{"id":4907,"date":"2023-03-01T19:44:15","date_gmt":"2023-03-01T19:44:15","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=4907"},"modified":"2023-03-01T19:44:15","modified_gmt":"2023-03-01T19:44:15","slug":"ad-kveikja-a-sturtunni-og-slokkva-a-bilnum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/03\/01\/ad-kveikja-a-sturtunni-og-slokkva-a-bilnum\/","title":{"rendered":"A\u00f0 kveikja \u00e1 sturtunni og sl\u00f6kkva \u00e1 b\u00edlnum"},"content":{"rendered":"<p>Sagnirnar <em>\u00a0kveikja <\/em>og <em>sl\u00f6kkva<\/em> voru \u00e1\u00f0ur fyrr einkum nota\u00f0ar um <em>eld<\/em>, og \u00fear sem eldurinn l\u00fdsir var e\u00f0lilegt a\u00f0 nota \u00fe\u00e6r einnig um <em>lj\u00f3s<\/em> \u2013 tala\u00f0 er um a\u00f0 <em>kveikja <\/em>\/ <em>sl\u00f6kkva<\/em> <em>eld<\/em> \/ <em>lj\u00f3s<\/em> \u00fear sem sagnirnar taka andlag. \u00deetta yfirf\u00e6r\u00f0ist svo \u00e1 hvers kyns lj\u00f3sf\u00e6ri sem eldur var tendra\u00f0ur \u00e1 og \u00fe\u00e1 er notu\u00f0 forsetningin <em>\u00e1<\/em> \u2013 tala\u00f0 um a\u00f0 <em>kveikja <\/em>\/ <em>sl\u00f6kkva \u00e1 kerti <\/em>\/ <em>kyndli<\/em> \/ <em>blysi<\/em> \/<em> eldsp\u00fdtu<\/em> \/ <em>lampa <\/em>o.s.frv. \u00cd <em>\u00dej\u00f3\u00f0\u00f3lfi <\/em>1896 segir \u201e\u00de\u00e1 var kveikt \u00e1 velskreyttu j\u00f3latr\u00e9\u201c \u2013 \u00fea\u00f0 l\u00e1 beint vi\u00f0 a\u00f0 nota s\u00f6gnina <em>kveikja <\/em>\u00fear e\u00f0 logandi kerti voru \u00e1 tr\u00e9nu. \u00deegar \u00cdslendingar kynntust gasi var l\u00edka h\u00e6gt a\u00f0 nota s\u00f6gnina <em>kveikja<\/em> um \u00fea\u00f0, enda loga\u00f0i eldur \u00ed \u00fev\u00ed: \u201e\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 fara fram og s\u00e6kja eldsp\u00fdtur, svo \u00e9g geti kveikt \u00e1 gasinu\u201c segir t.d. \u00ed <em>Heimskringlu<\/em> 1892.<\/p>\n<p>\u00c1\u00f0ur var l\u00edka eldur \u00ed eldav\u00e9lum og ofnum til hitunar og e\u00f0lilegt a\u00f0 nota <em>kveikja \u00e1<\/em> og <em>sl\u00f6kkva \u00e1 <\/em>um hvort tveggja (\u00fe\u00f3tt reyndar v\u00e6ri ekki s\u00ed\u00f0ur tala\u00f0 um a\u00f0 <em>kveikja <strong>upp \u00ed<\/strong> eldav\u00e9l <\/em>\/ <em>ofni<\/em>): \u201eS\u00ed\u00f0an settist hann ni\u00f0ur, kveykti \u00e1 eldav\u00e9linni\u201c \u00ed <em>\u00dej\u00f3\u00f0\u00f3lfi <\/em>1901 og \u201e\u00c9g \u00feori t\u00e6past \u00fat \u00e1 kv\u00f6ldin af \u00f3tta vi\u00f0 \u00edkviknun, en \u00feori \u00fe\u00f3 heldur ekki a\u00f0 sl\u00f6kkva \u00e1 ofninum\u201c \u00ed <em>Melkorku<\/em> 1953. En merking sagnanna <em>kveikja<\/em> og <em>sl\u00f6kkva<\/em> \u00e1tti eftir a\u00f0 v\u00edkka enn frekar, eins og s\u00e9st \u00e1 d\u00e6mi \u00far <em>L\u00f6gbergi <\/em>1888: \u201esumsta\u00f0ar var ekki h\u00e6gt a\u00f0 kveikja \u00e1 rafurmagnslj\u00f3sum um kveldi\u00f0.