{"id":5156,"date":"2023-05-24T13:26:30","date_gmt":"2023-05-24T13:26:30","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=5156"},"modified":"2023-05-24T17:46:52","modified_gmt":"2023-05-24T17:46:52","slug":"staerdarinnar-heljarinnar-og-heljarins","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/05\/24\/staerdarinnar-heljarinnar-og-heljarins\/","title":{"rendered":"St\u00e6r\u00f0arinnar, heljarinnar \u2013 og heljarins"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r var \u00e1 <em>V\u00edsi<\/em> <a href=\"https:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=https%3A%2F%2Fwww.visir.is%2Fg%2F20232419019d%2Fstaerdarinnar-tre-fell-a-tjarnargotu%3Ffbclid%3DIwAR1eFvehK9vtl8nto0peDTlSGEshjsfzaMRO4oIJqA1UaG-lYHusMX2bYUQ&amp;h=AT0Ej78-jTPc7OpxwYZSMjbMxr8EfTEXFC9G9X94RgdRZ3x_NFf_jh73b6jimL2sH6NhKq2EvubkLMOzZDXx5jw3nitdzdsvrGYVe5AHiZfl4BZjivA2mQzxpeUvNpmgJA&amp;__tn__=-UK-R&amp;c%5b0%5d=AT0Ne1rxqiu9bg9ToGSWkFc5sjGlBoC3-vtoGsT52TQM6XhvL8sWVeZyx2cz3BCivfo-yBQhEIVJcZYM55HLhFy4GzQotWBopetKqSAcTsDOvewxUUx6ezRhghmWtu9btTcHm1xcoLmQ-DutYV9DQ3tQ0FDP07OF\">fr\u00e9tt<\/a> me\u00f0 fyrirs\u00f6gninni \u201eSt\u00e6r\u00f0arinnar tr\u00e9 f\u00e9ll \u00e1 Tjarnarg\u00f6tu.\u201c \u00deessi fyrirs\u00f6gn var\u00f0 tilefni fyrirspurnar h\u00e9r \u00ed dag um notkun or\u00f0sins <em>st\u00e6r\u00f0arinnar <\/em>\u00ed \u00feessu samhengi \u2013 og vissulega er \u00fea\u00f0 ver\u00f0ugt athugunarefni sem \u00e9g hef aldrei leitt hugann a\u00f0. \u00deetta er auglj\u00f3slega eignarfall eint\u00f6lu me\u00f0 greini af nafnor\u00f0inu <em>st\u00e6r\u00f0<\/em>, en hefur \u00fearna setningafr\u00e6\u00f0ilega st\u00f6\u00f0u og merkingarlegt hlutverk l\u00fdsingaror\u00f0s \u2013 l\u00fdsir nafnor\u00f0inu sem \u00fea\u00f0 stendur me\u00f0. Merkinguna \u00ed <em>st\u00e6r\u00f0arinnar X <\/em>m\u00e1 e.t.v. or\u00f0a sem '\u00ed st\u00e6rri kantinum mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem X er vant a\u00f0 vera'. \u00dea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 tala um <em>st\u00e6r\u00f0arinnar k\u00f3ngul\u00f3<\/em>, <em>st\u00e6r\u00f0arinnar frekjuskar\u00f0<\/em>, <em>st\u00e6r\u00f0arinnar gl\u00f3\u00f0arauga<\/em>, <em>st\u00e6r\u00f0arinnar randaflugu<\/em> o.s.frv. \u00fe\u00f3tt ekkert af \u00feessu s\u00e9 s\u00e9rlega st\u00f3rt.<\/p>\n<p>\u00cd umr\u00e6\u00f0um kom fram a\u00f0 \u00e1\u00f0ur hef\u00f0i eignarfall eint\u00f6lu \u00e1n greinis af <em>st\u00e6r\u00f0<\/em>, <em>st\u00e6r\u00f0ar<\/em>, veri\u00f0 nota\u00f0 \u00ed sama hlutverki. S\u00fa notkun er g\u00f6mul og vel \u00feekkt allt fr\u00e1 19. \u00f6ld a.m.k. \u00deannig segir t.d. \u00ed <em>Austra<\/em> 1884: \u201eSt\u00e6r\u00f0ar foss steyptist ni\u00f0ur fyrir ne\u00f0an \u00fe\u00e1.\u201c \u00cd <em>Austra <\/em>1900 segir: \u201eHitt skipi\u00f0 sem h\u00e9r steytti var franska sp\u00edtalaskipi\u00f0 \u201eSt. Paul,\u201c st\u00e6r\u00f0ar skip.\u201c \u00cd <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum <\/em>1901 segir: \u201eEtazr\u00e1\u00f0i\u00f0 haf\u00f0i me\u00f0fer\u00f0is st\u00e6r\u00f0ar bl\u00f3msveig \u00far l\u00e1rberjalaufum.\u201c Oft er <em>st\u00e6r\u00f0ar-<\/em> tengt eftirfarandi nafnor\u00f0i me\u00f0 bandstriki og m\u00e1 \u00fe\u00e1 stundum l\u00edta svo \u00e1 a\u00f0 um samsett or\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. \u00cd <em>Fjallkonunni<\/em> 1893 segir: \u201e\u00fe\u00e1 fauk st\u00e6r\u00f0ar-uppskipunarb\u00e1tr \u00e1 Pap\u00f3si.