{"id":5382,"date":"2023-08-21T18:20:09","date_gmt":"2023-08-21T18:20:09","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=5382"},"modified":"2023-08-21T18:21:27","modified_gmt":"2023-08-21T18:21:27","slug":"ad-stolta-sig-og-hreykja-sig","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/08\/21\/ad-stolta-sig-og-hreykja-sig\/","title":{"rendered":"A\u00f0 stolta sig og hreykja sig"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g s\u00e1 \u00e1 Facebook a\u00f0 athygli var vakin \u00e1 <a href=\"https:\/\/greynir.is\/page?id=bf1c25a0-3f48-11ee-bcca-d728d7ffec93\">fyrirs\u00f6gn<\/a> \u00ed <em>DV <\/em>\u00ed g\u00e6r \u2013 \u201eAfreka\u00f0i eitthva\u00f0 sem f\u00e1ir geta stolta\u00f0 sig af\u201c. \u00deessari fyrirs\u00f6gn haf\u00f0i flj\u00f3tlega veri\u00f0 breytt \u00ed \u201eAfreka\u00f0i eitthva\u00f0 sem f\u00e1ir geta hreykt sig af\u201c og a\u00f0 lokum \u00ed \u201eR\u00e6\u00f0ir afrek sit[t]\u201c <a href=\"https:\/\/www.dv.is\/433\/2023\/8\/20\/afrekadi-eitthvad-sem-fair-geta-stoltad-sig-af-svona-hann-ad-thessu\/\">eins og h\u00fan er n\u00fa<\/a>. V\u00e6ntanlega stafa breytingarnar af \u00fev\u00ed a\u00f0 ger\u00f0ar hafi veri\u00f0 athugasemdir vi\u00f0 fyrri ger\u00f0ir fyrirsagnarinnar. S\u00f6gnin <em>stolta<\/em> er ekki daglegt m\u00e1l, og s\u00f6gnin <em>hreykja<\/em> tekur venjulega \u00fe\u00e1gufallsandlag \u2013 <em>hreykja s\u00e9r<\/em>. En \u00fe\u00f3tt <em>stolta<\/em> s\u00e9 sjaldg\u00e6f er h\u00fan til \u00ed m\u00e1linu og meira a\u00f0 segja flettior\u00f0 \u00ed <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k<\/em>, me\u00f0 sk\u00fdringunni 'st\u00e6ra sig, hrokast, ofmetnast, hreykja s\u00e9r, gorta, raupa'. \u00cd <em>\u00cdslenskri samheitaor\u00f0ab\u00f3k <\/em>eru samb\u00f6ndin <em>stolta sig af<\/em> og <em>stolta sig yfir<\/em> l\u00edka \u00ed merkingunni 'st\u00e6ra sig af'.<\/p>\n<p>S\u00f6gnin <em>stolta <\/em>er g\u00f6mul \u00ed m\u00e1linu \u2013 elsta <a href=\"http:\/\/ritmalssafn.arnastofnun.is\/daemi\/457240\">d\u00e6mi<\/a> um hana \u00ed <em>Ritm\u00e1lssafni \u00c1rnastofnunar<\/em> er \u00far handriti s\u00e9ra P\u00e1ls Bj\u00f6rnssonar \u00ed Sel\u00e1rdal fr\u00e1 seinni hluta 17. aldar: \u201et\u00f3ku strax \u00feessir biskupar eftir Hieronymi daga a\u00f0 stoltast, og \u00fea\u00f0 stolt hefur til \u00feessa vaxi\u00f0 \u00ed p\u00e1fad\u00f3minum.\u201c Anna\u00f0 d\u00e6mi er \u00far <em>Fer\u00f0ab\u00f3k T\u00f3masar S\u00e6mundssonar<\/em> fr\u00e1 fyrri hluta 19. aldar: \u201eengin \u00fej\u00f3\u00f0 getur stolta\u00f0 af \u00fev\u00ed h\u00fan hafi \u00f6llum kennt\u201c. \u00cd lj\u00f3\u00f0i eftir Steingr\u00edm Thorsteinsson segir \u201e\u00de\u00e6r stj\u00f6rnur kunna a\u00f0 stolta af s\u00e9r\u201c, og s\u00f6gnin kemur einnig fyrir \u00ed <em>Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0u f\u00f3lki <\/em>Halld\u00f3rs Laxness: \u201eH\u00fan stolta\u00f0i yfir br\u00f3\u00f0ur s\u00ednum, sem hef\u00f0i enn ekki uppg\u00f6tva\u00f0 \u00feetta heimsfr\u00e6ga land hinna umkomulausustu drauma.\u201c \u00dearna eru notu\u00f0 samb\u00f6ndin <em>stolta af <\/em>og <em>stolta yfir<\/em>, en ekki me\u00f0 afturbeyg\u00f0u fornafni.<\/p>\n<p>\u00d6rf\u00e1 d\u00e6mi um <em>stolta sig<\/em> m\u00e1 finna \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em>, \u00fea\u00f0 elsta \u00ed <em>F\u00e1lkanum <\/em>1945: \u201eH\u00e9r birtist enn ein mynd af Shelley Winter, og er h\u00fan a\u00f0 \u00feessu sinni a\u00f0 stolta sig af hei\u00f0ursskjali, sem ma\u00f0ur hennar, M.P. Mayer, hlaut fyrir \u00e1g\u00e6ta frammist\u00f6\u00f0u \u00ed str\u00ed\u00f0inu.\u201c \u00cd <em>Verkamanninum <\/em>1965 segir: \u201eOg \u00cdslendingar stolta sig enn af bar\u00e1ttu gegn sterkara valdi en st\u00f3lsetumenn geta beitt \u00fe\u00f3 vilja vanti \u00fe\u00e1 ekki.\u201c \u00cd <em>Dagbla\u00f0inu <\/em>1977 segir: \u201e\u00cdslendingar hafa l\u00f6ngum stolta\u00f0 sig drj\u00fagum af \u00fev\u00ed, a\u00f0 \u00feeir noti ekki \u00e6ttarn\u00f6fn.\u201c \u00cd <em>Helgarp\u00f3stinum <\/em>1984 er tala\u00f0 um \u201e\u00fea\u00f0 eina sem vi\u00f0 eigum \u00e1 heimsm\u00e6likvar\u00f0a og getum stolta\u00f0 okkur af\u201c. