{"id":5113,"date":"2023-04-24T08:00:14","date_gmt":"2023-04-24T08:00:14","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=5113"},"modified":"2023-04-24T10:00:36","modified_gmt":"2023-04-24T10:00:36","slug":"nyju-verkalydsfelog-rikisins","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/04\/24\/nyju-verkalydsfelog-rikisins\/","title":{"rendered":"N\u00fdju verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g r\u00edkisins"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd kverinu <em>G\u00e6tum tungunnar<\/em> segir: \u201e<em>Sagt var<\/em>: \u00deeir ganga \u00ed n\u00fdju verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g r\u00edkisins. <em>R\u00e9tt v\u00e6ri<\/em>: \u00deeir ganga \u00ed <em>n\u00fd<\/em> verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g r\u00edkisins. <em>E\u00f0a<\/em>: \u00deeir ganga \u00ed <em>hin n\u00fdju <\/em>verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g r\u00edkisins.\u201c \u00deetta sk\u00fdrist af \u00feeirri almennu reglu a\u00f0 (\u00ed m\u00e1li flestra) er \u00e1kve\u00f0inn greinir ekki haf\u00f0ur \u00e1 nafnor\u00f0i sem tekur me\u00f0 s\u00e9r anna\u00f0 nafnor\u00f0 \u00ed eignarfalli (eignarfallseinkunn \u2013 <em>*b\u00f3kin J\u00f3ns).<\/em> \u00de\u00f3tt vi\u00f0 getum sagt <em>\u00feeir ganga \u00ed n\u00fdju verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g<strong>in<\/strong> <\/em>gengur *<em>\u00feeir ganga \u00ed n\u00fdju verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g<strong>in<\/strong> r\u00edkisins <\/em>ekki, heldur ver\u00f0ur a\u00f0 sleppa greininum og \u00fe\u00e1 f\u00e1um vi\u00f0 <em>\u00feeir ganga \u00ed n\u00fdju verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g r\u00edkisins<\/em>. En \u00fea\u00f0 leysir samt ekki vandann \u00fev\u00ed a\u00f0 venjulega standa l\u00fdsingaror\u00f0 \u00ed veikri beygingu, eins og <em>n\u00fdju<\/em> \u00fearna, a\u00f0eins me\u00f0 \u00e1kve\u00f0num nafnor\u00f0um, eins og <em>verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g<strong>in<\/strong><\/em>.<\/p>\n<p>\u00deess vegna er setningin <em>\u00feeir ganga \u00ed n\u00fdju verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g r\u00edkisins <\/em>ekki talin r\u00e9tt \u00ed <em>G\u00e6tum tungunnar<\/em> en settar fram tv\u00e6r till\u00f6gur \u00ed sta\u00f0inn. \u00d6nnur er <em>\u00feeir ganga \u00ed <strong>n\u00fd<\/strong> verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g r\u00edkisins<\/em> \u2013 \u00fear er l\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 haft \u00ed sterkri beygingu \u00ed sta\u00f0 veikrar, <em>n\u00fd<\/em> \u00ed sta\u00f0 <em>n\u00fdju<\/em>. Eins og \u00e1\u00f0ur segir standa l\u00fdsingaror\u00f0 \u00ed veikri beygingu venjulega me\u00f0 \u00e1kve\u00f0num nafnor\u00f0um, \u00fe.e. nafnor\u00f0um me\u00f0 \u00e1kve\u00f0num greini (<em>n\u00fdj<strong>u<\/strong> verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g<strong>in<\/strong><\/em>), en l\u00fdsingaror\u00f0 \u00ed sterkri beygingu me\u00f0 \u00f3\u00e1kve\u00f0num nafnor\u00f0um (<em>n\u00fd verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g<\/em>). \u00deetta gengur \u00fev\u00ed upp setningafr\u00e6\u00f0ilega en gallinn vi\u00f0 \u00fea\u00f0 er a\u00f0 merkingin er ekki alveg s\u00fa sama. Ef sagt er <em>\u00feeir ganga \u00ed n\u00fd verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g r\u00edkisins<\/em> er eins og veri\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 kynna \u00feessi f\u00e9l\u00f6g til s\u00f6gunnar \u2013 \u00feau hafi ekki veri\u00f0 nefnd \u00e1\u00f0ur. \u00dea\u00f0 er \u00f3heppilegt.<\/p>\n<p>Hinn kosturinn sem nefndur er \u00ed <em>G\u00e6tum tungunnar <\/em>er a\u00f0 nota lausan greini \u00ed sta\u00f0 \u00feess vi\u00f0skeytta \u2013 <em>\u00feeir ganga \u00ed <strong>hin n\u00fdju<\/strong> verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g r\u00edkisins<\/em>. \u00dea\u00f0 gengur vissulega upp setningafr\u00e6\u00f0ilega \u00fev\u00ed a\u00f0 lausi greinirinn l\u00fdtur \u00f6\u00f0rum l\u00f6gm\u00e1lum \u00e1 \u00fev\u00ed svi\u00f0i en s\u00e1 vi\u00f0skeytti. En \u00ed sta\u00f0inn kemur annar vandi \u2013 h\u00e6tta \u00e1 st\u00edlbroti. M\u00f6r\u00f0ur \u00c1rnason segir um d\u00e6mi af \u00feessu tagi \u00ed <em>M\u00e1lkr\u00f3kum<\/em>: \u201eHugsanlega \u00e1 