\u201c \u00cd <em>\u00cdsafold<\/em> 1893 segir: \u201ehjer eru engin st\u00e6r\u00f0ar-gistih\u00fas me\u00f0 afarver\u00f0i \u00e1 \u00f6llum l\u00edfsnau\u00f0synjum.\u201c<\/p>\n<p>Notkun myndarinnar <em>st\u00e6r\u00f0arinnar <\/em>me\u00f0 greini er miklu yngri. Elsta d\u00e6mi sem \u00e9g finn um hana er \u00ed fr\u00e1s\u00f6gn eftir Kristin R. \u00d3lafsson \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu<\/em> 1972: \u201eHj\u00e1 honum h\u00f6f\u00f0um vi\u00f0 lagt undir okkur st\u00e6r\u00f0arinnar verelsi.\u201c Anna\u00f0 d\u00e6mi er \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1976: \u201e\u00c1 g\u00f3lfinu fyrir framan var st\u00e6r\u00f0arinnar bjarnarskinn.\u201c En \u00e1ri\u00f0 1977 koma nokkur d\u00e6mi, \u00fe. \u00e1 m. \u00feessi: \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>segir: \u201eSt\u00e6r\u00f0arinnar kvenma\u00f0ur situr vi\u00f0 skrifbor\u00f0i\u00f0.\u201c \u00cd <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum <\/em>segir: \u201e\u00cd hverju bla\u00f0inu \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0ru blasa vi\u00f0 st\u00e6r\u00f0arinnar augl\u00fdsingar \u00e1 vi\u00f0bj\u00f3\u00f0i kapitalismans og neyslu\u00fej\u00f3\u00f6f\u00e9lagsins.\u201c \u00cd <em>Dagbla\u00f0inu<\/em> segir: \u201e\u00deetta er h\u00fan An\u00edta litla fr\u00e1 Esbjerg \u00ed Danm\u00f6rku sem er ekki nema 20 \u00e1ra a\u00f0 aldri, n\u00fdkomin \u00e1 \u00feetta st\u00e6r\u00f0arinnar Honda m\u00f3torhj\u00f3l.\u201c<\/p>\n<p>Upp \u00far \u00feessu eykst t\u00ed\u00f0ni \u00feessarar notkunar jafnt og \u00fe\u00e9tt og h\u00fan er n\u00fa mj\u00f6g algeng. Jafnframt f\u00e6kkar d\u00e6mum um a\u00f0 greinislausa myndin <em>st\u00e6r\u00f0ar<\/em> s\u00e9 notu\u00f0 \u00ed \u00feessu hlutverki og \u00fea\u00f0 vir\u00f0ist n\u00fa or\u00f0i\u00f0 frekar sjaldg\u00e6ft. \u00deannig eru u.\u00fe.b. fj\u00f3rum sinnum fleiri d\u00e6mi um <em>st\u00e6r\u00f0arinnar<\/em> en <em>st\u00e6r\u00f0ar <\/em>\u00ed \u00feessu hlutverki fr\u00e1 \u00e1runum 2020-2022 \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em>. En \u00fe\u00f3tt <em>st\u00e6r\u00f0arinnar<\/em> hafi \u00feannig a\u00f0 miklu leyti komi\u00f0 \u00ed sta\u00f0 <em>st\u00e6r\u00f0ar<\/em> \u00fe\u00fd\u00f0ir \u00fea\u00f0 ekki a\u00f0 myndirnar s\u00e9u jafngildar. M\u00e9r finnst <em>st\u00e6r\u00f0arinnar<\/em> vera \u00f3formlegra en <em>st\u00e6r\u00f0ar<\/em> og leggja meiri \u00e1herslu \u00e1 st\u00e6r\u00f0ina. \u00dear a\u00f0 auki er oft h\u00e6gt a\u00f0 l\u00edta svo \u00e1 a\u00f0 <em>st\u00e6r\u00f0ar <\/em>+ nafnor\u00f0 s\u00e9 \u00ed raun samsett or\u00f0 eins og \u00e1\u00f0ur segir, \u00f3h\u00e1\u00f0 \u00fev\u00ed hvort \u00fea\u00f0 er skrifa\u00f0 \u00ed einu e\u00f0a tvennu lagi, en s\u00e1 m\u00f6guleiki er ekki fyrir hendi me\u00f0 <em>st\u00e6r\u00f0arinnar<\/em>.