{"id":5265,"date":"2023-07-16T14:28:59","date_gmt":"2023-07-16T14:28:59","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=5265"},"modified":"2023-07-16T14:32:52","modified_gmt":"2023-07-16T14:32:52","slug":"breyting-a-eignarfalli-kvenkyns-un-orda","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/07\/16\/breyting-a-eignarfalli-kvenkyns-un-orda\/","title":{"rendered":"Breyting \u00e1 eignarfalli kvenkyns -un-or\u00f0a"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd dag var nefnt h\u00e9r a\u00f0 algengt v\u00e6ri or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 forsetningin <em>vegna <\/em>st\u00fdr\u00f0i \u00f6\u00f0ru falli en eignarfalli, einkum \u00e1 kvenkynsor\u00f0um sem enda \u00e1 <em>-un<\/em> \u2013 sagt v\u00e6ri <em>vegna hl\u00fdnun<\/em>, <em>vegna lokun<\/em>, <em>vegna sko\u00f0un<\/em> o.s.frv. \u00deetta er svo sem ekki n\u00fdtt. Helgi Sk\u00fali Kjartansson vakti fyrstur m\u00e1ls \u00e1 \u00feessu \u00ed <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/5400057?iabr=on#page\/n107\/mode\/1up\/\">grein<\/a> sem heitir \u201eEignarfallsfl\u00f3tti\u201c \u00ed <em>\u00cdslensku m\u00e1li<\/em> 1979. Hann fjallar \u00fear um \u00fdmis d\u00e6mi \u00feess a\u00f0 \u00f6nnur f\u00f6ll en hef\u00f0bundi\u00f0 er s\u00e9u notu\u00f0 \u00ed sta\u00f0 eignarfalls og tekur m.a. d\u00e6mi eins og \u201eVegna [\u2026] r\u00f6skun \u00e1\u00e6tlunar\u201c. \u00cd sl\u00edkum d\u00e6mum getur tvennt komi\u00f0 til: Annars vegar breytt fallstj\u00f3rn, t.d. a\u00f0 <em>vegna <\/em>fari a\u00f0 stj\u00f3rna \u00feolfalli \u00ed sta\u00f0 eignarfalls, en hins vegar breyting \u00e1 einst\u00f6kum fallmyndum \u00e1kve\u00f0inna beygingarflokka, t.d. a\u00f0 kvenkynsor\u00f0 sem enda \u00e1 <em>-un<\/em> missi eignarfallsendinguna.<\/p>\n<p>Anna\u00f0 d\u00e6mi sem nefnt var \u00ed s\u00f6mu andr\u00e1 var eignarfall kvenkynsor\u00f0a sem enda \u00e1 <em>-ing<\/em> \u2013 <em>vegna byggingu h\u00fassins<\/em>. Um sl\u00edk d\u00e6mi skrifa\u00f0i \u00e9g einu sinni <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/08\/14\/eignarfall-ing-orda\/\">pistil<\/a> og taldi a\u00f0 \u00fear v\u00e6ri ekki um breytta fallstj\u00f3rn a\u00f0 r\u00e6\u00f0a, heldur hef\u00f0u sl\u00edk or\u00f0 tilhneigingu til a\u00f0 f\u00e1 <em>-u<\/em>-endingu \u00ed eignarfalli fyrir \u00e1hrif fr\u00e1 \u00feolfalli og \u00fe\u00e1gufalli. Vissulega m\u00e1 \u00edmynda s\u00e9r s\u00f6mu sk\u00fdringu \u00e1 d\u00e6mum eins og <em>vegna hl\u00fdnun<\/em> \u2013 \u00fear yr\u00f0i eignarfalli\u00f0 endingarlaust fyrir \u00e1hrif fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum f\u00f6llum or\u00f0sins. En \u00e1 \u00feessu tvennu er \u00fe\u00f3 s\u00e1 grundvallarmunur a\u00f0 endingarlaust eignarfall \u00e1 s\u00e9r engin ford\u00e6mi \u00ed kvenkynsor\u00f0um, nema \u00ed litlum h\u00f3pi or\u00f0a sem enda \u00e1 <em>-i <\/em>(<em>gle\u00f0i<\/em>, <em>rei\u00f0i<\/em> o.fl.). Eignarfallsendingin <em>-u<\/em> er aftur \u00e1 m\u00f3ti ending hins geysist\u00f3ra h\u00f3ps veikra kvenkynsor\u00f0a og \u00fev\u00ed mj\u00f6g algeng.<\/p>\n<p>En \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 sko\u00f0a d\u00e6mi um <em>vegna X-un<\/em> \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni<\/em>, \u00fe.e. d\u00e6mi \u00fear sem kvenkyns <em>-un<\/em>-or\u00f0 eru endingarlaus \u00ed eignarfalli \u00e1 eftir <em>vegna<\/em>, og fann margfalt meira en \u00e9g \u00e1tti von \u00e1 \u2013 h\u00e1tt \u00ed \u00fe\u00fasund d\u00e6mi. Fyrir utan fj\u00f6ldann kom \u00fea\u00f0 m\u00e9r l\u00edka \u00e1 \u00f3vart a\u00f0 meginhluti d\u00e6manna var \u00far tilt\u00f6lulega formlegum textum \u2013 einkum fr\u00e9ttum prentmi\u00f0la og vefmi\u00f0la, en einnig al\u00feingisr\u00e6\u00f0um, d\u00f3mum o.fl. \u00dea\u00f0 er samt r\u00e9tt a\u00f0 leggja \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 \u00fe\u00f3tt d\u00e6min s\u00e9u \u00feetta m\u00f6rg er hlutfalli\u00f0 ekki h\u00e1tt \u2013 d\u00e6mi um <em>X-unar<\/em>, \u00fe.e. \u00fear sem <em>vegna <\/em>tekur me\u00f0 s\u00e9r <em>-un<\/em>-or\u00f0 me\u00f0 endingunni <em>-ar<\/em>, eru r\u00fam 90 \u00fe\u00fasund. En \u00fe\u00fasund d\u00e6mi eru samt of m\u00f6rg til a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 afskrifa \u00feau sem villur af einhverju tagi, heldur hlj\u00f3ta \u00feau a\u00f0 vitna um a\u00f0 einhver breyting s\u00e9 \u00ed gangi.