{"id":4534,"date":"2022-09-26T08:00:08","date_gmt":"2022-09-26T08:00:08","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=4534"},"modified":"2022-09-25T11:38:23","modified_gmt":"2022-09-25T11:38:23","slug":"naudsynlegar-vidbaetur-vid-islenska-malstefnu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2022\/09\/26\/naudsynlegar-vidbaetur-vid-islenska-malstefnu\/","title":{"rendered":"Nau\u00f0synlegar vi\u00f0b\u00e6tur vi\u00f0 \u00edslenska m\u00e1lstefnu"},"content":{"rendered":"<p>Endursko\u00f0u\u00f0 <a href=\"http:\/\/islenskan.is\/images\/Islensk_malstefna_sept_2021.pdf\">\u00edslensk m\u00e1lstefna<\/a> fyrir 2021-2030 er \u00e1g\u00e6t um margt og h\u00e6gt a\u00f0 taka undir flest sem \u00ed henni stendur. En \u00fea\u00f0 er ekki n\u00f3g \u2013 \u00ed hana vantar efnis\u00fe\u00e6tti sem nau\u00f0synlegt hef\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 taka fyrir. \u00deannig er engan v\u00edsi a\u00f0 endursko\u00f0un \u00edslensks m\u00e1lsta\u00f0als a\u00f0 finna \u00ed stefnunni, \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 \u00ed henni s\u00e9 l\u00f6g\u00f0 \u00e1hersla \u00e1 nau\u00f0syn \u00feess a\u00f0 m\u00e1lsta\u00f0allinn taki breytingum \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 breytingar \u00e1 samf\u00e9laginu. Sigurlaug Soff\u00eda Fri\u00f0\u00fej\u00f3fsd\u00f3ttir l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur hefur gert \u00fattekt \u00e1 stefnunni \u00ed <a href=\"http:\/\/mau.diva-portal.org\/smash\/record.jsf?fbclid=IwAR3ScrnX3LfSjy3Gx4M_wR5BNAKJmYPCxp3k0i4EeDGtR0F3969sh4Sy90c&amp;pid=diva2%3A1678229&amp;dswid=4244\">meistararitger\u00f0<\/a> og bori\u00f0 hana saman vi\u00f0 <a href=\"https:\/\/www.stjornarradid.is\/media\/menntamalaraduneyti-media\/media\/ritogskyrslur\/islenska_til_alls.pdf\">m\u00e1lstefnuna<\/a> fr\u00e1 2009, og \u00e9g er samm\u00e1la \u00fev\u00ed mati hennar a\u00f0 \u00fe\u00f3tt stefnan s\u00e9 framf\u00f6r fr\u00e1 fyrri stefnu hef\u00f0i \u00feurft a\u00f0 leggja meiri \u00e1herslu \u00e1 inngildingu innflytjenda \u00ed m\u00e1lsamf\u00e9lagi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00cd tengslum vi\u00f0 \u00feetta hef\u00f0i \u00feurft a\u00f0 fjalla \u00edtarlega um st\u00f6\u00f0u og hlutverk ensku \u00e1 \u00cdslandi \u00ed m\u00e1lstefnunni. Me\u00f0 s\u00edvaxandi fj\u00f6lda \u00fatlendinga \u00ed samf\u00e9laginu og \u00e1 \u00edslenskum vinnumarka\u00f0i vakna fj\u00f6lmargar spurningar, svo sem: Hven\u00e6r og til hverra er e\u00f0lilegt a\u00f0 gera kr\u00f6fur um \u00edslenskukunn\u00e1ttu? Vi\u00f0 hva\u00f0a a\u00f0st\u00e6\u00f0ur er e\u00f0lilegt e\u00f0a \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milegt a\u00f0 nota ensku? Hvernig tryggjum vi\u00f0 hagsmuni og r\u00e9ttindi f\u00f3lks sem ekki kann \u00edslensku? Hvernig tryggjum vi\u00f0 hagsmuni og r\u00e9ttindi f\u00f3lks sem ekki kann ensku? Hvernig au\u00f0veldum vi\u00f0 f\u00f3lki me\u00f0 anna\u00f0 m\u00f3\u00f0urm\u00e1l a\u00f0 taka fullan \u00fe\u00e1tt \u00ed samf\u00e9laginu? Hvernig geta \u00edslenska og enska \u00e1tt fri\u00f0samlegt og gott samb\u00fdli \u00ed m\u00e1lsamf\u00e9laginu?