{"id":4435,"date":"2022-08-29T17:22:08","date_gmt":"2022-08-29T17:22:08","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=4435"},"modified":"2022-09-05T16:09:02","modified_gmt":"2022-09-05T16:09:02","slug":"ad-senda-post-a-eda-til","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2022\/08\/29\/ad-senda-post-a-eda-til\/","title":{"rendered":"A\u00f0 senda p\u00f3st \u00e1 \u2013 e\u00f0a til"},"content":{"rendered":"<p>Fyrirs\u00f6gnin \u201eSk\u00f3lameistari senti fr\u00e1 s\u00e9r p\u00f3st \u00e1 alla\u201c var n\u00fdlega sett inn \u00ed Facebook-h\u00f3pinn M\u00e1lspjall til a\u00f0 vekja athygli \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fear er notu\u00f0 hin \u00f3hef\u00f0bundna \u00fe\u00e1t\u00ed\u00f0 <em>senti<\/em> sem \u00e9g hef <a href=\"https:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=https%3A%2F%2Funi.hi.is%2Feirikur%2F2020%2F08%2F14%2Feg-senti-brefid%2F%3Ffbclid%3DIwAR2c7XXFq_dSpoe0DihEF2U-qt-LNn0dZIAZAc4IZ7K-9wfjd0pAcGQoDYw&amp;h=AT1V0IbTIZTn06hDGORuk6wA0QPtEEtnAyODfVwg7rYGoplhj5-yQ60FPekKSstuuK5OGQhCYRSOdL-1Onc_4HotyrUqokBAG0UkQ5xqNx0arEioDxb6oTJL71wbbAAjJA&amp;__tn__=-UK-R&amp;c%5b0%5d=AT3-2GWtohc3Mx0ePmJdna4PlUUIC5Mmol6L9xQcx-Jd02qlU_ntH9xeikJ684lgSM4Y_VvsSgvPReZ0u6ttVXwyo759DgTavTmGmgPg265EDeUzacYU0IJSUg_dtmkeQeJJoeZQHetx5xNp5C7PN9xcKqC033rYUVyPnyReowYKNJzhDEbzjjpoKlj0VoqxHk9j0g-Ff0Q\">skrifa\u00f0<\/a> um og engin \u00e1st\u00e6\u00f0a er til a\u00f0 amast vi\u00f0. En ekki hef\u00f0i veri\u00f0 minni \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 vekja athygli \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00f6gnin <em>senda <\/em>tekur \u00fearna me\u00f0 s\u00e9r forsetninguna <em>\u00e1<\/em>. \u00dea\u00f0 er svo algengt a\u00f0 vi\u00f0 t\u00f6kum ekki eftir \u00fev\u00ed en \u00ed raun m\u00e1 kalla \u00fea\u00f0 n\u00fdjung. \u00c1 <em>t\u00edmarit.is <\/em>eru n\u00e1nast engin d\u00e6mi um <em>senda p\u00f3st \u00e1 <\/em>fyrr en um aldam\u00f3t og s\u00e1raf\u00e1 d\u00e6mi um <em>senda br\u00e9f \u00e1<\/em>. \u00c1 s\u00ed\u00f0ustu tveim \u00e1ratugum eru aftur \u00e1 m\u00f3ti fleiri hundru\u00f0 d\u00e6mi um \u00feessi samb\u00f6nd \u00e1 hverju \u00e1ri.<\/p>\n<p>S\u00f6gnin <em>senda<\/em> er ein svonefndra tveggja andlaga sagna \u2013 sagna sem taka, e\u00f0a geta teki\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r, tv\u00f6 andl\u00f6g, tvo nafnli\u00f0i eins og <em>senda s\u00fdslumanninum \u00e1byrg\u00f0arbr\u00e9f<\/em> og <em>gefa safninu b\u00e6kur<\/em>. Oft er h\u00e6gt a\u00f0 nota forsetningarli\u00f0 me\u00f0 <em>til<\/em> \u00ed sta\u00f0 annars andlagsins \u2013 segja <em>senda \u00e1byrg\u00f0arbr\u00e9f til s\u00fdslumannsins<\/em>. Sagnir eru \u00fe\u00f3 \u00f3l\u00edkar hva\u00f0 \u00feetta var\u00f0ar og me\u00f0 s\u00f6gnum eins og <em>gefa<\/em> er \u00feetta sjaldnast h\u00e6gt \u2013 vi\u00f0 getum ekki sagt *<em>gefa b\u00f3kina til hennar<\/em> heldur a\u00f0eins <em>gefa henni b\u00f3kina<\/em>. \u00deegar vi\u00f0takandinn er ekki mannvera heldur f\u00e9lag e\u00f0a stofnun er \u00fe\u00f3 stundum h\u00e6gt a\u00f0 nota forsetningarli\u00f0 \u2013 <em>gefa peninga til f\u00e1t\u00e6kra<\/em>.