h\u00e9r \u00fe\u00e1tt feimni vi\u00f0 lausa greininn, a\u00f0 m\u00f6nnum finnist ankannalegt a\u00f0 nota <em>hinn \u2013 hin \u2013 hi\u00f0 <\/em>framanvi\u00f0 l\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 og nafnor\u00f0i\u00f0, \u00f3\u00fearflega stirt og h\u00e1t\u00ed\u00f0legt. \u00c1 \u00fev\u00ed hefur a\u00f0 minnsta kosti bori\u00f0 s\u00ed\u00f0ari \u00e1r a\u00f0 ritf\u00e6rt f\u00f3lk og vel m\u00e1li fari\u00f0, einkum af yngri kynsl\u00f3\u00f0, for\u00f0ast \u00feetta st\u00edlbrig\u00f0i, v\u00e6ntanlega af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 hefur h\u00e1t\u00ed\u00f0legan bl\u00e6 og getur valdi\u00f0 stir\u00f0leika.\u201c<\/p>\n<p>\u00deetta er alveg r\u00e9tt og samr\u00e6mist t.d. \u00fev\u00ed a\u00f0 d\u00e6mi um lausan greini \u00ed \u00feeim hluta <em>Risam\u00e1lheildarinnar<\/em> sem helst s\u00fdnir \u00f3formlegt m\u00e1lsni\u00f0, samf\u00e9lagsmi\u00f0lahlutanum, eru margfalt f\u00e6rri en \u00ed \u00f6\u00f0rum hlutum hennar. En M\u00f6r\u00f0ur bendir reyndar \u00e1 fleiri lei\u00f0ir en nefndar eru \u00ed <em>G\u00e6tum tungunnar<\/em>. \u00cd sta\u00f0inn fyrir a\u00f0 nota eignarfallseinkunn \u00ed <em>\u00fatger\u00f0in er nau\u00f0synlegi hluti atvinnul\u00edfsins <\/em>megi setja forsetningarli\u00f0 og segja <em>nau\u00f0synlegi hlutinn af atvinnul\u00edfinu <\/em>e\u00f0a sn\u00faa or\u00f0ar\u00f6\u00f0inni vi\u00f0 og segja <em>atvinnul\u00edfsins nau\u00f0synlegi hluti <\/em>\u2013 sem hann vi\u00f0urkennir a\u00f0 v\u00edsu a\u00f0 s\u00e9 \u201e\u00e1 ja\u00f0ri venjulegrar \u00edslensku\u201c. En M\u00f6r\u00f0ur hallast \u00fe\u00f3 a\u00f0 lausa greininum og segir: \u201e\u00cd r\u00e9ttu samhengi er \u00feetta m\u00e1lform einsog konungur \u00e1 veldisst\u00f3li, og stundum er einskis annars kostur.\u201c<\/p>\n<p>\u00c9g ver\u00f0 a\u00f0 j\u00e1ta a\u00f0 m\u00e9r finnst enginn kostur g\u00f3\u00f0ur \u00ed \u00feessu. M\u00e9r finnst setningar eins og s\u00fa sem amast er vi\u00f0 \u00ed <em>G\u00e6tum tungunnar<\/em>, <em>\u00feeir ganga \u00ed n\u00fdju verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g r\u00edkisins<\/em>, ekki fullkomlega e\u00f0lilegar, og ekki heldur <em>seldar voru veitingar \u00ed n\u00fdja m\u00f6tuneyti sk\u00f3lans<\/em>, <em>n\u00fdju nemendur hefja n\u00e1m \u00ed dag, en eldri \u00e1 morgun<\/em>, <em>\u00fatger\u00f0in er nau\u00f0synlegi hluti atvinnul\u00edfsins <\/em>og <em>r\u00edkisendursko\u00f0un er g\u00f3\u00f0i hir\u00f0ir opinberra stofnana<\/em> svo a\u00f0 vitna\u00f0 s\u00e9 \u00ed d\u00e6mi \u00far <em>G\u00e6tum tungunnar <\/em>og <em>M\u00e1lkr\u00f3kum<\/em>. En m\u00e9r finnst ekki ganga a\u00f0 nota sterka beygingu \u00ed \u00feessum d\u00e6mum \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 breytir merkingunni, og m\u00e9r finnst lausi greinirinn oftast of formlegur. Fyrir utan einhvers konar umor\u00f0un er l\u00edklega \u00fer\u00e1tt fyrir allt sk\u00e1st a\u00f0 segja \u00fea\u00f0 sem \u201esagt var\u201c \u00ed <em>G\u00e6tum tungunnar<\/em>.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd kverinu G\u00e6tum tungunnar segir: \u201eSagt var: \u00deeir ganga \u00ed n\u00fdju verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g r\u00edkisins. R\u00e9tt v\u00e6ri: \u00deeir ganga \u00ed n\u00fd verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g r\u00edkisins. E\u00f0a: \u00deeir ganga \u00ed hin n\u00fdju verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g r\u00edkisins.\u201c \u00deetta sk\u00fdrist af \u00feeirri almennu reglu a\u00f0 (\u00ed m\u00e1li flestra) er \u00e1kve\u00f0inn greinir ekki haf\u00f0ur \u00e1 nafnor\u00f0i sem tekur me\u00f0 s\u00e9r anna\u00f0 nafnor\u00f0 \u00ed eignarfalli (eignarfallseinkunn [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-5113","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5113","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5113"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5113\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5116,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5113\/revisions\/5116"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5113"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5113"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5113"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}