{"id":4750,"date":"2022-12-12T09:36:29","date_gmt":"2022-12-12T09:36:29","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=4750"},"modified":"2022-12-12T09:46:56","modified_gmt":"2022-12-12T09:46:56","slug":"ordraedugreining-upprifjun","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2022\/12\/12\/ordraedugreining-upprifjun\/","title":{"rendered":"Or\u00f0r\u00e6\u00f0ugreining \u2013 upprifjun"},"content":{"rendered":"<p>Yfirl\u00fdsingar \u00edslenskra \u00fatger\u00f0arfyrirt\u00e6kja sem \u00feau birta eftir a\u00f0 hafa lent milli tannanna \u00e1 f\u00f3lki vegna starfsh\u00e1tta sinna eru eiginlega s\u00e9rst\u00f6k b\u00f3kmenntagrein, einkar forvitnileg fyrir \u00e1hugaf\u00f3lk um or\u00f0r\u00e6\u00f0ugreiningu \u2013 sem vi\u00f0 \u00e6ttum \u00f6ll a\u00f0 vera, til a\u00f0 geta s\u00e9\u00f0 \u00ed gegnum hvernig stj\u00f3rnv\u00f6ld og valdamikil \u00f6fl beita tungum\u00e1linu s\u00e9r \u00ed hag. \u00c9g hef \u00e1\u00f0ur greint h\u00e9r <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/10\/25\/misnotkun-tungumalsins\/?fbclid=IwAR0ApiIpdd2IUGJdhISJ8AwkHpXmcuHvHY0niEhP3jBINDVEfQYUvyoEZQM\">afs\u00f6kunarbei\u00f0ni Gunnvarar<\/a> og <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2021\/05\/31\/ordraedugreining-fyrir-byrjendur\/?fbclid=IwAR33OfGk-2Z9QilCz3u6jMdmMMTRGYIxRzrclzuhw_LUDxlIa9Qmti0ouLA\">fyrri<\/a> og <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2021\/06\/23\/ordraedugreining-fyrir-lengra-komna\/?fbclid=IwAR0LdFyf-IBIQ_SrPhY6-9wtDY61PZS4rZcF4Bknf5BVer9l7rbi-oPx9qk\">seinni afs\u00f6kunarbei\u00f0ni Samherja<\/a> og n\u00fa b\u00e6ttist ein \u00ed sarpinn \u2013 <a href=\"https:\/\/www.brim.is\/is\/frettir\/yfirlysing-fra-brim-hf?fbclid=IwAR13WUbdcW7JBzwvK42QHARfhV_TRamk3VXwRMFtD7DOgeE2Ai4VOj87U3s\">yfirl\u00fdsing Brims<\/a> vegna <a href=\"https:\/\/www.ruv.is\/frettir\/innlent\/2022-12-11-brotnadi-nidur-eftir-rod-afalla-og-var-sagt-upp?fbclid=IwAR1aNtzsLjKwBqoX43DSCoKuAC-GYwr_J9ZPwK7oWSBdMZpmHB0Dk1bereE\">framkomu<\/a> vi\u00f0 skipverja \u00e1 einum togara fyrirt\u00e6kisins. S\u00fa \u201eafs\u00f6kunarbei\u00f0ni\u201c birtist \u00e1 vef fyrirt\u00e6kisins \u00ed g\u00e6r.<\/p>\n<p>\u201eBrimi \u00feykir mi\u00f0ur hvernig m\u00e1l fyrrum starfsmanns f\u00e9lagsins hafa \u00fer\u00f3ast en hann var sj\u00f3ma\u00f0ur um bor\u00f0 \u00e1 skipi f\u00e9lagsins \u00e1 sj\u00f3 \u00fati \u00feegar fr\u00e9ttir b\u00e1rust af sorglegum atbur\u00f0i \u00e1 Bl\u00f6ndu\u00f3si fyrr \u00e1 \u00e1rinu \u00fear sem fj\u00f6lskylduvinir sj\u00f3mannsins voru f\u00f3rnarlamb \u00e1r\u00e1sar. Brim harmar a\u00f0 verkferlar f\u00e9lagsins hafi brug\u00f0ist \u00ed \u00feessu m\u00e1li. Mikilv\u00e6gt er a\u00f0 fyrirt\u00e6ki\u00f0 s\u00fdni starfsf\u00f3lki og a\u00f0stendum \u00feess sam\u00fa\u00f0 og skilning vi\u00f0 eins erfi\u00f0ar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur og komu upp \u00ed \u00feessu tilviki. Brim mun endursko\u00f0a verkferla f\u00e9lagsins og vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 vi\u00f0 erfi\u00f0um \u00e1f\u00f6llum starfsf\u00f3lks. A\u00f0 \u00f6\u00f0ru leiti [svo] mun Brim ekki tj\u00e1 sig um m\u00e1lefni einstakra starfsmanna f\u00e9lagsins.\u201c<\/p>\n<p>\u201e<em>Brimi \u00feykir mi\u00f0ur hvernig m\u00e1l fyrrum starfsmanns f\u00e9lagsins hafa \u00fer\u00f3ast<\/em>.