<\/p>\n<p>Ekki er v\u00edst a\u00f0 sv\u00f6r vi\u00f0 \u00f6llum \u00feessum spurningum eigi erindi \u00ed \u00edslenska m\u00e1lstefnu en \u00fear er samt mj\u00f6g br\u00fdnt a\u00f0 sta\u00f0a og r\u00e9ttindi ensku \u00ed m\u00e1lsamf\u00e9laginu ver\u00f0i tekin til umr\u00e6\u00f0u. Fyrirs\u00e9\u00f0 er a\u00f0 enskunotkun mun aukast \u00e1 fj\u00f6lm\u00f6rgum svi\u00f0um \u00fej\u00f3\u00f0l\u00edfsins \u00e1 n\u00e6stu \u00e1rum og mikilv\u00e6gt a\u00f0 s\u00fa aukning ver\u00f0i ekki skipulags- og eftirlitslaus, heldur ver\u00f0i reynt a\u00f0 st\u00fdra henni \u00ed \u00feann farveg sem sker\u00f0ir hlut \u00edslensku minnst. Ekki er fjalla\u00f0 neitt um \u00feetta \u00ed m\u00e1lstefnunni, en \u00fe\u00f3 ver\u00f0ur a\u00f0 geta \u00feess a\u00f0 samkv\u00e6mt <a href=\"http:\/\/islenskan.is\/images\/Fundargerdir\/6-2022-Stjorn-islenskrar-malnefndar.pdf\">fundarger\u00f0<\/a> stj\u00f3rnar \u00cdslenskrar m\u00e1lnefndar er \u00e1forma\u00f0 a\u00f0 halda m\u00e1l\u00feing um samb\u00fdli \u00edslensku og ensku n\u00e6sta vor. Mikilv\u00e6gt er a\u00f0 \u00fea\u00f0 m\u00e1l\u00feing ver\u00f0i n\u00fdtt til stefnum\u00f3tunar \u00ed \u00feessum m\u00e1lum sem ver\u00f0i hluti af \u00edslenskri m\u00e1lstefnu.<\/p>\n<p>En fleira vantar \u00ed stefnuna. \u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 tengsl tungum\u00e1ls og kyns hafi veri\u00f0 mj\u00f6g til umr\u00e6\u00f0u \u00e1 undanf\u00f6rnum \u00e1rum er ekki viki\u00f0 einu or\u00f0i a\u00f0 \u00fev\u00ed efni \u00ed m\u00e1lstefnunni \u2013 hugtaki\u00f0 <em>kynhlutlaust m\u00e1l<\/em> er \u00fear hvergi nefnt. \u00deetta er vissulega umdeilt, vi\u00f0kv\u00e6mt og vandme\u00f0fari\u00f0 m\u00e1l \u2013 l\u00edklega \u00fea\u00f0 svi\u00f0 tungum\u00e1lsins \u00fear sem mest \u00f3lga og heitastar tilfinningar eru um \u00feessar mundir. En \u00feeim mun meiri \u00e1st\u00e6\u00f0a hef\u00f0i veri\u00f0 til \u00feess a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 til umr\u00e6\u00f0u. Ef til vill hefur stj\u00f3rn \u00cdslenskrar m\u00e1lnefndar liti\u00f0 svo \u00e1 a\u00f0 <em><a href=\"http:\/\/islenskan.is\/images\/skyrslur\/Skyrsla-um-kynhlutlaust-mal.pdf\">Sk\u00fdrsla um kynhlutlaust m\u00e1l<\/a><\/em> sem h\u00fan l\u00e9t vinna \u00ed fyrra og sam\u00feykkti \u00e1 svipu\u00f0um t\u00edma og m\u00e1lstefnuna dyg\u00f0i. En s\u00fa sk\u00fdrsla hefur veri\u00f0 <a href=\"http:\/\/islenskan.is\/images\/skyrslur\/Bref-til-malnefndar-kynhlutlaust_mal.pdf\">gagnr\u00fdnd<\/a> og nau\u00f0synlegt er a\u00f0 \u00feetta efni fari inn \u00ed m\u00e1lstefnuna sj\u00e1lfa.<\/p>\n<p>\u00deessa umr\u00e6\u00f0u hef\u00f0i einnig \u00feurft a\u00f0 taka upp \u00e1 brei\u00f0ari grundvelli og fjalla almennt um m\u00e1l og mannr\u00e9ttindi, ekki s\u00edst m\u00e1lnotkun \u00fdmissa minnihlutah\u00f3pa og f\u00f3lks \u00ed vi\u00f0kv\u00e6mri st\u00f6\u00f0u svo sem trans f\u00f3lks, fatla\u00f0s f\u00f3lks o.fl. \u00deessir h\u00f3par hafa a\u00f0 undanf\u00f6rnu gert \u00fdmsar tilraunir til a\u00f0 breyta or\u00f0f\u00e6ri og or\u00f0r\u00e6\u00f0u um sig