<\/p>\n<p>\u00cd n\u00fdlegri <a href=\"https:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=https%3A%2F%2Fskemman.is%2Fbitstream%2F1946%2F38312%2F7%2FBA-ritger%25c3%25b0_IK_loka_10.5.21.pdf%3Ffbclid%3DIwAR1Ka7axJjsw4YTFL3yfFNqNdCbDOFJWqEycKJNqLBWJjtZ_ZrYbfr855YY&amp;h=AT05K_5zMkxdyKHaH4JgJ154-4xYTEuMIdR5jln-dEAeg9W-PmRcFqCjT_GGd5a4LJMAMlk1_2YyMUwEXNdEHosE9Z_hZVQlhZlbUQwzbTC_4fZc1Ig6LnKTsSyUTTOStQ&amp;__tn__=-UK-R&amp;c%5b0%5d=AT3-2GWtohc3Mx0ePmJdna4PlUUIC5Mmol6L9xQcx-Jd02qlU_ntH9xeikJ684lgSM4Y_VvsSgvPReZ0u6ttVXwyo759DgTavTmGmgPg265EDeUzacYU0IJSUg_dtmkeQeJJoeZQHetx5xNp5C7PN9xcKqC033rYUVyPnyReowYKNJzhDEbzjjpoKlj0VoqxHk9j0g-Ff0Q\">BA-ritger\u00f0<\/a> I\u00f0unnar Krist\u00ednard\u00f3ttur er s\u00fdnt fram \u00e1 a\u00f0 \u201e\u00fev\u00ed b\u00f3kstaflegri flutning sem tveggja andlaga s\u00f6gn felur \u00ed s\u00e9r \u00fev\u00ed algengari er <em>til<\/em>-formger\u00f0in me\u00f0 henni\u201c auk \u00feess sem \u201e<em>til<\/em>-formger\u00f0in er algengari \u00feegar andlag til t\u00e1knar ekki \u00f3tv\u00edr\u00e6\u00f0a vi\u00f0takendur eins og tiltekna einstaklinga e\u00f0a h\u00f3pa\u201c \u2013 sbr. <em>gefa peninga til f\u00e1t\u00e6kra<\/em> h\u00e9r a\u00f0 framan. Me\u00f0 s\u00f6gnum eins og <em>senda<\/em> er vitaskuld oft um b\u00f3kstaflegan flutning a\u00f0 r\u00e6\u00f0a og \u00fev\u00ed gengur oftast a\u00f0 nota <em>til <\/em>me\u00f0 \u00feeim. En eins og s\u00e9st \u00ed fyrirs\u00f6gninni sem vitna\u00f0 var til \u00ed upphafi er forsetningin sem <em>senda <\/em>tekur me\u00f0 s\u00e9r ekki alltaf <em>til<\/em> \u00ed seinni t\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p>\u00cd \u00feeim s\u00e1raf\u00e1u d\u00e6mum um <em>senda \u00e1<\/em> sem eru eldri en aldarfj\u00f3r\u00f0ungs g\u00f6mul e\u00f0a svo er yfirleitt ekki veri\u00f0 a\u00f0 senda til \u00e1kve\u00f0ins vi\u00f0takanda. \u00cd <em>Austra <\/em>1887 segir t.d.: \u201eef lei\u00f0in er viss, geta menn sent br\u00e9f \u00e1 b\u00e6i \u00ed veg fyrir p\u00f3stinn\u201c. \u00cd <em>Austra <\/em>1971 segir: \u201eHannibal sendi br\u00e9f \u00e1 stofnfundinn og ba\u00f0 \u00fe\u00e1 er \u00fear s\u00e6tu aldrei \u00fer\u00edfast.\u201c \u00cd <em>Dagbla\u00f0inu<\/em> 1976 segir: \u201e\u00dea\u00f0 eina sem Barnaverndarnefnd ger\u00f0i var a\u00f0 senda br\u00e9f \u00e1 dvalarsta\u00f0 barnsins um kyrrsetningu \u00feess.\u201c \u00cd <em>Vikunni <\/em>1983 segir: \u201eEf \u00feig langar til a\u00f0 hafa samband vi\u00f0 Bubba e\u00f0a Magn\u00fas skaltu senda br\u00e9f \u00e1 eftirfarandi heimilisfang.\u201c<\/p>\n<p>En um aldam\u00f3t ver\u00f0ur sprenging \u00ed notkun <em>\u00e1<\/em> me\u00f0 <em>senda<\/em> eins og \u00e1\u00f0ur segir. Flj\u00f3tlegt er a\u00f0 ganga \u00far skugga um hva\u00f0 veldur \u00fev\u00ed: Tilkoma t\u00f6lvup\u00f3sts. Elsta d\u00e6mi sem \u00e9g finn um \u00fea\u00f0 er \u00ed <em>T\u00f6lvum\u00e1lum<\/em> 1995 \u00fear sem segir: \u201e\u00c1skrift a\u00f0 p\u00f3stlistanum er h\u00e6gt a\u00f0 panta me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 senda t\u00f6lvup\u00f3st \u00e1 netfangi\u00f0 list-proc@ismennt.is.\u201c Alla t\u00ed\u00f0 s\u00ed\u00f0an v\u00edsa langflest d\u00e6mi um <em>senda p\u00f3st \u00e1<\/em> og <em>senda br\u00e9f \u00e1<\/em>\u2013 og vitanlega \u00f6ll um <em>senda t\u00f6lvup\u00f3st \u00e1<\/em> \u2013 til t\u00f6lvup\u00f3sts, og <em>\u00e1<\/em> er margfalt algengari en <em>til<\/em> \u00ed \u00feessari merkingu. \u00dea\u00f0 sem sent er \u00e1 er oftast netfang, en einnig h\u00f3par eins og \u00ed fyrirs\u00f6gninni sem v\u00edsa\u00f0 var til \u00ed upphafi \u2013 sjaldnast einstaklingar.