\u201c Engin \u00e1byrg\u00f0 er tekin \u00e1 upps\u00f6gn starfsmannsins \u2013 bara sagt a\u00f0 fyrirt\u00e6kinu \u201e\u00feyki mi\u00f0ur\u201c hvernig m\u00e1lin hafa \u201e\u00fer\u00f3ast\u201c. Eina \u201e\u00fer\u00f3unin\u201c sem var\u00f0 \u00ed \u00feessu m\u00e1li var a\u00f0 starfsmanninum var sagt upp og \u00fea\u00f0 er eins og s\u00fa \u201e\u00fer\u00f3un\u201c s\u00e9 ekki \u00e1 nokkurn h\u00e1tt af v\u00f6ldum fyrirt\u00e6kisins, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e1 \u00e1byrg\u00f0 \u00feess. \u00deetta kemur sk\u00fdrt fram \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 notu\u00f0 notu\u00f0 er mi\u00f0myndin <em>\u00fer\u00f3ast<\/em>. Mi\u00f0myndin er h\u00e9r eins og oft \u00e1n geranda og \u00fej\u00f3nar \u00feannig, eins og \u00feolmynd, \u00fev\u00ed hlutverki a\u00f0 koma s\u00f6kud\u00f3lgnum \u00ed skj\u00f3l \u2013 \u00feetta bara gerist \u00e1n \u00feess a\u00f0 nokkur valdi \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p>\u201e<em>Brim harmar a\u00f0 verkferlar f\u00e9lagsins hafi brug\u00f0ist \u00ed \u00feessu m\u00e1li.<\/em>\u201c H\u00e9r er nota\u00f0 or\u00f0i\u00f0 <em>verkferlar <\/em>sem er eiginlega h\u00e1lfgert t\u00edskuor\u00f0 og gegnir oft \u00fev\u00ed hlutverki a\u00f0 l\u00e1ta f\u00f3lk halda a\u00f0 til s\u00e9u \u00e1kve\u00f0nar og fastm\u00f3ta\u00f0ar reglur til a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0 tilteknum a\u00f0st\u00e6\u00f0um. Ekkert kemur fram um hvernig \u00feessir \u201everkferlar\u201c s\u00e9u. En hvort sem \u00feeir eru til e\u00f0a ekki er lj\u00f3st a\u00f0 \u00fea\u00f0 voru ekki \u00feeir sem brug\u00f0ust \u2013 \u00fea\u00f0 var f\u00f3lki\u00f0 sem \u00e1tti a\u00f0 vinna eftir \u00feeim. E\u00f0lilegt hef\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 segja \u201eBrim harmar a\u00f0 stj\u00f3rnendur fyrirt\u00e6kisins f\u00f3ru ekki eftir verkferlum \u00feess\u201c \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 skj\u00f3ta s\u00e9r \u00e1 bak vi\u00f0 \u00f3skilgreinda \u201everkferla\u201c.<\/p>\n<p>\u201e<em>Mikilv\u00e6gt er a\u00f0 fyrirt\u00e6ki\u00f0 s\u00fdni starfsf\u00f3lki og a\u00f0stendum \u00feess sam\u00fa\u00f0 og skilning vi\u00f0 eins erfi\u00f0ar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur og komu upp \u00ed \u00feessu tilviki.<\/em>\u201c \u00dea\u00f0 er au\u00f0velt a\u00f0 taka undir \u00feetta, og gott a\u00f0 benda \u00e1 mikilv\u00e6gi \u00feess a\u00f0 s\u00fdna sam\u00fa\u00f0 og skilning. En h\u00e9r er ekki nefnt a\u00f0 \u00fea\u00f0 var einmitt \u00fea\u00f0 sem var <strong>ekki<\/strong> gert \u00ed umr\u00e6ddu tilviki. A\u00f0 setja \u00feetta svona fram sem stefnu fyrirt\u00e6kisins, \u00e1n \u00feess a\u00f0 nefna a\u00f0 framkv\u00e6mdin hafi veri\u00f0 \u00fever\u00f6fug, er auglj\u00f3slega gert \u00ed \u00fev\u00ed skyni a\u00f0 skapa velvild lesenda til fyrirt\u00e6kisins \u2013 f\u00e1 \u00fe\u00e1 til a\u00f0 hugsa: \u201eJ\u00e1, \u00feetta er alveg r\u00e9tt. \u00dea\u00f0 er greinilegt a\u00f0 \u00feetta er fyrirt\u00e6ki sem ber vell\u00ed\u00f0an starfsf\u00f3lksins fyrir brj\u00f3sti.\u201c<\/p>\n<p>\u201e<em>Brim mun endursko\u00f0a verkferla f\u00e9lagsins og vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 vi\u00f0 erfi\u00f0um \u00e1f\u00f6llum starfsf\u00f3lks.<\/em>\u201c H\u00e9r eru <em>verkferlarnir <\/em>aftur ger\u00f0ir a\u00f0 hinum raunverulega s\u00f6kud\u00f3lgi og sagt a\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feurfi a\u00f0 \u201eendursko\u00f0a\u201c, en fyrr \u00ed yfirl\u00fdsingunni var sagt a\u00f0 \u00feeir hef\u00f0u \u201ebrug\u00f0ist\u201c. \u00dea\u00f0 fer ekki alveg saman, en hva\u00f0 sem \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0ur er lj\u00f3st a\u00f0 \u00fearna eins og annars sta\u00f0ar \u00ed yfirl\u00fdsingunni er veri\u00f0 a\u00f0 draga athyglina fr\u00e1 stj\u00f3rnendum fyrirt\u00e6kisins og koma henni yfir \u00e1 \u00f3fullkomi\u00f0 regluverk. En \u00fea\u00f0 skiptir ekki m\u00e1li hversu g\u00f3\u00f0ir verkferlarnir eru ef ekki er fari\u00f0 eftir \u00feeim. \u00dea\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem \u00fearna hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 leggja \u00e1herslu \u00e1.