{"id":4498,"date":"2022-09-15T08:00:17","date_gmt":"2022-09-15T08:00:17","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=4498"},"modified":"2022-09-13T15:41:12","modified_gmt":"2022-09-13T15:41:12","slug":"eflum-jakvaeda-umraedu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2022\/09\/15\/eflum-jakvaeda-umraedu\/","title":{"rendered":"Eflum j\u00e1kv\u00e6\u00f0a umr\u00e6\u00f0u"},"content":{"rendered":"<p>Eins og \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 \u00f6rugglega or\u00f0i\u00f0 v\u00f6r vi\u00f0 hefur \u00f3venjumikil umr\u00e6\u00f0a veri\u00f0 um \u00edslenskuna og st\u00f6\u00f0u hennar a\u00f0 undanf\u00f6rnu, b\u00e6\u00f0i \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum og \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum. \u00deessi umr\u00e6\u00f0a hefur sn\u00faist um minnkandi \u00e1huga og neikv\u00e6\u00f0ari vi\u00f0horf til \u00edslensku sem kennslugreinar, en a\u00f0allega um aukna enskunotkun \u00e1 \u00fdmsum svi\u00f0um og nau\u00f0syn \u00feess a\u00f0 gera \u00e1tak \u00ed kennslu \u00edslensku sem annars m\u00e1ls. Fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra hefur <a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/20222309666d\/-alls-ekki-verid-nog-gert-\">teki\u00f0 undir<\/a> \u00fea\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 gera betur \u00e1 \u00fev\u00ed svi\u00f0i, framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Samtaka atvinnul\u00edfsins hefur <a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/20222307879d\/sam-tok-at-vinnu-lifsins-hvetja-fyrir-taeki-til-ad-nota-is-lenskuna\">hvatt<\/a> fyrirt\u00e6ki til a\u00f0 gera \u00edslenskunni h\u00e6rra undir h\u00f6f\u00f0i, og forma\u00f0ur \u00cdslenskrar m\u00e1lnefndar hefur <a href=\"https:\/\/www.ruv.is\/frett\/2022\/09\/09\/vill-sektarheimild-fyrir-brot-gegn-tungumalinu\">vi\u00f0ra\u00f0<\/a> \u00fe\u00e6r hugmyndir a\u00f0 fyrirt\u00e6ki ver\u00f0i beitt sektum fyrir brot \u00e1 l\u00f6gum um \u00edslenskunotkun.<\/p>\n<p>\u00deetta er t\u00edmab\u00e6r og br\u00e1\u00f0nau\u00f0synleg umr\u00e6\u00f0a. En h\u00fan getur veri\u00f0 tv\u00edbent vegna \u00feess a\u00f0 h\u00e6ttan er s\u00fa a\u00f0 h\u00fan ver\u00f0i \u00e1 of neikv\u00e6\u00f0um n\u00f3tum. \u00deegar f\u00f3lk heyrir \u00edslenskuna a\u00f0allega nefnda \u00ed tengslum vi\u00f0 versnandi st\u00f6\u00f0u hennar, f\u00e6kkun nemenda, skort \u00e1 \u00edslenskukennslu fyrir \u00fatlendinga o.s.frv. er \u00fea\u00f0 ekki til \u00feess falli\u00f0 a\u00f0 vekja \u00e1huga \u00e1 m\u00e1linu e\u00f0a efla j\u00e1kv\u00e6\u00f0 vi\u00f0horf til \u00feess. \u00dea\u00f0 getur stu\u00f0la\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e6la ungt f\u00f3lk fr\u00e1 \u00edslenskun\u00e1mi vegna \u00feess a\u00f0 \u00fev\u00ed s\u00fdnist engin framt\u00ed\u00f0 vera \u00ed \u00fev\u00ed. \u00dea\u00f0 getur or\u00f0i\u00f0 til a\u00f0 f\u00e6la \u00fatlendinga fr\u00e1 \u00edslenskun\u00e1mi vegna \u00feess a\u00f0 ekki er komi\u00f0 til m\u00f3ts vi\u00f0 \u00fe\u00e1. \u00dea\u00f0 getur dregi\u00f0 \u00far vilja fyrirt\u00e6kja til a\u00f0 nota \u00edslensku vegna \u00feess a\u00f0 \u00feau sj\u00e1 a\u00f0 \u00feau komast upp me\u00f0 a\u00f0 nota ensku og flestum vir\u00f0ist vera sama. O.s.frv.<\/p>\n<p>Neikv\u00e6\u00f0a umr\u00e6\u00f0an getur samt veri\u00f0 nau\u00f0synleg a\u00f0 vissu marki, til a\u00f0 vekja okkur og lei\u00f0a okkur fyrir sj\u00f3nir hver h\u00e6ttan s\u00e9 \u2013 en framhaldi\u00f0 skiptir \u00f6llu m\u00e1li. Vi\u00f0 \u00feekkjum \u00fev\u00ed mi\u00f0ur alltof m\u00f6rg d\u00e6mi um a\u00f0 mikil umr\u00e6\u00f0a skapist um eitthvert m\u00e1l, skipa\u00f0ar s\u00e9u nefndir til a\u00f0 fjalla um \u00fea\u00f0 og skrifa\u00f0ar \u00edtarlegar sk\u00fdrslur me\u00f0 till\u00f6gum um a\u00f0ger\u00f0ir \u2013 en svo gerist ekkert. En ef ekkert er gert breytist umr\u00e6\u00f0an ekki og heldur \u00e1fram a\u00f0 vera neikv\u00e6\u00f0. \u00dear me\u00f0 erum vi\u00f0 f\u00f6st \u00ed v\u00edtahring \u2013 neikv\u00e6\u00f0 umr\u00e6\u00f0a kallar \u00e1 neikv\u00e6\u00f0 vi\u00f0horf sem aftur vi\u00f0halda neikv\u00e6\u00f0ri umr\u00e6\u00f0u. Eina lei\u00f0in til a\u00f0 losna \u00far \u00feessum v\u00edtahring er a\u00f0 gr\u00edpa til a\u00f0ger\u00f0a. Ef f\u00f3lk s\u00e9r a\u00f0 eitthva\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 gera \u2013 og eitthva\u00f0 er gert \u2013 breytist andinn \u00ed umr\u00e6\u00f0unni.