{"id":4684,"date":"2022-11-19T08:00:19","date_gmt":"2022-11-19T08:00:19","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=4684"},"modified":"2022-11-18T23:37:59","modified_gmt":"2022-11-18T23:37:59","slug":"kynhlutlaust-mal-er-politik-ekki-malfraedi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2022\/11\/19\/kynhlutlaust-mal-er-politik-ekki-malfraedi\/","title":{"rendered":"Kynhlutlaust m\u00e1l er p\u00f3lit\u00edk, ekki m\u00e1lfr\u00e6\u00f0i"},"content":{"rendered":"<p>Undanfari\u00f0 hefur veri\u00f0 h\u00e9r talsver\u00f0 umr\u00e6\u00f0a um kynhlutlaust m\u00e1l og ekki \u00ed fyrsta skipti. En \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 \u00feetta m\u00e1l hafi veri\u00f0 r\u00e6tt fram og aftur og \u00fdmis sj\u00f3narmi\u00f0 komi\u00f0 fram finnst m\u00e9r umr\u00e6\u00f0an hjakka d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00ed sama farinu. \u00cd raun og veru held \u00e9g a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekki mikill \u00e1greiningur um sta\u00f0reyndir m\u00e1lsins, svona fr\u00e1 m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegu sj\u00f3narmi\u00f0i a.m.k. \u00dea\u00f0 er lj\u00f3st a\u00f0 af s\u00f6gulegum \u00e1st\u00e6\u00f0um er m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegt karlkyn og hefur veri\u00f0 nota\u00f0 sem \u201ehlutlaust\u201c (\u00f3marka\u00f0) kyn, \u00fe.e. nota\u00f0 \u00ed v\u00edsun til \u00f3skilgreindra einstaklinga og h\u00f3pa. \u00dea\u00f0 er jafnframt lj\u00f3st a\u00f0 \u00feau sem hafa alist upp \u00ed \u00edslensku m\u00e1lsamf\u00e9lagi hafa vanist \u00feessari notkun \u00e1 m\u00e1lt\u00f6kuskei\u00f0i og h\u00fan er inngr\u00f3in \u00ed m\u00e1lfar \u00feeirra \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00edslenska er gegns\u00fdr\u00f0 af m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegu kyni.<\/p>\n<p>Vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 erum alin upp vi\u00f0 a\u00f0 karlkyni\u00f0 s\u00e9 hlutlaust kyn finnst okkur setningar \u00fear sem brug\u00f0i\u00f0 er \u00fat af \u00fev\u00ed vera undarlegar og jafnvel \u00f3t\u00e6kar \u2013 setningar eins og <em>ekkert veit neitt og \u00f6ll eru a\u00f0 gera sitt besta<\/em>. En \u00f6\u00f0ru m\u00e1li gegnir ef vi\u00f0 breytum d\u00e6minu \u00f6rl\u00edti\u00f0 \u2013 segjum <em>ekkert <strong>\u00feeirra <\/strong>veit neitt og \u00f6ll <strong>b\u00f6rnin<\/strong> eru a\u00f0 gera sitt besta<\/em>. \u00dearna er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 afmarka h\u00f3pinn \u2013 ekki er lengur um v\u00edsun til \u00f3skilgreinds h\u00f3ps a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. \u00deetta s\u00fdnir a\u00f0 hvorugkynsmyndirnar geta vel v\u00edsa\u00f0 til f\u00f3lks \u2013 \u00fea\u00f0 er bara ekki hef\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e6r standi einar s\u00e9r og \u00feess vegna finnst okkur fyrra d\u00e6mi\u00f0 undarlegt eins og flest tilbrig\u00f0i \u00ed m\u00e1li sem vi\u00f0 erum ekki v\u00f6n. En vitanlega getum vi\u00f0 vanist sl\u00edkum d\u00e6mum. Hef\u00f0ir m\u00e1lsins geta breyst \u2013 og gera \u00fea\u00f0 oft.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er ekkert \u00ed e\u00f0li \u00edslenskunnar sem segir a\u00f0 karlkyn hlj\u00f3ti a\u00f0 vera hlutlaust kyn, \u00fe\u00f3tt fyrir \u00fev\u00ed s\u00e9 vissulega l\u00f6ng og r\u00edk hef\u00f0. En ef vi\u00f0 hef\u00f0um alist upp vi\u00f0 a\u00f0 hvorugkyn v\u00e6ri hlutlaust, alist upp vi\u00f0 d\u00e6mi eins og <em>ekkert veit neitt og \u00f6ll eru a\u00f0 gera sitt besta<\/em>, \u00fe\u00e1 fyndist okkur \u00feau fullkomlega e\u00f0lileg. Au\u00f0vita\u00f0 hafa engin sem komin eru af m\u00e1lt\u00f6kuskei\u00f0i alist upp vi\u00f0 \u00feetta \u2013 enn sem komi\u00f0 er \u2013 og finnst \u00fea\u00f0 \u00feess vegna framandi. En ef vi\u00f0 f\u00e6rum a\u00f0 heyra og sj\u00e1 margar sl\u00edkar setningar er engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 \u00e6tla anna\u00f0 en vi\u00f0 myndum venjast \u00feeim sm\u00e1tt og sm\u00e1tt eins og \u00f6\u00f0rum n\u00fdjungum \u00ed m\u00e1li sem brei\u00f0ast \u00fat. Au\u00f0vita\u00f0 t\u00e6ki \u00fea\u00f0 t\u00edma og sl\u00edk grundvallarbreyting v\u00e6ri \u00f6rugglega nokkra \u00e1ratugi a\u00f0 n\u00e1 til alls m\u00e1lsamf\u00e9lagsins.