<\/p>\n<p>\u00d3lj\u00f3st er hvernig \u00feessi notkun <em>st\u00e6r\u00f0ar<\/em> er til komin \u2013 e\u00f0a hvers vegna <em>st\u00e6r\u00f0arinnar<\/em> hefur komi\u00f0 \u00ed sta\u00f0inn. \u00c9g veit ekki til a\u00f0 \u00f6nnur merkingarlega samb\u00e6rileg or\u00f0 s\u00e9u notu\u00f0 \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt, svo sem <em>sm\u00e6\u00f0<\/em>, <em>h\u00e6\u00f0<\/em>, <em>lengd<\/em> o.s.frv. Helsta hli\u00f0st\u00e6\u00f0an sem \u00e9g man eftir er <em>heljar<\/em> sem hefur veri\u00f0 nota\u00f0 sem \u00e1hersluor\u00f0 a.m.k. s\u00ed\u00f0an \u00e1 19. \u00f6ld \u2013 \u201e\u00fev\u00edl\u00edk heljar vitleysa\u201c segir \u00ed <em>B\u00f3nda <\/em>1851. Myndin <em>heljarinnar<\/em> s\u00e9st fyrst \u00ed <em>Hamri<\/em> 1956: \u201eGu\u00f0bjartur bj\u00f3 til heljarinnar miki\u00f0 deig.\u201c \u00dear stendur or\u00f0i\u00f0 reyndar \u00ed st\u00f6\u00f0u atviksor\u00f0s, \u00fe.e. sem \u00e1kv\u00e6\u00f0isor\u00f0 me\u00f0 l\u00fdsingaror\u00f0i, en flj\u00f3tlega f\u00f3r <em>heljarinnar<\/em> a\u00f0 koma \u00ed sta\u00f0 l\u00fdsingaror\u00f0sins og yfirtaka merkingu \u00feess \u2013 \u201e\u00deessi n\u00fdi frelsisher hefur l\u00edka sett upp einn heljarinnar pott me\u00f0 hinni g\u00f6mlu \u00e1letrun\u201c segir \u00ed <em>Frj\u00e1lsri \u00fej\u00f3\u00f0<\/em> 1960.<\/p>\n<p>En um svipa\u00f0 leyti og fari\u00f0 er a\u00f0 nota <em>heljarinnar<\/em> kemur einnig til myndin <em>heljarins<\/em>, b\u00e6\u00f0i \u00ed st\u00f6\u00f0u atviksor\u00f0s og l\u00fdsingaror\u00f0s \u2013 \u201eEftir d\u00e1l\u00edtinn t\u00edma kom hann svo aftur og \u00fe\u00e1 sem heljarins mikil svertingjakerling\u201c segir \u00ed <em>Sk\u00e1tabla\u00f0inu <\/em>1952; \u201e\u00e1tti \u00fear a\u00f0 fara fram heljarins bardagi\u201c segir \u00ed <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu<\/em> 1975. Myndin <em>heljarins <\/em>l\u00edtur \u00fat eins og karlkynsor\u00f0 me\u00f0 greini, \u00fe\u00f3tt <em>hel <\/em>s\u00e9 vitanlega kvenkynsor\u00f0. En e.t.v. er ekki auglj\u00f3st fyrir \u00f6llum a\u00f0 <em>heljar <\/em>s\u00e9 eignarfall af <em>hel<\/em>, heldur er \u00fea\u00f0 skili\u00f0 sem karlkynsor\u00f0 og \u00feess vegna b\u00e6tt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 karlkyns greini. \u00deessi mynd var talsvert notu\u00f0 upp \u00far 1980 en vir\u00f0ist n\u00fa or\u00f0in frekar sjaldg\u00e6f. Aftur \u00e1 m\u00f3ti hefur <em>heljarinnar<\/em> veri\u00f0 mj\u00f6g algeng mynd fr\u00e1 1980 og s\u00e9rstaklega fr\u00e1 aldam\u00f3tum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r var \u00e1 V\u00edsi fr\u00e9tt me\u00f0 fyrirs\u00f6gninni \u201eSt\u00e6r\u00f0arinnar tr\u00e9 f\u00e9ll \u00e1 Tjarnarg\u00f6tu.\u201c \u00deessi fyrirs\u00f6gn var\u00f0 tilefni fyrirspurnar h\u00e9r \u00ed dag um notkun or\u00f0sins st\u00e6r\u00f0arinnar \u00ed \u00feessu samhengi \u2013 og vissulega er \u00fea\u00f0 ver\u00f0ugt athugunarefni sem \u00e9g hef aldrei leitt hugann a\u00f0. \u00deetta er auglj\u00f3slega eignarfall eint\u00f6lu me\u00f0 greini af nafnor\u00f0inu st\u00e6r\u00f0, en hefur \u00fearna [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-5156","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5156","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5156"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5156\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5159,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5156\/revisions\/5159"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5156"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5156"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5156"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}