\u201c \u00dearna voru komin fram lj\u00f3s \u00fear sem ekki loga\u00f0i eldur, en vegna \u00feess a\u00f0 \u00feau gegndu sama hlutverki var e\u00f0lilegt a\u00f0 nota s\u00f6mu sagnir. Vi\u00f0 h\u00f6ldum l\u00edka \u00e1fram a\u00f0 nota \u00feessar sagnir um rafmagnseldav\u00e9lar.<\/p>\n<p>\u00der\u00f3unin hefur or\u00f0i\u00f0 s\u00fa a\u00f0 <em>kveikja \u00e1<\/em> og <em>sl\u00f6kkva \u00e1<\/em> er nota\u00f0 um hvers kyns rafmagnst\u00e6ki \u2013 ekki bara lj\u00f3s og eldav\u00e9lar \u00fear sem eldur loga\u00f0i \u00e1\u00f0ur, heldur l\u00edka \u00fevottav\u00e9lar, strauj\u00e1rn, kaffiv\u00e9lar, brau\u00f0ristar, sj\u00f3nv\u00f6rp, pl\u00f6tuspilara o.s.frv. Merkingin er \u00fe\u00e1 ekki lengur 'tendra \/ k\u00e6fa eld \/ lj\u00f3s' heldur 'hleypa rafstraumi \u00e1 \/ taka rafstraum af' e\u00f0a 'setja \u00ed gang \/ st\u00f6\u00f0va'. \u00deessi notkun sagnanna hefur t\u00ed\u00f0kast \u00e1ratugum saman, v\u00e6ntanlega fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 umr\u00e6dd t\u00e6ki komu \u00e1 marka\u00f0inn, og engum finnst neitt athugavert vi\u00f0 \u00feetta. En \u00ed seinni t\u00ed\u00f0 er fari\u00f0 a\u00f0 nota <em>kveikja \u00e1<\/em> og <em>sl\u00f6kkva \u00e1<\/em> \u00ed \u00fdmsu samhengi \u00fear sem a\u00f0rar sagnir hafa t\u00ed\u00f0kast fram a\u00f0 \u00feessu \u2013 <em>kveikja<\/em> \/ <em>sl\u00f6kkva<\/em> <em>\u00e1 b\u00edlnum <\/em>\/<em> krananum <\/em>\/ <em>sturtunni<\/em> \/<em> vatninu <\/em>o.s.frv. I\u00f0ulega er \u00fe\u00f3 <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/groups\/1395992847329077\/search\/?q=kveikja&amp;__cft__%5b0%5d=AZWHzr9IfXyaVk4xBctPUAbbkCA-rxEg9V5Ya6Hmdh4QWVY3h2LMu8sbJv0aBiOWM91tPMhxezEfALfIVXHcf9ActsD5bHlD7Q5-HLBoeRrJEhRe4ncQszBUs0A1PBnWE5soYszSxfq0b0aSKuuJkMoL&amp;__tn__=-UK-R\"><strong>amast vi\u00f0<\/strong><\/a> sl\u00edku or\u00f0alagi.<\/p>\n<p>\u00c9g er vanur \u00fev\u00ed a\u00f0 nota samb\u00f6ndin <em>setja \u00ed gang<\/em> og <em>drepa \u00e1<\/em> um b\u00edla, en \u00e9g s\u00e9 engin g\u00f3\u00f0 r\u00f6k gegn \u00fev\u00ed a\u00f0 nota <em>kveikja \u00e1<\/em> og <em>sl\u00f6kkva \u00e1<\/em> \u00ed sta\u00f0inn eins og i\u00f0ulega er gert. D\u00e6mi um \u00fea\u00f0 eru vissulega flest n\u00fdleg og meginhlutinn af samf\u00e9lagsmi\u00f0lum en \u00fe\u00f3 er ekki um n\u00fdjung