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 hefur l\u00edka veri\u00f0 bent \u00e1 margs konar \u00f3samr\u00e6mi sem breyting af \u00feessu tagi g\u00e6ti valdi\u00f0, a.m.k. me\u00f0an h\u00fan v\u00e6ri a\u00f0 ganga yfir. \u00de\u00e6r \u00e1bendingar eiga alveg r\u00e9tt \u00e1 s\u00e9r \u2013 \u00fea\u00f0 er lj\u00f3st a\u00f0 sumar breytingar eru har\u00f0ari undir t\u00f6nn en a\u00f0rar. \u00c9g er t.d. or\u00f0inn svo vanur <em>\u00f6ll velkomin<\/em> a\u00f0 \u00e9g er h\u00e6ttur a\u00f0 kippa m\u00e9r upp vi\u00f0 \u00fea\u00f0, og <em>\u00f6ll eru a\u00f0 gera sitt besta<\/em> truflar mig l\u00edti\u00f0, en \u00e9g \u00e1 d\u00e1l\u00edti\u00f0 erfitt me\u00f0 <em>ekkert veit neitt<\/em>. En \u00fe\u00f3tt \u00fearna skapist eitthvert \u00f3samr\u00e6mi eru \u00fea\u00f0 \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r ekki r\u00f6k gegn breytingunni. \u00dea\u00f0 er ekki eins og tungum\u00e1li\u00f0 s\u00e9 fullkomlega r\u00f6kr\u00e9tt kerfi fyrir. \u00dea\u00f0 er au\u00f0velt a\u00f0 benda \u00e1 \u00f3tal d\u00e6mi um hvers kyns \u00f3samr\u00e6mi \u00e1 \u00fdmsum svi\u00f0um m\u00e1lsins \u2013 \u00f3samr\u00e6mi sem vi\u00f0 t\u00f6kum oftast ekkert eftir og truflar okkur alls ekki neitt.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er oft sagt a\u00f0 breyting \u00e1 hlutlausu kyni s\u00e9 \u00e1st\u00e6\u00f0ulaus og \u00f3\u00fe\u00f6rf vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 bygg\u00f0 \u00e1 \u00feeim misskilningi a\u00f0 m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegt karlkyn v\u00edsi einungis til karla. En \u00fearna er ekki um neinn misskilning a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. F\u00f3lk sem a\u00f0hyllist \u00feessa breytingu gerir s\u00e9r \u00f6rugglega \u00e1g\u00e6tlega lj\u00f3st a\u00f0 karlkyni\u00f0 er og hefur veri\u00f0 nota\u00f0 \u00ed almennri v\u00edsun og ekki bundi\u00f0 vi\u00f0 karla. En \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekki a\u00f0 breytingin s\u00e9 \u00e1st\u00e6\u00f0ulaus og \u00f3\u00fe\u00f6rf. \u00deau sem a\u00f0hyllast breytingu telja nefnilega a\u00f0 \u00feessi notkun karlkynsins s\u00e9 \u00f3heppileg vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 tengjum m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegt karlkyn vi\u00f0 karlmenn, me\u00f0vita\u00f0 og \u00f3me\u00f0vita\u00f0, og notkun \u00feess \u00ed kynhlutlausri merkingu s\u00e9 \u00fev\u00ed til \u00feess fallin a\u00f0 vi\u00f0halda valdast\u00f6\u00f0u karla \u00ed samf\u00e9laginu.<\/p>\n<p>N\u00fa getur f\u00f3lk vitanlega veri\u00f0 samm\u00e1la e\u00f0a \u00f3samm\u00e1la \u00feessari afst\u00f6\u00f0u, en a\u00f0alatri\u00f0i\u00f0 er a\u00f0 forsendan fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 vilja breyta hlutlausu kyni er p\u00f3lit\u00edsk en ekki m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ileg. \u00deess vegna hefur l\u00edti\u00f0 upp \u00e1 sig a\u00f0 beita m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegum r\u00f6kum gegn \u00feessari breytingu. Og breyting af \u00feessu tagi sem ger\u00f0 er \u00e1 p\u00f3lit\u00edskum forsendum \u00fearf a\u00f0 vekja athygli og \u00f6gra, til d\u00e6mis me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 nota tilbrig\u00f0i \u00ed m\u00e1li sem sumum e\u00f0a flestum finnst \u00f3t\u00e6k og kalla fram sterk vi\u00f0br\u00f6g\u00f0. \u00dea\u00f0 er \u00ed \u00fe\u00e1gu hinna p\u00f3lit\u00edsku markmi\u00f0a. Jafnframt skapast heitar umr\u00e6\u00f0ur um tungum\u00e1li\u00f0 og \u00fea\u00f0 er gott \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00fdnir a\u00f0 okkur er ekki sama um \u00edslenskuna. \u00c9g get ekki s\u00e9\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 ska\u00f0i tungum\u00e1li\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Undanfari\u00f0 hefur veri\u00f0 h\u00e9r talsver\u00f0 umr\u00e6\u00f0a um kynhlutlaust m\u00e1l og ekki \u00ed fyrsta skipti. En \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 \u00feetta m\u00e1l hafi veri\u00f0 r\u00e6tt fram og aftur og \u00fdmis sj\u00f3narmi\u00f0 komi\u00f0 fram finnst m\u00e9r umr\u00e6\u00f0an hjakka d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00ed sama farinu. \u00cd raun og veru held \u00e9g a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekki mikill \u00e1greiningur um sta\u00f0reyndir m\u00e1lsins, svona [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-4684","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4684","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4684"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4684\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":4685,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4684\/revisions\/4685"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4684"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4684"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4684"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}