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed lj\u00f3st a\u00f0 \u00fe\u00f3tt s\u00f6gnin <em>stolta <\/em>(<em>sig<\/em>) s\u00e9 vissulega sjaldg\u00e6f og hafi alltaf veri\u00f0 \u00e1 h\u00fan s\u00e9r langa s\u00f6gu og virtir rith\u00f6fundar hafa nota\u00f0 hana.<\/p>\n<p>En hva\u00f0 um n\u00e6stu ger\u00f0 fyrirsagnarinnar sem svo var einnig breytt \u2013 <em>hreykja sig<\/em>? F\u00e1ein d\u00e6mi um \u00feolfalli\u00f0 m\u00e1 finna \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em>, \u00fea\u00f0 elsta \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1947: \u201eHann er svo h\u00e1lsli\u00f0amj\u00fakur og \u00feeir fjelagar allir, a\u00f0 \u00feeir geta hreykt sig \u00ed hva\u00f0a \u00e1tt sem \u00feeim s\u00fdnist \u00ed \u00fea\u00f0 og \u00fea\u00f0 skipti\u00f0\u201c. \u00cd <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum <\/em>1988 segir: \u201e\u00dea\u00f0 er ekki til hrokafyllra f\u00f3lk en \u00feessir Skand\u00ednavar sem hreykja sig yfir a\u00f0ra.\u201c \u00cd <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu <\/em>1993 segir: \u201eH\u00fan f\u00f3r einnig \u00e1 stefnum\u00f3t me\u00f0 33 \u00e1ra g\u00f6mlum k\u00e1ntr\u00fds\u00f6ngvara og hreykti sig af \u00fev\u00ed sj\u00f3nvarpi.\u201c \u00cd <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu <\/em>2006 segir: \u201eBjarni hreykir sig l\u00edka miki\u00f0 af kaffi sta\u00f0arins.\u201c \u00cd <em>Fr\u00e9ttat\u00edmanum <\/em>2016 segir. \u201eEn fyrirt\u00e6ki\u00f0 sem \u201ekeypti\u201c kv\u00f3tann hreykir sig af \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa \u201etryggt s\u00e9r a\u00f0gang a\u00f0 100 \u00fe\u00fasund tonnum af hv\u00edtum fiski.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd <em>Risam\u00e1lheildinni <\/em>er 51 d\u00e6mi um <em>hreykja sig<\/em> \/ <em>mig<\/em>, f\u00e1ein \u00far prentmi\u00f0lum til vi\u00f0b\u00f3tar \u00feeim sem h\u00e9r hafa veri\u00f0 nefnd en u.\u00fe.b. 2\/3 af samf\u00e9lagsmi\u00f0lum. Notkun \u00feolfalls \u00ed \u00feessu sambandi vir\u00f0ist \u00fev\u00ed f\u00e6rast \u00ed v\u00f6xt, en er ekki or\u00f0in mj\u00f6g \u00fatbreidd og a\u00f0 mestu bundin vi\u00f0 \u00f3formlegt m\u00e1lsni\u00f0 enn sem komi\u00f0 er, og \u00fea\u00f0 er vafam\u00e1l hvort h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 l\u00edta svo \u00e1 a\u00f0 \u00fearna hafi n\u00fd m\u00e1lvenja skapast. \u00deess vegna hika \u00e9g vi\u00f0 a\u00f0 segja a\u00f0 fyrirs\u00f6gnin \u201eAfreka\u00f0i eitthva\u00f0 sem f\u00e1ir geta hreykt sig af\u201c hef\u00f0i m\u00e1tt standa. Aftur \u00e1 m\u00f3ti er ekkert vi\u00f0 upphaflegu fyrirs\u00f6gnina, \u201eAfreka\u00f0i eitthva\u00f0 sem f\u00e1ir geta stolta\u00f0 sig af\u201c, a\u00f0 athuga, og h\u00fan er \u00f3neitanlega rismeiri en \u201eR\u00e6\u00f0ir afrek sit[t]\u201c eins og fyrirs\u00f6gnin er n\u00fa. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 best a\u00f0 halda upphaflegri fyrirs\u00f6gn.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g s\u00e1 \u00e1 Facebook a\u00f0 athygli var vakin \u00e1 fyrirs\u00f6gn \u00ed DV \u00ed g\u00e6r \u2013 \u201eAfreka\u00f0i eitthva\u00f0 sem f\u00e1ir geta stolta\u00f0 sig af\u201c. \u00deessari fyrirs\u00f6gn haf\u00f0i flj\u00f3tlega veri\u00f0 breytt \u00ed \u201eAfreka\u00f0i eitthva\u00f0 sem f\u00e1ir geta hreykt sig af\u201c og a\u00f0 lokum \u00ed \u201eR\u00e6\u00f0ir afrek sit[t]\u201c eins og h\u00fan er n\u00fa. V\u00e6ntanlega stafa breytingarnar af \u00fev\u00ed [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-5382","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5382","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5382"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5382\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5384,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5382\/revisions\/5384"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5382"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5382"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5382"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}