{"id":4817,"date":"2023-01-16T09:31:28","date_gmt":"2023-01-16T09:31:28","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=4817"},"modified":"2023-01-16T09:31:28","modified_gmt":"2023-01-16T09:31:28","slug":"nytt-ord-i-stad-radherra-forrad","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/01\/16\/nytt-ord-i-stad-radherra-forrad\/","title":{"rendered":"N\u00fdtt or\u00f0 \u00ed sta\u00f0 r\u00e1\u00f0herra: Forr\u00e1\u00f0"},"content":{"rendered":"<p>Hausti\u00f0 1998 var l\u00f6g\u00f0 fram \u00e1 Al\u00feingi <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/altext\/123\/s\/0022.html\">tillaga<\/a> til \u00feings\u00e1lyktunar \u00fear sem sag\u00f0i: \u201eAl\u00feingi \u00e1lyktar a\u00f0 fela fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra a\u00f0 l\u00e1ta undirb\u00faa breytingar \u00e1 stj\u00f3rnarskr\u00e1 og l\u00f6g\u00adum til a\u00f0 taka megi upp n\u00fdtt starfsheiti r\u00e1\u00f0herra sem b\u00e6\u00f0i kynin geta bori\u00f0.\u201c \u00cd greinarger\u00f0 sag\u00f0i: \u201e\u00dea\u00f0 s\u00e6rir ekki m\u00e1lkennd manna \u00fe\u00f3tt konur s\u00e9u forsetar, kennarar e\u00f0a forstj\u00f3rar en \u00f6\u00f0ru m\u00e1li gegnir um or\u00f0i\u00f0 \u201eherra\u201c. \u00dea\u00f0 str\u00ed\u00f0ir ekki einungis gegn m\u00e1lvitund okkar a\u00f0 kona s\u00e9 herra, heldur er \u00fea\u00f0 merkingarlega \u00fatiloka\u00f0 a\u00f0 kona s\u00e9 herra \u00e1 sama h\u00e1tt og karl getur ekki veri\u00f0 fr\u00fa. Or\u00f0i\u00f0 herra merkir [\u2026] annars vegar titil karlmanns og hins vegar h\u00fasb\u00f3nda e\u00f0a yfirmann og lj\u00f3st er a\u00f0 s\u00ed\u00f0arnefnda merkingin er fr\u00e1 \u00feeim t\u00edma \u00feegar a\u00f0eins karlar gegndu sl\u00edkum st\u00f6\u00f0um.\u201c<\/p>\n<p>\u00deessa till\u00f6gu fluttu Gu\u00f0n\u00fd Gu\u00f0bj\u00f6rnsd\u00f3ttir og Krist\u00edn Halld\u00f3rsd\u00f3ttir \u00feingkonur Kvennalistans og Svavar Gestsson \u00feingma\u00f0ur Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalagsins. M\u00e6lt var fyrir till\u00f6gunni og henni v\u00edsa\u00f0 til nefndar \u00fear sem h\u00fan sofna\u00f0i. Hausti\u00f0 2007 endurflutti Steinunn Vald\u00eds \u00d3skarsd\u00f3ttir \u00feingma\u00f0ur Samfylkingarinnar \u00feessa <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/altext\/135\/s\/0278.html\">till\u00f6gu<\/a> \u00f3breytta en h\u00fan f\u00e9kk s\u00f6mu \u00f6rl\u00f6g og fyrr. Fyrir \u00e1ri fluttu svo \u00e1tta \u00feingmenn \u00far \u00feremur flokkum undir forystu Gu\u00f0mundar Andra Thorssonar \u00feingmanns Samfylkingarinnar <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/altext\/152\/s\/0560.html\">till\u00f6gu<\/a> me\u00f0 \u00f6rl\u00edti\u00f0 breyttu or\u00f0alagi: \u201eAl\u00feingi \u00e1lyktar a\u00f0 fela fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra a\u00f0 skipa nefnd um n\u00fdtt starfsheiti r\u00e1\u00f0herra sem endurspegli betur veruleika og hugsunarh\u00e1tt dagsins \u00ed dag.