<\/p>\n<p>En hvers vegna er forsetningin <em>\u00e1 <\/em>notu\u00f0 frekar en <em>til<\/em> \u00feegar um t\u00f6lvup\u00f3st er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a? \u00dea\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 s\u00fdna einhverja tilfinningu m\u00e1lnotenda fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 sendingin s\u00e9 annars e\u00f0lis en \u00feegar <em>til<\/em> er notu\u00f0. \u00cd t\u00f6lvup\u00f3sti er au\u00f0vita\u00f0 ekki um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a b\u00f3kstaflegan flutning \u00e1 einhverju efnislegu, en l\u00edklega skiptir ekki minna m\u00e1li a\u00f0 vi\u00f0takandinn sem tilgreindur er me\u00f0 s\u00f6gninni er sjaldnast einstaklingur heldur netfang e\u00f0a h\u00f3pur eins og \u00e1\u00f0ur segir \u2013 sem er hli\u00f0st\u00e6tt hinum \u00f6rf\u00e1u eldri d\u00e6mum sem finnast um <em>senda \u00e1<\/em>. L\u00edklega m\u00e1 \u00fev\u00ed segja a\u00f0 \u00feessi notkun <em>senda \u00e1<\/em> s\u00e9 ekki n\u00fdjung en ytri a\u00f0st\u00e6\u00f0ur valdi \u00fev\u00ed a\u00f0 t\u00ed\u00f0nin hefur margfaldast. Vissulega m\u00e1 tengja \u00feetta enskum \u00e1hrifum eins og J\u00f3n G. Fri\u00f0j\u00f3nsson <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/4178377?iabr=on#page\/n35\/\">hefur gert<\/a> en r\u00f3tin er samt \u00edslensk.<\/p>\n<p>M\u00e9r s\u00fdnist s\u00e1 merkingarmunur vera \u00e1 <em>\u00e1<\/em> og <em>til<\/em> \u00ed \u00feessu samhengi a\u00f0 <em>\u00e1<\/em> v\u00edsi til stefnu en <em>til <\/em>til \u00e1kv\u00f6r\u00f0unarsta\u00f0ar e\u00f0a vi\u00f0takanda. \u00deegar \u00e9g <em>sendi p\u00f3st \u00e1<\/em> er \u00e9g fremur a\u00f0 tilgreina stefnuna en vi\u00f0takandann. \u00deetta \u00e1 s\u00e9r hli\u00f0st\u00e6\u00f0u \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttam\u00e1li \u2013 svipa\u00f0ur munur er \u00e1 <em>senda bolta \u00e1<\/em> og <em>senda bolta til<\/em>. Me\u00f0 s\u00f6gninni <em>gefa<\/em>, sem venjulega tekur ekki me\u00f0 s\u00e9r forsetningarli\u00f0 eins og \u00e1\u00f0ur segir, er l\u00edka h\u00e6gt a\u00f0 tala um <em>gefa bolta \u00e1<\/em> og <em>gefa bolta til<\/em>. \u00c9g held a\u00f0 \u00ed \u00f6llum \u00feessum tilvikum s\u00e9 merkingarmunur \u00e1 <em>\u00e1 <\/em>og <em>til<\/em>, \u00fe\u00f3tt hann s\u00e9 vissulega ekki mikill og oftast s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 setja anna\u00f0 sambandi\u00f0 \u00ed sta\u00f0 hins.<\/p>\n<p>\u00deetta er skemmtilegt d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 hvernig t\u00e6knibreytingar valda st\u00f3rfelldri aukningu \u00e1 notkun tiltekinnar setningager\u00f0ar sem hefur lengi veri\u00f0 til \u00ed m\u00e1linu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrirs\u00f6gnin \u201eSk\u00f3lameistari senti fr\u00e1 s\u00e9r p\u00f3st \u00e1 alla\u201c var n\u00fdlega sett inn \u00ed Facebook-h\u00f3pinn M\u00e1lspjall til a\u00f0 vekja athygli \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fear er notu\u00f0 hin \u00f3hef\u00f0bundna \u00fe\u00e1t\u00ed\u00f0 senti sem \u00e9g hef skrifa\u00f0 um og engin \u00e1st\u00e6\u00f0a er til a\u00f0 amast vi\u00f0. En ekki hef\u00f0i veri\u00f0 minni \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 vekja athygli \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-4435","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4435","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4435"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4435\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":4462,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4435\/revisions\/4462"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4435"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4435"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4435"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}