a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u2013 \u201e\u00de\u00e9r geti\u00f0 kveikt \u00e1 b\u00edlnum\u201c segir \u00ed <em>N\u00fdjum kv\u00f6ldv\u00f6kum <\/em>1941 og \u201e\u00c9g halla\u00f0i m\u00e9r \u00e1fram til \u00feess a\u00f0 sl\u00f6kkva \u00e1 b\u00edlnum\u201c \u00ed <em>Munin <\/em>1955. Ef vi\u00f0 l\u00edtum svo \u00e1 a\u00f0 merking sambandanna s\u00e9 'hleypa rafstraumi \u00e1' og 'taka rafstraum af' ver\u00f0ur ekki s\u00e9\u00f0 anna\u00f0 en \u00feau eigi vi\u00f0, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00f3tt b\u00edlar s\u00e9u kn\u00fa\u00f0ir jar\u00f0efnaeldsneyti \u00fearf a\u00f0 byrja \u00e1 a\u00f0 hleypa rafstraumi \u00e1 kerfi\u00f0. Og rafb\u00edlar eru eins og hver \u00f6nnur rafmagnst\u00e6ki og \u00fev\u00ed \u00e6tti a\u00f0 liggja beint vi\u00f0 a\u00f0 nota <em>kveikja \u00e1<\/em> og <em>sl\u00f6kkva \u00e1<\/em> um \u00fe\u00e1.<\/p>\n<p>\u00c9g er l\u00edka vanur \u00fev\u00ed a\u00f0 nota <em>skr\u00fafa fr\u00e1<\/em> og <em>skr\u00fafa fyrir<\/em> um vatn \u2013 <em>skr\u00fafa fr\u00e1 <\/em>\/ <em>fyrir krana<\/em> \/ <em>sturtu<\/em> o.s.frv. \u00dea\u00f0 or\u00f0alag er gamalt og \u00e1 r\u00e6tur \u00ed \u00fev\u00ed \u00feegar krana var sn\u00fai\u00f0 nokkra hringi til a\u00f0 opna e\u00f0a loka fyrir vatnsstraum \u2013 <em>skr\u00fafa <\/em>er <a href=\"https:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=https%3A%2F%2Fislenskordabok.arnastofnun.is%2Ford%2F37206%3Ffbclid%3DIwAR2iruLXaajvOo6f-uJIMgoVK7w8hjGb9SKcqNNK0DiTpVbxmzrM5SIEKqs&amp;h=AT3cvASHKBtCkrGSmWbPNjlUTXTutDbgqJDlbUV8NIu1KWaMQrPLJqY2MXF3GEZiY-IHRnXpmi4vFa4hk4T9wHm6WRPUzHdAxpdXtWJfIgtxHE2d4_5Qj0vQInipikggaw&amp;__tn__=-UK-R&amp;c%5b0%5d=AT2QbWNP04vuTs7iTuMwq5O5Z8bOzIf8_gsNpOIr82Uq3iNA4FfpTL-nwktIWw1Xt6PWy4tIObopAdPY2b0kcNh0G_GxT-K1eArjP5PBK9q73Kn9FVy7hCOcP2H7nw_5nhos4gh00MR0GqbDm0ehrCI7mTxf_gD6\">sk\u00fdrt<\/a> 'festa e\u00f0a losa (e-\u00f0) me\u00f0 hringhreyfingu' \u00ed <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k<\/em>. \u00deetta var \u00fev\u00ed mj\u00f6g gagns\u00e6tt og e\u00f0lilegt or\u00f0, en n\u00fa eru skr\u00fafa\u00f0ir kranar or\u00f0nir frekar sjalds\u00e9\u00f0ir og \u00ed sta\u00f0inn hafa komi\u00f0 bl\u00f6ndunart\u00e6ki sem stj\u00f3rna\u00f0 er me\u00f0 st\u00f6ngum, hn\u00f6ppum e\u00f0a \u00e1 annan h\u00e1tt \u2013 sumum m.a.s. me\u00f0 hreyfiskynjurum. \u00dea\u00f0 er samt e\u00f0lilegt a\u00f0 f\u00f3lk sem ali\u00f0 er upp vi\u00f0 a\u00f0 nota <em>skr\u00fafa fyrir <\/em>\/ <em>fr\u00e1<\/em> haldi \u00fev\u00ed \u00e1fram \u00fe\u00f3tt e\u00f0li athafnarinnar hafi breyst, r\u00e9tt eins og vi\u00f0 h\u00f6ldum \u00e1fram a\u00f0 tala um <em>eldav\u00e9l <\/em>og <em>eldh\u00fas<\/em> \u00fe\u00f3tt sjaldnast s\u00e9 nokkur eldur \u00fear.