\u201c \u00deessi tillaga komst ekki einu sinni \u00e1 dagskr\u00e1 \u00feingsins.<\/p>\n<p>Karll\u00e6gara starfsheiti en <em>r\u00e1\u00f0herra<\/em> er vandfundi\u00f0 og \u00fev\u00ed e\u00f0lilegt a\u00f0 \u00feessar till\u00f6gur hafi komi\u00f0 upp, l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur en almenn umr\u00e6\u00f0a um kynhlutlaust m\u00e1l f\u00f3r af sta\u00f0. \u00dea\u00f0 hefur hins vegar gengi\u00f0 illa a\u00f0 koma me\u00f0 g\u00f3\u00f0ar till\u00f6gur um anna\u00f0 starfsheiti. \u00c6skilegt v\u00e6ri a\u00f0 nota hvorugkynsor\u00f0 til a\u00f0 \u00f6ll kyn geti samsama\u00f0 sig starfsheitinu, og einnig v\u00e6ri gott a\u00f0 halda or\u00f0hlutanum <em>r\u00e1\u00f0-<\/em> til a\u00f0 hafa samfellu milli starfsheita. En \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 <em>r\u00e1\u00f0-<\/em> s\u00e9 fyrri hluti samsetningar g\u00e6ti \u00fea\u00f0 veri\u00f0 seinni hlutinn. \u00dea\u00f0 eru til ford\u00e6mi fyrir starfsheitum e\u00f0a titlum \u00fear sem -<em>r\u00e1\u00f0<\/em> er seinni hluti samsetts hvorugkynsor\u00f0s, svo sem <em>leyndarr\u00e1\u00f0<\/em>, <em>kammerr\u00e1\u00f0<\/em>, <em>konferensr\u00e1\u00f0<\/em> og fleiri. Titlarnir eru vissulega erlendir, en or\u00f0in eiga s\u00e9r samt hef\u00f0 \u00ed \u00edslensku.<\/p>\n<p>\u00c9g legg til a\u00f0 n\u00fdta or\u00f0hlutann <em>for-<\/em>, eins og \u00ed <em>forma\u00f0ur<\/em>, <em>forstj\u00f3ri<\/em>, <em>forseti<\/em>, <em>forysta<\/em> o.fl., \u00feannig a\u00f0 n\u00fdtt starfsheiti r\u00e1\u00f0herra ver\u00f0i <strong><em>forr\u00e1\u00f0<\/em><\/strong>. \u00dea\u00f0 or\u00f0 er vissulega til, ekki s\u00edst \u00ed samsetningum eins og <em>forr\u00e1\u00f0ama\u00f0ur<\/em> og <em>mannaforr\u00e1\u00f0<\/em> og \u00ed or\u00f0asambandinu <em>kunna <\/em>(<em>ekki<\/em>) <em>f\u00f3tum s\u00ednum forr\u00e1\u00f0<\/em>, en \u00fea\u00f0 \u00e6tti ekki a\u00f0 valda vandkv\u00e6\u00f0um. Or\u00f0i\u00f0 <em>forr\u00e1\u00f0<\/em> er einu atkv\u00e6\u00f0i og tveimur b\u00f3kst\u00f6fum (og hlj\u00f3\u00f0um) styttra en <em>r\u00e1\u00f0herra<\/em> og lipurt \u00ed samsetningum \u2013 <em>fors\u00e6tisforr\u00e1\u00f0<\/em>, <em>fj\u00e1rm\u00e1laforr\u00e1\u00f0<\/em>, <em>innvi\u00f0aforr\u00e1\u00f0<\/em>, <em>utanr\u00edkisforr\u00e1\u00f0<\/em> o.s.frv. \u00de\u00e1 g\u00e6ti <em>r\u00e1\u00f0herranefnd<\/em> heiti\u00f0 <em>forr\u00e1\u00f0anefnd<\/em>, <em>r\u00e1\u00f0herrab\u00edll<\/em> v\u00e6ri <em>forr\u00e1\u00f0sb\u00edll<\/em>, <em>r\u00e1\u00f0herrast\u00f3ll<\/em> v\u00e6ri <em>forr\u00e1\u00f0sst\u00f3l<\/em>, <em>r\u00e1\u00f0herra\u00e1byrg\u00f0<\/em> v\u00e6ri <em>forr\u00e1\u00f0s\u00e1byrg\u00f0<\/em> o.s.frv. E\u00f0lilegt v\u00e6ri samt a\u00f0 <em>R\u00e1\u00f0herrab\u00fasta\u00f0urinn<\/em> h\u00e9ldi nafni s\u00ednu.