{"id":5276,"date":"2023-07-19T22:38:28","date_gmt":"2023-07-19T22:38:28","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=5276"},"modified":"2023-07-19T22:38:28","modified_gmt":"2023-07-19T22:38:28","slug":"fyrsta-skoflustunga","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/07\/19\/fyrsta-skoflustunga\/","title":{"rendered":"(Fyrsta) sk\u00f3flustunga"},"content":{"rendered":"<p>\u00deegar meirih\u00e1ttar verklegar framkv\u00e6mdir hefjast fer oft fram t\u00e1knr\u00e6n ath\u00f6fn \u00fear sem tekin er <em>fyrsta sk\u00f3flustunga<\/em> a\u00f0 framkv\u00e6mdinni \u2013 sk\u00f3flu er stungi\u00f0 \u00ed j\u00f6r\u00f0 og hnausi velt vi\u00f0. \u00cd seinni t\u00ed\u00f0 eru reyndar stundum nota\u00f0ar <a href=\"https:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2006\/04\/06\/thorgerdur_katrin_og_bjorgolfur_toku_fyrstu_skoflus\/\">st\u00f3rvirkar vinnuv\u00e9lar<\/a> til a\u00f0 taka fyrstu sk\u00f3flustunguna. Or\u00f0alagi\u00f0 a\u00f0 taka <em>fyrstu sk\u00f3flustunguna<\/em> um upphaf framkv\u00e6mda er a.m.k. hundra\u00f0 \u00e1ra gamalt. Elsta d\u00e6mi\u00f0 \u00ed <em>T\u00edmariti \u00dej\u00f3\u00f0r\u00e6knisf\u00e9lags \u00cdslendinga<\/em> 1926: \u201eVar fyrst byrja\u00f0 \u00e1 j\u00e1rnbrautarlagningu sumari\u00f0 1877 og fyrstu sk\u00f3flustungunni varpa\u00f0 upp \u00e1 brautarst\u00e6\u00f0i\u00f0 13. j\u00fal\u00ed.\u201c Anna\u00f0 d\u00e6mi er \u00far <em>V\u00edsi <\/em>1927 \u00fear sem sagt er fr\u00e1 upphafi a\u00f0 byggingu st\u00fadentagar\u00f0s \u00e1 Sk\u00f3lav\u00f6r\u00f0uholti: \u201eEn vi\u00f0 fyrstu sk\u00f3flustungu, er byrja\u00f0 var \u00e1 verkinu, fann einn st\u00fadentanna gamla og ry\u00f0brunna skeifu.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd seinni t\u00ed\u00f0 er <em>fyrstu <\/em>oft sleppt og a\u00f0eins tala\u00f0 um a\u00f0 <em>taka sk\u00f3flustungu<\/em>. Elsta d\u00e6mi sem \u00e9g finn um \u00fea\u00f0 er \u00ed <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum <\/em>1961: \u201e\u00c1 \u00e1rinu 1961 er sem sagt ekki fari\u00f0 a\u00f0 taka sk\u00f3flustungu fyrir 410 \u00feessara 800 \u00edb\u00fa\u00f0a, sem \u00e1ttu a\u00f0 vera tilb\u00fanar 1960.\u201c \u00deetta ver\u00f0ur svo sm\u00e1tt og sm\u00e1tt algengara, einkum eftir 1980. N\u00fdlegt d\u00e6mi eru \u00far <em>V\u00edkurfr\u00e9ttum <\/em>2022: \u201eSamleg\u00f0in af \u00feessum \u00feremur verkefnum \u00fe\u00f3tti \u00fe\u00f3 nokkur og var tekin sk\u00f3flustunga a\u00f0 Hlj\u00f3mah\u00f6llinni \u00ed jan\u00faar 2008.\u201c \u00dearna er or\u00f0i\u00f0 <em>sk\u00f3flustunga <\/em>eiginlega or\u00f0i\u00f0 heiti \u00e1 tiltekinni ath\u00f6fn en ekki l\u00fdsing \u00e1 henni eins og <em>fyrsta sk\u00f3flustungan<\/em> er. Hugsanleg \u00e1st\u00e6\u00f0a g\u00e6ti veri\u00f0 s\u00fa a\u00f0 oftast er fyrsta sk\u00f3flustungan s\u00fa eina, en svo haldi\u00f0 \u00e1fram me\u00f0 vinnuv\u00e9lum \u2013 og s\u00fa fyrsta reyndar stundum l\u00edka tekin \u00feannig.<\/p>\n<p>En \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 algengt a\u00f0 nota or\u00f0i\u00f0 <em>sk\u00f3flustunga<\/em> eitt og s\u00e9r um \u00feessa ath\u00f6fn er <em>fyrsta sk\u00f3flustungan <\/em>samt margfalt algengari. Fr\u00e1 \u00e1rinu 2000 eru d\u00e6min um s\u00ed\u00f0arnefnda or\u00f0alagi\u00f0 h\u00e1tt \u00ed t\u00edu sinnum fleiri \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em>, og n\u00e6rri sj\u00f6 sinnum fleiri \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni<\/em>. \u00der\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 <strong>finnst<\/strong> m\u00e9r \u00e9g n\u00e6stum alltaf sj\u00e1 tala\u00f0 um <em>sk\u00f3flustungu<\/em>, \u00e1n <em>fyrstu<\/em>, og m\u00e9r <strong>finnst<\/strong> \u00e9g vera n\u00fdfarinn a\u00f0 sj\u00e1 sl\u00edk d\u00e6mi. En hvort tveggja reynist vera kolrangt \u2013 <em>sk\u00f3flustungan<\/em> ein og s\u00e9r er a.m.k. 60 \u00e1ra g\u00f6mul \u00ed m\u00e1linu, og margfalt sjaldg\u00e6fari en <em>fyrsta sk\u00f3flustungan<\/em>. M\u00e9r finnst \u00feetta gott d\u00e6mi um hversu brig\u00f0ul tilfinning okkar fyrir m\u00e1linu \u00ed kringum okkur getur veri\u00f0. Okkur finnst \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 erum ekki alin upp vi\u00f0 vera a\u00f0 \u00fatr\u00fdma \u00fev\u00ed sem vi\u00f0 erum v\u00f6n \u00fe\u00f3tt sta\u00f0reyndin s\u00e9 \u00f6nnur.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deegar meirih\u00e1ttar verklegar framkv\u00e6mdir hefjast fer oft fram t\u00e1knr\u00e6n ath\u00f6fn \u00fear sem tekin er fyrsta sk\u00f3flustunga a\u00f0 framkv\u00e6mdinni \u2013 sk\u00f3flu er stungi\u00f0 \u00ed j\u00f6r\u00f0 og hnausi velt vi\u00f0. \u00cd seinni t\u00ed\u00f0 eru reyndar stundum nota\u00f0ar st\u00f3rvirkar vinnuv\u00e9lar til a\u00f0 taka fyrstu sk\u00f3flustunguna. Or\u00f0alagi\u00f0 a\u00f0 taka fyrstu sk\u00f3flustunguna um upphaf framkv\u00e6mda er a.m.k. hundra\u00f0 \u00e1ra gamalt. [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-5276","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5276","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5276"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5276\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5277,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5276\/revisions\/5277"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5276"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5276"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5276"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}