<\/p>\n<p>S\u00fa umr\u00e6\u00f0a sem hefur veri\u00f0 \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum a\u00f0 undanf\u00f6rnu hefur hreyft vi\u00f0 \u00fdmsum en \u00fea\u00f0 er samt h\u00e6tt vi\u00f0 a\u00f0 h\u00fan hafi ekki n\u00e1\u00f0 n\u00f3gu miki\u00f0 til \u00feeirra sem h\u00fan \u00feyrfti helst a\u00f0 n\u00e1 til \u2013 unga f\u00f3lksins sem ber \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00edslenskan ver\u00f0i t\u00f6lu\u00f0 h\u00e9r \u00e1fram. Ungt f\u00f3lk horfir l\u00edti\u00f0 \u00e1 l\u00ednulegt sj\u00f3nvarp, f\u00e6r fr\u00e9ttir s\u00ednar fremur af samf\u00e9lagsmi\u00f0lum en \u00far hef\u00f0bundnum fj\u00f6lmi\u00f0lum, og er t.d. ekki fj\u00f6lmennt \u00ed \u00feessum h\u00f3pi. H\u00e6tt er vi\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri til l\u00edtils og fyrst og fremst hall\u00e6rislegt ef m\u00e9r e\u00f0a \u00f6\u00f0rum dytti \u00ed hug a\u00f0 hefja einhverja \u00edslenskuvakningu \u00e1 TikTok. \u00dearna \u00fearf samtal milli f\u00f3lks og \u00fear kemur til <strong>ykkar<\/strong> kasta. F\u00f3lk \u00ed \u00feessum h\u00f3pi er foreldrar, kennarar, afar og \u00f6mmur. <strong>\u00dei\u00f0<\/strong> \u00feurfi\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00feessi m\u00e1l vi\u00f0 unga f\u00f3lki\u00f0 ykkar \u2013 \u00e1 j\u00e1kv\u00e6\u00f0um n\u00f3tum.<\/p>\n<p>\u00dev\u00ed fer nefnilega fjarri a\u00f0 umr\u00e6\u00f0an \u00feurfi a\u00f0 vera neikv\u00e6\u00f0 \u2013 a\u00f0 allt s\u00e9 \u00ed kaldakoli og \u00edslenskan eigi s\u00e9r enga framt\u00ed\u00f0. \u00dea\u00f0 er miki\u00f0 frj\u00f3magn \u00ed \u00edslenskunni. Fleira f\u00f3lk talar \u00edslensku en nokkru sinni fyrr. Fleiri b\u00e6kur eru gefnar \u00fat \u00e1 \u00cdslandi mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0at\u00f6lu en \u00ed nokkru \u00f6\u00f0ru landi, og barna- og unglingab\u00f3kum hefur fj\u00f6lga\u00f0 mj\u00f6g \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum. Fj\u00f6ldi erlendra sk\u00e1ldverka eru \u00fe\u00fddd \u00e1 \u00edslensku. Skrif \u00e1 \u00edslensku eru meiri og almennari en nokkru sinni fyrr, ekki s\u00edst t\u00f6lvup\u00f3stur, skrif \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum og \u00fdmiss konar textabo\u00f0. Ger\u00f0 kvikmynda og sj\u00f3nvarpsefnis \u00e1 \u00edslensku er \u00ed bl\u00f3ma. \u00cdslenska er n\u00fa a\u00f0 ver\u00f0a gjaldgeng \u00ed stafr\u00e6nu umhverfi til jafns vi\u00f0 tungum\u00e1l miklu st\u00e6rri \u00fej\u00f3\u00f0a. Framt\u00ed\u00f0 \u00edslenskunnar er bj\u00f6rt \u2013 ef vi\u00f0 viljum \u00fea\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Eins og \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 \u00f6rugglega or\u00f0i\u00f0 v\u00f6r vi\u00f0 hefur \u00f3venjumikil umr\u00e6\u00f0a veri\u00f0 um \u00edslenskuna og st\u00f6\u00f0u hennar a\u00f0 undanf\u00f6rnu, b\u00e6\u00f0i \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum og \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum. \u00deessi umr\u00e6\u00f0a hefur sn\u00faist um minnkandi \u00e1huga og neikv\u00e6\u00f0ari vi\u00f0horf til \u00edslensku sem kennslugreinar, en a\u00f0allega um aukna enskunotkun \u00e1 \u00fdmsum svi\u00f0um og nau\u00f0syn \u00feess a\u00f0 gera \u00e1tak \u00ed kennslu [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-4498","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4498","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4498"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4498\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":4499,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4498\/revisions\/4499"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4498"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4498"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4498"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}