<\/p>\n<p>Au\u00f0vita\u00f0 m\u00e1 koma me\u00f0 \u00fdmsar m\u00f3tb\u00e1rur gegn \u00feessu or\u00f0i. Vissulega eru til fj\u00f6lm\u00f6rg \u00f6nnur or\u00f0 sem enda \u00e1 <em>-r\u00e1\u00f0<\/em> og v\u00edsa flest til einhvers konar stj\u00f3rna e\u00f0a nefnda, svo sem <em>bankar\u00e1\u00f0<\/em>, <em>manneldisr\u00e1\u00f0<\/em>, <em>sk\u00f3lar\u00e1\u00f0<\/em> o.s.frv., en or\u00f0hlutinn (myndani\u00f0) \u00a0<em>-for-<\/em> \u00e1 undan <em>-r\u00e1\u00f0<\/em> \u00e6tti a\u00f0 tryggja a\u00f0 lj\u00f3st s\u00e9 a\u00f0 veri\u00f0 er a\u00f0 v\u00edsa til r\u00edkisstj\u00f3rnar. \u00dea\u00f0 m\u00e6tti l\u00edka hafa \u00fea\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti or\u00f0inu <em>fors\u00e6tisforr\u00e1\u00f0<\/em> a\u00f0 \u00fear kemur or\u00f0hlutinn <em>for-<\/em> tvisvar fyrir. En sl\u00edkt er ekkert einsd\u00e6mi \u2013 vi\u00f0 h\u00f6fum or\u00f0 eins og <em>b\u00edlaleigub\u00edll<\/em>, \u00f6rnefni eins og <em>Vatnshl\u00ed\u00f0arvatn<\/em> og <em>Dalsdalur<\/em>, o.fl. \u00d6rugglega m\u00e6tti t\u00edna \u00fdmislegt fleira til, en meginatri\u00f0i\u00f0 er a\u00f0 \u00fea\u00f0 er alveg sama hva\u00f0a or\u00f0 yr\u00f0i fyrir valinu \u2013 vi\u00f0 \u00feyrftum t\u00edma til a\u00f0 venjast \u00fev\u00ed, eins og \u00f6\u00f0rum n\u00fdjum or\u00f0um. En \u00fea\u00f0 v\u00e6ri alveg h\u00e6gt.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hausti\u00f0 1998 var l\u00f6g\u00f0 fram \u00e1 Al\u00feingi tillaga til \u00feings\u00e1lyktunar \u00fear sem sag\u00f0i: \u201eAl\u00feingi \u00e1lyktar a\u00f0 fela fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra a\u00f0 l\u00e1ta undirb\u00faa breytingar \u00e1 stj\u00f3rnarskr\u00e1 og l\u00f6g\u00adum til a\u00f0 taka megi upp n\u00fdtt starfsheiti r\u00e1\u00f0herra sem b\u00e6\u00f0i kynin geta bori\u00f0.\u201c \u00cd greinarger\u00f0 sag\u00f0i: \u201e\u00dea\u00f0 s\u00e6rir ekki m\u00e1lkennd manna \u00fe\u00f3tt konur s\u00e9u forsetar, kennarar e\u00f0a forstj\u00f3rar en [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-4817","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4817","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4817"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4817\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":4818,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4817\/revisions\/4818"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4817"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4817"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4817"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}