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 vekur l\u00edka athygli a\u00f0 alls sta\u00f0ar er tala\u00f0 \u00ed nafni fyrirt\u00e6kisins en ekki stj\u00f3rnenda \u00feess. \u201e<em>Brimi \u00feykir mi\u00f0ur<\/em>\u201c, \u201e<em>Brim harmar<\/em>\u201c, \u201e<em>Brim mun endursko\u00f0a<\/em>\u201c, \u201e<em>mun Brim ekki tj\u00e1 sig<\/em>\u201c. Fyrirt\u00e6ki er ekki manneskja. Fyrirt\u00e6ki \u00feykir ekkert mi\u00f0ur. Fyrirt\u00e6ki harmar ekkert. Fyrirt\u00e6ki endursko\u00f0ar ekkert. Fyrirt\u00e6ki tj\u00e1ir sig ekki. Fyrirt\u00e6ki ber ekki \u00e1byrg\u00f0. Allt gengur \u00feetta \u00fat \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 gera \u00fe\u00e1 starfsh\u00e6tti sem gagnr\u00fdndir hafa veri\u00f0 \u00f3pers\u00f3nulega og draga athyglina fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 er \u00fea\u00f0 f\u00f3lk \u2013 stj\u00f3rnendur fyrirt\u00e6kisins \u2013 sem tekur \u00fe\u00e6r \u00e1kvar\u00f0anir sem um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a og ber \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00feeim.<\/p>\n<p>En svo kemur \u00feessi yfirl\u00fdsing ekki heldur beint fr\u00e1 stj\u00f3rnendum Brims \u2013 \u00e1 vef V\u00edsis <a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/20222350860d\/brim-harmar-ad-verkferlar-hafi-brugdist-en-tjair-sig-ekki-um-einstaka-starfsmenn?fbclid=IwAR2K3luxAa8WTl9i6ttQFpOkVQPGbEpxotfxVecIG2k8w1_OH_UkCxQObzA\">segir<\/a> a\u00f0 h\u00fan hafi borist fj\u00f6lmi\u00f0lum fr\u00e1 \u201ealmannafyrirt\u00e6ki\u201c (v\u00e6ntanlega almannatengslafyrirt\u00e6ki). \u00dea\u00f0 er svo sem auglj\u00f3st a\u00f0 \u00feessi texti er saminn af f\u00f3lki sem hefur \u00fea\u00f0 a\u00f0 atvinnu a\u00f0 beita tungum\u00e1linu \u00e1 \u00feann h\u00e1tt sem gagnast vi\u00f0skiptavininum best \u2013 og \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r ekkert vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 athuga. En a\u00f0 lokum er r\u00e9tt a\u00f0 benda \u00e1 a\u00f0 \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 t\u00f3nninn \u00ed yfirl\u00fdsingunni s\u00e9 i\u00f0runarfullur \u00e1 yfirbor\u00f0inu og s\u00fa tilfinning eigi a\u00f0 sitja eftir hj\u00e1 lesendum a\u00f0 fyrirt\u00e6kinu \u00feyki \u00feetta allt saman \u00e1kaflega leitt er ekki vottur af afs\u00f6kunarbei\u00f0ni \u00fearna.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Yfirl\u00fdsingar \u00edslenskra \u00fatger\u00f0arfyrirt\u00e6kja sem \u00feau birta eftir a\u00f0 hafa lent milli tannanna \u00e1 f\u00f3lki vegna starfsh\u00e1tta sinna eru eiginlega s\u00e9rst\u00f6k b\u00f3kmenntagrein, einkar forvitnileg fyrir \u00e1hugaf\u00f3lk um or\u00f0r\u00e6\u00f0ugreiningu \u2013 sem vi\u00f0 \u00e6ttum \u00f6ll a\u00f0 vera, til a\u00f0 geta s\u00e9\u00f0 \u00ed gegnum hvernig stj\u00f3rnv\u00f6ld og valdamikil \u00f6fl beita tungum\u00e1linu s\u00e9r \u00ed hag. \u00c9g hef \u00e1\u00f0ur greint h\u00e9r [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-4750","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4750","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4750"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4750\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":4752,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4750\/revisions\/4752"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4750"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4750"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4750"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}