<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 er ekki s\u00ed\u00f0ur e\u00f0lilegt a\u00f0 ungt f\u00f3lk sem ali\u00f0 er upp vi\u00f0 bl\u00f6ndunart\u00e6ki \u00e1n skr\u00fafgangs velji fremur \u00f6nnur or\u00f0 \u2013 fyrir \u00fev\u00ed hefur s\u00f6gnin <em>skr\u00fafa<\/em> enga sk\u00edrskotun til verkna\u00f0arins og \u00fea\u00f0 notar \u00feess \u00ed sta\u00f0 \u00feau or\u00f0asamb\u00f6nd sem venjulega eru notu\u00f0 um a\u00f0 'setja \u00ed gang' og 'st\u00f6\u00f0va', \u00fe.e. <em>kveikja \u00e1 <\/em>\/ <em>sl\u00f6kkva \u00e1<\/em>. \u00dea\u00f0 eru engin r\u00f6k fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 e\u00f0lilegt s\u00e9 a\u00f0 tala um a\u00f0 <em>kveikja \u00e1 \u00fatvarpinu <\/em>en \u00f3m\u00f6gulegt a\u00f0 <em>kveikja \u00e1 sturtunni <\/em>\u2013 \u00ed b\u00e1\u00f0um tilvikum er veri\u00f0 a\u00f0 v\u00edkka merkingu sagnanna sem upphaflega \u00e1ttu eing\u00f6ngu vi\u00f0 um eld e\u00f0a lj\u00f3s eins og \u00e1\u00f0ur segir. Sl\u00edk merkingarbreyting \u00e1 s\u00e9r \u00f3tal ford\u00e6mi \u00ed m\u00e1linu og er fullkomlega e\u00f0lileg. \u00dea\u00f0 er engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til annars en vi\u00f0urkenna <em>kveikja \u00e1 sturtunni<\/em> og <em>sl\u00f6kkva \u00e1 b\u00edlnum<\/em> sem r\u00e9tt og e\u00f0lilegt m\u00e1l.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sagnirnar \u00a0kveikja og sl\u00f6kkva voru \u00e1\u00f0ur fyrr einkum nota\u00f0ar um eld, og \u00fear sem eldurinn l\u00fdsir var e\u00f0lilegt a\u00f0 nota \u00fe\u00e6r einnig um lj\u00f3s \u2013 tala\u00f0 er um a\u00f0 kveikja \/ sl\u00f6kkva eld \/ lj\u00f3s \u00fear sem sagnirnar taka andlag. \u00deetta yfirf\u00e6r\u00f0ist svo \u00e1 hvers kyns lj\u00f3sf\u00e6ri sem eldur var tendra\u00f0ur \u00e1 og \u00fe\u00e1 er [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-4907","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4907","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4907"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4907\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":4908,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4907\/revisions\/4908"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4907"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4907"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4907"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}