en \u00fe\u00e6r tilraunir hafa stundum m\u00e6tt mikilli andst\u00f6\u00f0u og jafnvel veri\u00f0 haf\u00f0ar a\u00f0 h\u00e1\u00f0i og spotti. \u00cd stefnunni er vissulega tala\u00f0 um mikilv\u00e6gi \u00feess a\u00f0 \u201ebera vir\u00f0ingu fyrir m\u00e1lnotkun allra sem tala \u00edslensku og g\u00e6ta \u00feess a\u00f0 m\u00e1lnotkun s\u00e9 ekki \u00fatilokandi\u201c og a\u00f0 \u201enota or\u00f0 og or\u00f0f\u00e6ri um mismunandi \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsh\u00f3pa sem f\u00f3lk \u00ed \u00feeim h\u00f3pum k\u00fds sj\u00e1lft\u201c en \u00e6skilegt hef\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 helga \u00feessu efni heilan kafla.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt stj\u00f3rn \u00cdslenskrar m\u00e1lnefndar hafi sam\u00feykkt hina endursko\u00f0u\u00f0u m\u00e1lstefnu fyrir \u00e1ri, og h\u00fan gildi fr\u00e1 2021, hefur l\u00edti\u00f0 fari\u00f0 fyrir kynningu \u00e1 henni. Sk\u00fdringin mun vera s\u00fa a\u00f0 \u00e6tlunin er a\u00f0 leggja m\u00e1lstefnuna fram sem <a href=\"http:\/\/islenskan.is\/images\/Fundargerdir\/1-2022-Stjorn-islenskrar-malnefndar.pdf\">\u00feings\u00e1lyktun<\/a> \u00ed haust, eins og gert var vi\u00f0 fyrri m\u00e1lstefnu \u00e1 s\u00ednum t\u00edma. \u00dear sem stefnan \u00e1 a\u00f0 gilda allan \u00feri\u00f0ja \u00e1ratuginn, allt til 2030, er mikilv\u00e6gt a\u00f0 \u00ed henni s\u00e9 teki\u00f0 \u00e1 m\u00e1lum sem fyrirsj\u00e1anlega ver\u00f0a afdrifar\u00edk fyrir \u00edslenskuna og fyrirfer\u00f0armikil \u00ed samf\u00e9lagsumr\u00e6\u00f0unni \u00e1 n\u00e6stu \u00e1rum. \u00dea\u00f0 er enn h\u00e6gt a\u00f0 b\u00e6ta vi\u00f0 efnis\u00fe\u00e1ttum sem \u00e1 vantar fyrir \u00feinglega me\u00f0fer\u00f0 m\u00e1lstefnunnar og \u00e9g vonast til a\u00f0 \u00ed \u00feeirri stefnu sem Al\u00feingi sam\u00feykkir ver\u00f0i teki\u00f0 \u00e1 \u00feeim m\u00e1lum sem nefnd eru h\u00e9r a\u00f0 framan.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Endursko\u00f0u\u00f0 \u00edslensk m\u00e1lstefna fyrir 2021-2030 er \u00e1g\u00e6t um margt og h\u00e6gt a\u00f0 taka undir flest sem \u00ed henni stendur. En \u00fea\u00f0 er ekki n\u00f3g \u2013 \u00ed hana vantar efnis\u00fe\u00e6tti sem nau\u00f0synlegt hef\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 taka fyrir. \u00deannig er engan v\u00edsi a\u00f0 endursko\u00f0un \u00edslensks m\u00e1lsta\u00f0als a\u00f0 finna \u00ed stefnunni, \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 \u00ed henni s\u00e9 l\u00f6g\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-4534","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4534","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4534"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4534\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":4539,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4534\/revisions\/4539"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4534"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4534"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4534"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}