<\/p>\n<p>En er \u00feetta breyting \u00e1 fallstj\u00f3rn e\u00f0a beygingarmynd? Til samanbur\u00f0ar m\u00e1 nefna a\u00f0 23 d\u00e6mi eru um endingarlausu myndina <em>grun<\/em> \u00ed sambandinu <em>vegna grun um<\/em>. \u00dea\u00f0 eru ekki fleiri d\u00e6mi en svo a\u00f0 vel g\u00e6ti veri\u00f0 um innsl\u00e1ttarvillur a\u00f0 r\u00e6\u00f0a, \u00ed lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 d\u00e6min um <em>vegna gruns um <\/em>eru t\u00e6p 20 \u00fe\u00fasund. \u00deetta g\u00e6ti bent til \u00feess a\u00f0 breytingin v\u00e6ri einkum bundin vi\u00f0 kvenkynsor\u00f0 sem enda \u00e1 <em>-un<\/em> og \u00fev\u00ed um breytingu \u00e1 beygingarmynd a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. \u00deessi breyting vir\u00f0ist nefnilega ekki bundin vi\u00f0 forsetninguna <em>vegna <\/em>\u2013 \u00fea\u00f0 er l\u00edka t\u00f6luvert af d\u00e6mum um endingarlaus <em>-un<\/em>-or\u00f0 \u00e1 eftir forsetningunni <em>til<\/em> sem stj\u00f3rnar eignarfalli eins og <em>vegna<\/em>. \u00deetta eru d\u00e6mi eins og \u201eAukin upptaka af koltv\u00eds\u00fdringi \u00ed hafinu hefur leitt til s\u00farnun \u00feess\u201c \u00ed <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu <\/em>2021.<\/p>\n<p>Lausleg athugun bendir \u00fev\u00ed til \u00feess a\u00f0 d\u00e6mi eins og <em>vegna hl\u00fdnun <\/em>s\u00e9u frekar til marks um a\u00f0 kvenkyns <em>-un<\/em>-or\u00f0 s\u00e9u farin a\u00f0 missa eignarfallsendinguna en a\u00f0 fallstj\u00f3rn forsetningarinnar <em>vegna<\/em> s\u00e9 a\u00f0 breytast. \u00deetta \u00fearf \u00fe\u00f3 a\u00f0 kanna miklu n\u00e1nar, og vel m\u00e1 vera a\u00f0 einhver merki s\u00e9u l\u00edka um breytta fallstj\u00f3rn. \u00c9g hef yfirleitt engar \u00e1hyggjur af breytingum \u00e1 endingum einstakra or\u00f0a \u2013 \u00fea\u00f0 skiptir engu m\u00e1li fyrir m\u00e1lkerfi\u00f0 hvort vi\u00f0 segjum <em>hur\u00f0ir <\/em>e\u00f0a <em>hur\u00f0ar<\/em>, <em>tugs <\/em>e\u00f0a <em>tugar<\/em>, <em>vegna byggingu <\/em>e\u00f0a <em>vegna byggingar<\/em>, o.s.frv. En \u00f6\u00f0ru m\u00e1li gegnir um \u00fea\u00f0 \u00feegar ending fellur alveg brott \u00e1n \u00feess a\u00f0 nokku\u00f0 komi \u00ed sta\u00f0inn. \u00dea\u00f0 veikir eignarfalli\u00f0 sem er sjaldg\u00e6fast fallanna og stendur veikt fyrir. \u00deess vegna finnst m\u00e9r \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 reyna a\u00f0 sporna vi\u00f0 \u00feessari breytingu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd dag var nefnt h\u00e9r a\u00f0 algengt v\u00e6ri or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 forsetningin vegna st\u00fdr\u00f0i \u00f6\u00f0ru falli en eignarfalli, einkum \u00e1 kvenkynsor\u00f0um sem enda \u00e1 -un \u2013 sagt v\u00e6ri vegna hl\u00fdnun, vegna lokun, vegna sko\u00f0un o.s.frv. \u00deetta er svo sem ekki n\u00fdtt. Helgi Sk\u00fali Kjartansson vakti fyrstur m\u00e1ls \u00e1 \u00feessu \u00ed grein sem heitir \u201eEignarfallsfl\u00f3tti\u201c \u00ed \u00cdslensku [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-5265","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5265","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5265"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5265\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5267,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5265\/revisions\/5267"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5265"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5265"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5265"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}