerki er \u00f3\u00fearfi a\u00f0 l\u00e1ta hana fylgja me\u00f0.\u201c En annar m\u00e1lv\u00f6ndunarma\u00f0ur, J\u00f3n A\u00f0alsteinn J\u00f3nsson or\u00f0ab\u00f3karritstj\u00f3ri andm\u00e6lti \u00feessu og <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/3458677?iabr=on#page\/n48\/\">sag\u00f0i<\/a> \u201eekkert athugavert vi\u00f0 a\u00f0 segja ummerki um \u00edkveikju\u201c. \u00dea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 tala um <em>merki um yfirvofandi eldsumbrot<\/em> en ekki *<em>ummerki um yfirvofandi eldsumbrot<\/em> \u00fev\u00ed a\u00f0 <em>merki<\/em> getur merkt 'v\u00edsbendingar um eitthva\u00f0 sem <strong>g\u00e6ti<\/strong> gerst' en <em>ummerki<\/em> eru 'v\u00edsbendingar um eitthva\u00f0 sem <strong>hefur<\/strong> gerst'.<\/p>\n<p>\u00deetta eru d\u00e6mi um samb\u00f6nd me\u00f0 samsettum nafnor\u00f0, en \u00f6\u00f0ru m\u00e1li gegnir um samb\u00f6nd me\u00f0 s\u00f6gnum. \u00deau eru reyndar margfalt f\u00e6rri enda samsettar sagnir ekki \u00fdkja margar \u00ed m\u00e1linu. \u00deannig er t.d. b\u00e6\u00f0i *<em>eftirspyrja eitthva\u00f0<\/em>\/<em>einhverju<\/em> og *<em>eftirspyrja eftir einhverju <\/em>alveg fr\u00e1leitt. En \u00feegar samsett s\u00f6gn er til \u00e1 anna\u00f0 bor\u00f0 er miklu frekar h\u00e6gt a\u00f0 sleppa fyrri li\u00f0 hennar en samsvarandi nafnor\u00f0s. \u00de\u00f3tt \u00fatiloka\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 segja *<em>b\u00faningur undir<\/em> \u00ed sta\u00f0 <em>undirb\u00faningur undir<\/em> er vel h\u00e6gt a\u00f0 segja <em>b\u00faa sig undir<\/em> \u00ed sta\u00f0 <em>undirb\u00faa sig undir<\/em> \u2013 merkingin er s\u00fa sama. \u00cd \u00fev\u00ed tilviki m\u00e1 vel halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 betur fari \u00e1 a\u00f0 for\u00f0ast tv\u00edtekninguna, en d\u00e6mi um <em>undirb\u00faa undir<\/em> \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em> eru samt a.m.k. vel \u00e1 \u00feri\u00f0ja \u00fe\u00fasund, \u00feau elstu fr\u00e1 1856.<\/p>\n<p>Ni\u00f0ursta\u00f0an er s\u00fa a\u00f0 \u00fatiloka\u00f0 er a\u00f0 setja \u00f6ll d\u00e6mi af \u00feessu tagi undir sama hatt. \u00c9g held reyndar a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 undantekning frekar en regla a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 sleppa fyrri li\u00f0 samsetta or\u00f0sins \u00ed nafnor\u00f0ssamb\u00f6ndum af \u00feessu tagi og halda s\u00f6mu merkingu. Um \u00feetta er best a\u00f0 halda sig vi\u00f0 m\u00e1lvenju og b\u00faa ekki til samb\u00f6nd sem engin hef\u00f0 er fyrir, jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00feau kunni a\u00f0 vir\u00f0ast \u201er\u00f6kr\u00e9tt\u201c. Eins og \u00e9g hef margsinnis sagt fer \u00fev\u00ed fjarri a\u00f0 tungum\u00e1li\u00f0 s\u00e9 alltaf \u201er\u00f6kr\u00e9tt\u201c \u2013 e\u00f0a eigi a\u00f0 vera \u00fea\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd Facebook-h\u00f3pnum M\u00e1lspjall voru \u00ed g\u00e6r til umr\u00e6\u00f0u or\u00f0asamb\u00f6nd \u00fear sem sama myndani\u00f0 er b\u00e6\u00f0i fyrri hluti samsetningar og sj\u00e1lfst\u00e6tt or\u00f0 (atviksor\u00f0 e\u00f0a forsetning) sem fylgir samsetningunni. Samsetta or\u00f0i\u00f0 getur b\u00e6\u00f0i veri\u00f0 s\u00f6gn, eins og undirb\u00faa sig undir eitthva\u00f0, og nafnor\u00f0, eins og undirb\u00faningur undir eitthva\u00f0 og eftirspurn eftir einhverju. Sumum finnst fara illa \u00e1 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-4411","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4411","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4411"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4411\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":4412,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4411\/revisions\/4412"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4411"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4411"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4411"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}